Morgunblaðið - 17.06.1998, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
c,KONDÍTORf
Copenhagen
uV2?/* masv xAal //%<£</& 4^
Suðurlandsbraut 4a • Sími 588 1550
ERLENT
Mikið umrót á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum og víðar
Aðgerðaleysi
Japana veld-
ur áhyggjum
VERÐBRÉFAMIÐLARAR í kauphöllinni í New York
fylgdust grannt með skjám sínum í gær.
Reuters
MIKIÐ umrót hefur verið á verð-
bréfamörkuðum í Bandaríkjunum
og víðar í heiminum vegna fjár-
málakreppunnar í Asíu og gengis-
lækkunar japanska jensins. Fast
er nú lagt að stjórn Japans að gera
strax ráðstafanir til að rétta efna-
hag landsins við og afstýra hætt-
unni á því að kreppan breiðist út
um allan heim, en margir hagfræð-
ingar efast þó um að stjórnin geri
það sem þurfi til að blása lífi í efna-
haginn.
Gengi Bandaríkjadollars lækk-
aði í gær gagnvart jeninu vegna
vangaveltna um að seðlabankar
heimsins myndu gera ráðstafanir
til að styrkja jenið eftir gengisfall
þess að undanfomu. Óttast er að
haldi gengi jensins áfram að falla
geti það valdið hrinu gengisfellinga
í nágrannaríkjunum, sem myndi
magna kreppuna í Austur-Asíu og
gæti síðan valdið heimskreppu.
Lágt gengi japanska jensins hef-
ur orðið til þess að útflutningur
Kínveija hefur minnkað en stjóm-
in í Peking hefur staðist þá freist-
ingu að lækka gengi kínverska
gjaldmiðilsins til að bæta sam-
keppnisstöðu kínverskra fyrir-
tækja og hætta á að kynda frekar
undir kreppunni í nágrannaríkjun-
um. Stjómvöld í Bandaríkjunum
og Evrópu hafa lagt fast að stjóm
Japans, næststærsta efnahagsveld-
is heims, að gera strax gangskör að
því að rétta efnahaginn við og auð-
velda nágrannaríkjunum að vinna
sig út úr kreppunni.
Japönsk fyrirtæki hafa einnig
hvatt stjómina til að takast á við
meinsemdir efnahagsins, leysa
vanda bankanna og breyta skatt-
kerfinu sem þau segja að örvi ekki
nægilega sjálfstæðan atvinnurekst-
m- í landinu. Bandaríkjastjóm hef-
ur lagt mesta áherslu á að gerðar
verði róttækar breytingar á jap-
anska bankakerfinu vegna mikilla
vanskila sem hafa orðið til þess að
bankamir em mjög tregir til að
veita ný lán, jafnvel til vel stæðra
fyrirtækja. Japanska stjómin er
hins vegar treg til að grípa til
slíkra aðgerða þar sem hún óttast
að mörg fyrirtæki verði gjaldþrota.
Vildi sljórnin gengislækkun?
Ryutaro Hashimoto, forsætis-
ráðherra Japans, kvaðst í gær
vera staðráðinn í að koma í veg
fyrir að fjármálavandi landsins
stuðlaði að heimskreppu en nokkr-
ir hagfræðingar í Tókýó sögðust
efast um að stjómin gerði sér fulla
grein fyrir því hversu alvarlegur
vandinn væri orðinn. „Landsfram-
leiðslan hefur snarminnkað og
stjómin hefur ekki mótað neina
stefnu til að snúa þróuninni við,“
sagði einn þeirra.
The New York Times skýrði frá
því í gær að nokkrir ráðgjafar Bills
Clintons Bandaríkjaforseta væm
jafnvel þeirrar skoðunar að jap-
anska stjómin hefði viljað að gengi
jensins lækkaði, þótt það græfi
undan efnahag nágrannaríkjanna.
Lágt gengi jensins hefur orðið til
þess að útflutningsvömr Japana
hafa lækkað í verði og útflutningur
annarra Asíuríkja til Bandaríkj-
anna og Asíu minnkað.
