Morgunblaðið - 17.06.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 4^
MINNINGAR
+ Guðlaugur
Kristinsson,
fyrrum sjómaður og
starfsmaður hjá Vél-
smiðju Héðins,
fæddist í Reykjavík
8. september 1935.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reylgavíkur 5.
júm' siðastliðinn.
Hann var sonur
hjónanna Kristins
Guðlaugssonar vél-
stjóra, f. 7.8. 1909,
d. 23.10. 1972, og
Unu Krisljánsdótt-
ur, f. 22.12. 1909, d.
25.11.1988. Systur Guðlaugs eru
Ólina Hólmfríður og Unnur
Kristinsdætur og hálfbróðir
Það er fallegt af svölunum á
Sléttuveginum. Kópavogshálsinn
fyrir framan, Öskjuhlíðin og kirkju-
garðurinn grængróinn til vinstri og
Fossvogurinn sjáfur silfraður.
Borgin þenur sig upp um dalverpi
og ása með Reykjanesið, Bláfjöll og
Keilinn umleikis. Það er vorbjartur
dagur og við bræður á svölunum að
kætast saman við útsýnið og fegurð
landsins. Ég er í heimsókn á Islandi
og lít í kaffi hjá Guðlaugi. Hann er
hluti af fortíð minni og bemsku, til
hans liggja rætur uppruna míns,
það eru tengsl sem öllum er svo
mildlvægt að eiga og finna að eru til
staðar, hvernig sem er. Við Guð-
laugur vorum hálfbræður og þannig
vinir að orða var oft ekki þörf. Guð-
laugur var afar glaður þennan sól-
bjarta vordag, hafði tekist að ganga
lengri hring en vanalega eða um
nokkur hundruð metra. Nú, þrem
vikum síðar er hann skyndilega lát-
inn af völdum heilablóðfalls.
Guðlaugur var náttúrubarn og
sjómennska var honum í blóð borin
í báðar ættir. Þegar hann hafði
þroska til fór hann til sjós á togar-
anum Karlsefni RE 24, en þar var
pabbi hans þá vélstjóri. Hann var
Skúli Thoroddsen.
Guðlaugur kvænt-
ist Ragnheiði Jóns-
dóttur árið 1960 og
eignuðust þau tvær
dætur, Ragnheiði, f.
5.10. 1962, og Unu,
f. 25.1. 1966, en fyr-
ir átti Ragnheiður
synina Jón Frið-
geirsson og Þórð
Gislason. Guðlaugur
bjó síðast á Sléttu-
vegi 7 í Reykjavík,
húsi Sjálfsbjargar,
en hann hafði verið
öryrki um árabil.
Utför Guðlaugs var gerð í
kyrrþey að ósk hins látna.
heima á sjónum og þar var oft hug-
ur hans löngu eftir að hann kom í
land. Á sjómennskárum „Lalla
bróður“ eignaðist ég margan flottan
kuðunginn, ígulkerið og krossfisk-
inn og mörg voru ævintýrin um
ógnir Ægis konungs. Þegar Lalli
kom úr siglingum, brást heldur
aldrei að stórveisla væri í farangrin-
um. Þegar vinirnir í götunni settu
upp öfundarsvip, að maður átti slík-
an bróður, brást heldur ekki að þeir
fengu hlutdeild í veislunni, því að
mismuna bömum var ekki hans
stíll. Mér sjálfum þótti þá stundum
nóg um rausnarskapinn en fékk
ekki ráðið. En það voru ekki bara
við vinir mínir og fjölskyldan sem
nutum góðs af gjafmildi Guðlaugs.
Ég minnist þess líka þegar Lalli var
að safna ullarflíkum handa vinum
sínum i Þýskalandi sem honum
fannst eiga bágt og var að biðja
mömmu um að prjóna á það ókunna
fólk í útlöndum, svo hann gæti fært
þeim eitthvað nýtt, næst þegar
landað yrði í Bremerhaven. En árin
liðu og áherslur breyttust. Guðlaug-
ur kynntist konu sinni, Ragnheiði
Jónsdóttur og eignuðust þau saman
tvær dætur, Ragnheiði og Unu.
