Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 35
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 35
Efnilegur píanóleikari
TÓJVLIST
Digraneskirkja
PÍANÓEINLEIKUR
Árni Heimir Ingólfsson flutti tónverk
eftir Liszt og Schumann. Mánudagur-
inn 15. júní 1998.
EKKI hefur, svo vitað sé, verið
gerð athugun á því hvað helst stýri
vali ungs fólks varðandi framtíðar-
áform þess en á sviði tónlistar má
líklegt telja, að einstaklingar er
vekja athygli hafí mikil áhrif á
ákvörðun ungra tónlistarmanna.
Má í því sambandi benda á mikinn
fjölda, er á síðari árum hefur lagt
fyrir sig nám í söng. Þrátt fyrir
mikla breidd í tónlistarnámi, hefur
píanóið forustu hvað varðar val
ungra tónlistarnema og sá, er nú
síðast hefur kvatt sér hljóðs, er
Arni Heimir Ingólfsson en hann
hélt sína fyrstu tónleika fyrir
stuttu og nú, sl. mánudag, bætti
hann um betur og flutti þrjú róm-
antísk píanóverk, eitt eftir Liszt og
tvö eftir Schumann, á tónleikum í
Digraneskirkju.
Fyrsta verkið, Widmung, er ekki
að öllu leyti eftir Liszt, heldur er
um að ræða umritun hans á sam-
nefndu sönglagi eftir Schumann.
Widmung er fyrst í flokki 26 laga,
sem Schumann nefndi „Myrten“ en
í þessum flokki eru m.a. 8 lög við
þýðingar á ljóðum eftir Burns.
Umritunin (transcription) eftir
Liszt er sjálfstæð tónsmíð, byggð á
sönglagi Schumanns, og samin
1848. Umritanir Liszts eru taldar
vera sjálfstæðar tónsmíðar, enda
margar hverjar nær því að vera
hugleiðingar og útfærslan öll oftast
viðamikil og glæsileg hvað snertir
tæknilega útfærslu og því um ann-
að og meira en útsetningu að ræða,
eitthvað nær því sem kalla mætti
endursköpun.
Umritun Liszts er fallega unnin
og var að mörgu leyti vel flutt og
má í raun telja það til nokkurra tíð-
inda, að ungur píanóleikari leggi
fyrir sig flutning á rómantískri tón-
list og hafi gott vald á henni, sér-
staklega er varðar túlkun og alla
mótun tónmáls, sem nútíminn hef-
ur að nokkru hafnað, í leit sinni að
nýjum „strúktúrum" og túlkunar-
aðferðum. Abegg-tilbrigðin, op. 1,
voru annað verkefni tónleikanna en
þau þykja um margt minna á pí-
anóstíl Hummels, þó tilbrigði nr. 2
beri í sér einkenni þau sem síðar
urðu áberandi í tónstíl Schumanns.
Leikur Arna Heimis var áferðar-
fallegur og á köflum glæsilega út-
færður, sérstaklega í glitrandi
hröðum tónaleik Schumanns.
Lokaverk tónleikanna var
Kreisleriana, op. 16, og er það,
ásamt op. 12 og 21, meðal merkari
píanóverka meistarans, bæði fyrir
frumleika og stærð í formi.
Kreisleriana er í átta köflum, þar
sem mikil krafa hvílir á flytjanda
varðandi skýrleika í leiktæknilega
erfiðum köflum og sem andstæðu, í
fíngerðri túlkun og mótun blæ-
brigða, sem er sérlega mikilvægur
þáttur í rómantískri listsköpun.
Margt var frábærlega vel gert hjá
Arna Heimí, þó gleymskan gerði
honum smá grikk í þriðja kaflan-
um, sem verður að teljast smálegt í
þessu erfiða verki, sem hann að
öðru leyti lék af miklu öryggi.
Skýrleikinn leið nokkuð fyrir of
mikla notkun pedals á einstaka
stað, sérstaklega í fimmta og sjö-
unda kaflanum. Lokakaflinn er
sérkennileg tónsmíð og í bassanum
á laglínan að koma vel fram, vera
syngjandi og þar sem Schumann
tiltekur „Mit aller Kraft“, á styrk-
urinn að vera meira en forte, eða
fela í sér mikinn skarpleika og
kraft. Þegar þessum átökum lýkur,
endar verkið á undurþýðum veik-
um leik. I þessu verki er mikill
skáldskapur og þurfa andstæður
þess að vera skýrlega mótaðar,
leikið með falleg og innileg blæ-
brigði án tímamörkunar og þar í
mót, að leiknum öllum sé stefnt
fram á ögurbrún hins ótrúlega, þar
sem engu má skeika í valdsmanns-
legri nákvæmni og tónmálið auk
þess gætt óhömdum ástríðum.
Ámi Heimir Ingólfsson er efni-
legur píanóleikari, ræður yfir góðri
tækni, leikur oft fallega með ýmsar
tónlínur og á til að bera næmleika,
er mun verða honum drjúgt vega-
nesti í þroskaferð hans um refil-
stigu tónlistarinnar.