„Það sem er að gerast í Japan
hefur skaðað öll nágrannaríkin og
veldur miklu ójafnvægi í heimin-
um,“ sagði Charlene Barshefsky,
viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna.
Kreppan farin að
hafa áhrif í Ameríku
Fjármálakreppan í Asíu hefur
haft áhrif i öðrum heimsálfum.
Hún varð til þess að gengi banda-
rískra hlutabréfa lækkaði um 2,3%
að meðaltali í fyrradag og það er
mesta lækkun frá því í janúar.
„Fjárfestar á bandaríska hluta-
bréfamarkaðnum hafa nú miklar
áhyggjur af því að kreppan í Asíu
sé að breiðast út til Bandaríkj-
anna,“ sagði Ed Yardeni, aðalhag-
fræðingur Deutsche Morgan Gren-
feld.
Gengi hlutabréfa lækkaði einnig
um 5,7% í Hong Kong í fyrradag,
5,7% í Tælandi, 4,8% í Suður-
Kóreu, 3,5% í Singapore og 1,3% í
Japan. Gengislækkunin hélt síðan
áfram í flestum Asíuríkjanna í gær.
Gengi hlutabréfa í Hong Kong er
nú helmingi lægra en það var þeg-
ar kreppan hófst í Asíu fyrir tæpu )
ári.
Kreppan hafði einnig áhrif í Ró-
mönsku Ameríku og gengi hluta- I
bréfa í Brasilíu lækkaði um 5,3%
og í Mexíkó um 4%. Gengi rúss-
neskra hlutabréfa lækkaði um
7,3% og hefur ekki verið jafn lágt
frá því í október 1996. Kreppan
hefur haft minnst áhrif í evrópsk-
um kauphöllum.
Margir hagfræðingar spáðu því
fyrir nokkrum mánuðum að efna- I
hagur Austur-Asíuríkjanna myndi |
rétta úr kútnum á næsta ári en .
fjármálavandinn í Japan hefur orð- '
ið til þess að flestir spá því nú að
kreppan í þessum heimshluta vari
miklu lengur.
SKÓHÖLLIN
COSMO
ecco
Gangur lífsins
Palestínsku sjálfsstjórnarsvæðin
Yassin leyft
að snúa aftur
Tel Aviv, Jerúsalem. Daily Telegraph, Reuters
ÍSRAELSSTJÓRN hyggst veita Ah-
med Yassin, andlegum leiðtoga
Hamas-samtakanna, leyfi til að snúa
aftur til Gaza, þar sem þau teija að
hann geti valdið meiri skaða erlendis
en undir eftirliti palestínskra ráða-
manna.
Yassin er sagður hafa safnað millj-
ónum til styrktar Hamas í 14 vikna
fjáröflunarferð um arabalönd og er
nú staddur í Súdan þar sem hann hef-
ur beðið ákvörðunar ísraelsstjómar.
Talið er að heimkoma hans geti veikt
stöðu Yassers Arafats, leiðtoga Pa-
lestínumanna, sem að undanfórnu
hefur átt í vök að verjast vegna bágs
efnahagsástands og árangurlausra
friðarviðræðna við ísraelsstjóm.
Arafat hóf stjómarmyndunarvið-
ræður í gær en framkvæmdastjórn
Frelsissamtaka Palestínu (PLO) )
samþykkti í síðustu viku að gerðar |
yrðu breytingar á stjóm sjálfstjóm-
arsvæðanna. Hefur Arafat m.a ann- I
ars boðið fulltrúum Hamas-samtak-
anna á sinn fund þrátt fyrir hávær
mótmæli ísraela og Bandaríkja-
manna, sem krefjast harðra aðgerða
gegn samtökunum.
Arafat hyggst jafnframt reka Fai-
sal Husseini, sem farið hefur með
málefni Austur-Jerúsalem, vegna
deilna um fjárframlög sem Husseini j
safnaði á ferð sinni um Saudi-Arabíu.