Morgunblaðið - 17.06.1998, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Brúðulist í
sólarblíðu
LEIKLIST
It r ú ð u b fl I i n n
BRÚÐUR, TRÖLL
OG TRÚÐAR
eftir Helffu Steffensen og Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur. Leikstjóri:
Sigrún Edda Bjömsdóttir. Brúðu-
stjórn: Helga Steffensen, Sigrún
Erla Sigurðardóttir og Frímann
Sigurðsson. Leikraddir: Helga
Steffensen, Júlíus Brjánsson,
Pálmi Gestsson og Sigrún Edda
Björnsdóttir. Tónlistar- og upp-
tökustjóri: Vilhjálmur Guðjónsson.
Vfsur: Davíð Þór Jónsson, Sigríð-
ur Hannesdóttir o.fl. Búningar:
Ingibjörg Jónsdóttir. Brúðuhönn-
un: Helga Steffensen. Fiskar:
Erna Guðmarsdóttir. Árbæjar-
safn, 11. júnf.
ÞESSA DAGANA er Brúðubíll-
inn, leikhús Helgu Steffensen, á
ferð um borgina með glænýja sýn-
ingu handa bömum og öðrum að-
dáendum brúðuleikhúss. Eins og
íýrri sýningar Brúðubílsins er hér
um að ræða samsetta sýningu þar
sem blandað er saman stuttum
sögum og söngvum og leitast er
við að skemmta og fræða um leið.
Bömin er óspart hvött til þátttöku,
talað er beint til þeirra, þau spurð
spuminga og látin syngja með.
Þannig er athygli þeirra fónguð út
alla sýninguna og þau skemmta
sér konunglega flestöll.
Að mörgu leyti fannst mér þessi
sýning Brúðubílsins metnaðar-
fýltri en þær sem ég hef áður séð.
Þetta er þriðja sumarið sem þær
Helga Steffensen og Sigrún Edda
Bjömsdóttir vinna saman að sýn-
ingu Brúðubflsins og kannski verð-
ur samvinna þeirra æ betri með
tímanum. Handrit þeirra stall-
systra er mjög skemmtilega sam-
sett. Byrjað er á trúðleik og
fræðslu um hvemig hinum ýmsu
gerðum brúðanna er stjómað á
bak við tjöldin. Þó er hér leikið
með mörk leiks og raunveruleika
þegar brúðumar taka skyndilega
upp á því að neita að hlýða stjóm-
endum sínum og reynast jafnvel
lifandi.
Þá er fluttur lítill söngleikur um
hafið og lífríki þess (í tilefni þess
að árið 1998 er ár hafsins) og var
hann afar sniðugur, ekki síst fyrir
hina fi-ábæra fiska sem era hönn-
unarverk Ernu Guðmarsdóttur.
Hið sígilda leikrit um geiturnar
þrjár og tröllið undir brúnni var
síðan sýnt í nýrri útgáfu, svo að
segja, þar sem söguþræði er hag-
rætt svo að smáir áhorfendur verði
ekki hræddir.
Auk Helgu Steffensen era það
brúðuleikararnir Sigrún Erla Sig-
urðardóttir og Frímann Sigurðs-
son sem bregða sér í hin ýmsu
gervi og stjóma brúðum sýningar-
innar. Samvinna þeirra var með
afbrigðum góð og oft á tíðum
undraðist maður að ekki væra
fleiri hendur að verki en raun var
á. Tónlistin var fjörag og börnin
tóku hraustlega undir í þeim
söngvum sem þau kunnu. Tónlistin
og mest af textanum er tekið upp
íýrirfram og leikið af bandi og
skapar þetta ákveðna fjarlægð
milÚ athafna brúðuleikaranna og
textans, en ólíklegt er að hinir
ungu áhorfendur skynji þá fjar-
lægð svo nokkra nemi.
Veðurguðimir hafa svo sannar-
lega leikið við Brúðubflinn og
áhöfn hans undanfarna daga og
vonandi verður svo áfram. Veðrið,
brúður, tröll og trúðar mynda
saman prýðisskemmtun fyrir alla
þá sem tækifæri eiga á að skella
sér á brúðusýningu. I júlí verður
skipt um leikrit og þá setur Brúðu-
bfllinn upp sýninguna Trúðar og
töframenn í leikstjóm Helgu
Steffensen. Og þá er um að gera
að fara aftur á stúfana - með litlu
stúfana sem kunna svo sannarlega
gott að meta.
Soffía Auður Birgisdóttir
. r r
17 4UNI
KVEÐiA FHÁ...
ecco
Gangur lífsins
COSMO
SAUÐAKRÓKUR
—--
: ' ííjœL
£ Cm^- -M
TRÚÐARNIR Dúskur og Blúnda.
Dagbókarbrot
Kerouacs
New York. Reuters.
