Morgunblaðið - 17.06.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 31
Handhæg og góð
kennslubók í heimspeki
BÆKUR
Fra;ðirit
HEIMSPEKI
Heimspeki eftir Martin Levander.
Aðalheiður Steingrímsdóttir og
Þröstur Ásmundsson þýddu. Reykja-
vík, 1997. 234 bls.
ÞAD fer ekki fram hjá mönnum
þessi árin sem fylgjast með rökræð-
um um þjóðfélagsmálefni eða önnur
svipuð á íslandi að heimspeki hefur
í sívaxandi mæli lagt sinn skerf til
þeirra. Þetta er sennilega mest
áberandi í öllum umræðum um sið-
ferðileg efni enda hafa íslenzkir sið-
fræðingar verið iðnir við að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri og
yfirleitt haft eitthvað markvert
fram að færa. En þeir hafa líka lagt
ýmislegt til málanna á fleiri sviðum
eins og í rannsóknum á tungumál-
inu og rökræðu um eðli vísinda.
A sama tíma hefur kennsla í
heimspeki jafnt og þétt verið að
aukast í íslenzkum skólum, grunn-
skólum og framhaldsskólum. Heim-
speki fyrir börn hefur átt umtals-
verðu gengi að fagna og efni sem
hefur verið unnið á íslenzku á veg-
um heimspeki fyrir börn hefur víða
verið notað og reynst vel að því er
ég bezt veit enda samið sérstaklega
fyrir börn og unglinga. Það efni
hentar sennilega betur á grunn-
skólastigi en framhaldsskólastigi. A
framhaldsskólastigi hefur verið not-
að margvíslegt efni, sums staðar
heimatilbúið, sums staðar ekki. En
það hefur vantað handhæga bók
sem hægt væri að nota í þessari
kennslu. Þessi bók uppfyllir sumar
þarfir framhaldsskólakennara
ágætlega.
Það er ekki einfalt að ákveða
hvað á að kenna í heimspeki á fram-
haldsskólastigi. En þó er eitt sem
hlýtur að vera þar og það er að
kenna nemendum hvað eru rök og
rökhugsun. Þetta er ekki eins ein-
falt og það kann að virðast og liggja
til þess ýmsar ástæður: nemendur
eru oft fastir í fordómum sem koma
í veg fyrir að þeir skilji að sumar
ástæður eru ekki rök, stundum er
efnið of nýstárlegt, en yfirleitt taka
þeir afar vel við kennslu í þessu
efni. Þetta viðfangsefni er hægt að
kenna á mæltu máli og beina þá at-
hyglinni að því hvernig við notum
orðin til að móta hugsanir og tengja
þær saman. En það er líka hægt að
fara þá leið að nota rökfræði og það
einfalda táknmál sem hún ljær iðk-
endum sínum til að varpa ljósi á
ályktanir og rök.
í þessari bók er farin sú leið að
blanda saman sögulegri yfirferð og
yfirferð eftir efnisflokkum og mér
virðist að það takist yfu-leitt vel.
Það er byrjað á að fjalla um rök-
færslur og efni á borð við samband
staðhæfinga um staðreyndir annars
SÓLSTÖÐUHATIÐ verður haldin í
stærsta tjaldi landsins í Lónkoti í
Skagafirði, dagana 19.-21. júní.
Fram koma hljómsveitirnar
Casino og Sixties, Karlakór Akur-
eyrar-Geysir, Jóhann Már Jóhanns-
vegar og við gildisdóma hins vegar.
Síðan er fjallað um veruleikann og
kenningu Platóns um frummyndirn-
ar. Því næst er greint hvað er þekk-
ing og skoðaðar hugmyndir fornra
heimspekinga, heimspekinga nýald-
ar og nokkrar ráðgátur nútímans.
Fjórði kafli er um siðfræði og
hvernig bezt sé að lifa og breyta í
lífínu. Þar er byrjað á að nefna
Platón og Aristóteles en síðan
greint á milli leikslokakenningar og
lögmálskenningar og hvað rétt sé
að gera, þ.e. hvort réttmæti athafn-
ar ráðist af því lögmáli sem hún
styðst við eða þeim afleiðingum sem
hún hefur. Þetta er greinarmunur
úr nútímasiðfræði sem þeginn er
frá Mill og Kant en hér er þetta
rakið til Stóuspekinga í fornöld og
Epikúringa. I lokin er síðan vikið að
því hvemig einn straumur í nútíma-
siðfræði, svonefnd dyggðafræði,
sækir kraft sinn til hugmynda frá
Aristótelesi.