Fjölskyldan sem þá bjó. á Ránar-
götu 24 var Guðlaugi mikil ham-
ingja og gleði en skjótt skipast veð-
ur í lofti. Guðlaugur varð fýrir slysi
á sjónum, þegar Víkingur RE fékk
á sig brotsjó eitt sinn. Skaddaðist
hann þá illa á hrygg og gekk ekki
heill eftir það. Hann kom í land og
gerðist vörubifreiðastjóri en meiðsl-
in voru ekki til friðs. Guðlaugur
skipti um starf og gerðist lagermað-
ur hjá Vélsmiðju Héðins um nokk-
urra ára bil, en sjúkdómurinn
ágerðist. Guðlaugur gekkst undir
fjórar skurðaðgerðir á baki, en án
árangurs. Hann varð öryrki og
staulaðist um eftir síðustu aðgerð-
ina. Slíkt má öllum gera, en sá bar-
áttumaður sem Guðlaugur var, vildi
bera byrðar sínar sjálfur, vera ekki
öðrum baggi eða til ama. I þeim
anda og að ígrunduðu máli dró hann
sig til hlés og valdi sjálfur að sækja
um bústað hjá Sjálfsbjörgu. Þau
hjónin slitu samvistir en Guðlaugi
þótti samt ofurvænt um „Heiðu
sína“ og þeirra vinskapur hélst allt
til dauða hans. Guðlaugur átti létta
lund og tókst á við lífið í æðruleysi.
Hann var trúaður en sótti sér líka
þekkingu í bækur og skáldskap og
reyndi að fara reglulega í heilsu-
rækt og sund. Hann leitaði leiða til
sjálfseflingar. Að öðrum ólöstuðum
sótti hann síðustu árin stryk til
Hallgríms Magnússonar læknis,
sem tók Guðlaugi af þeirri sam-
kennd sem ég veit að var honum af-
ar mikilvæg. Það var ekki Guðlaugs
að láta deigan síga, hann treysti sér
jafnvel til að geta farið til Mallorca
með haustinu. Við ræddum þetta á
svölunum um daginn og hvatti ég
hann eindregið til þess að láta á
reyna, en hvorugan grunaði þá að
hans hinsta ferð yrði farin svo
skjótt.
Það var ósk Guðlaugs og í anda
þess lífs sem hann hefur lifað að út-
för hans yrði gerð í kyrrþey. Við
systkinin og makar okkar kveðjum
nú góðan bróður og mág og sendum
Heiðu, dætrunum, stjúpsonum hans
og mökum þeirra og bömum inni-
legar samúðarkveðjur.
Skúli Thoroddsen.
GUÐLAUGUR
KRISTINSSON
hún mér þá ást og umhyggju sem
ég þarfnaðist, leiðbeiningu og
þroska. Fyrir hennar hvatningu öðl-
aðist ég meiri trú á sjálfa mig og
það sem ég gæti fengið áorkað í líf-
inu. Inga var alltaf tilbúin til að
hlusta, veita hlýju og gefa ráð. Hún
var svo gefandi.
Ég sagði oft við Helga hve lán-
samur hann væri að eiga móður og
föður sem Ingu og Guðna. Við þurf-
um að þakka og varðveita hverja
einustu stund sem okkur lánast að
eiga með foreldrum sem þeim, því
tíminn sem við eigum hérna á jörð-
inni er svo takmarkaður. Ég veit að
kærleikur Ingu lifir áfram með
Guðna og fjölskyldunni. Inga veitti
okkur öllum innblástur, hún var
ótrúlega jákvæð og hafði ástúðleg
áhrif á hvern þann sem kynntist
henni og það mun aldrei hverfa.
Ég sendi mínar innilegustu ástar-
og samúðarkveðjur til ykkar allra.
Laurie, Seattle.
t
Faðir okkar,
JÓN ÞORVARÐARSON
bifreiðastjóri,
Nökkvavogi 15,
lést á heimili sínu 14. júní.
Börnin.
t
Minningarathöfn um móður okkar,
SIGRÍÐI BJÖRNSDÓTTUR
frá Presthvammi,
Aflagranda 40,
verður í Fossvogskapellu föstudaginn 19. júní kl. 13.30.
