Morgunblaðið - 09.08.1998, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Drög lögð að evrópskri ofurdeild
Stórliðin
þvýsta á um
fleiri leiki
HUGMYNDIR um nýja deild í evrópskri knattspyrnu, deild sem ef
til vill mætti kalla ofurdeild, eru ekki nýjar af nálinni. Málin virð-
ast þó hafa tekið skýrari stefnu að undanförnu og forráðamenn
stórra félaga í Evrópu hafa rætt málin og sumir miklar líkur á að
keppni í slíkri deild geti hafist innan tveggja ára.
Talsmenn spænska stórliðsins
Real Madrid viðurkenndu í vik-
unni að þeir hefðu komið að viðræð-
um um stofnun nýrrar ofurdeildar í
evrópskri knattspyrnu. Lorenzo
Sanz, forseti félagsins, sagði að
hann hefði rætt möguleikann á
slíkri úrvalsdeild við háttsetta
stjórnarmenn frá ítalska liðinu AC
Milan, franska liðinu Olympique
Marseille og þýska liðinu Bayem
Miinchen. Hann sagði að slík deild
gæti orðið að veruleika eftir tvö ár,
en viðurkenndi að ekkert hefði verið
ákveðið í þeim efnum, né heldur um
fjölda liða í deildinni.
„Öll þessi lið verða að hafa augun
opin fyrir nýjum og spennandi
möguleikum í heimi knattspymunn-
ar,“ sagði Sanz. „Þetta er allt á um-
ræðustigi enn sem komið er, en við
emm opnir fýrir öllu. Þetta er
spuming um að fínna réttu blönd-
una af liðum og rétta fyrirkomulag-
ið, þannig að nýja ofurdeildin standi
undir nafni.“
Fjölmörg stórlið í Evrópu hafa á
undanfömum ámm viðrað með sér
hugmyndir um n.k. ofurdeild í Evr-
ópu. Nú virðist hins vegar meiri al-
vara vera komin í viðræðurnar og
drög að slíkri deild nánast tilbúin á
teikniborðinu.
I slíkri deild væm stórleikir ná-
lega alltaf á dagskrá og gæfu þannig
ómælt fé í kassann. Knattspymu-
samband Evrópu, UEFA, hefur alla
tíð skellt skolleymm við slíku tali og
hótað öllu illu þeim liðum sem hafa
verið viðriðin undirbúning hennar,
en í vikunni gerðist það, að fomáða-
menn sambandsins viðurkenndu að
þeir væra sjálfir með í undirbúningi
nýtt fyrirkomulag á keppni þeirra
bestu í evrópskri knattspymu og er
talið að UEFA vilji þannig koma til
móts við aukna peningaþörf stærstu
knattspymufélaganna og um leið
veikja undirstöður hinnar nýju
deildar.
Meistaradeildin
skref í rétta átt
Talsmenn Real Madrid hafa bent
á, að breytingamar, sem UEFA
hyggst gera á Meistaradeild Evr-
ópu fyrir tímabilið 1999-2000, hafi
verið verið skref í rétta átt en betur
megi ef duga skal. Þá er hugmyndin
að liðum fjölgi í 24 og leikið verði í
sex riðlum. Það ætti að þýða að
fleiri stórleikir verði á dagskrá lið-
anna í miðri viku. „Það verða fleiri
leikir með því fyrirkomulagi, en við
viljum enn fleiri toppleiki. Sjón-
varpið krefst þess og auglýsendur
sem og styrktaraðilar sömuleiðis,"
er haft eftir stjómarmanni í Bayem
Munchen.
Stórlið á borð við Manchester
United, Arsenal, Ajax og Real Ma-
drid hafa öll viðurkennt þátttöku í
A__
Reuters
SPÁNVERJINN Fernando Hierro, fyrirliði spænska stórliðsins Real Madrid, fagnar hér eftir að Real
sigraði í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. Framtíð meistaradeildarinnar kann að vera í hættu,
verði hugmyndir um nýja ofurdeild að veruleika.
undirbúningsviðræðum að undan-
fómu. Forsvarsmenn þeirra hafa þó
tekið skýrt fram að ekkert hafi ver-
ið ákveðið í þessum efnum og aðeins
sé verið að kanna þá viðskipta-
möguleika, sem í boði era.