DAGBÆKUR bandaríska rithöf-
undarins Jack Kerouac draga
upp mynd af ungum ráðvilltum
manni, sem sá líf svertingja í hill-
ingum og hreifst af lífinu í Mont-
ana og Dakota. New Yorker birt-
ir útdrátt úr dagbókum Kerou-
acs í nýjasta hefti þess. Til era
yfir 200 bindi af dagbókum Ker-
ouacs sem hann hélt frá því á
unglingsárum og fram í andlátið,
en hann lést árið 1969 úr of-
drykkju.
Dagbækumar sem birt er úr,
eru frá áranum 1948 til 1950 og
lýkur skömmu áður en fyrsta bók
hans, „The Town and the City“,
kom út. Þá er greinilegt af lestr-
inum að hugmyndin af höfuðverki
Kerouacs, „On the Road“ (A veg-
um úti), sem út kom 1957, fædd-
ist á þessum tíma.
I ágúst 1948 skrifar Kerouac:
„Ég er að hugsa um aðra skáld-
sögu - Á vegum úti - sem ég
hugsa mikið um: Tveir náungar
fara á puttanum til Kaliforníu í
leit að einhverju sem þeir finna
eiginlega ekki og tapa sér á veg-
um úti og snúa aftur alla leið
vongóðir um eitthvað annað.“
Kerouac fer mörgum orðum
um „beat“-kynslóðina svokölluðu
og eiturlyfjaneyslu hennar. Hann
skrifar um innantómt líf almenn-
ings og segir líf sitt eiga að vera
„búgarð þar sem ég rækta minn
eigin mat“. Þá er greinilegt að
Kerouac hefur hrifist af Mont-
ana-ríki á ferð sinni til borgar-
innar Billings, þar sem hann sér
fallegar konur og einhentan
mann. „Hve vel Montana vemd-
ar hann. Hvergi annars staðar í
heiminum myndi ég segja að það
teldist fallegt fyrii- ungan mann
að vera einhentur."
I Norður-Dakóta dáist hann að
fólki sem losar strætisvagn úr
snjóskafli og óskar þess að hann
hefði fæðst í ríkinu. Kerouac
sveiflast á milli rómantískra
draumsýna og brostinna drauma;
vonar og sjálfsfyrirlitningar.
Hann lýsir ítrekað hrifningu
sinni á svertingjum. „Ég vildi
óska að ég væri negri ... allt ann-
að en hvítur maður, sem hefur
misst sjónar á því besta í hvítum
heimi hans ... Ég sá að það besta
sem „hvíti heimurinn" hefur að
bjóða, var ekki nóg alsæla fyrir
mig, ekki nægt líf, gleði, ánægja,
tónlist; ekki næg nótt.“
TÍMARIT
• ÚT er komið tímaritið Börn og
menning sem félagið Börn og bækur
- íslandsdeild IBBY gefur út. í
þessu tölublaði er að finna ýmsar
greinar sem skýra frá menningar-
starfi fyrir börn.
Rætt er við Elísabetu B. Þóris-
dóttur og Björgu Vilhjálmsdóttur
og Rakel Péturs-
dóttir skrifar um
listfræðslu. Jón
Kalman Stefáns-
son skrifar grein
sem hann nefnir
„Nokkrar
laustengdar
vangaveltur um
bemskuskynjun,
Halldór Kiljan og
stórlæti". Aðal-
Kristín
Birgisdóttir
steinn Ásberg Sigurðsson skrifar
pistilinn „Mér finnst", sem er vett-
vangur rithöfunda og myndlistar-
manna og einnig gefur að líta þrjú
áður óbirt kvæði eftir Sjón. Kristín
Viðarsdóttir skrifar ritdóma um
bækur. „Hvert er rétta yfirborðið“
er yfirskrift viðtals sem Iðunn
Steinsdóttir á við Gunnhildi Hrólfs-
dóttur. Sigrún Klara Hannesdóttir
gerir grein fyrir símakönnun á ýms-
um þáttum sem snerta jólabækur
og lestur ungra íslendinga. Helga
K. Einarsdóttir og Inga Kristjáns-
dóttir gefa yfirlit yfir stóran hluta
útgáfu barna- og unglingabóka
1997.
Tímaritið er 44 síður og er til sölu
í Bókabúð Máls ogmenningar,
Laugavegi, á 590 kr. Einnig er hægt
aðpanta áskrift hjá Börnum og bók-
um, pósthólf 7191,107 Reykjavík.
Við erum
í sumarskapi
Viscose-efni í sumarkjóla frá 980 kr. m.
Mynstrað lycra-efni í boli og kjóla. Margir litir.
Jaquard-efni með lycra. Fjórir litir.
Teygjublúnda. Þrjár gerðir, sex litir.
Mynstrað siffon í fjórum litum.
Galla-stretch, svart og dökkblátt.
Frábært úrval af nýjum bútasaumsefnum.
OgUC -búðirnar allt til sauma