Útförin fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju þriðjudaginn 23. júní kl. 14.00.
Björn, Friðgeir og Helga.
INGIBJÖRG
STEFÁNSDÓTTIR
+ Ingibjöríg Stef-
ánsdóttir fædd-
ist í Hafnarfirði 20.
ágúst 1923. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 10. maí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram í
kyrrþey að hennar
eigin ósk.
Elsku Guðni og
Helgi.
Mig myndi langa til
að minnast þeirrar sér-
stöðu sem Inga hefur í
hjarta mínu. Nú þegar
ég hugsa til hennar er ég klökk og
ég á bágt með að halda aftur af tár-
unum. Inga var mér svo miklu
meira en tendamóðir. Eftir því sem
ég hef elst hefur mér lærst að elska
hana og virða og fundið hvatningu
til að vera eins og hún. Á meðan á
veikindum hennar stóð barðist hún
af svo miklu hugrekki, ekki einungis
fyrir sjálfa sig, heldur einnig til
huggunar fyrir þá sem henni voru
kærastir. Ég get í hreinskilni sagt
að ég hef aldrei þekkt neinn jafn
blíðan, umhyggjusam-
an, ástríkan og gefandi
á svo einlægan hátt.
Það voru allir velkomn-
ir á heimili ykkar og
mætti manni ávallt
þeirra einstök hlýja og
gestrisni.
Eins og þið vitið þá
var ég mjög ung að ár-
um og þrjósk þegar ég
hitti Ingu fyrst. Ég átti
margt eftir ólært og
mörg vandamál að fást
við, við töluðum jafnvel
ekki sama tungumálið.
Ég er viss um að Inga
hafi haft efasemdir um mig en hún
sýndi það aldrei. Þess í stað veitti
+
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir
og afi,
GUÐLAUGUR KRISTINSSON,
Sléttuvegi 7,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 5. júní sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Ragnheiður Guðlaugsdóttir, Þorsteinn Jónsson,
Una Guðlaugsdóttir,
Jón Kr. Friðgeirsson,
Þórður Gíslason
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, dóttir, stjúpdóttir,
systir og barnabarn,
SIGRÍÐUR JÓNA ALBERTSDÓTTIR,
Vallarási 3,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 19. júní kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að
láta Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu njóta þess.
Daníel Freyr Stefánsson,
Nína Dögg Salvarsdóttir,
Albert Stefánsson, Vigdís Björnsdóttir,
Hannes Sigurðsson,
Guðmundur Svanbergsson og fjölskylda,
Svala Albertsdóttir og fjölskylda,
Björn Albertsson,
Ragnar Albertsson,
Alda Albertsdóttir,
Sigríður Sæmundsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR GÍSLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hólmgarði 14,
sem lést miðvikudaginn 10. júní, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
19. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent
á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir, Jón Hrólfur Sigurjónsson,
Hreiðar Sigurbjarnason, Guðbjörg Pálsdóttir,
Guðmundur Vignir Sigurbjarnason, Aðalbjörg Jónsdóttir,
Sigurður Tómas Sigurbjarnason, Ebba Unnur Kristinsdóttir,
Hafsteinn Sigurbjarnason, Bergrós Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, sonur,
tengdasonur og bróðir,
JÓNAS ÞÓR JÓNASSON,
sem lést 7. júní síðastliðinn, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. júni kl.
10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á hjúkr-
unarsamtökin Karitas eða líknarfélögin.
Katrín Hreinsdóttir,
Hreinn Rúnar, Jónas Þór, Sandra Björk,
Guðbjörg H. Beck, Páll Þórir Beck,
Guðrún J. Guðmundsdóttir, Hreinn Benediktsson
og systkini hins látna.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIRÍÐUR GUNNLAUGSDÓTTIR,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugar-
daginn 20. júní kl. 13.00.
Hulda Alda Danielsdóttir,
Erla Björk Danfelsdóttir,
Heimir Danfelsson, Olga Jónasdóttir
og barnabörn.
J,