Morgunblaðið - 03.03.1999, Page 1

Morgunblaðið - 03.03.1999, Page 1
51. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vera Israelshers í Líbanon að verða að kosningamáli Barak lofar brottflutningi Jerdsalein. Reuters. ATOK Israela og skæruliða Hiz- bollah-hreyfingarinnar í Suður-Líb- anon eru að verða að kosningamáli í Israel en í gær gagnrýndi Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokks- ins, Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, harðlega fyrir að hafa ekki tekist að koma hemum burt frá Líbanon. Barak sagði, að næði hann kjöri í kosningunum í Israel 17. maí myndi hann verða búinn að flytja allt herliðið heim fyrir mitt næsta ár. Sagði hann, að Netanyahu leiddi ríkisstjórn, sem komin væri í ógöngur á öllum sviðum, en nú þyrfti að láta hendur standa fram úr ermum. Netanyahu svaraði þessum ásök- unum með því að segja, að Barak hefði átt sinn þátt í að binda herinn á líbanska klafann og hann lofaði því líka að kalla herinn heim innan árs. Hann sagði þó ekki rétt að tímasetja það nánar. Jafnvel Ariel Sharon, er stjómaði innrásinni í Líb- anon 1982 sem vamarmálaráðherra, hefur lagt til, að herinn verði fluttur þaðan einhliða og í áföngum. Vill ræða við Sýrlendinga Oánægja ísraelsks almennings með veru hersins í Líbanon eykst eftir því sem fleiri hermenn falla þar en sl. sunnudag féllu þar fjórir, þar af einn herforingi. Var hann borinn til grafar í gær. Barak kvaðst mundu hefja aftur friðarviðræður við Sýrlendinga, sem ráða mestu í Líbanon, og afla stuðnings annarra ríkja við alþjóð- legt gæslulið á landamæram Israels og Líbanons. Sagði hann unnt að kalla herinn heim áður en hugsan- legum samningum við Sýrlendinga um Gólan-hæðir lyki en Israelar tóku þær af þeim 1967. Harðlínumaður meðal Kosovo-Albana segir af sér Eykur heldur líkur á friðarsamningum Reuters FÓLK, sem flýði átökin við Kacanik, undir plastduk í skóginum skammt frá. Hjálparstarfsmenn komu á staðinn í gær og fluttu fólkið, um 350 manns, í húsaskjói. Pristína, Kacanik. Reuters. ADEM Demaci, sá leiðtogi Kosovo-Albana, sem harðast hefur barist gegn væntanlegum friðar- samningum við Serba, sagði af sér í gær sem pólitískur fulltrúi UCK, Frelsishers Kosovo. Líklegt er talið, að það muni greiða fyrir friði í landinu. Talsmenn vestrænna ríkja og NATO ítrekuðu í gær, að gerðu Serbar sig líklega til sóknar í Kosovo yrði á þá ráðist umsvifa- laust. Demaci skýrði frá ákvörðun sinni á fréttamannafúndi þar sem hann fordæmdi friðarviðræðumar sem svik við óskir Kosovo-Albana um frelsi og sjálfstæði. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins lýsti Demaci í síðustu viku sem „einum helsta þröskuldinum í vegi friðar“ og því þykir sennilegt, að afsögn hans verði til að auðvelda samninga. Virðast leiðtogar UCK vera að skipuleggja sig stjórnmála- lega með væntanlega samninga í huga og hefur einum þeirra, Hasim Thaqi, verið falið að mynda bráða- birgðastjóm fyrir Kosbvo og undir- búa kosningar. Lítill sáttatónn í Serbum Friðarviðræðumar hefjast aftur í Frakklandi 15. þ.m. en ekki er enn Ijóst hvort Serbar munu taka þátt í þeim. Milan Milutinovic, for- seti Serbíu, sagði í gær í viðræðum við bandaríska sáttasemjarann Chris Hill, að enn væri langt