Morgunblaðið - 18.09.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
211. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Berisha
verði
sviptur
þinghelgi
Tirana, Reuters.
ALBÓNSK þingnefnd lagði í
gær til að Sali Berisha, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar og fyrr-
verandi forseti landsins, yrði
sviptur þinghelgi. Er það gert
til að gera stjórnvöldum kleift
að handtaka Berisha, sem er
sakaður um að hafa staðið að
baki uppþotum í Albaníu í vik-
unni. Sameinað þing Albaníu
mun taka lokaákvörðun um
hvort Berisha verður sviptur
þinghelgi.
Þingnefndin féll frá kröfu um
að svipta fímm bandamenn
Berisha þinghelgi, taldi sann-
anii- á hendur þeim ónógar.
Ekki er ljóst hvenær albanska
þingið tekur máiið fyrir.
Fréttastofa AP hafði eftir
ónafngreindum heimildamanni
innan stjórnarinnar að Vestur-
lönd þrýstu nú mjög á um að
ákæran á hendur Berisha yrði
milduð til að auka ekki á óstöð-
ugleikann í landinu.
Um 2.000 stuðningsmenn
Berisha héldu uppi mótmælum
á götum Tirana í gær en lög-
reglu tókst að koma í veg fyrir
að fjöldi fólks tæki þátt í mót-
mælum með því að koma upp
vegatálmum.
Dómsmálanefnd Bandaríkjaþings fær upptökur úr máli Paulu Jones í hendur
Akvörðun um birtingu
myndbands dregst
Washington. Reuters.
DÓMSMALANEFND bandarísku fulltrúadeild-
arinnar komst ekki að niðurstöðu um hvort leyfa
ætti opinbera birtingu myndbands af yfirheyrslu
Kenneths Starrs, sérskipaðs saksóknara, yfir
Bill Clinton Bandaríkjaforseta um samband
hans við Monicu Lewinsky. Var fundi nefndar-
innar frestað þar til í dag en ekki er búist við því
að myndbandið komi fyrir almenningssjónir í
dag eins og áður hafði verið talið. Nýjar upplýs-
ingar um framhjáhald formanns nefndarinnar,
Henrys Hydes, ollu miklu ölduróti í gær og sök-
uðu repúblikanar Hvíta húsið um að reyna að
koma af stað nornaveiðum. Krafðist Tom
DeLay, einn leiðtoga repúblikana á þinginu, þess
að bandaríska alríkislögreglan yrði fengin til að
rannsaka þær fjölmörgu ásakanir um framhjá-
hald þingmanna sem komið hafa fram síðustu
daga, þar sem greinilegt væri að menn forsetans
hygðust „ógna“ þingmönnum með slíkum upp-
ljóstrunum.
Tillit tekið til fjölskyldu Lewinsky
Fundur nefndarinnar stóð lengi og lýstu sumir
fundannenn umræðunum sem „háleitum“ en aðr-
ir sögðu þær dæmigerðar fyrir nefndina, þar sem
kristallast ólík sjónarmið demókrata og repúblik-
ana. Hyde, formaður nefndarinnar, fékk í gær af-
henta myndbandsupptöku af vitnisburði Clintons
frá því í janúar í máli Paulu Jones á hendur hon-
um, en þar neitaði forsetinn því að standa í kyn-
Reuters
CLINTON var í gær viðstaddur fjáröflunar-
samkomu í Ohio, þar sem hópur fólks með
mótmælaspjöld tók á móti honum.
ferðissambandi við Lewinsky. Ekki er ljóst hvort
til stendur að birta þann vitnisburð.
Nefndin þarf að ákveða hvort birta eigi yfir
2.600 blaðsíður í tengslum við rannsókn Starrs,
auk myndbandsins. Akveðið var í gær að taka
tillit til óska fjölskyldu Lewinsky um að birta
ekki allt sem fram kemur í skjölunum, þar sem
um of viðkvæmar upplýsingar væri að ræða.
David Kendall, einkalögmaður Clintons, tók í
gær undir með bandamönnum forsetans er hann
lýsti því yfir að Starr hefði neitað að eyða mynd-
bandsupptöku af vitnisburði Clintons vegna þess
að hann hefði viljað auðmýkja hann.
Bandarískar sjónvarpsstöðvar hafa gert ráð-
stafanir vegna birtingar myndbandsins, sem er
um fjórir tímar að lengd. Hyggst CBS-stöðin sýna
það í heild, með viðvörunum um dónalegt orð-
bragð, en AlBC ætlar að sýna valda kafla úr því.
Þingið snuprar Clinton
Þingmenn fulltrúadeildarinnar felldu í gær-
kvöldi tillögu Clintons um 18 milljarða dala
framlag til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, um
1.200 milljarða ísl. ki-. Hafði forsetinn óskað
þessa framlags svo að koma mætti illa stöddum
ríkjum í Mið- og Suður-Ameríku til aðstoðar og
er neitunin enn eitt áfallið fyrir hann í þinginu.
■ Henry Hyde/22
■ StjórnmáIamenn/22
Seðla-
Jeltsfn segir rfkisstjórn fullskipaða innan viku
nrentun
Reuters
RUSSNESKIR hermenn tína gulrætur skammt frá Moskvu. Mikill
skortur er á hergögnum og mat fyrir hermenn og í gær krafðist
Jeltsín Rússlandsforseti þess að hermönnum yrði fækkað um fimmt-
ung. Það þýðir að í öryggissveitunum fækkar um 54.000 menn og um
250.000 í rússneska hernum.
