Morgunblaðið - 17.06.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
AKUREYRI
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Hálfdán Kristjánsson verður áfram bæjarstjóri í Ólafsfírði
Umhverfís-, fræðslu- og
fráveitumál í brennidepli
Skógakirkja vígð
NÝJASTI dýrgripurinn í
Byggðasafninu á Skóguin
undir Eyjafjöllum er
Skógakirkja, sem vígð var
við hátíðlega athöfn á
sunnudaginn. Það var
biskup Islands, herra Karl
Sigurbjörnsson, sem vígði
kirkjuna, sem byggð er í
19. aldar stíl úr bygging-
arhlutum aflagðra kirkna
í nærliggjandi sýslum.
Kirkjukór Holtspresta-
kalls söng við athöfnina og
prestar úr Skaftafells- og
Rangárvallaprófastsdæm-
um þjónuðu fyrir altari.
Fjölmenni var við vígsl-
una, þar á meðal Björn
Bjarnason menntamála-
ráðherra og Þorsteinn
Pálsson kirkjumálaráð-
herra. Skógakirkja er
reist sem safnkirkja,
skólakirkja og grafar-
kirkja og teiknuð af Hjör-
leifi Stefánssyni arkitekt í
samráði við Þórð Tómas-
son, safnvörð í Skógum.
Vígsla kirkjunnar tengist
kristnitökuhátíð Rangæinga og
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
BISKUP Islands, herra Karl Sigur-
björnsson gengur út úr hinni nývígðu
Skógakirkju. Að baki honum er séra
Halldór Gunnarsson í Holti.
er framlag þeirra til minningar
um kristnitökuna árið 1000.
Morgunblaðið/Ingvi Árnason/Ingimundur
ÞAÐ var blíðskaparveður að Hamri er félagar í Golfklúbbi Borgarness
héldu upp á 25 ára afmæli félagsins.
Golfklúbbur
Borgarness 25 ára
HÁLFDÁN Kristjánsson verður
áfram bæjarstjóri í Ólafsfirði
næsta kjörtímabil en hann hefur
setið í stól bæjarstjóra sl. fimm og
hálft ár. „Þetta hefur verið góður
og ekki síður mjög lærdómsríkur
tími,“ sagði Hálfdán í samtali við
Morgunblaðið.
Hálfdán sagði helstu fram-
kvæmdir framundan í bæjarfélag-
inu snúa að umhverfis-, fræðslu-
og fráveitumálum. „Við erum að
vinna að fegrun bæjarins og taka
fyrir opin svæði. Við höfum þurft
að hafa ákveðin snjósöfnunar-
svæði en nú ætlum við að breyta
þeim þannig að þau verði
skemmtilegri á sumrin. í fráveitu-
málum á að ganga frá á þessu ári
áætlun um hvernig staðið verður
að þeim málum. Þetta eru fram-
kvæmdir sem þarf að vera búið að
ganga frá eigi síðar en árið 2005
og munu kosta um 100 milljónir
króna.“
Hyggjast leggja áherslu
á skólamál
I fræðslumálum þarf fyrst og
fremst að huga að skólamáium að
sögn Hálfdáns. „Við þurfum að
huga að innra starfi skólans og búa
vel að menntuðu starfsfólki. Skól-
inn er einsetinn en við þurfum að
tryggja að öll vinnuaðstaða sé
þannig að hún sé eftirsóknarverð.
En staðan í kennaramálum hér er
nokkuð góð.“
Gott atvinnuástand
Atvinnuástand í Ólafsfirði er
gott og er Hálfdán bjartsýnn á
framtíðina hvað atvinnumál varð-
ar. „Hér er komin festa í saltfisk-
verkun og einnig í hefðbundinni
frystingu og ég hef ekki ástæðu til
að ætla annað en að útlitið sé
bjart. Menn eru jafnframt að
þreifa fyiir sér á nýjum vígstöðum
til að víkka út og breikka grund-
völlinn og ég á ekki von á öðru en
að það muni skila sér.“
Ölafsfirðingar lentu í hremm-
ingum í atvinnumálum þegar
frystihúsi staðarins var lokað um
áramótin 1996-1997. Hálfdán sagði
að frystihúsið hafi verið lokað
fyrstu fjóra mánaða ársins ‘97 og
að það hafi vissulega skapað óróa í
bæjarfélaginu. „Þetta þýddi jafn-
framt að fólk fór að hugsa sér til
hreyfings og íbúatalan lækkaði í
um 1.100 manns. Síðan hefur þetta
verið að lagast og fólki að fjölga á
ný og svo virðist sem nokkur eftir-
spurn sé eftir húsnæði og þá frek-
ar eftir stærra húsnæði," sagði
Hálfdán.