Jón Ásgeirsson
• BRÉF Gunnars Pálssonar II.
Athugasemdir og skýringar.
Gunnar Sveinsson bjó til prent-
unar. Rit 44. - 450 bls. Eins og
titill bókarinnar ber með sér er
hér um að ræða skýringabindi við
bókina Bréf Gunnars Pálssonar.
l. Texti, sem út kom í ritröð stofn-
unarinnar árið 1984. Útgefandi
bréfanna og höfundur skýringa-
bindisins er Gunnar Sveinsson
skjalavörður sem öllum öðrum
fremur hefur rannsakað ævi og
ritstörf átjándu aldar mannsins
séra Gunnars Pálssonar.
Séra Gunnar Pálsson
(1714-1791) var Svarfdælingur að
uppruna, stúdent úr Hólaskóla,
guðfræðingur frá Hafnarháskóla,
um skeið skólameistari á Hólum,
en lengst af prestur í Hjarðar-
holti og prófastur í Dalasýslu.
Gunnar Pálsson var bróðir
Bjarna Pálssonar sem þekktur er
sem fyrsti landlæknir á Islandi og
höfundur merkrar ferðabókar
ásamt skáldinu Eggerti Olafs-
syni.
„Séra Gunnar var gáfumaður
og eitt af höfuðskáldum síns tíma,
en mestan orðstír hefor hann
hlotið fyrir mildnn lærdóm, eink-
anlega á sviði fornra fræða ís-
lenskra, enda fékk Arnanefnd í
Kaupmannahöfn hann til að rita
skýringar við eddukvæði og fleira
af fornum skáldskap," segir í
kynningu.
Utgefandi er Stofnun Árna
Magnússonar. Verð ib. m. vsk.
3.990 kr.
• THE Story of Jonatas In
Iceland. Edited by Peter A. Jorg-
ensen. Rit 45, - cxciv + 111 bls.
A miðöldum var orðið ævintýri
m. a. haft um siðbætandi sögur,
oft með guðrækilegu efni og út-
leggingu, sem voru nefndar ex-
empla á latínu. íslensk ævintýri
af þessu tagi frá miðöldum hafa
flest verið þýdd eða endursögð
eftir latneskum textum, en á fyrri
hluta 15. aldar hefur mikið safn
slíkra ævintýra verið þýtt úr lat-
ínu á ensku og a.m.k. hluti þess
safns hefur borist til Islands og
verið þýtt þar úr því á íslensku.
Nokkrir slíkir textar voru gefnir
út eftir einu íslensku handriti frá
því um 1500 af Hugo Gering 1882
Nýjar bækur
og aðrir eftir handritabrotum frá
svipuðum tíma af Peter A. Jorg-
ensen 1970 og síðar, en stærsta
safnið, sem að mestu er aðeins
varðveitt í handriti frá ofanverðri
17. öld, var gefið út af Einari G.
Péturssyni 1976.
Jónatas ævintýri er meðal
þeirra ævintýra sem þýdd voru
úr ensku og er dæmisaga um að
menn skuli vara sig á konum. I
rækilegum inngangi gerir Jorg-
ensen grein fyrir handritum allra
þessara texta og sambandi þeirra,
rekur feril frásagnarinnar um
fimm alda skeið.
Peter A. Jorgensen er doktor í
germanskri textafræði frá Har-
vardháskóla. Hann kenndi um
skeið í Kaliforníuháskóla en hefur
að undanfórnu verið prófessor við
Georgíuháskóla. I rannsóknum
sínum hefur hann frá upphafí lagt
sérstaka rækt við íslensk fræði.
Verð ib. m. vsk. 3.420 kr.
• EINAR G. Pétursson.
Eddurit Jóns Guðmundssonar
lærða I-II. Þættir úr fræðasögu
17. aldar. Rit 46. - (I) 512 bls. og
(II) vi + 116 bls. Bókin skiptist í
tvö bindi og hefur fyrra bindið að
geyma inngang
og fræðilega
umfjöllun um
þau rit Jóns
lærða Guð-
mundssonar
(1574-1658)
sem birt eru í
síðara bindinu.
Höfundur inn-
gangs og útgef-
andi texta Jóns
lærða er Einar
G. Pétursson, fræðimaður á
Stofnun Áma Magnússonar, á ís-
landi og er þetta doktorsrit hans
sem hann mun verja við heim-
spekideild Háskóla íslands 13.
júní nk.
Eddurit Jóns lærða sem hér
um ræðir eru tvö og hefur hvor-
ugt þeirra verið gefið út áður.
Fyrra ritið nefnist Samantektir
um skilning á Eddu og er upp-
skrift á köflum úr Snorra-Eddu
eftir glötuðu handriti hennar.
Hefur Jón lærði aukið margs
konar fróðleik við þann texta. Síð-
ara ritið sem útgefandi nefnh- eft-
ir upphafsorðum þess Að fornu í
þeirri gömlu norrænu kölluðust
rúnir bæði ristingar og skrifelsi,
hefur að geyma skýringar Jóns
lærða á Brynhildarljóðum eftir
Völsunga sögu.
