Morgunblaðið - 03.03.1999, Side 12

Morgunblaðið - 03.03.1999, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Náttúruverndarráð stendur fyrir fundi um vatnavernd Miðla þekkingn um flokkun vatnsfalla Landmælingar byggja starf- semina á lögum Morgunblaðið/RAX HVÍTÁ neðan við Gullfoss. NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ stend- ur fyrir opnum fundi um vatnavemd í Ráðhúsi Reykjavíkur fóstudaginn 5. mars ki. 13-15.30. Á fundinum munu tveii' fulltráar norskra yfir- valda halda erindi og svara fyrir- spumum um það hvemig Norðmenn hafa staðið að flokkun vatnsfalla með tilliti til virkjunar og verndar. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, for- maður Náttúruverndarráðs, segir að umræða um flokkun vatnasviðs- ins hér á landi sé nauðsynleg til þess að meta vemdargildi ákveð- inna svæða og taka frá þau svæði sem menn eru sammála um að verði ekki nýtt. „Einhver forgangsröðun er nauð- synleg. í gömlum áætlunum er reiknað með að nýta bæði Gullfoss og Öskju en ég býst við að flestir séu mótfallmr þeim hugmyndum í dag,“ segir Ólöf Guðný og bendir jafnframt á að þrátt fyrir að stjórn- völd hafi ákveðið að rammaáætlun til langs tíma um nýtingu vatnsafls og jarðvarma sem skuli lokið fyrir árslok 2000, hafi ekkert komið fram um framvindu verkefnisins frá því í janúar 1998. Grunnrannsóknir nauðsynlegar Ólöf Guðný segir að miklar upp- lýsingar vanti um sum svæði og að þörf sé á grunnrannsóknum á nátt- úru og lífríki þeirra. Því telji ráðið vafasamt að virkja á slíkum svæð- um en fjárveitingar til rannsóknar- starfs séu því miður ekki miklar og til dæmis mun minni en þær fjár- veitingar sem orkugeirinn hefur yf- ir að ráða til virkjanarannsókna. Á fundinum munu Ole Skauge, forstöðumaður Direktoratet for nat- urforvaltning í Þrándheimi, og Hall- var Stensby, yfírverkfræðingur frá Norges Vassdrags- og Energidi- rektorat (vatns- og orkustofnun), flytja erindi um stefnu norskra stjórnvalda í vatnavernd en flokkun vatnsfalla var samþykkt af Stór- þinginu 1984-1985. „Þeir munu miðla þekkingu sinni og vonandi getum við nýtt hana við þá flokkun vatnsfalla sem fyrirhuguð er hér á landi og allir virðast vera sammála um að þurfí að gera,“ sagði Ólöf Guðný að lokum. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Landmælingum íslands: „í Morg- unblaðinu hinn 2. mars 1999 er sagt frá því að stjórnendur Máls og menningar ætli að leita allra leiða til að fá gjaldskrá Landmælinga Is- lands hnekkt. Dreginn er í efa grundvöllur gjaldtöku og réttmæti gjaldskrár stofnunarinnar og enn- fremur að starfsemi Landmælinga Islands brjóti í bága við ákvæði samkeppnislagav Vegna þessa vilja Landmælingar Islands koma eftir- farandi á framfæri. Landmælingar Islands byggja starfsemi sína alfarið á gildandi lög- um um stofnunina nr. 95/1997. Vegna gjaldtöku þeirrar sem um er fjallað í áðurnefndri frétt er byggt á gildandi gjaldskrá nr. 21/1999 um útgáfu og birtingu gagna frá Land- mælingum íslands á prentuðu formi, sem staðfest var af umhverf- isráðherra hinn 6. janúar 1999 í samræmi við ákvæði laga um stofn- unina. Þess ber einnig að geta að í fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 1999 er Landmælingum íslands ætlað að afla 56,7 milljóna króna í sértekjur með sölu og afnotum á efni stofnun- arinnar. Til þess að hægt sé að afla þeirra fjármuna ber stofnuninni að taka gjald fyrir sölu og afnot af því efni sem hún hefur í vörslu sinni. Stofnunin gætir hagsmuna ríkisins á sviði höfunda- og afnotaréttar á öllu því efni sem hún hefur eignast, unnið eða gefíð út. Um höfundarétt gilda að öðru leyti höfundalög nr. 73/1972, með síðari breytingum. Varðandi þau gögn sem Mál og menning hefur fengið afnot af sam- kvæmt afnotasamningi sem undir- ritaður var nýlega, þá eru það kortagögn sem unnin eru af Land- mælingum Islands. I 9. gr. laga um landmælingar og kortagerð segir að Landmælingum íslands sé heimilt að veita afnotarétt af gögnum í vörslu stofnunarinnar. Mál og menning hefur óskað eftir því að nota stafræn kortagögn sem unnin hafa verið af Landmælingum Is- lands til kortaútgáfu. Slíkt leyfi hefur verið veitt og var miðað við flokk nr. 2 í gjaldskrá stofnunarinnar sem birt var í stjórnartíðindum í býrjun janúar sl. en þar segir orðrétt: „Gjald fyrir útgáfu efnis sem end- urgert er eftir efni frá Landmæling- um Islands þegar um er að ræða: Mikilsverðar breytingar án endur- tekningar eða einföldunar. Birt efni í endanlegri útfærslu sem inniheld- ur 