Fimmti kaflinn tekur fyrir það
erfiða viðfangsefni tilgang lífsins og
rekur kenningar Nietzsches,
Kierkegaards og Sartres. Sá sjötti
gerir grein fyrir örfáum undirstöðu-
atriðum í rökfræði. Sjöundi kaflinn
segir frá ólíkum hugmyndum um
eðli og hlutverk vísinda. Attundi
grefst fyrir um stjórnmál og stjórn-
málahugmyndir og lýsir kenningum
Karls Marx, Roberts Nozicks og
Johns Rawls og sömuleiðis kven-
réttindakenningum og vistspeki-
kenningu. I níunda og síðasta kafl-
anum er leitað eftir svari við spurn-
ingunni um hvert hlutverk heim-
spekinnar sé. Að síðustu er síðan
nafna- og atriðisorðaski'á.
Það er rétt að nefna að mikið
myndefni er í þessari bók og val á
því hefur heppnazt afar vel. Það er
undantekningalaust í ágætum
tengslum við efni bókarinnar. Þýð-
ingin er vel unnin og notað það
BÆKUR
Ljóð
HÆGUR SÖNGUR í DALNUM
eftir Önnu S. Björnsdóttur. Eigin
útgáfa. 1998 - 48 síður.
ÁSTIN og blíðlegar náttúru-
myndh' eru megin umfjöllunarefni
nýrrar ljóðabókar Önnu S. Björns-
dóttur sem hún nefnir Hægur söng-
ur í dalnum. Ljóðin spegla kyrr-
stæða og átakalitla fegurðarveröld
sem óneitanlega líkist einhvers kon-
ar paradís elskenda enda er víða
vísað til þein'a skötuhjúa, Adams og
son, Blönduhlíðar-kvartettinn og
Kirkjukór Sauðárkróks.
Tjaldið var reist í fyrrasumar og
vígt á sólstöðum. Ráðgert er að há-
tíð um sólstöður verði árviss við-
burður.
orðalag að jafnaði sem hefur verið
að mótast á síðustu tíu til tuttugu
árum um þau margvíslegu viðfangs-
efni sem hér er við að glíma. Það
eru einhver álitaefni um einstök orð
en þýðingin er lipur og læsileg eins
og við á í bók sem þessari.
Það er alltaf auðvelt að gera
ágreining um efnisval í svona bók.
Yfirleitt hefur það tekizt vel. Ég
hefði þó kosið til dæmis að meira
væri gert úr framlagi Platóns og
Aristótelesar í siðfræði og Johns
Rawls í stjómspeki en minna úr
Marx. Það eru líka dæmi um villur í
bókinni að því er ég fæ bezt séð. Á
bls. 13 er verið að fjalla um gildis-
dóma og hvort þeir geti verið sannir
og sagt að ekki megi líta þannig á.
Síðan segir: „Það myndi leiða til
þess að gildismat meirihlutans væri
alltaf hið eina rétta.“ Þetta er ein-
faldlega rangt. Raunar virðist mér
að flest sem höfundurinn vill segja
um þann möguleika að staðhæfing-
ar um verðmæti, en þær em lagðar
að jöfnu við gildisdóma, séu sannar
sé í bezta falli villandi eða einfald-
lega rangt. Síðar í fyrsta kaflanum
er höfundurinn að fjalla um guð og
hvað það orð merki og er að velta
fyrir sér hvað segja á ef það vísar til
vera sem sé óháð manneskjunum.
„Það fer þá eftir trúarafstöðu
manna hvort „guð“ sé til í þeirri
merkingu“(bls. 17). En þetta er
einmitt það sem ekki er hægt að
segja ef orðið vísar til einhvers sem
er óháð manneskjunum. Svona vill-
ur eru ekki margar í bókinni en þær
eru þó fleiri en hér eru nefndar.
Prentvillur voi'u fáar. I heildina tek-
ið er þetta gagnleg bók sem ætti að
nýtast nemendum í framhaldsskóla
og þeim sem vilja kynnast reyknum
af þeim réttum sem heimspeki hef-
ur upp á að bjóða í nútíð og fortíð.
Evu, í bókinni. í Nótt í Paradís er
dregin upp mynd sem líkist mál-
verki af þessum heimi.