Tveir listar voru í kjöri í sveitar-
stjómarkosningunum í vor, F-listi
sjálfstæðismanna og annarra
framfarasinnaða Ólafsfirðinga, og
Ó-listi vinstri manna og óháðra. F-
listi fékk fjóra bæjarfulltrúa en Ó-
listi þrjá.
Anna María forseti
bæjarstjórnar
Á fyrsta fundi bæjarstjórnar
fyrir helgi var Anna María Elías-
dóttir kjörin forseti bæjarstjórnar
og Helgi Jónsson fyrsti varafor-
seti. Ásgeir Logi Ásgeirsson var
kjörinn formaður bæjarráðs og
hann verður jafnframt formaður
atvinnumálanefndar.
Minný Eggertsdóttir verður for-
maður félagsmálanefndar, Helga
Guðrún Guðjónsdóttir formaður
leikskólanefndar, Helgi Jónsson
formaður menningarmálanefndar,
Gerorg Páll Rristinsson formaður
skipulags- og bygginganefndar,
Þorsteinn Ásgeirsson formaður
skólanefndar, Gunnlaugur Jón
Magnússon, formaður stjórnar
veitustofnana og Guðmundur
Garðarsson formaður tómstunda-
nefndar.
Auk Ásgeirs Loga sitja Anna
María Elíasdóttir og Guðbjörn
Arngrímsson í bæjarráði. Af þeim
sem hér hafa verið nefndir, eru all-
ir af F-lista, nema Guðbjörn Arn-
grímsson, sem er af Ó-lista.
Brautskrán-
ing MA
BRAUTSKRÁNING nýstúdenta
frá Menntaskólanum á Akureyri
fer fram í Iþróttahöllinni í dag, 17.
júní og hefst kl. 10.00. Þar flytur
Tryggvi Gíslason skólameistari
ræðu og fulltrúar afmælisárganga
sömuleiðis.
Að athöfn lokinni verða teknar
hópmyndir í Stefánslundi. Opið hús
í skólanum frá kl. 15-17 í dag og er
gestum boðið upp á kaffi og kökur
á Sal. Húsakynni skólans gömul og
ný, verða til sýnis og gestir fá inn-
sýn í vinnu nemenda.
Sjötíu ár eru liðin frá því fyrstu
stúdentar Menntaskólans á Ákur-
eyri brautskráðust frá Akureyri.
Fyrsti stúdentahópur skólans var
brautskráður í Reykjavík 1927 en
með leyfi kennslumálaráðheiTa
brautskráði skólinn stúdenta í
heimabyggð 1928.
--------------
Breytingar hjá
Snæfelli í Hrísey
Árni til
Frakklands
ÁRNI Ólafsson, rekstrarstjóri
Snæfells hf. í Hrísey hefur sagt
starfi sínu lausu og mun láta af
störfum hjá félaginu í lok ágúst nk.
Árni mun fara til starfa hjá Islensk-
um sjávarafurðum í Frakklandi.
Ársæll Kristófer Ársælsson hef-
ur verið ráðinn rekstrarstjóri í
Hrísey í stað Árna. Ársæll er sjáv-
arútvegsfræðingur að mennt og
hefur starfað sem gæðastjóri hjá
Snæfelli hf.
Aksjón
Miðvikudagur 17. júní
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur ætiaður
ferðafólki á Akureyri og Akureyringum
í ferðahug.
Fimmtudagur 18. júní
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur ætlaður
ferðafólki á Akureyri og Akureyringum
í ferðahug.
Borgarnesi - í ársbyrjun voru liðin
25 ár frá stofnun Golfklúbbs Borgar-
ness en hann var stofnaður í febrúar
1973. Haldinn var „opinn dagur“ á
Sjómannadaginn. Hittist svo
skemmtilega á að veður var sérstak-
lega gott, sólskin og blíða. Klúbbur-
inn bauð öllum íbúum sveitarfélags-
ins að koma á völlinn og kynnast
starfseminni. Gat fólk fengið tilsögn
í undirstöðuatriðum golfíþróttarinn-
ar og kynnt sér starfsemina og kann-
að aðstæður. Einnig voru öllum
boðnar veitingar. í tilefni af þessum
tímamótum færði Bæjarstjóm Borg-
arbyggðar klúbbnum myndarlegar
afmælistertur. Var ein þeirra
smækkuð mynd af fyrstu braut vall-
arins.