Vitað er að virt lögfræðifirma í
Lundúnum hefur rekið málið und-
anfarið og er talið að það sé á veg-
um fjárfestingarbankans JP Morg-
an, sem hyggist stofna deildina um
aldámótin.
Kaup og kjör bestu leikmanna
heims hafa rokið upp úr öllu valdi á
undanfömum árum og nú er svo
komið að mörg liðanna era að slig-
ast undan launakröfum og greiðsl-
um vegna kaupa á rándýrum leik-
mönnum. Á sama tíma aukast sífellt
kröfur um árangur, svo selja megi
fleiri leiki í sjónvarpi og því virðist
ekkert lát verða á eftirspurn eftir
sparkvissum snillingum.
Flest stórliða ráða yfir fjölmenn-
um hópi leikmanna og segja ekkert
því til fyrirstöðu að fjölga leikjum
yfir tímabilið. Það er kannski ekki
að undra; fregnir herma að hvert
félag gæti haft yfir tvo milljarða á
ári upp úr krafsinu fyrir að taka
þátt eða sem samsvarar tvöfaldri
þeirri upphæð, sem sigurlið í Evr-
ópukeppni ber úr býtum nú um
stundir.
ÞJÁLFARINN Aime Jaquet hætti á dögunum
með franska landsliðið eftir að hafa gert það
að heimsmeisturum í síðasta mánuði. Eftir-
maður hans, Roger Lemerre, er lítt þekktur
og kom ráðning hans verulega á óvart. Hans
fyrsta alvöru verkefni með heimsmeistarana
er að sækja íslendinga heim í næsta mán-
uði.
Roger Lemerre hefur verið ráðinn nýr landsliðs-
þjálfari Frakka í knattspyrnu. Lemerre tekur
við starfinu af Aime Jacquet, sem gerði liðið að
heimsmeisturum fyrir í sumar. Fyrsta prófraun
nýja þjálfarans verður gegn Islendingum á Laug-
ardalsvellinum 5. september nk.
Tilkynnt var um ráðninguna á blaðamannafundi
fyrir skömmu og er óhætt að segja, að hún hafi
komið veralega á óvart. Þótt Lemerre hafi verið að-
stoðarmaður Jacquets í heimsmeistarakeppninni
hefur hann ekki mikla reynslu af þjálfun og síðast
stjómaði hann knattspymuliði franska hersins,
gerði þá raunar að heimsmeisturum herliða fyrir
tveimur árum.
Samningur Lememes er til tveggja ára og er litið
svo á, að árangur franska liðsins í Evrópukeppninni
árið 2000 muni skera úr um framhaldið.
„Þetta er mikið ábyrgðarstarf og sú staðreynd,
að við eram heimsmeistarar, eykur kröfurnar á mig
og liðið allt,“ sagði hinn nýi þjálfari á fundinum.
„Nú munu andstæðingar okkar ekki taka á okkur
neinum vettlingatökum og það er ávallt erfiðara að
halda sér á toppnum en að koma sér á hann.“
Margir telja að með ráðningu Lemerres sé
franska knattspymusambandið að tryggja sér sömu
línu og aðferðir og Jacquet hefur beitt með svo frá-
Reuters
ROGER Lemerre svarar spurningum
franskra fjölmiðla eftir að tilkynnt
var um ráðningu hans í stöðu lands-
liðsþjálfara heimsmeistara Frakka.
bærum árangri. Lemerre er fremur dulur maður,
en harðduglegur og vinsæll meðal leikmanna.
Hann hefur sagt, að hann tilheyri hinni frönsku
knattspyrnuakademíu og sé stoltur af því.