í samninga og gagnrýndi harðlega fyrirliggjandi tillögur. Sagði hann, að „lokatillagan“ myndi skera úr um hvort Serbar héldu áfram viðræðum. George Robertson, varnarmála- ráðherra Bretlands, varaði Slobod- an Milosevie, forseta Júgóslavíu, við í gær og sagði, að flyttu Serbar mikið herlið til Kosovo yrði á það ráðist. Var hann þá að vísa til frétta um mikinn liðsafnað Serba skammt frá Kosovo. Wesley Clark, yfirmaður NATO, lét svipuð um- mæli falla og sagði, að flugfloti bandalagsins væri í viðbragðs- stöðu. Atök vora í gær við bæinn Kacanik við makedónsku landamærin og þar hafa nokkur hundruð manns, einkum konur og böm, hafst við úti í skógi í tvo sól- arhringa. Flýði fólkið skothríð Serba en sumir kváðust ekki vissir um að lifa aðra nótt fyrir kulda. Grátbændi fólkið fréttamenn að hjálpa sér en síðar í gær tókst starfsmönnum hjálparstofnana að koma því til bjargar Arásir S á Irak hertar BANDARÍSKAR orrustuþotur gtrðu miklar árásir á hernaðarleg mannvirki innan flugbanns- svæðanna í Norður- og Suður-Irak í gær en fraska stjórnin hét að beita áfram loftvömum sfnum gegn flugvélunum. Eru flugmenn- imir ftjálsari að því en áður að ráðast gegn ioftvarnastöðvum, sem miða flugvélamar út. Rúss- neska stjómin sagði í gær, að flug- bannssvæðin væm ólögleg sam- kvæmt alþjóðalögum og skoraði á Breta og Bandarfkjamenn að hætta árásum. Myndin er af rúst- um fjarskiptamiðstöðvar á Ain Zahla-olfusvæðinu í N-Irak en eyðilegging hennar getur dregið úr olíuútflutningi frá landinu. ■ Markmiðið/21 Grimmileg morð á ferðafólki Kampala. Reuters. SKÆRULIÐAR frá Rúanda börðu og hjuggu til bana átta erlenda ferðamenn, sem voru komnir til Uganda til að fylgj- ast með fjallagórillum. Skæraliðamir, sem eru af kynþætti hútumanna, rændu upphaflega 31 ferðamanni í fyrradag en slepptu 17 þeirra fljótlega. Héldu þeir inn í skóg- inn með hina 14 þar sem þeir drápu að minnsta kosti átta þeirra, fjóra Breta, tvo Band- aríkjamenn og tvo Nýsjálend- inga. Skæruliðamir tilheyrðu áður vopnuðum sveitum í Rúanda, sem stóðu fyrir þjóðarmorðinu þar í landi. ■ Ferðamenn/19 Embætti Starrs lagt niður? Washington. Reuters. BANDARISKA dómsmálaráðuneyt- ið hvatti í gær þingið til að endur- nýja ekki lögin, sem vora grandvöll- ur rannsóknar Kenneths Starrs á málefnum Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna, og sambandi hans við Monicu Lewinsky. Lögin, sem sett voru 1978 með Watergate-málin í huga, áttu að tryggja óháða rannsókn á ásökunum, sem bornar væru á æðstu embættis- menn, en gildistími þeirra rennur út 30. júní nk. Pykja lögin meingölluð að sumu leyti og auk þess óþörf þar sem dómsmálaráðuneytið sé þess um- komið að rannsaka næstum allar hugsanlegar ávirðingar háttsettra manna. Rannsókn Starrs á Clinton-málun- um kostaði um þrjá milljarða ísl. kr. og stóð í fjögur ár. í kjölfar hennar hafa þingmenn úr báðum flokkum gagnrýnt lögin harðlega og benda þeir á, að með þeim hafi saksóknur- um verið afhent næstum ótakmörkuð völd og ótakmörkuð fjárráð. Geti það verið hættulegt þegar um sé að ræða menn, sem hafi þrönga og jafnvel brenglaða sýn á viðfangsefni sitt. Talið er víst að lögin verði látin renna út á miðju sumri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.