Morgunblaðið - 17.06.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 53'-,
1
1
I
1
I
I
I
i
I
\
I
I
I
j
I
1
I
-MÍi ‘ir ^ Jíi ■
jj tjSÍrÍgÍrajjKjgl j.í 1 ■
FRÁ vinstri: Andri Gíslason, formaður Skagfirðingasveitar, hluti sjóflokks í nýju göllunum, fyrir hönd bát-
anna Stefán Pálsson, Steingrímur Garðarsson og varaformaður Skagfirðingasveitarinnar, Steinar Pétursson.
Þj óðhátíðardagskrá
í Kópavogi
í KÓPAVOGI hefst þjóðhátíðar-
dagskrá kl. 9.30 með fánahyllingu
og lúðrablæstri á Kópavogsvelli og
munu skátafélögin í Kópavogi sjá
um fánahyllinguna og Skólahljóm-
sveit Kópavogs um tónlistina. Kl.
10 verður 400 m víðavangshlaup
Breiðabliks. Skrúðaganga fer frá
Kópavogsvelli að Digraneskirkju
kl. 11. Barnasamkoma í eða við
Digi-aneskirkju kl. 11; Kór Kárs-
nesskóla leiðir sönginn. Brass-
bandið Karnival ekur um bæinn og
heilsar Kópavogsbúum með lúðra-
blæstri. Blokkflautusveit Tónlist-
arskóla Kópavos leikur í Kópa-
vogskirkju kl. 12.30. Hátíðannessa
verður ki. 13 í Kópavogskirkju.
Kór Kópavogskirkju og Kamm-
Fyrirlestur um
rannsóknir í
geimförum
BJARNI V. Tryggvason heldur
fyrirlestur á vegum raunvísinda-
deildar Háskóla íslands fimmtu-
daginn 18. júní kl. 13 í hátíðarsal
Háskólans í aðalbyggingu. Fyrir-
lesturinn nefnir hann „Leiðir til að
minnka titring í vísindalegum rann-
sóknum í geimfórum".
Fjallað verður um hlutverk Al-
þjóðlegu geimstöðvarinnar (Inter-
national Space Station).
Síðdegistónleik-
ar Hins hússins
á Ingólfstorgi
ENSÍMI og Stæner leika á síðdeg-
istónleikum Hins hússins föstudag-
inn 19. júní kl. 17 á Ingólfstorgi.
„Ensími er ný hljómsveit sem
vakið hefur athygli með laginu
Gaur sem þeh- félagar gáfu út á
dögunum og er von á breiðskífu
með haustinu. Stæner eru sigur-
vegar í Músíktilraunum 98.
Sumarferð
Minja og sögu
SUMARFERÐ Minja og sögu
verður að þessu sinni farin sunnu-
daginn 21. júní. Lagt verður af stað
kl. 14 frá Þjóðminjasafni íslands.
Fyrst verður ekið að Gvendar-
brunnum og Vatnsveita Reykjavík-
ur skoðuð í fylgd starfsmanns
vatnsveitunnar. Hann mun fræða
gesti um sögu Vatnsveitunnar og
sýna húsakost hennar og kynna
starfsemina.
Frá Gvendarbrunnum verður ek-
ið að hinu forna höfuðbóli, Elliða-
vatni, svipast um og gamla stein-
húsið frá 1861 skoðað. Guðjón Frið-
riksson sagnfræðingur segir frá
Einari Benediktssyni skáldi og for-
erkór Kópavogs syngja. Skrúða-
ganga verður farin frá Mennta-
skólanum í Kópavogi ld. 13 og leik-
ur Dixílandhljómsveitin Óndin
fram að göngu.
A Rútstúni setur bæjarstjórinn,
Sigurður Geirdal, samkomuna kl.
14 og síðan verða þar ýmsar uppá-
komur. Popptónleikar verða á tún-
inu kl. 15.30 með hljómsveitunun
Uzz, SPUR, Dead Sea Apple, Páli
Rósinkranz og The Christ Gospel
band, Stjórninni og Siggu Bein-
teins. Dagskrá í Félagsheimili
Kópavogs hefst kl. 15.30. Kl. 16.30
leggur skrúðgangan frá Rútstúni á
Kópavogsvöllinn þar sem leikin
verður knattspyrna, Breiðablik og
HK. Hátíðarlok eru kl. 19.
eldrum hans, en Einar fæddist á
Elliðavatni og sleit barnsskónum
þar.
„F élagsmenn eru góðfúslega
beðnir að tilkynna þátttöku sem
allra fyrst og eigi síðar en kl. 14
föstudaginn 19. júní til Þjóðminja-
safnsins. Þátttökugjald er 900 kr.
Áætlað er að koma til baka kl. 17 að
Þjóðminjasafninu,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Skógarganga
á höfuðborgar-
svæðinu
FJÓRÐA skógarganga sumarsins
á höfuðborgarsvæðinu á vegum
Skógræktarfélags Garðabæjar
verður farin á morgun, fimmtudag.
Mætin er kl. 20.30 við Skógræktar-
reit kvenfélags Garðabæjar í
Engjadal við Álftanesveg. Þaðan
verður gengið á ræktunarsvæði
Sigurðar Þorkelssonar á Garða-
holti. Boðið er uppá rútuferð frá
Ferðafélagi íslands, Mörkinni 6, kl.
