Morgunblaðið - 09.08.1998, Page 4
4 SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1998
VIKAN 2/8 -8/8
► TVEIR menn Iétust í um-
ferðarslysum um verslunar-
mannahelgina. í báðum til-
vikum var um bflveltur að
ræða og var hvorugur mann-
anna í bflbeltum. Önnur bfl-
veltan varð á Skarðsströnd í
Dölum, en hin í Landsveit.
Þá slösuðust kona og ungt
barn þegar bfll þeirra fór út
af veginum á Holtavörðu-
heiði.
►LEIFTUR á Ólafsfirði og
ÍBVkeppa til úrslita í bikark
eppni karla í knatt-
spymu. Leift-
ur sigraði Grindavík 2-0 og
ÍBV vann Breiðablik með
sömu markatölu.
► VERÐ hlutabréfa í sjávar-
útvegsfyrirtækjum hækk-
aði umtalsvert í kjölfar milli-
uppgjörs í nokkrum fyrir-
tækjum. Afkoman er almenn
tbetri en reiknað varmeð. Ha
gnaður Hraðfrystihúss Eskifj
arðar var 275 milljónir á
fyrstu 6 mánuðunum og
hækkaði gengi hlutabréfa
fyrirtækisins um 11,7% við
fréttirnar.
►REKSTRARVANDI11 af 1
7 sjúkrahúsum á landsbyggð-
inni hefur verið leystur með
fjárveitingu sem Alþingi
ákvað f vetur að veija
óskiptri til sjúkrahúsa. Stóru
sjúkrahúsin í Reykjavfk
fengu 266 milljónir, en heil-
brigðisráðherra segir að
von sé á tillögum um hvemig
vandi þeirra verði leystur og
verði tillögurnar lagðar fyr-
ir rfkisstjórnina í haust.
►ERLENDIR ferðamenn
hafaaldrei verið fleiri en f
ár. Á fyrstu 7 mánuðum
ársins sóttu 17.000 fleiri ferð
amennlandið en á sama tfma-
bili f fyrra, en það er 14% au
knig. Ferðamálasljóri met-
ur aukninguna á 1,7 miljjarð
í auknar gjaldeyristekjur.
Krani eyðilagði hús
í Njarðvík
Hús, sem var í byggingu, eyðilagðist í
Njarðvík þegar kranabóma féll á það.
Litlu munaði að slys yrðu á fólki, en
þrír menn voru við vinnu á þakinu þeg-
ar kraninn tók að hallast fram fyrir sig
og bóman féll á þakið og í gegnum hús-
ið. Kraninn var að lyfta bárujámi upp á
þakið. Óljóst er hvers vegna kraninn
sporðreistist en talið er hugsanlegt að
vindur hafi átt þátt í óhappinu.
Rætt við sparisjóðina
um sölu á FBA
Stjómvöld hafa ákveðið að taka upp við-
ræður við Samband íslenskra spari-
sjóða um sölu á hlut ríkisins í Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins. Sparisjóðirnir
vilja kaupa allan bankann en hugsa sér
að selja 45-48% hlut áfram til annarra
aðila. Sparisjóðirnir hafa sett fram hug-
myndir um að sameina FBA og Kaup-
þing, sem er í eigu sparisjóðanna.
Erlendar skuldir
ríkisins lækka
Erlendar skuldir ríkissjóðs lækkuðu á
síðasta ári um 6,5 milljarða og hrein
lánsfjárþörf ríkissjóðs lækkaði milli ára
um 14,8 milljarða. Þetta kom fram í rík-
isreikningi fyrir árið 1997. Samkvæmt
niðurstöðutölu reikningsins var um 700
milljóna afgangur á rekstri ríkissjóðs,
en þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1984
sem rfldssjóður er rekinn haUalaus. Af-
koma ríkissjóðs batnaði um 9,4 millj-
arða milli ára.
Irakar slíta samstarfi
um vopnaeftirlit
ÍRÖSK stjómvöld tilkynntu á miðviku-
dag að þau myndu hætta öllu samstarfi
við vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna í kjölfar þess að slitnaði upp úr
viðræðum Richards Butlers, yfirmanns
vopnaeftirlitsnefndar SÞ (UNSCOM),
við íraksstjóm í byrjun vikunnar.
