Morgunblaðið - 18.09.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrrverandi starfsmaður fasteignasölu blekkti öldruð hjón
Dæmdur í eins árs
fangelsi fyrir fjársvik
Havel í
stuttri
heimsókn
VACLAV Havel, forseti Tékk-
lands, millilenti á Islandi á leið
sinni í opinbera heimsókn til
Bandaríkjanna á þriðjudag og
tók Þorsteinn Pálsson, sjávar-
útvegsráðherra og dómsmála-
ráðherra, á móti honum í fjar-
veru Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra.
Havel ekki veikindalegur
Þorsteinn sagði að þetta
hefði verið stutt heimsókn.
Hann hefði tekið á móti Havel
á Keflavíkurflugvelli og fylgt
honum á hótelið á Keflavíkur-
flugvelli. Ekki hefði gefíst
mikill tími til viðræðna, en
Havel hefði ekki borið með sér
að hann ætti við veikindi að
stríða.
FYRRVERANDI starfsmaður fast-
eignasölu var í gær í Hæstarétti
dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir
fjársvik. Taldist sannað að hann
hefði blekkt öldi’uð hjón til að af-
henda sér aleiguna tæplega 11 millj-
ónir króna sem þau hafa ekki fengið
endurgreiddar nema að hálfu leyti.
Hjónin leituðu til fasteignasölunn-
ar árið 1995 og vildu minnka við sig
með því að selja íbúð í Kópavogi.
Þegar íbúðin hafði verið seld fólu
þau starfsmanninum að varðveita
stóran hluta söluverðsins, 5 milljónir
í peningum en tæpar sex milljónir í
húsbréfum. Að þeirra sögn hafði
starfsmaðurinn boðist til að ávaxta
féð fyrir þau á meðan þau leituðu
nýrrar íbúðar. Var þeim ekki kunn-
ugt um fjárhagsörðugleika starfs-
mannsins og fasteignasölunnar.
Ákærði bar því hins vegar við fyrir
dómi að um lán hefði verið að ræða
því ágætur kunningsskapur hefði
tekist með þeim í kringum fasteigna-
viðskiptin.
Þegar hjónin höfðu fest kaup á
minni íbúð í Kópavogi og komið var
að því að borga af henni mættu þau
fyrirstöðu hjá starfsmanninum sem
sagði féð ekki laust til afhendingar.
Með eftirgangsmunum fengu þau þó
á tímabilinu júlí 1996 til janúar 1997
endurgreiddar 5,2 milljónir króna.
Starfsmaðurinn varð gjaldþrota þeg-
ar árið 1995 og fasteignasalan var
tekin til gjaldþrotaskipta í júlí 1997.
Að því er fram kemur í héraðsdómi
hafa hjónin höfðað skaðabótamál á
hendur öðrum starfsmanni fast-
eignasölunnar, löggiltum fasteigna-
sala, er annaðist skjalagerð við söl-
una og tryggingafélagi hans, tU að fá
tjón sitt bætt.
í niðurstöðu Héraðsdóms Reykja-
víkur 12. febrúar 1998 sagði að þegar
litið væri til þess hversu mikla fjár-
muni hjónin afhentu ákærða, fjár-
muni sem þau töldu aleigu sína, og
til þess að þau þekktu starfsmann
fasteignasölunnar ekkert fyrir verði
að telja fráleitt að um lán hafi verið
að ræða. Honum hlyti og að hafa
verið ljóst er hann eyddi fénu að
hann myndi ekki geta endurgreitt
það með vöxtum á tilskildum tíma.
Taldist sannað að hann hefði í auðg-
unarskyni blekkt hjónin til að af-
henda sér féð og varðaði sú háttsemi
við 248. gr. almennra hegningarlega.
Hæstiréttur staðfesti ákvæði héraðs-
dóms um sakfellingu en þyngdi refs-
ingu úr 10 mánaða fangelsi í 12 mán-
uði.
Málið flutti af hálfu ákæruvaldsins
Sigríður Jósefsdóttir saksóknari en
skipaður verjandi dæmda var Krist-
ján Stefánsson hrl.