Mjúkur bómullardúkur
með blómum
og skál með ávöxtum
á eldhúsborðinu
lítið logandi kerti með ilmi af tjöru
gullreifuð flaska og tvö glös úr kaupfélaginu
handklæði á gólfinu
Adam og Eva í sveitinni
Hvorki er þó syndafall né brott-
vísun úr Edens ranni til umfjöllunar
í bók Önnu. Hún fjallar þó ekki ein-
ungis um hinar björtu hliðar tilver-
unnar. I seinni hlutanum er vikið að
brottför elskhugans: „Þegar þú
varst farinn / missti landslagið liti
sína / og gleði endurfundanna /
hvai'f með þér yfir hæðina." Mögu-
leikum endurfundanna er þó haldið
opnum: „Hann er á ferðalagi / segi
ég / en bráðum / kemur hann heim.“
Ljóðmál Önnu er fremur fábrotið
og einfalt. Hún málar ekki með ýkja
sterkum litum heldur túlkar kennd-
ir sínar með einföldum líkingum og
ljóðmyndum sem undirstrika sátt
við náttúru og tilveru.
Segja má sem svo að ekki sé tek-
ist á við hin stærri mál eða form-
ræna nýsköpun í ljóðheimi Önnu en
ljóð hennar eru sett saman af alúð
og natni. Þau eru fegurðarheimur
út af fyrir sig.
Vandað er til útgáfu bókarinnar
og kápumynd Heidi Kristiansen er í
senn falleg og táknræn fyrir róman-
tíska fegurðarsýn bókarinnar.
Skafti Þ. Halldórsson
SÓLSTÖÐUHÁTÍÐ verður haldin í Tjaldi galdramannsins
dagana 19.-21. júní.
Sólstöðuhátíð í Tjaldi
galdramannsins
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Adam og Eva
í sveitinni
Morgunblaðið/Arnaldur
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra tekur við fyrsta eintakinu úr
hendi Brynhildar Briem framkvæmdastjóra.
Nýjar bækur
• SAGA húsmæðrakennaraskóla
íslands er skráð af Önnu Ólafs-
dóttur Björnsson sagnfræðingi.
Húsmæðrakennaraskóii Islands
var stofnaður árið 1942. Skólinn
átti sér fjölbi eytta sögu allt frá
fyrstu árunum í kjallara Háskóla
Islands til þess tíma er húsmæðra-
kennaranámið komst undir yfir-
stjórn Kennaraháskóla Islands, ár-
ið 1977.1 þessari bók er sagan
rakin: Barátta Helgu Sigurðar-
dóttur, fyrsta skólasljóra HÍK, á
stríðsárunum þegar allar nauð-
synjar skorti og skólinn fékk inni í
loftvarnarbyrgi; námið á I augar-
vatni og yngismeyjanámskeiðin
sem fjölmargar ungar stúlkur
minnast; lífróðurinn sem róinn var
fyrir lífi skólans á seinni árum
hans; breytingar á áherslum í
menntun heimilisfræðikennara.
Einnig er fjallað um skólalífið í
blíðu og stríðu, skemmtanirnar, 10
ára regluna, kveðskapinn og
hvunndaginn. Fjölmargar myndir
prýða bókina.
Utgefandi er Hússtjórnarkenn-
arafélag íslands. Bókin er 275 bls.
Kápuna teiknaði Sigurlaug Jónas-
dóttur listmálari og húsmæðra-
kennari.
Bókina er hægt að kaupa i
Kennaraháskólanum, Háuhlíð 9,
og einnig hjá Birnu Astvaldsdóttir,
gjaldkera Hússtjórnarkennarafé-
lagsins, Mávahrauni 2. Verð 3.500.
Hjá Máli og menningu kostar hún
4.885.
Mörkinni 3 • sími 588 0640
E-moil: cosa@isbndia.is •www.cassina.it
• www.roset.de • www.zanotta.it
• www.artemide.com • www.flos.it
• www.ritzenhoff.de •www.alessi.it
• www.kartell.it • www.fiam.it
• www.fontanaarte.it
FYRIR BYGGINGARIÐNAÐ
Epoxy inndælingarefni
Epoxy rakagrunnur
Epoxy steypulím
Steypuþekja
Smiðjuvegur 72, 200 Kópavogur
Sími: 564 1740, Fax: 554 1769
...............................................................................
■
GKAUP
REYKJAVIK
COSMO
ecco
Gangur lífsins