Öryggisráð SÞ lýsti á fimmtudag því yf-
ir að samstarfsslit íraksstjórnar væm
„algjörlega óviðunandi". Kofi Annan,
framkvæmdastjóri SÞ, telur íraks-
stjóm hafa brotið samkomulag um fullt
samstarf við vopnaeftirlitsnefhdina,
sem hann sjálfur gekk frá við Saddam
Hussein í febrúar sl. Bandaríkjastjóm
lýsti því yfir að hún myndi beita íraks-
stjóm þrýstingi svo að hún færi eftir
gerðu samkomulagi um vopnaeftirlit í
landinu, en stjómin í Bagdad hefur far-
ið fram á að vopnaeftirlitsnefndin verði
endurskipulögð þannig að beinna
bandarískra áhrifa gætti ekki í henni.
Sprengjutilræði í
Kenýa og Tansaníu
AÐ MINNSTA kosti 100 létu lífið og
um tvö þúsund særðust er bflsprengjur
spmngu fyrir utan sendiráð Bandaríkj-
anna í Austur-Afríkuríkjunum Kenýa og
Tansaníu með nokkurra mínútna milli-
bili að morgni fóstudags. Var mannfallið
mest í Nairóbí, þar sem yfir 70 létust og
um 1.200 særðust. Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti fordæmdi tilræðin harðlega
í sjónvarpsávarpi og sagði þau „ómann-
eskjulegt hryðjuverk". Sagði hann að
Bandarfldn myndu beita öllum sínum
mætti tfl að finna þá er stæðu að baki
ódæðisverkunum og draga þá fyrir dóm.
► MONICA Lewinsky, fyrr-
verandi starfsstúlka í Hvíta
húsinu, bar á fimmtudag
vitni fyrir rannsóknarkvið-
dómi í Washington um meint
ástarsamband hennar við Bill
Clinton Bandaríkjaforseta.
Stóðu yfirheyrslurnar í níu
tíma, en ekkert hefur verið
gefið upp opinberlega hvað
hún sagði. Clinton mun sjálf-
ur bera vitni 17. ágúst nk.
► MESTU vatnavextir sem
um getur síðustu áratugi
valda nú hundruðum milljóna
manna í Kína, Kóreu,
Bangladesh og fleiri A-Asíu-
rikjum miklum búsifjum. Yfir
2.000 manns hafa látið lífið af
völdum fióðanna i Kína frá
því í júní.
► HANAN Ashrawi, sem
verið hefur einna mest áber-
andi af palestfnskum stjórn-
málamönnum á alþjóðavett-
vangi, sagði af sér ráðherra-
embætti í heimastjórn Palest-
fnumanna á fimmtudag. Er
afsögn hennar talin pólitfskt
áfall fyrir Yasser Arafat, for-
seta heimastjórnarinnar.
► LAURENT Kabila, for-
seti Lýðveldisins Kongó (áð-
ur Zaire), sakaði á fimmtu-
dag sljórnvöld í grannrfk-
inu Rúanda um að vera í
stríði við Lýðveldið Kongó og
hvatti þegna sína til að veija
fullveldi landsins. Bizima
Karaha, sem var utanríkis-
ráðherra í stjóm Kabilas,
gekk til liðs við uppreisnar-
menn f vikunni.
► MESTA verðfall á hluta-
bréfum sem orðið hefur í ár á
einum degi f kauphöllinni á
Wall Street varð á þriðjudag,
en þá lækkaði Dow Jones-
vfsitalan um 3,4%, eða 299,43
stig.
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurgeir
VANDAMAL vegna kaupskyldu sveitarfélaga á félagslegum íbúðum eru víða og eru engir landshlutar und-
anskildir. í Vestmannaeyjum hefur bærinn leyst til sín 43 íbúðir, sem allar standa auðar.
Félagslega íbúðakerfíð þungur baggi á
sveitarfélögum víða um land
Fortíðarvandi
til framtíðar?
