Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HJÓNIN Magndís Alexandersdóttir og Sigurþór Hjör-
leifsson reka fyrirtækið Dekk og smur hf. í Stykkis-
hólmi. Nýlega opnuðu þau skoðunarstöð fyrir bifreiðar
í samstafi við Frumherja hf.
ÓLAFUR Hilmar Sverrisson bæjarstjóri og Ósk-
ar Eyjólfsson forstöðumaður Frumherja klippa á
borðann þegar ný skoðunarstöð var opnuð í
Stykk-ishólmi í húsnæði Dekk og smur hf.
Skoðunarstofa tekur til
starfa í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Hinn 4. júní var
formlega tekin ný notkun ný bfla-
skoðunarstöð í Stykkishólmi. Bæjar-
búum var af þessu tilefni boðið upp á
veitingar. Það er fyrirtækið Dekk og
smur hf. í Stykkishólmi í samvinnu
við Frumherja hf. sem standa að
skoðunarstofunni. Dekk og smur hf.
hefur keypt og sett upp tæki sem til
þarf að skoða bifreiðar og mun
Frumherji leigja aðstöðuna.
Með þessu er búið að eyða óvissu í
bílskoðunarmálum í Stykkishólmi.
Hólmarar höfðu óttast að slíka þjón-
ustu þyrfti að sækja annað en því
fylgja að sjálfsögðu óþægindi. Dekk
og smur hf. var stofnað fyrir 4 árum
. Það eru hjónin Magndís Alexand-
ersdóttir og Sigurþór Hjörleifsson
sem eiga og reka það. Sigurþór
vinnur á verkstæðinu, en Magndís
annast bókhald og peningamál. Eins
og nafn fyrirtækisins ber með sér er
aðaláhersla lögð á dekkjaviðgerðir
og olíuskipti. Þau hjón hafa verið
dugleg við að efla fyrirtækið með
bættum tækjakosti og er bifreiða-
skoðunin nýjasta dæmið um það.
Fyrirtækið hefur boðið upp á
góða þjónustu og er sérstaklega
gott að leita til Sigurþórs, sem alltaf
er tilbúinn að aðstoða viðskiptavin-
ina hvort sem það er að kvöldi eða
um helgar. Ætlunin er að hægt
verði að skoða bíla tvisvar í mánuði.
Þá koma starfsmenn Frumherja
vestur, en þeir sjá um að skoða bif-
reiðarnar. Nánara fyrukomulag
skoðunarinnar verður auglýst nánar
síðar.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
STANDANDI frá vinstri: Helgi Haildórsson bæjarstjóri, Helga Hreins-
dóttir (F), Jón Kr. Arnarson (F), Katrín Ásgrímsdóttir (B), Sigrún
Harðardóttir (D), Soffía Lárusdóttir (D), Stefán Bragason bæjarritari
og Broddi Bjarnason (B). Sitjandi: Skúíi Björnsson (B), Vigdís Svein-
björnsdóttir (B) og Halldór Sigurðsson (B).
Ný bæjarstjórn fundar
Egilsstaðir - Nýkjörin bæjarstjórn á
Austur-Héraði hélt sinn fyrsta bæj-
arstjórnarfund nýlega. Meh-ihluta-
samstarf verður í höndum Fram-
sóknarflokks og samtakanna Félags-
hyggju við Fljótið, en þeh- verða
samtals með sjö af níu fulltrúum bæj-
arstjómar. Sjálfstæðisflokkur verður
í minnihluta með tvo fulltrúa.
Forseti bæjarstjómar er Broddi
B. Bjarnason og formaður bæjamáðs
er Jón Kr. Amarson. Á þessum
fyi’sta fundi var kosið í hluta af þeim
nefndum og ráðum sem starfa á veg-
um bæjarins. Helgi Halldórsson
mun gegna störfum bæjarstjóra þar
til nýr hefur verið ráðinn.
Auglýst hefur verið eftir nýjum
bæjarstjóra og rennur umsóknar-
frestur út 15. júní.
Skjólskógar und-
irbúa sáningu
Gönguferðin byrjar hjá okkur
VINTERSPORT
ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG
BlLDSHÖFÐA - Bíldshöfða 20 - Sími: 510 8020
Atvinnuvegasýn-
ing á Húsavík
MIÐNÆTURSOL, sjúkrahúsbún-
ingar, þvottaskjóður, fjailajeppar,
húðvörur, rúnakerti, bókaútgáfa og
steinhellur eru meðal þess sem verð-
ur til sýnis á atvinnuvegasýningunni
Stórþing ‘98 á Húsavík um næstu
helgi.