Margir kaliaðir
Fjölmargir kunnir þjálfarar hafa verið bendlað-
ir við landsliðsþjálfarastöðuna síðan Jacquet til-
kynnti að hann hygðist draga sig í hlé. Jean Tig-
ana, þjálfari Mónakó, þótti líklegastur lengi vel og
sömuleiðis renndu Guy Roux, fyrrverandi stjóri
Auxerre, og Jean-Claude Suaudeau hjá Nantes
hýra auga til starfans. Tigana virtist hins vegar
ekki tilbúinn til að láta Mónakó ganga sér úr
greipum og hinir tveir þóttu hafa full byltingar-
kenndar tillögur fram að færa.
Því varð hinn hæverski Lemerre fyrir valinu.
Hann á að baki stuttan en glæsilegan þjálfaraferil
og var vel liðtækur knattspyrnumaður á sinni tíð,
með liðum eins og Nantes, Nancy og Lens.
Eins og oft hefur komið fram mun franska
landsliðið hefja undankeppni fyrir Evrópukeppn-
ina árið 2000 með landsleik gegn íslendingum í
haust. Liðið mun leika einn æfingaleik fýrir Is-
landsförina, í Austurríki í lok þessa mánaðar, og
þá mun ef til vill koma í ljós hvort leikaðferð liðs-
ins hefur breyst í einhverjum aðalatriðum. Sjálfur
segir Lemerre að allir franskir knattspymumenn
komi til greina í liðið. „Þótt 22 leikmenn hafi orðið
heimsmeistarar er ljóst að mun fleiri gera tilkall
til sætis í liðinu. Margir þeirra eru yngri en 23 ára
og framtíðin er björt,“ sagði hann ennfremur.
Auk íslands eru Rússland, Úkraína, Armenía
og Andorra með Frökkum í undankeppni Evrópu-
móts landsliða, sem haldið verður bæði í Hollandi
og Belgíu árið 2000.
Miðasala
stóreykst í
Frakklandi
SIGUR Frakka á heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu hefur
gert það að verkum að áhugi á
knattspyrnu hefur aukist stór-
lega þar í landi og miðasala á
leiki í efstu deild frönsku
deildarinnar hefur aukist mik-
ið. Nú hafa 30% fleiri ársmiðar
selst hjá félögunum en á sama
tíina í fyrra, eða alls 140.000
miðar. Keppni í frönsku deild-
inni liefst um helgina. Sem
dæini má nefna að Marseille
hefur selt 36.000 ársmiða en
völlur þeirra tekur um 60.000
áhorfendur. Þetta er í fyrsta
skipti sem félag þar f landi sel-
ur meira en 30.000 ársmiða, en
í fyrra seldi félagið rétt rúm-
lega 17.000 miða. Sömu sögu
er að segja af meistaraliðinu
Lens. Hjá þvf hafa 20.000
ársmiðar selst á móti 9.200 í
fyrra og Metz hefur seit tvöfalt
fleiri en þá 8.220 miða sem fé-
lagið kom f lóg á sfðustu leik-
tíð. Eitt félag sker sig þó úr
þessum liópi, það er Paris St.
Germain, eina félagið sem selt
hefur færri ársmiða en í fyrra,
aðeins 19.000, 2.500 færri en
fyrir sfðustu leiktfð.
Valaá
batavegi
VALA Flosadóttir, stangar-
stökkvari er óðum að jafna sig
í bakinu eftir að hafa fengið
þursabit fyrir viku. Hefur hún
verið í meðferð vegna þess alla
vikuna og í gær var hún orðin
það góð að hún gat æft af full-
um krafti, að sögn Vésteins
Hafsteinssonar, verkefnis-
stjóra Frjálsíþróttasambands-
ins. „Hún er hin hressasta og
ég vonast til þess að meiðslin
séu úr sögunni," sagði Vé-
steinn. Hann sagðist reikna
með að hún keppti á einu móti
í Svíþjóð áður en hún heldur
ásamt öðrum keppendum ís-
lands á EM í Búdapest aunan
sunnudag. Hún afþakkaði liins-
vegar boð á mót í Póllandi.
Lemeire tekur við
heimsmeisturunum