Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 27
ERLENT
Karbaschi
neitar
RÉTTARHÖLD yfír borgar-
stjóranum í Teheran,
Gholamhossein Karbaschi,
hófust á ný í gær, en hann er
sakaður um spillingu. Hann
sagði fyrir réttinum í gær að
háttsettum mönnum í írönsku
stjóminni hefði verið fullkunn-
ugt um að hann notaði eigur
borgarinnar til þess að verð-
launa mikilvæga starfsmenn.
Þetta er í þriðja sinn sem
Karbaschi kemur fyrir rétt-
inn, en stuðningsmenn hans
segja handtöku hans og rétt-
arhöldin yfír honum vera af
pólitískum toga. Karbaschi,
sem er mikílvægur stuðnings-
maður Mohammads Khatamis
forseta, fullyrti í gær að hann
hefði aldrei farið út fyrir vald-
svið sitt, og að æðstu mönnum
ríkisins hafi verið kunnugt um
hvað hann hafi verið að gera.
Talebanar
loka skólum
STJÓRN Talebana í Afganist-
an hefur tilkynnt að öllum
stúlknaskólum og verk-
námsmiðstöðvum fyiár stúlkur,
yngi'i en 12 ára, verði lokað þar
sem þær gangi gegn trúar-
brögðum múhameðstrúar-
manna og séu gróðrarstía
áróðurs gegn stjóm þeirra.
Maulvi Qalamuddin, yfírmaður
trúarlögreglu Talebana, segir
útlendinga hafa notað mið-
stöðvarnar til að koma áróðri á
framfæri en viðurkennir þó að
engar sannanir hafí fundist um
slíkt. Þá segir hann að stjórn
Talebana hyggist koma á fót
eigin verknámsmiðstöðvum.
Misferli
sameiningar
MARGVÍSLEG fjármálamis-
ferli í tengslum við sameiningu
Þýskalands árið 1990 eru talin
hafa kostað þýska þjóðarbúið
þrjá til tíu milljarða marka
(jafnvirði 120 til 400 milljarða
íslenskra króna), samkvæmt
skýrslu sem birt var þar í landi
í gær.
Þingmaðurinn Volker Neu-
mann, sem vann að skýrslunni,
segir að margir þessara glæpa
muni aldrei koma upp á yfír-
borðið þar sem frestur til að
kæra þá renni út árið 2000.
Hörð átök í
Guinea-Bissau
HÖRÐUSTU átök sem orðið
hafa í uppreisninni í Guineu-
Bissau brutust út í höfuðborg-
inni Bissau í gær, á tíunda
degi. Háttsettur foringi í
stjórnarhernum sagði í gær að
yfirvöld hefðu náð undirtökun-
um í baráttunni við byltingar-
sinna.
Skipt um
hjólabúnað
TALIÐ er að það muni taka 15
daga að skipta um hjól undir
59 þýskum ICE hraðlestum
sem teknar voru til nákvæmr-
ar skoðunar eftir að tæplega
100 manns létust í slysi, sem
rakið er til bilunar í hjólabún-
aði, 3. júní síðastliðinn. Miklar
seinkanir hafa orðið í þýska
lestarkerfínu frá því lestirnar
voru teknar úr umferð.
Grænlenskur þingmaður hefur tak á dönsku stjórninni
Vill fjárframlög gegn stuðningi
ÞRÁTT fyrir að danska stjórnin
telji sig hafa tryggt sér meirihluta á
þingi fvrir umdeildum efnahagsráð-
stöfunum, sem kenndar hafa verið
við hvítasunnu, kann þó enn að
koma babb í bátinn við atkvæða-
greiðsluna um þær. Annar tveggja
þingmanna Grænlendinga, jafnað-
armaðurinn Hans Pavia Rosing,
lýsti því yfir að óvíst sé hvort hann
greiði atkvæði með ríkisstjórnini.
Takist stjórninni að fá Einingar-
lista og Sósíalíska þjóðarflokkinn til
að styðja frumvarpið, eins og fast-
lega er búist við, veltur meirihlutinn
á einu atkvæði. Nýverið lýsti Fær-
eyingurinn og hægrimaðurinn Óli
Breckmann því yfir að hann myndi
styðja efnahagsaðgerðir stjórnar-
innar vegna þess hve ánægður hann
væri með nýgerðan samning Dana
og Færeyinga og var þar með talið
að hvítasunnupakki stjómarinnar
væri í höfn.
Nú hefur Rosing hins vegar lýst
því yfir að hann hafi ekki ákveðið
hvort hann greiði atkvæði með
efnahagsaðgerðunum. Útilokar
hann ekki að hann krefjist þess að
stjómin gi-eiði sem svarar til fimm
milljarða ísl. ki'. til endurbóta á op-
inberum byggingum á Grænlandi,
gegn því að hann styðji frumvarpið.
Fyrir nokkram vikum reyndi
Mogens Lykketoft, fjáraiálai'áð-
herra Danmerkur, að fá hinn græn-
lenska þingmanninn, Ellen Kristen-
sen, til að styðja stjórnina, en hún
neitaði og fékk skammir frá Rosing
og Jonathan Motzfeldt, formanni
landsstjórnarinnar, fyrir að varpa
grænlenskum hagsmunum fyrir
róða. Nú er komið annað hljóð í
strokkinn. „Ef ég stæði í hans spor-
um myndi ég óska eftir tryggingu
fyrir því að stjórnin væri reiðubúin
að semja um endurbyggingarsjóð-
inn,“ segir Motzfeldt. „En Rosing
verður að eiga það við samvisku
sína hvort hann greiðir atkvæði með
hvítasunnupakkanum eður ei.“
Yilmaz fellst
á afsögn
Ankara. Reuters.
MESUT Yilmaz, forsætisráð-
herra Tyi'klands, hefur gert
samning við vinstrisinnaða
stjórnarandstæðinga um að hann
segi af sér ekki síðar en í desem-
ber og efnt verði til þingkosninga
í apríl.
Yilmaz undirritaði samning
þessa efnis við Deniz Baykal, leið-
toga vinstrimanna sem era í
oddastöðu á þinginu, í fyrrakvöld.
Vinstrimennirnh' höfðu lofað að
styðja efnahagsumbætur stjóm-
arinnar ef Yilmaz léti af embætti
og féllist á að mynduð yrði „óháð
stjóm“ sem yi'ði við völd fram að
kosningum á næsta ári.
aksturseiginleikar
Subaru Impreza er með sítengt aldrif, jafn sem
beinskiptur og sjálfskiptur. Þess vegna hefur hann
mun meira veggrip, og því betri aksturseiginleika,
en aðrir bílar í sínum stærðarflokki. Bíllinn hefur
líka 19 cm veghæð, ásamt háu og lágu drifi, en
engu að síður lágan þyngdarpunkt, svo það er
ekki að furða að Impreza hefur skilað Subaru
heimsmeistaratitli í rallakstri oftar en tölu tekur.