Atvinnuvegasýningunni er ætlað
að vekja athygli á fjölbreyttu at-
vinnulífl Þingeyinga. Yfír 50 einstak-
lingar og fyrirtæki taka þátt í Stór-
þingi ‘98. I fréttatilkynningu frá At-
vinnuþróunarfélagi Þingeyinga, sem
sér um framkvæmdina, segir að
vænta megi skemmtilegrar sýningar.
Á sýningunni megi fínna flest það
sem Þingeyjarsýslur hafi upp á að
bjóða.
Nýstofnaðri Hvalamiðstöð verður
hleypt af stokkunum um helgina, en
henni er ætlað að halda utan um þá
starfsgrein sem vaxið hefur á Húsa-
vík í kringum hvalaskoðun. Boðið
verður upp á ferðir á vegum Hvala-
miðstöðvarinnar 18.-23. júní og sér-
stök áhersla lögð á fræðslu um þessa
stærstu skepnu jarðar, segir í frétta-
tilkynningu.
Flateyri - Athygli manna var vakin
snemma morguns þegar þyrla frá
Þyrluþjónustunni hóf að selflytja
loðnunætur upp að vamargörðun-
um á Flateyri. Þegar betur var að
gáð kom i ljós að hér var á ferð
verktakinn Skjólskógar sem bauð
lægst í sáningu og uppgræðslu
garðanna.
Það var vaskur hópur manna
undir stjórn Sæmundar Þorvalds-
sonar verkstjóra sem flatti út nótina
á görðunum. Þegar er búið að sá 20
þúsundum græðlingum, en gert er
ráð fyrir 30 þúsund tráplöntum í
garðana að aflokinni sáningu. Um
mykjudreiflngu og frædreifingu sér
undirverktakinn Afrek ehf. á Flat-
eyri, en þeir hafa fest kaup á sér-
stökum sprautusáningartanki vegna
verksins.
Flugstjóri þyrlunnar, Jón Kjart-
an Bjömsson, var ánægður með
hversu fljótt og vel gekk að leggja
loðnunæturnar, en mjög erfítt hefði
verið fyrir hann að fylgjast með
lagningu nótarinnar úr þyrlunni. Til
þessa naut hann aðstoðar starfs-
manns á görðunum sem leiðbeindi
honum áfram.
Flateyri úr lofti
Fréttaritara Morgunblaðsins
bauðst tækifæri til að fara einn túr
með þyrlu Þyrluþjónustunnar og
mynda Flateyri og vamargarðana úr
lofti. Flogið var út fyrii- odda Flat-
eyrar og síðan inn yfir bæinn í átt að
varnargörðunum. Því næst var stað-
næmst og myndað niður eftir úr hlíð-
inni með Flateyri í bakgranni en odd
„bókstafsins" Á í forgranni.
Skógarhögg í Tryggva-
garði á Selfossi
ATHABASCA 60
Klassískur bakpoki með
áföstum hliðarvösum. Ertil
með sérstakri burðargrind
fyrir konur.
TIGHT
MOHAWK
Skemmtilegur bakpoki fyrir
alla. Faest í mörgum stæroum.
Frábær bakpoki í stuttar
ferðir.
Eitt mesta úrval landsins af fjalla-og útivistarbúnaði. Bakpokar,
gönguskór, fatnaður, tjöld, svefnpokar ofl. ofl.
Selfossi - Mikil umræða hefur ver-
ið á Selfossi um þá ákvörðun að
fella tré í Tryggvagarði til þess
að hliðra til fyrir viðbyggingu
Sandvíkurskóla. Viðbyggingin
hefur verið samþykkt og sam-
kvæmt teikningu á hún að rísa á
bakfóð skólans og út í Tryggva-
garð.
Eitt þeirra tijáa sem fella
þurfti var rúmlega 50 ára gamalt
grenitré, gróðursett lýðveldisárið
1944 og er á meðal eldri greni-
trjáa landsins. Það tók starfs-
menn garðyrkjudeildar Selfoss-
bæjar ekki langan tíma að fella
trén og óneitanlega fylgdu
blendnar tilfínningar þessari
framkvæmd þar sem trén í
Tryggvagarði eru hluti af minn-
ingum margra bæjarbúa.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
FRÁ skógarhöggi í Tryggva-
garði á Selfossi.
Morgunblaðið/Egill Egiisson
FLATEYRI séð úr háloftunum.
ALPINE TREK 55
Léttur og fjölhæfur bakpoki
fyrir frístundasportarann.
TOKIAK 65
NORTH RIM 70
Bakpoki í hæsta qæðaflokki.
Vinsæll meðal fjallamanna.
Bakpoki í hæsta gæðaflokki.
Lausir hliðarvasar.
Fyrir þá sem gera kröfur.
Haglofs
390: