Morgunblaðið - 20.11.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugfélagið Atlanta eykur umsvifín með nýjum verkefnum og endurnýjun í flugflotanum
210 milljóna rekstrarhagnað-
ur á fyrstu 8 mánuðum ársins
Umsvif flugfélagsins Atlanta fara stöðugt
vaxandi. Félagið hefur nýverið gengið frá
stærsta samningi sínum um verkefni til
þessa, við spænska fiugfélagið Iberia.
Samningurinn er til 18 mánaða og hljóðar
upp á um 5,5 milljarða kr. Þá hefur félagið
endurnýjað samninga við Saudi-Araba um
pílagrímaflug o.fl. Rekstraruppgjör félags-
ins sýnir hagnað eftir skatta að upphæð
210 milljónir kr. á fyrstu 8 mánuðum árs-
ins. Ómar Friðriksson ræddi við Arngrím
Jóhannsson forstjóra og Magnús Friðjóns-
son fjármálastjóra.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
STÖÐVARSTJÓRAR Atlanta flugfélagsins, sem starfa á sex stöðv-
um félagsins víðsvegar um heiminn, komu saman til fundar á Hótel
Borg í gær. í fremri röð f.v. eru Sveinn Zoega, Davíð Másson,
Panagiotis Nicolaidis og Georg Pappas. I aftari röð f.v. eru Ólafur
Weiner Smitli, Halldór Halldórsson, Jóhann Kárason, Garðar For-
berg og Val Grieve. Stöðvarstjórar Atlanta koma yfirleitt saman
tvisvar á ári og bera saman bækur sínar.
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur ný-
verið gert samning við spænska
flugfélagið Iberia um verkefni fyrir
félagið og gildir samningurinn til 18
mánaða. Atlanta mun nota tvær
Boeing 747-200 breiðþotur til þessa
verkefnis Meginhluti verkefnisins
sem félagið tekur að sér fyrir Iberia
er flug sjö sinnum í viku á milli Ma-
dríd og Buenos Aires og fjórum
sinnum í viku milli Madríd og Las
Palmas á Kanaríeyjum.
Að sögn Arngríms Jóhannsson-
ar, forstjóra Atlanta, og Magnúsar
Friðjónssonar, fjármálastjóra fé-
lagsins, hljóðar samningurinn upp
á um 5,5 milljarða íslenskra króna
og munu umsvif félagsins vegna
þessara verkefna aukast um ná-
lægt þriðjung.
„Þetta er langstærsti samningur
sem við höfum gert. Þetta er mjög
mikilvægur samningur fyrir fyrir-
tækið og íjárhagslega mjög góð-
ur,“ segir Magnús. Starfsmenn
Atlanta í Madríd vegna þessa verk-
efnis verða nálægt 250 talsins. Atl-
anta leggur til meðal annars flugá-
hafnir, fiugumsjónarmenn og flug-
virkja og má gera ráð fyrir að Is-
lendingar verði um 40% starfs-
manna Atlanta í Madríd en sam-
kvæmt ákvæðum samningsins
verður hluti starfsmanna í flugá-
höfn að vera Spánverjar.
Atlanta hefur aflað sér talsverðr-
ar reynslu af samstarfi við Iberia
en félagið hefur að undanförnu
verið í verkefnum fyrir Iberia og
notað tvær breiðþotur í flugi á leið-
um félagsins til Kúbu, Ríó de
janero og Miami í Flórída.
Tvær Boeing 747-200 þotur
Ieigðar af Cathay Pacific
Atlanta er um þessar mundir að
yngja upp flugflota sinn og hefur
tekið á kaupleigu tvær Boeing
747-200 breiðþotur hjá flugfélag-
inu Cathay Pacific í Hong Kong.
Verða þessar vélar notaðar í verk-
efni sem samið hefur verið um við
Iberia. Að sögn Arngrims eru vél-
arnar vel tækjum búnar. Þær voru
smíðaðar 1983 og eru búnar nýj-
um Rolls Royce-mótorum. Einnig
hafa nýlega verið settar nýjar inn-
réttingar í vélarnar sem eru sam-
bærilegar við innréttingar í
Boeing 747-400 breiðþotunum.
Önnur vélin verður afhent í næstu
viku en hin i desembermánuði.
Verða þoturnar strax sendar í
verkefni sem samið hefur verið
um við Iberia á Spáni.