Kaupskylda sveitarfélaga á íbúðum í fé-
lagslega kerfínu er víða orðið vandamál á
landsbyggðinni. Dæmi eru um að 90%
þessara íbúða séu komnar í eigu þeirra
sjálfra og víða standa þær auðar. Hugi
Hreiðarsson ræddi við fulltrúa nokkurra
sveitarfélaga.
í LÖGUM um kaupskyldu sveitar-
félaga í félagslega íbúðakerfinu er
kveðið á um að 10 ára kaupskylda
sé á þeim íbúðum sem byggðar voru
eftir árið 1990 en til þess tíma hafði
hún verið 15 ár frá árinu 1984 þegar
reglur um slíkt voru fyrst settar í
lög.
Víða um land eru þessar kvaðir
farnar að hafa áhrif á rekstur sveit-
arfélaga en við innlausn íbúðanna
þurfa þau að fjármagna 10% hlut
seljanda auk þess sem þau taka við
afborgunum af áhvflandi lánum. I
framhaldi af innlausn þurfa þau að
leita leiða til að selja þær aftur eða
fá leigjendur í þær.
Misjafnar ástæður innlausna
í samtölum við fulltrúa sex sveit-
arfélaga kom í ljós að oftast gengur
illa að selja íbúðimar aftur og
einnig er mjög misjafnt hversu stór
hluti þeirra fer aftur í leigu. Sem
dæmi má nefna að á Sauðárkróki
voru allar íbúðir í leigu en í Vest-
mannaeyjum var því þveröfugt far-
ið. Ástæður innlausna eru einnig
misjafnar eins og flutningur fólks til
höfuðborgarsvæðisins, stækkun á
húsnæði og einnig er nokkuð um að
eigendur skili inn íbúðum áður en
kaupskylduákvæði sveitarfélagsins
renna út.
Fulltrúamir vom í öllum lands-
fjórðungum, og var vandamálið víð-
ast hvar svipað og skuldbindingar
þeirra frá því að vera um 20% af.
heildarskuldum upp í 60%. Þær töl-
ur em álíkar þeim sem komu fram í
skýrslu sem Haraldur L. Haralds-
son vann fyrir Samband íslenskra
sveitarfélaga á síðasta ári. Þar
reyndust heildarskuldir allra sveit-
arfélaga á landinu vegna félagslega
íbúðakerfisins, þar með talið höfuð-
borgarsvæðisins, vera 9,5 milljarðar
króna sem þá samsvaraði til 16% af
heildarlangtímaskuldum þeirra. í
vor vann Haraldur að samskonar
skýrslu sem eingöngu tók til ísa-
fjarðarbæjar. I henni kemur fram
að skuldir bæjarfélagsins vegna fé-
lagslegra íbúða séu tæpar 700 millj-
ónir króna og í niðurstöðum má lesa
að þessar skuldbindingar séu farnar
að hafa nokkur áhrif á rekstur bæj-
arins. Þetta staðfesti Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóri. Hann segir þó
að unnið sé að því að koma þessum
málum í betra horf og er stefnt að
því að endanleg úttekt á vandanum
liggi fyrir þegar samstarfsnefnd
sveitarfélaga hittist í lok þessa mán-
aðar.
Helmingur skulda
í Bolungarvík er ástand mála
jafnvel enn alvarlegra og segir Ólaf-
ur Kristjánsson bæjarstjóri það
ekki fara batnandi. „Þetta er orðið
mikið vandamál hjá okkur og við
höfum verið að innleysa til okkar
íbúðir sem eru á allt að 90% hærra
verði en gengur á hinum almenna
markaði. I dag eigum við 60 af þeim
79 sem eru í kerfinu og standa 12
þeirra auðar en við höfum ekki náð
að selja neina á þessu ári. Fjár-
skuldbindingar vegna þessara íbúða
nema um helmingi af heildarskuld-
um á samstæðureikningi bæjarfé-
lagsins og ljóst að eitthvað róttækt
þarf að fara gerast og vonum við að
það gerist með tilkomu nýrra laga
um félagslega íbúðakerfið, sem taka
gildi um næstu áramót,“ sagði Ólaf-
ur.
