Morgunblaðið - 17.06.1998, Side 72
ÍSLANDSFLUG
g&rir ft&irum fœrt aö fíjuga
570 8090
Drögum næst
24. Júnf
&
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANCSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ákveðið að
verði fluttur
Morgunblaðið/Sigurgeir
KLETTSVÍK við Vestmannaeyjar, tilvonandi heimkynni háliyrnings-
ins Keikos. Til hægri er Klettshellir.
NY HEIMKYNNI háhyrningsins
Keikos verða í Klettsvík í Vest-
mannaeyjum og er gert ráð fyrir að
hann verði settur þar í sjókví 10.
september eða í síðasta lagi næsta
vor. Petta var tilkynnt á blaða-
mannafundi Free Willy Keiko-sam-
takanna á Hótel Sögu í gær.
Sjókvíin, sem var hönnuð og smíð-
uð í Washington-fylki og hefur verið
flutt til Seattle, er væntanleg hingað
til lands síðdegis á fóstudag. Á laug-
ardagsmorgun á að flytja hana til
Þorlákshafnar og þaðan með Herj-
ólfí til Vestmannaeyja. Kvíin verður
flutt á fjórtán fjörutíu feta flutninga-
'*~«,*Vögnum.
Rannsóknaraðstaðan í Eyjum
réð miklu um staðarval
Eftii’ að sendinefnd á vegum sam-
takanna fékk leyfi íslensku ríkis-
Kvíin flutt um
helgina
stjómarinnar í liðinni viku til að
flytja Keiko á heimaslóðir voru að-
stæður skoðaðar í Vestmannaeyjum
og á Eskifirði og rætt við yfirvöld á
báðum stöðum. „Valið stóð á mdli
tveggja staða, Eskifjarðar og Vest-
mannaeyja, og lengi vel beindust
augu manna hér á landi fyi'st og
fremst að Eskifirði. En menn vest-
anhafs vildu hins vegar eiga fleiri
valkosti og landið var nánast fín-
kembt,“ segir Hallur Hallsson,
tengiliður samtakanna á íslandi.
Hann segir margvíslegar ástæður
fyrir því að Klettsvík varð á endanum
fyrir valinu og taldi þar fyrsta þá
miklu og góðu rannsóknai-aðstöðu
sem fyrir hendi er í Eyjum. „Þar get-
Keiko
til Eyja
um við tengst Háskólanum, Hafrann-
sóknastofnun, Náttúrufræðistofnun
o.fl. stofnunum, en þetta verður eitt-
hvert viðamesta rannsóknarverkefni
sem hér hefur verið fengist við. Að-
stæður við Klettsvík eru mjög góðar,
þar er skjólgott fyrir sjógangi og
vindi og svo er hitastig sjávar við
Vestmannaeyjar hærra en annars
staðar við Island," segir Hallur, sem
kvaðst þó vildu árétta að bæjaryfir-
völd á Eskifirði, hefðu gert allt til
þess að greiða götu manna frá Free
Willy Keiko-samtökunum.
Jeff Forster, sem stjórnar rann-
sóknum á Keiko fyrir Free Willy
Keiko-samtökin, sagði á fundinum að
nú væri spennandi og lærdómsríkt
verkefni framundan og lagði áherslu
á að góð aðstaða til rannsókna í Eyj-
um hefði verið mjög mikilvægur
þáttur í staðarvalinu.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði niðurstöð-
una stórkostlega ánægjulega fyrir
Eyjamenn. Hann sagði ljóst að koma
Keikos til Eyja myndi hafa margvís-
leg áhrif.
Eskfirðingar hafa unnið
í málinu allt frá 1993
„Það eru okkur mikil vonbrigði að
niðurstaðan skuli vera þessi, hér hef-
ur verið unnið í þessu máli allt frá
árinu 1993 og menn haldið sambandi
við Free Willy Keiko-samtökin og
höfðu auðvitað vonast til þess að nið-
urstaðan yrði sú að Keiko kæmi til
Eskifjarðar,“ segir Guðmundur
Bjarnason, bæjarstjóri í hinu nýja
sameinaða sveitarfélagi Eskifjarðar,
Reyðarfjarðar og Neskaupstaðar.
Hann segist þó hafa trú á því að
ákvörðunin hafi verið fagleg og segir
Austfirðinga verða að taka henni af
karlmennsku.
Naddoddur
tekur land
~ á Hvalnesi
ÞEIR voru þreyttir en glaðbeittir
Færeyingarnir fjórir þegar þeir
komu að landi í gærkvöldi á
sexæringnum Naddoddi á Hval-
nesi austan Hafnar í Hornafirði
eftir að liafa lagt að baki rúmar
300 sjómflur frá Tvoroyri í
Færeyjum. Upphaflega ráðgerðu
þeir að fara beint til Reyðar-
fjarðar en breyttu um ferðaáætl-
un. „Það var strekkingsvindur á
móti að norðan og því mjög erfítt
að sigla í átt til Reyðarfjarðar.
Við vorum því nauðbeygðir að
taka stefnuna beint að landi,“
segir Ernst Emilsson Petersen
skipsljóri.
I nótt hugðist áhöfnin hvfla sig
og safna kröftum en leggja af
stað með morgninum til Reyðar-
fjarðar og ljúka þannig ferð vík-
ingsins Naddodds sem fór sömu _
leið fyrir rúmum þúsund árum. I
farteskinu hafa þeir forláta stein
sem gefinn verður Reyðfirðing-
um en á hann er letraður texti
um ferð Færeyinganna.
Frá því Naddoddur lagði af
stað hafa vindar verið frekar
óhagstæðir. í upphafi var
blankalogn en því næst þurfti að
beita bátnum upp í vindinn. Skip-
veijar hafa því þurft að róa mest
jillan tfmann og hafa þeir skipst
á á tveggja tfma vöktum. Upp-
haflega var ráðgert að sjö menn
yrðu í áhöfninni en þrír urðu frá
að hverfa á sfðustu stundu.
Fjórmenningarnir sögðu
sexæringinn hafa staðist þessa
eldraun með prýði. Þeir væru
þreyttir en ánægðir og lófarnir
orðnir sigggrónir eftir róðurinn
fráFæreyjum.
Áhöfnin heldur af landi brott
með næstu ferð Norrænu og tek-
ur bátinn með sér.
Á myndinni eru Finnbogi Joen-
»sen, Ernst Petersen skipsljóri,
Sverrir Jensen og Hjalgrímur
Kristinsen við komu til lands í
gærkvöldi.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út föstudaginn 19. júní.
Morgunblaðið/Þorkell
Smíði bíla að
heQast á Islandi
FYRSTI íslenski bíllinn fyrir al-
mennan markað var frumkynntur
í gærkvöldi. Bíllinn, sem kallast
XTREMER, er hann-
aður af Steini Sigurð-
arsyni í samstarfi við
Iðntæknistofnun og
Háskóla Islands, og
um tæknilega útfærslu
sér Bílabúð Benna.
XTREMER er svo-
nefndur ofurjeppi sem
er ætlað að höfða til
kaupenda mjög dýrra
lúxusbíla. Ráðgert er
að kynna bílinn á
næstunni á stórri bíla-
sýningu í Bandaríkjun-
um og fyrir stærstu
bílablöðum heims.
Undirbúningur að smíði bflsins
hefur staðið yfir í sex ár. Hann
verður boðinn með tvenns konar
vélum, annars vegar 190 hestafla
vél frá Chrysler og hins vegar 285
hestafla vél frá Mercedes-Benz
Brabus.
Ætlunin með framleiðslunni er,
að sögn Benedikts Eyjólfssonar
hjá Bflabúð Benna, að höfða til
efnameiri kaupenda sem kaupa
dýrari gerðir lúxussportbfla sem
kosta allt að 100 þúsund banda-
ríkjadali. Innifalið í kaupum á
bílnum verður tveggja daga jökla-
ferð á Islandi.
Samtímis kynningu á bflnum
erlendis er stefnt að því að setja
upp framleiðsluferli á Islandi í
samstarfi við leiðandi aðila á sviði
tækni og fjárfestinga.
