Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 47
Islenskir tómatar betri að
gæðum en þeir útlendu
Ný rannsókn á bragðgæðum og efnainni-
haldi tómata á vegum Matvælarannsókna
í Keldnaholti sýnir meðal annars að það
er síst minna af lýkópeni í íslenskum
tómötum en útlendum en lýkópen er
meðal hinna svokölluðu andoxunarefna
sem talið er að geti hamlað framgangi
ýmissa sjúkdóma.
HJÁ Matvælarannsóknum í
Keldnaholti er nú verið að vinna að
verkefni um gæði grænmetis.
Lögð er áhersla á að rannsaka
gæði grænmetis út frá sjónarhóli
neytenda. Rannsóknin stendur í
heilt ár þar sem gæðin geta verið
mismunandi eftir árstímum. Að
sögn Ólafs Reykdal matvælafræð-
ings sem vinnur að rannsókninni
ásamt Vali N. Gunnlaugssyni, mat-
vælafræðingi, eru allar helstu teg-
undir grænmetis skoðaðar og við
rannsóknina er beitt bæði skyn-
mati og efnamælingum. „Skynmat
er mikilvægt við gæðamatið en það
felst einfaldlega í því að skynfæri
mannsins eru notuð til að meta lit,
lykt, bragð, áferð og útlit,“ sagði
Olafur.
Mikilvæg uppspretta
C vítamíns
í rannsókninni vai- gerður sam-
anburður á gæðum íslenskra og
innfluttra tómata en tómatar eru
ein vinsælasta grænmetistegund-
in. Sagði Ólafur að hópur fólks
ISLENSKU tómatarnir voru taldir
tómatbragð og meiri safa en þeir
hefði verið þjálfaður til að
meta gæði tómata. Síð-
an fengu þessir ein-
staklingar sýni af
tómötum til að
meta , en öllum
upplýsingum um
uppruna sýnanna
hefði verið haldið
leyndum. Hver og
einn fyllti út eyðu-
blöð í lokuðum bás
og vissi ekkert um nið-
urstöðu næsta manns.
„Þegar niðurstöðumar voru
m í ljós að íslensku
tómatamir vom
yfirleitt taldir
hafa meira tómat-
bragð og meiri
safa en þeir inn-
fluttu,“ sagði
Ólafur. „Biturt
bragð og auka-
bragð fannst oftar
í erlendu tómöt-
unum og auka-
bragð fannst oftar
í erlendu tómöt-
unum en þeim ís-
lensku. Þegar á
heildina er litið
koma íslensku
tómatamir betur
út en þeir inn-
fluttu."
Ólafur sagði að
mælingar á efna-
innihaldi tómata
sýndu að þeir
gæfu litla orku,
aðeins um 17
kílókaloríur í
hverjum 100 g,
hafa meira
innfluttu.
enda væri vatnsinni-
haldið um 94 g í
hverjum 100 g.
„Engu að síður
geta tómatar
verið mikil-
væg upp-
spretta fyrir
C-vítamín og
stór hluti
þurrefnisins er
trefjaefni,“
sagði Ólafur.
Hefur ýmis jákvæð
áhrif á heilsuna
Rauða lit tómatanna má rekja
til náttúmlegs litarefnis sem heit-
ir lýkópen. Þessu efni hafa verið
eignuð ýmis jákvæð áhrif á heilsu.
Enn er þó margt óljóst varðandi
þessi áhrif,“ sagði Ólafur, „en þó
hefur verið staðfest að lýkópen er
meðal hinna svokölluðu andoxun-
arefna, sem talið er að geti hamlað
framgangi ýmissa sjúkdóma. Því
hefur verið haldið fram að lítið
lýkópen sé í tómötum sem ræktað-
ir eru í gróðurhúsum á norðlægum
slóðum þar sem sólar nýtur minna
við en í suðlægum löndum. Mæl-
ingar á nokkmm sýnum af ís-
lenskum og innfluttum tómötum
sýndu að það var síst minna af
lýkópeni í íslensku tómötunum. I
öllum tilfellum var um að ræða
sýni af þroskuðum, rauðum tómöt-
um en reikna má með að minna sé
af lýkópeni í tómötum eftir því
sem græni liturinn er ríkjandi.
Niðurstöðumar benda því til þess
að gæði íslenskra tómata séu
meiri eða jafn mikil og hinna inn-
fluttu."
FRÁ afliendingu viðurkenningar-
innar, talið frá vinstri: Guðmund-
ur Sigurðsson, verslunarstjóri
Hagkaups, Elsa María Ólafsdóttir
innkaupafiilltrúi, Gréta Jónsdóttir
sem stýrii' gamdeild Hagkaups í
Skeifunni og Auður Kristinsdóttir,
eigandi Gambúðarinnar Tinnu.
Tinna velur
Garnversl-
un ársins
1998
GARNABÚÐIN Tinna í Hafnar-
firði veitti nýlega gamdeild
Hagkaups í Skeifunni viðurkenn-
inguna Gamverslun ársins 1998.
Viðurkenningin er veitt fyrir
framúrskarandi árangur í þjón-
ustu og sölu, en allar þær 60
verslanir sem selja garn frá
Tinnu koma til greina við valið.
Síðastliðin ár hefur gamdeild-
inni í Skeifunni verið stýrt af
Grétu Jónsdóttur, sem er vel að
sér í prjónaskap. Þetta er í sjötta
sinn sem viðurkenningin er veitt,
en síðast hlaut liana hannyrða-
verslunin Mólý í Kópavogi.
Nýir pastaréttir
HEILDVERSLUNIN Daníel
Ólafsson ehf. hefur sett á markað
fjórar nýjar tegundir af Rdolfo
Pasta Quick-pastaréttum, sem ein-
ungis tekur fimm mínútur að mat-
reiða. Réttirnir eru Pasta parmes-
ana-núðlur í ostasósu, Pasta ai fung-
hi-núðlur með sveppasósu, Pasta
Carbonara-núðlur með skinkusósu
og Pasta ai broccoli-núðlur með
broccoli-sósu. Hægt er að bera rétt-
ina fram sér eða með meðlæti.
Nú 1Í99Ja
Danir i Þyi-
Atfcf U
.TtH'U'ME*
f 3. beati b\ór í heimi! \
Stuóningsmenn Gunnars I.
Birgissonar opna kosninga-
skriístofu í Hamraborg 12,
Kópavogi, í dag kl. 12.00.
Skrifstofan er opin virka
daga kl. 17-22.
Laugardaga kl. 12-19.
Sunnudaga kl. 13-17.
Alltaf heitt á könnunni.
Sjáumst!
Kosningaskrifstofan
Hamraborg 12,
sími 564 5823