Morgunblaðið/Ásdís
Bílþvottur í sólinni
SÓLSKIN á haustdögum lengir
sumarið sem senn hverfur á brott.
Þessi stúlka notaði sólardag f
Reykjavík til bílþvottar, en sólríkt
hefur verið á suðvesturhominu
undanfarið. Kólnað hefur þó tölu-
vert og brátt má búast við því að
haustlaufin fari að falla.
Ibúðargötu lokað
án viðvörunar
ÍBÚUM við Sæbólsbraut í Kópa-
vogi brá í brún í gær þegar verk-
taki lokaði götunni, sem er botn-
gata, og hófst handa við malbikun-
arframkvæmdir á allri akbrautinni
án þess að viðvörun hefði verið gef-
in. Verið var að vinna við að setja
yfirlögn yfir hluta af Sæbólsbraut-
inni.
Ibúar, sem höfðu samband við
Morgunblaðið, kváðust ekki hafa
komist á bílum frá heimilum sínum,
verktakinn hefði hafist handa við
framkvæmdir þannig að ófært var
um götuna án þess að banka upp á
og láta vita af framkvæmdum.
Þórarinn Hjaltason, bæjarverk-
fræðingur í Kópavogi, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að það væru
almenn fyrirmæli til verktaka bæj-
arins að ef hætt væri við að fólk
lokaðist af vegna framkvæmda
ætti að banka upp á hjá því eða
setja upp viðvörunarmerki vegna
framkvæmdanna degi áður en þær
hefjast.
Þórarinn sagði að athugasemdir
íbúa vegna framkvæmdanna hefðu
ekki borist bæjarskrifstofunni en
sagði að miðað við frásögn blaða-
manns hefði verktaki ekki fylgt
þessum almennu fyrirmælum.
Formaður Sambands iingra framsóknarmanna
Hafnar kröfu um auka-
fund sambandsins
ÁRNI Gunnarsson, formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna
(SUF), segist ekki ætla að verða við
ósk aðalfundar Félags ungra fram-
sóknarmanna (FUF) í Reykjavík
um að kalla til aukafundar sam-
bandsins, en í ályktun aðalfundar
FUF á þriðjudag segir að aukaþing
SUF sé sá vettvangur sem best sé
til þess fallinn að ná farsælli lausn í
deilu ungra framsóknarmanna. Þær
deilur sem þarna er vísað til hafa
staðið yfir undanfama mánuði og
snúast um kosningar til stjórnar og
formannsembættis SUF á 27. sam-
bandsþingi SUF í sumar. Hefur
stjórn FUF haldið því fram að lög
sambandsins hafi verið þverbrotin
við kosningamar.
Árni segir að hins vegar standi
það til á allra næstu dögum að ræða
við nýjan formann FUF í Reykjavík
og nýja stjórn um sættir í þessu
máli.
Á aðalfundi Félags ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík, sem hald-
inn var á þriðjudag, var Finnur Þór
Birgisson laganemi kjörinn nýr for-
maður FUF í Reykjavík, en Þorlák-
ur Traustason, fráfarandi formaður
félagsins, baðst undan endurkjöri.
Þá vom þau Benedikt Magnússon,
Dagný Jónsdóttir, Guðný Jóhannes-
dóttir, Hafþór Pálsson, Reynir Þór
Sigurðsson og Svava Friðgeirsdóttir
kjörin í stjórn félagsins.
Á aðalfundinum urðu ennfremur
nokkrar umræður um deilur innan
raða ungra framsóknarmanna á síð-
ustu mánuðum og var samþykkt
ályktun þar sem lýst er yfir stuðn-
ingi við framgöngu stjórnar FUF í
Reykjavík í deilunni. En um leið
lýsti fundurinn furðu sinni á því að
stofnanir SUF og Framsóknar-
flokksins skyldu ekki hafa bolmagn
til að leysa úr deilumálum sem
þessum.