■ Fyrsti/12
Morgunblaðið/Jim Smart
STEINN Sigurðarson, hönnuður bflsins,
og Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bflabúð-
ar Benna, við XTREMER.
Áform Kára Stefánssonar, Jakobs Kristjánssonar hjá Iðntæknistofnun o.fl
Nýtt fyrirtæki
í líftækniiðnaði
KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskr-
ar erfðagreiningar, segir að það „sé
mjög líklegt ef ekki víst“ að hann
muni ásamt Jakobi Kristjánssyni,
sérfræðingi hjá Iðntæknistofnun, og
fleirum stofna fyrirtæki til þess að
vinna efnahvata úr hita- og kulda-
þolnum bakteríum hér á Jándi.
„Þetta er starfsemi sem byggist al-
farið á hugviti fólks, sérþekkingu og
menntun. Þetta er tilraun til að snúa
gáfum og menntun fólks yfir í verð-
mæti,“ sagði Kári í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann kveðst vonast
til að það takist að ýta þessari starf-
semi úr vör fyrir árslok.
Ætlunin er að fyrirtækið vinni
efnahvata úr bakteríum sem fínnast
í hverum og jöklum hér á landi.
„Þær bakteríur eru nytsamlegar
vegna þess að hægt er að vinna úr
þeim efnahvata, sem má nota við
kringumstæður þar sem ekki er
hægt að nota venjulega efnahvata.
T.d. er hægt að einangra efnahvata,
sem vinna við hátt hitastig, sem er
afskaplega gagnlegt í ýmsum efna-
hvörfum sem menn nota í rann-
sóknaskyni og iðnaðarskyni, t.d. í
matvælaiðnaði.“
Líftækniiðnaður byggður
á íslenskri sérstöðu
Kári sagði að þessi hugmynd væri
ekki ný; menn hefðu áður reynt að
koma iyrirtæki af þessu tagi á fót
hér á landi. Auk þess eru mjög öflug
fyrirtæki í þessari starfsemi erlend-
is,“ sagði hann.
„Fyrii' utan það að setja upp ís-
lenska erfðagreiningu til að vinna að
rannsóknum á erfðum sjúkdóma,
sem ég hef verið að vinna við í mörg
ár úti í heimi, þá var það mín hugsun
að það væri ekki bara gaman heldur
gífurlega nytsamlegt að byggja upp
líftækniiðnað á Islandi. Til þess að
það væri hægt yrði að leggja áherslu
á þann hluta af þessum iðnaðargeira
sem byggist svolítið á íslenskri sér-
stöðu. Næst á eftir mannerfðafræð-
inni held ég að þessar bakteríur sem
búa við ystu mörk, í heitum hverum
og í jöklum, séu nærtækasta verk-
efnið til að ráðast í til þess að setja
fót númer tvö undir þennan iðnað,“
sagði Kári.
Hann sagði að með þessa hug-
mynd að leiðarljósi hefði hann nálg-
ast Jakob Kristjánsson, sérfræðing
hjá Iðntæknistofnun, „sem er sá
maður sem býr að þeirri sérþekk-
ingu og þeirri visku, sem þarf til
þess að geta byggt slíkt upp. Það er
hugmyndin að hann leiði slíkt verk-
efni“. Kári sagði að málið hefði verið
mikið rætt og settar fram alls konar
áætlanii'. „Mér finnst það komið á
það stig að það sé mjög líklegt ef
ekki víst að við komum til með að
ráðast í þetta undir leiðsögn hinnar
styrku handar Jakobs Kristjánsson-
ar, sem hefur unnið að rannsóknum
á svona bakteríum í langan tíma.“
Aðspurður um stærð verkefnisins
og kostnað við það sagði Kári: „Hug-
myndin er sú að þetta byrji smátt og
vaxi síðan hratt.“ Hann sagði að há-
tækniiðnaður væri þannig að annað-
hvort yxu fyrirtæki hratt eða þau
dæju hratt í harðri alþjóðlegri sam-
keppni.