Allar íbúðir í leigu
Hjá Snorra Birni Sigurðssyni,
sveitai’stjóra á Sauðárkróki, fengust
þær upplýsingar að allar íbúðir,
sem bærinn hefur leyst til sín, hafi
komist í útleigu. Alls eru félagsleg-
ar íbúðir þar 121 talsins og hefur
bærinn leyst til sín 46 þeirra að
andvirði 317 milljónir króna. Hann
segir þó að leigutekjur séu ekki til
að byggja á og á skömmum tíma
geti þær hrunið niður. „Við höfum
miklar áhyggur af þessu en það
virðist vera, að fólk sé frekar tilbúið
til að leigja en kaupa nema í undan-
tekningartilfellum. Ástæðan er að
verðið er of hátt miðað við almennt
markaðsverð og má nefna sem
dæmi, að verð á þriggja herbergja
ibúð á almennum markaði er um
4,5-4,8 milljónir króna á meðan hún
kostar um 6 milljónir í félagslega
íbúðakerfinu."
Fjölgun innlausna
Hjá Húsavíkurbæ fengust þær
upplýsingar hjá Gauki Hjartarsyni
húsnæðisfulltrúa, að mikil fjölgun
innlausna hefði átt sér stað frá ára-
mótum. Á þessu ári hefur bærinn
þegar leyst til sín 10 íbúðir og aðrar
sjö eru á leiðinni. Segir hann mjög
tvísýnt hvort takist að leigja þær á
næstu mánuðum en nú þegar séu 10
íbúðir auðar. „íbúðaverð í þessu fé-
lagslega kerfi er talsvert yfir því
sem gengur á almennum markaði.
Við eru t.d. með íbúðir sem við höf-
um reynt að selja í tvö ár en þær
eru um 40-50% yfir venjulegu
markaðsverði," sagði Gaukur og
bætti við að þó hefðu stærri fast-
eignir verið að seljast á góðu verði í
sumar á Húsavík.
Erfítt að leigja
Líkt og í Bolungarvík nema heild-
arskuldir Búðahrepps í Fáskrúðs-
firði um helmingi af öllum langtíma-
skuldum hans. Steinþór Pétursson
sveitarstjóri segir að á síðasta ári
hafi sigið á ógæfuhliðina og að í dag
sitji bærinn uppi með 10 auðar íbúð-
ir. „Það er 31 félagsleg íbúð í Búða-
hreppi og við höfum leyst til okkar
22 af þeim. I fyrstu gekk ágætlega
að leigja þessar íbúðir en frá byrjun
árs 1997 hefur staðan versnað. Það
er ljóst að íbúðaverð hér er lægra
en í Reykjavík en félagslegar íbúðir
fylgja ekki markaðsverði og eru á
hliðstæðu verði og í höfuðborginni.
Hér eru til dæmi þar sem félagsleg-
ar íbúðir eru til sölu á 9 milljónir á
sama tíma og hægt er að fá einbýlis-
hús á 5 til 6 milljónir," sagði Stein-
þór. Hann segist þó vona að þær
breytingar sem verði um áramótin
muni koma til hjálpar þó svo að ým-
islegt sé enn óljóst í þeim efnum.
43 íbúðir tómar
Vestmannaeyjar skera sig nokk-
uð úr hvað varðar fjölda auðra
íbúða. Á þessu ári hefur bærinn inn-
leyst til sín 16 íbúðir og eru þær því
orðnar 43 af þeim 73 sem eru í fé-
lagslega kerfinu í bænum. Að sögn
Ingu Hjálmarsdóttur húsnæðisfull-
trúa eru þessar íbúðir allar auðar
og óljóst hvenær breyting verðm-
þar á. Hún segir kerfið vera búið að
ganga sér til húðar og að verð á fé-
lagslegum íbúðum sé komið úr öllu
samhengi við það sem sé að gerast á
markaðnum. Auk þess þurfi að gera
lagfæringar á nokkrum íbúðum og
að það muni auka enn á þau útgjöld
sem bærinn hafi af þessum íbúðum.