Samningar í Saudi-Arabíu
endurnýjaðir
Ymis fleiri verkefni eru
framundan hjá Atlanta. Fyrir
skömmu endurnýjaði félagið samn-
inga um flug fyrir ríkisflugfélag
Saudi-Arabíu, Saudi Ai-abian Air-
lines. Er þetta sjöunda árið sem
Atlanta tekur að sér verkefni í
Saudi Arabíu. Félagið samdi fyrst
um verkefni þar árið 1993 en um-
svifín þar hafa farið vaxandi á sein-
ustu árum.
„Við byrjum á ný 1. desember
næstkomandi að fljúga fyrir Saudi-
Araba. Þar verður í fyrstu um að
ræða venjulegt áætlunarflug og á
nýju ári hefst hefðbundið píla-
gi-ímaflug á nýjan leik,“ segir Arn-
grímur.
Að hans sögn mun fljótlega
einnig hefjast svokallað kennara-
flug en þar er um að ræða flug með
mikinn fjölda útlendinga sem búa í
Saudi-Arabíu heim í sumarleyfi og
aftur til baka. Er þá í reynd mynd-
uð loftbrú milli Saudi-Ai’abíu og
Egyptalands, Malasíu, Indlands og
Pakistans.
„Við byrjum með tvær Boeing
747 vélar hinn 1. desember en bæt-
um svo þriðju og fjórðu vélinni við
að öllum líkindum þegar pílagifma-
flugið hefst. Um 160 manns munu
sinna þessum verkefnum á vegum
Atlanta," segir Arngrímur.
Fleiri verkefni eru framundan,
að hans sögn, því reikna má með að
félagið taki einnig að sér píla-
grímaflug fyrir Air India og Air
Afrique.
14 þotur í flugflota Atlanta
í flugflota Atlanta eru í dag 14
þotur, sem eru ýmist í eigu félags-
ins eða á leigu en nú er unnið að
endurnýjun flotans og hefur því
verið ákveðið að úrelda elstu vélar
félagsins. Á næstunni verður Atl-
anta því með í rekstri tvær Boeing
737 þotur, sex Boeing 747 breiðþot-
ur og sex Lockheed Tristar þotur.
Auk áðurnefndra verkefna held-
ur félagið áfram með ýmis föst
verkefni s.s. út frá Englandi og er
Atlanta nú einnig að hefja tíunda
árið í samvinnu við Lufthansa-flug-
félagið. Er félagið með tvær þotur í
fraktflutningum sem eru í Köln í
Þýskalandi.
Veltuaukning úr 7,7 í 9-9,5
milljarða milli ára
Afkoma Atlanta hefur verið góð
á árinu. Samkvæmt átta mánaða
rekstraruppgjöri var velta félags-
ins tæplega 7,1 milljarður króna á
því tímabili.
Hagnaður félagsins eftir skatta
á fyrstu átta mánuðum ársins var
rúmlega 210 milljónir og er gert
ráð fyrir að endanlegur hagnaður
verði svipaður yfír allt árið. Eigið
fé fyi’irtækisins nemur um 720
milljónum króna, að sögn Magnús-
ar.
Velta Atlanta hefur farið vaxandi
að undanförnu og gera áætlanir
stjórnenda félagsins ráð fyrir að
hún verði 9-9,5 milljarður króna á
öllu árinu samanborið við 7,7 millj-
arða kr. á seinasta ári. Samanborið
við síðasta ár er rekstrarafkoma
félagsins þó lítið eitt lakari en á
seinasta ári en þá nam hagnaður
eftir skatta 290 milljónum kr.
Starfsmannafjöldi félagsins er
talsvert breytilegur eftir verkefna-
stöðu hverju sinni. Á mesta anna-
tímanum, á meðan pflagi’ímaflugið
stendur yfir, frá febrúar og til
októberloka, eru starfsmenn á veg-
um félagsins 7-800 talsins en yfir
vetrarmánuðina era þeir um 500
manns.
„Við erum ánægðir með afkom-
una en teljum okkur geta gert enn
betur,“ segja þeir Magnús og Arn-
grímur að lokum.
ARNGRÍMUR Jóhannsson, forstjóri Atlanta, og Magnús Friðjónsson,
fjármálastjóri félagsins, eru bjartsýnir á reksturinn enda hefur verið
samið um stóraukin verkefni flugfélagsins á næstunni.