Hannes Hlífar áfram
Hefur ekki tapað skák á mótinu
SKAK
Svæðamót
Á o i- ð n i-1 a n (I a
í Munkebo á Fjóni í Danmörku
HANNES Hlífar Stefánsson
stórmeistari tryggði sér í gær
þátttöku á heimsmeistarmótinu í
skák, sem haldið verður í Las Ve-
gas í desember nk. Hann vann
síðari skákina við Norðmanninn
Rune Djurhuus í þriðju umferð
svæðamóts Norðurlanda. Hannes
Hlífar hefur ekki tapað skák á
mótinu og er vel að þessum
glæsilega árangin kominn.
Sænski stórmeistarinn Ralf
Ákesson vann norskan starfs-
bróður sinn, Einar Gausel, og
nældi þannig í farseðil til Las Ve-
gas, en Peter Heine Nielsen,
Danmörku, og Tom Wedberg,
Svíþjóð, verða að tefla til þrautar
í dag um þriðja farseðilinn á
heimsmeistaramótið.
Mótinu lýkur svo á morgun
með keppni, annars vegar um
1.-3. sætið, og hins vegar um
4.-6. sætið, en það eru sæti vara-
manna á heimsmeistaramótinu.
Við skulum nú sjá skemmtilega
vinningsskák Hannesar Hlífars í
gær.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Rune Djurhuus
Enskur leikur
1. c4 - e5 2. Rc3 - Rc6 3. g3 -
f5 4. Bg2 - Rf6 5. e3 - g6
Norðmaðurinn er vanur að
tefla kóngsindverska vörn, en
hann hefur tvisvar tapað illa fyrir
Hannesi í þeirri byrjun og teflir
þess vegna aðra byrjun nú. Hann
kann ekki vel við sig í henni og á
ekkert svar við einfaldri og
sterkri taflmennsku Hannesar í
framhaldinu.
6. d4 - e4 7. f3 - exf3 8. Rxf3 -
Bg7 9. d5 - Rb8
Þessi leikur byggist líklega á
þeirri áætlun að leika í framhald-
inu — a5, — Ra6 og - - Rc5 til
að verja veikleikann á e6. Þessi
áætlun er hægfara, en áður hefur
verið leikið hér 9. — Re7 o.s.frv.
10. 0-0 d6 11. Rd4 - 0-0 12.
Rce2 - Rg4 13. Rf4 - Bxd4?
Eftir þennan leik verður fátt
um varnir hjá svarti. Hann lætur
sterka biskupinn á g7 af hendi,
og losar hvít við eina veikleikann
í stöðu hans, peðið á e3. Það er þó
verra, að hann missir aðgang að
reitunum e5 og c5 fyrir riddara
sína. Hann varð að tefla á sama
hátt og Pólúgajevskíj í fyrr-
nefndri skák og leika 13. - Hf7
ásamt — a5 og — R-a6-e5 við
típlfiftpl’i
14. exd4! - He8 15. Re6 - Bxe6
Þessi leikur jafngildir uppgjöf,
því að nú fær hvítur valdað frípeð
á e6. Svartur á þó varla mikla
möguleika á að veita mótspyrnu,
eftir 15. — Dd7, t.d. 16. h3 - Rf6
17. Bg5 - Rh5 18. Dd3 ásamt 19.
g4 o.s.frv.
16. dxe6 - c6 17. h3! - Rf6 18.
d5 - cxd5 19. cxd5 - Ra6
20. g4 - fxg4 21. Dd4! - gxh3
Eftir 21. - - Kg7 22. Hxf6 -
Dxf6 23. Bh6+ fellur tjaldið og
21. — Hf8 væri svarað með 22.
Bh6 o.s.frv.
22. Hxf6 - hxg2 23. Hf7 - Db6
24. Hg7+ - Kh8
Eða 24. - - Kf8 25. Dxb6 -
axb6 26. Bh6 ásamt 27. Kxg2 og
28. Hfl+ o.s.frv. Svartur getur
ekki svarað 26. Bh6 með 26. -
He7, vegna 27. Hf7+ + - Ke8 28.
Hf8 + mát.
25. Be3 - Dxd4 26. Bxd4 - Rc5
Svartur leikur sig í mát, en
hann hefði ekki getað varist
lengi, eftir 26. — h5 27. Hel -
Rc5 28. He3 ásamt 29. Hg3 og 30.
H3xg6 o.s.frv.
27. Hxg6+ mát.
Bragi Kristjánsson