Fyrra bindi bókarinnar sem
ber Undirtitilinn Þættir úr fræða-
sögu 17. aldar, er inngangur út-
gefanda að textaútgáfunni. Þar er
birt ítarlegt yfirlit um storma-
sama ævi Jóns lærða og þau fjöl-
breytilegu ritstörf sem eftir hann
liggja, en meðal þeirra má nefna
Grænlands annál, Um Islands að-
skiljanlegar náttúrur, Tíðfordríf
og margháttaðan kveðskap. Þá er
í innganginum gerð grein fyrir
tilurð Edduritanna; þau voru
samin að beiðni Brynjólfs Sveins-
sonar Skálholtsbiskups upp úr
1640, en Brynjólfur hafði þá sjálf-
ur í hyggju að semja ritum fornan
norrænan átrúnað og hafði því
samband við lærða menn innan
lands og utan sem fengust við
forn fræði og leitaði fanga hjá
þeim. Fjallað er um varðveislu
Edduritanna og leitað heimilda að
viðbótum Jóns lærða við texta
þeirra.
Útgefandinn og doktorsefnið
Einar Gunnar Pétursson er fædd-
ur 1941. Hann lauk cand. mag.
prófi í íslenskum fræðum frá Há-
skóla íslands 1970 og stundaði
eftir það nám í þjóðsagnafræðum
við háskólann í Osló. Hann varð
starfsmaður við Stofnun Árna
Magnússonar á íslandi 1972 og
gaf út Miðaldaævintýri þýdd úr
ensku, 1976. Jafnframt hefur Ein-
ar numið og kennt bókasafns-
fræði við Háskóla Islands og gaf
út ásamt öðrum ritið Islensk bók-
fræði 1990.
Verð ib. m. vsk. 5.930 kr.
Utgáfubækur Stofnunar Arna
Magnússonar á Islandi eru til
sölu í helstu bókabúðum ogá
skrifstofu stofnunarinnar íÁma-
garði. Fróðleik um aðrar útgáfu-
bækur Árnastofnunar sem og um
stofnunina sjálfa er að finna á
heimasímu stofnunarinnar en slóð
hennar er:
http://www.hi.is/HI/Ranns/SAM/
Einar G.
Pétursson
Morgunblaðið/Golli
GUÐVARÐUR Gíslason veitingamaður á Hótel Loftleiðum og Snædis
Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri I.C. Art, The Icelandic Art Connection.
Sýning* á ljós-
myndum Ingu
Margrétar
NÚ STENDUR yfir í Listasafni
Ámesinga á Selfossi sýning á ljós-
myndum sem Inga Margrét Ró-
bertsdóttir sjúkraþjálfari tók í
Afganistan meðan hún vann þar
með breskum stoðtækjasmið á veg-
um Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans árið 1996.
Sýningin sem áður var í Reykja-
vík hefur verið aukin að textflum,
gömlum og nýjum, og myndbandi
sem gefur okkur innsýn í það sem
fyrir augu Ingu Margrétar bar í
Mazar-i-Sharif, Kabúl og Kandahar
af daglegu lífi íbúanna.
Sýningin stendur til 28. júní.
Safnið er opið daglega frá kl. 14-17
nema mánudaga er lokað.
---------------
Sýningu lýkur
Ingólfsstræti 8
LISTAHÁTÍÐARSÝNINGU Ing-
ólfsstrætis 8 lýkur sunnudaginn 21.
júní. Á sýningunni er stórt ljós-
myndaverk, teikningar og skúlptúr.
Hluti sýningarinnar er innsetning
grænmetis í plexiglerborði sem hef-
ur tekið breytingum frá því sýning-
in var opnuð 20. maí. Inga Svala
Þórsdóttir hefur haldið verkinu
áfram á meðan á sýningu stendur,
teiknað, ljósmyndað og skráð ferlið.
Samstarfs-
samningur und-
irritaður milli
G og G-veitinga
og I.C. Art
UNDIRRITAÐUR var samstarfs-
samningur á milli G og G-veitinga,
Hótel Loftleiðum og I.C. Art, The
Icelandic Art Connection, hinn 11.
júní sl.
G og G-veitingar styrkja starf-
semi I.C. Art í útflutningi íslenskr-
ar listar og listiðnaðar 1998.
I.C. Art er umboðsskrifstofa ís-
lensks lista- og listiðnaðarfólks og
mun fyrst um sinn starfa á Banda-
ríkjamarkaði.
Mörkinni 3 . simi 588 0640
E-mail: casa@islandia.is • www.cassina.it
• www.roset.de • www.zanotta.it
• www.artemide.com • www.Hos.it-
• www.ritzenhoff.de •www.alessi.it
• www.kartell.it •www.fiam.it
• www.fontanaarte.it
ecco
Gangur lífsins
COSMO
17
IȒ
svcó B Úé húspnW^
(«<
HUSAVIK