Sænsku kosningarnar
Stefnir í veikan
vinstrimeirihluta
boðuð
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kveður nýja ríkisstjórn landsins
verða fullskipaða innan viku. Hann
hefur enn ekki tilnefnt mann í
embætti fjármálaráðherra. Þrír
fulltrúar Evrópusambandsins
(ESB) komu til fundar við Jevgení
Prímakov forsætisráðherra í gær
til þess að grafast fyrir um fyrir-
hugaðar efnahagsaðgerðir hins
nýja forsætisráðherra. I gær til-
kynnti svo seðlabanki landsins að
hafin yrði prentun peningaseðla til
að greiða niður ríkisskuldir og
koma illa stöddum bönkum til
hjálpar. Staðfestir þetta ótta lánar-
drottna og rússneskra sparifjáreig-
enda en stjórnvöld á Vesturlönd-
um, svo og ýmsir rússneskir
stjórnmálamenn hafa varað mjög
við seðlaprentun.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, er í sendinefnd ESB
ásamt Joyce Quin, innanríkisráð-
herra Bretlands, og Wolfgang
Schuessel, utanríkisráðherra Aust-
urríkis. Hann sagði ESB bera fullt
traust til Prímakovs og getu hans til
að leysa hinn gífurlega efnahags-
vanda í Rússlandi.
Erlendir fjárfestar þar í landi eru
hins vegar ekki jafn vissir um að
forsætisráðherrann sé traustsins
verður. Samkvæmt upplýsingum
Verslunarráðs Bandaríkjanna í
Moskvu hafa 50 bandarísk stórfyr-
irtæki tapað 500 milljónum dollara,
eða um 35 milljörðum íslenskra
króna, vegna efnahagskreppunnar
og neyðst til þess að draga saman
seglin. „Við höfðum trú á umbóta-
ferlinu," sagði Scott Blacklin hjá
verslunarráðinu, „en nú kemur í ljós
að við höfðum á röngu að standa."
Borís Nemtsov, fyi-rverandi að-
stoðarforsætisráðherra, telur
Prímakov ekki munu takast að
halda verðbólgunni í skefjum.
„Stefna Prímakovs er í þremur að-
alatriðum: seðlaprentun, seðla-
prentun og seðlaprentun,“ sagði
Nemtsov í viðtali við sjónvarpsstöð
Reuters. Alexander Shjokín, ný-
skipaður eftirmaður Nemtsovs,
sagði ummæli sem þessi einungis
vera olíuskvettu á verðbólgubálið.
Stokkhdlmi. Morgunblaðið.
EFTIR að hafa prédikað eldheitt
hversu óréttlátt sé að styðja við að
fólk ráði sér heimilishjálp afhjúp-
uðu sænsk blöð í gær að Gudrun
Schyman, formaður Vinstriflokks-
ins, nýtti sér svarta vinnu. Verstu
kosningaúrslit Jafnaðarmanna-
flokksins síðan 1914, metfylgi
Vinstriflokksins og um leið stjórn
með veikluðum jafnaðarmönnum
og öflugum Vinstriflokki er það
sem blasir við Svíum á mánudags-
morgun ef niðurstaða skoðana-
kannana þessa dagana gengur eft-
ir. Carl Bildt, formaður Hægri-
flokksins, segist bjartsýnn á að sá
möguleiki muni ýta við kjósendum.
Schyman bar af sér fréttir um að
hún nýtti sér svarta vinnu, því um
væri að ræða táning, vinkonu dótt-
ur hennar og ekki þyrfti að gefa
upp laun af þessu tagi undjr tíu
þúsund sænskum krónum. A úti-
fundi notaði Carl Bildt hins vegar
tækifærið til að minna á að skatta-
tillögur Hægriflokksins myndu
koma í veg fyrir að venjulegt fólk
yrði gert að glæpamönnum fyrir
skattsvik af þessu tagi.
Kristilegi demókrataflokkurinn
heldur áfram að bæta við sig, með
11,2 prósent, en Vinstriflokkurinn
er heldur öflugri með 12,7 prósent.
Báðir flokkar bæta við sig og sama
gerir Hægriflokkurinn með 24,6
prósent, meðan fylgi Jafnaðar-
mannaflokksins skreppur saman
og er nú 35,6 prósent. Svo lítið hef-
ur það ekki verið síðan 1914,
nokkrum ánim áður en konur
fengu kosningarétt í Svíþjóð.
Göran Persson, forsætisráð-
hen-a landsins, sagðist í gær telja
þjóðaratkvæði best til þess fallið að
skera úr um hvort Svíar ættu að
gerast aðilar að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu, EMU.
Sprengju-
smiður
á flótta
New York. Reuters.
AÐSTOÐARMAÐUR saudi-
arabíska auðkýfingsins
Osama Bin Laden og annar
lykilmaður í hryðjuverkahópi
Bin Ladens, voru í gær
ákærðir fyrir aðild að
sprengjutilræðinu við sendi-
ráð Bandaríkjanna í Nairobi í
ágúst sl. AIls létu 253 lífið í
sprengingunni.
Annar hinna ákærðu, sem
býr í Texas, var handtekinn í
gær, en hinn er á flótta undan
lögreglu. Flóttamaðurinn
heitir Haroun Fazil, sérfræð-
ingur í meðferð sprengiefna,
og er frá Comoros-eyjum.