Golfvöllurinn að Hamri er níu
brauta völlur. Við vallarhúsið er pút-
tvöllur en neðar eru æfingaflatir.
Þai’ er kúlusjálfsali og þar geta allir
fengið leigðar kúlur til æfinga.
Vaxandi áhugi er á golfi í Borgar-
nesi og helgina áður var haldið fjöl-
mennasta innanfélagsmótið til þessa,
JGR four-tee mótið, en þá mættu á
völlinn um 60 manns. Næsta verk-
efni kylfinga í Borgamesi er Vestur-
landsmótið sem fram fer á Akranesi
laugardaginn 13. júní.
Frábær fyrirtæki
1. Spilasalur, einn sá glæsilegasti meðal þeirra sem tala íslensku.
Fullur salur af nýjustu tækjunum og það klingir í peningunum.
Lítill rekstrarkostnaður. Mikill hagnaður.
2. Sólbaðstofa á besta stað í borginni. Nýlegir bekkir, gufa og
nuddstofa. Mikið að gera enda vinsael stofa. Gott verð.
3. Gjafavöruverslun og blómabúð, sér kæli- og skreytingaher-
bergi. Frábær aðstaða til allra hluta. Með stærri gjafavöruversl-
unum landsins enda í fjölmennasta hluta borgarinnar á daginn.
Miklir möguleikar og frábær staðsetning. Stöðug söluaukning
mánuð eftir mánuð.
4. Austurlenskurveitingastaður, mjög þekktur og vinsæll. Nýjar
innréttingar, nýr kælir og mikið auglýst enda viðskiptin fjörug.
Mikil velta, gott verð.
5. Snyrtivörubúð, ein sú glæsilegasta á norðurhveli jarðar. Öll
helstu og bestu merkin. Nýjar ómetanlegar innréttingar. Fallegt
umhverfi og glaesilegurvinnustaðurfyrirfallegar konur. Laus
strax.
6. Sérverslun með leiki og þrautir, spil og töfl. Sú eina sinnar
tegundar og mjög þekkt, er einnig með leikföng. Staðsett í
þekktri verslunarmiðstöð. Laus strax. Selst á góðu verði.
7. Bílasala. Til sölu er ein af þekktari bílasölum borgarinnar.
Nú er mikill uppgangur í þessari grein og mikil bílasala. Öll
tölvuvædd og góður innisalur.
8. Hársnyrtistofa með mörgum stólum. Er staðsett í hjarta borgar-
innar þar sem ástin blómstrar, bjórinn freyðir og Ijósir lokkar
liðast. Ein sú glæsilegasta í borginni og ekki margar betur
staðsettar. Mikil viðskipti. Það er ekki oft sem svona góðar
stofur losna og svona vel staðsettar auk þess að vera með
bullandi viðskipti. Þeir meistarar sem eru að leita að góðu
dæmi ættu að koma strax.
9. Ein þekktasta og flottasta gjafavöruverslun landsins á einum
besta stað landsins fyrir slíka verslun. Ótrúlega fallegur um-
búnaður og landsþekktar glæsivörur í gegnum áratugi. Frábært
tækifæri fyrir skynsamt fólk og á verði sem þið ekki trúið.
Heimsþekkt umboð fylgja með.
10. Tónlistarverslun ein sú fullkomnasta í Evrópu. Splunkuný spil-
unar- og hlustunartæki og allar nýjustu sveiflurnar. Frábært
tækifæri fyrir þá sem eru inni í músík og vilja lifa af henni.
Svona glæsileg fyrirtæki koma sjaldan inn í sölu.
11. Einstakur veitingastaður sem sagður er af sérfræðingum einn
sá besti á allri kúlunni. Menn eru krýndir fyrir og eftir hverja
máltið. Dæmi um frábæran árangur snillinga. Getur verið laus
strax þó aðalvertíðin sé rétt að byrja.
12. Að lokum, tölvugrafík, fyrirtæki með feikilega mikið af verkefn-
um, upp fyrir haus, ef menn nenna að vinna og þéna. Þarf
enga sérþekkingu og tekjurnar eru ótrúlega miklar. Sanngjarnt
verð fyrir þá sem eru fljótir að hugsa.
13. Föndurvörur. Ein þekktasta verslunin í höfuðborginni með
föndurvörur til sölu af sérstökum ástæðum. Námskeiðahald.
Frábær staðsetning. Mikil veltuaukning. Eiginn innflutningur
að mestu. Falleg og skemmtileg verslun með eldheitar vörur.
Nú eru allir að föndra.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
HMiTT^TEfíaBTI
SUOURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.