20 og er gjald 500 kr.
Göngurnar eru skipulagðar í
samvinnu við Ferðafélag íslands og
eru hluti af fræðsluverkefni Skóg-
ræktarfélags Islands og Búnaðar-
banka íslands. Minnt skal á að þeir
sem taka þátt í öllum skógargöng-
um sumarsins fá að launum fallegt
jólatré. Fimmta gangan verður far-
in 25. júní á vegum Skógræktarfé-
lags Kópavogs og verður gengið um
ræktunarsvæði Guðmundar M.
Jónssonar við Vatnsenda.
Ættarmót
Gauksmýrarætt-
ar á Húnavöllum
ÆTTARMÓT afkomenda Ólafar
Sigurðardóttur og eiginmanna
hennar, Sigurvalda Þorsteinssonar
og Björns Jósafats Jósafatssonar,
verður haldið að Húnavöllum helg-
ina 3.-5. júlí á Edduhótelinu Húna-
völlum. Fólk getur komið síðdegis á
Skagfirð-
ingasveit SVFÍ
Sauðárkróki
gefnar gjafir
SKAGFIRÐINGAS VEIT SVFÍ
voru aflientir fjórir þurrbúning-
ar og björgunarvesti að gjöf 9.
júní sl. Það voru áhafnir rækju-
bátanna Jökuls SK-33, Þóris
SK-16 og Sandvíkur SK-188 sem
gáfu sinn gallann hver, Qórða
gallann gáfu tíu smábátaeigend-
ur á Skaga og Sauðárkróki.
föstudag og dvalið fram á sunnu-
dag. Mótið verður formlega sett á
laugardag.
Sameiginlegur kvöldverður verð-
ur á laugardagskvöld. Á Húnavöll-
um er sundlaug og leiksvæði fyrir
böm. Það fólk sem ætlar að gista á
hótelinu er hvatt til þess að panta
herbergi strax.
Nánari upplýsingar um mótið
veita Sigurlaug Kristjánsdóttir eða
Arndís Kristjánsdóttir.
Saga Commun-
ications í
samstarf við
Fínan miðil
„SAGA, bandarískt íyrirtæki sem á
útvarps- og sjónvarpsstöðvar í
Bandríkjunum, mun sjá um dag-
skrárgerð og stjórnun Fíns miðils,
sem rekur sex útvarpsstöðvar í
Reykjavík," segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Saga Communication hefur ráð-
ið Bruce Law, sem er með 18 ára
reynslu af bandarísku útvarpi, en
hann mun búa á íslandi og stjórna
þessu nýja verkefni á byrjunarstig-
um þess,“ segir jafnframt.
Fínn miðill réð aftur til sín Björn
Sigurðsson, sem hefur áralanga
reynslu af útvarpi, til að vinna með
Bruce Law að dagskránni.
LEIÐRÉTT
Niðjamót á Dalbæ
í FRÉTT í blaðinu í gær, um niðja-
mót í Dalbæ í Hrunamannahreppi,
urðu mistök við vinnslu blaðsins og
tímasetning mótsins skilaði sér
ekki rétt. Niðjar munu hittast
sunnudaginn 21. júní kl. 14. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um.
Folinn Viðar í Viðey
I frétt í blaðinu í gær var folinn
Viðar, sem nýfæddur er úti í Viðey,
rangnefndur. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Formaður Landvemdar
Jón Helgason formaður Land-
vemdar og bóndi á Seglbúðum var
ranglega tengdur Landgi-æðslu rík-
isins í grein í blaðinu í síðustu viku.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
ecco
Gangur lífsins
• F
Njottu
► útilífsins!
( Wynnster bakpokar }
• Bólstrað og þægilegt bak með góðri öndun.
• Bólstraðar mittis- og axlarólar sem auðvelt
eraðstilla.
• Innbyggð bakpokahlíf.
• Scorpion er stækkanlegur um 15 Itr. með því
aðfella útvasa.
• Slitsterkt efni.
• Auðvelt er að festa dýnu eða aukahluti á pokann.
Scorpion 65+15 Itr. kr. 13.500,- Equador 65 Itr. kr. 9.890,-
Scorpion 85+15 Itr. kr. 14.400,- Equador 85 Itr. kr. 10.800,-
( Wynnster tjöld )
Munið eftirfríkortinu!
Tveggja manna tjald:
Hummingbird Dome
• Hæsti punktur115cm.
• Þrjár fibersúlur.
• Þyngd aðeins 2,6 kg.
Verð kr. 10.800,-
Þriggja manna tjald m. fortjaldi
báðummegin. Hæð: 130 cm.
Þyngd: 4.5 kg.Verð: 10.900,-
Fjögurra manna tjald m. fortjaldi
báðummegin. Hæð: 130 cm.
Þyngd: 6,9 kg. Verð: 21.600,-
(Wynnster útilífsjakkQ
- Fyrir dömur og herra -
• Léttur öndunarjakki með Aquastop fiimu.
• Flís í kraga.
• Tvöfaldur rennilás.
• Kortavasi, brjóstvasar og hliðarvasar.
Verð kr. 15.980,-
UTILIF
GLÆSIBÆ • S: 581 2922