30-60% af kortagögnum, texta, myndefni eða öðru efni frá Land- mælingum Islands. Gjald samkvæmt þessum flokki er kr. 50 pr. útgefið eintak en Mál og menning óskaði efth- og fékk 25% afslátt frá því verði á forsend- um þess að um viðamikið verkefni væri að ræða, stórt upplag, eða við- varandi verkefni. Án fyrrne/ndra kortagagna Landmælinga Islands sem eru höf- undarverk stofnunarinnar, gæti fyi'- irtækið Mál og menning ekki gefíð út kort sín og hefur það ekkert með að gera hvernig verktaki fyrirtækis- ins breytir litum eða útliti gagn- anna. Vegna afgreiðslu útgáfu- og birtingarleyfa vegna gagna Land- mælinga Islands þurfa viðskiptavin- ir að geta um hvar fyrirhugað er að birta efnið og með hvaða hætti, í hvaða upplagi, stærð og/eða mæli- kvarða, slíkar upplýsingar eru for- senda við ákvörðun gjalda. Að lokum er nauðsynlegt að árétta að með setningu gjaldskrár Landmælinga íslands er einungis verið að framfylgja þeim skyldum sem LMI era settar í lögum og tek- ur gjaldski'áin mið af því. Það er ekki hlutverk stjórnenda Landmæl- inga Islands að meta kosti og galla þess að rfkið innheimti gjöld fyrir þjónustu eða höfundarétt eða hvort sala ríkisins á upplýsingum sam- ræmist markmiðum einstaklinga eða fyrirtækja. Slíkar ákvarðanir era teknar af löggjafanum." Ágreiningur Hafnarfjarðar og Kópavogs um lögmæti upptökugjalds vegna lóða Dómur með fordæmisgildi aldrei verið kveðinn upp Lögmaður Hafnarfjarðar segir gjaldið hvfla á veikum grunni GUNNAR I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, undr- ast vangaveltur bæjarlögmanns Hafnarfjarðar um lögmæti svo- kallaðs upptöku- eða yfirtöku- gjalds vegna lóða og telur að álit hans sé byggt á röngum forsend- um. Að sögn Guðmundar Bene- diktssonar, bæjarlögmanns Hafn- arfjarðar, er upptökugjald lagt á lóðir til að mæta kostnaði bæjar- ins við að eignast það land sem út- hlutað er undir lóðir fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Upphæð gjaldsins fer eftir því hvað það hefur kostað bæinn að eignast landið, en gjaldinu er síðan deilt á lóðarhafana. Hann sagði að þrátt fyrir innheimtu gjaldsins væri ekki verið að afhenda lóðirnar til eignar, heldur væri bærinn að leigja lóðirnar. Óeðlilegir viðskiptahættir Guðmundur telur þetta hvorki vera réttmæta né eðlilega við- skiptahætti því leigjendum sé gert að greiða lóðir fullu verði, en þurfi síðan að leigja þær af bænum. Hann sagði þetta vera sína skoðun á gjaldinu en hann telur hana ekki vafalausa. Hann sagði að gjaldið hvfldi ,án efa á veikum grunni, þar sem það stæðist tæpast lögmætis- reglu.ín: Að Áögn Gunnars hefur Kópa- vogsbær innheimt upptökugjald, eða yfírtökugjald eins og það nefnist þar, í tugi ára. Hann sagði álit bæjarlögmanns Hafnarfjarðar byggjast á máli er viðkom inn- heimtu yfirtökugjalds á húsi í gömlu hverfi og að gjaldtökunni í því máli hafi verið hafnað, þar sem bærinn hafi ekki borið neinn kostnað af því lengur. Hann sagði að aðeins ætti að innheimta gjald- ið einu sinni og aðeins af nýjum lóðum. Guðmundur sagði að ekki hafi enn verið ákveðið hvort hætt yrði að innheimta gjaldið í Hafnarfírði, en að málið væri í athugun. Hann sagði að dómur með fordæmis- gildi í þessu máli hafi aldrei verið kveðinn upp og því væri í raun ómögulegt að segja með vissu hvort gjaldið væri löglegt eður ei. Hann sagði jafnframt að ekki væri hægt að segja til um hvort mikið yrði um endurkröfur á hendur bæjarfélaga vegna gjalds- ins, en réttur til endurkröfu fyrn- ist á fjórum árum. Innheimta gjaldsins lögleg Gunnar sagði að engin endur- krafa hafí verið gerð á hendur Kópavogsbæ enda hafi bærinn fullan rétt til að innheimta gjald- ið. Hann sagði að einhvern veginn þyrfti að standa straum af kostn- aði sveitarfélaga vegna landa- kaupa og við að kaupa upp mann- virki sem væru á löndum. Hann sagði að yfirtökugjaldið væri leið til að dekka þennan kostnað að hluta og að sveitarfélögum væri heimilt, samkvæmt lögum, að inn- heimta gjaldið. Kristín Hilmarsdóttir, fjár- málastjóri Garðabæjar, sagði að ekkert upptökugjald væri inn- heimt í bænum heldur væru að- eins innheimt gatnagerðargjöld. Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sagði að þar væri heldur ekki innheimt upptöku- gjald, heldur aðeins gatnagerðar- gjöld. Sigurgeir Sigurðsson, bæj- arstjóri Seltjarnarnesbæjar, sagði að eins væri með mál farið á Sel- tjarnarnesi en að ástandið væri svolítið sérstakt þar, þar sem all- ar lóðir væru í einkaeign. Guð- mundur G. Gunnarsson, oddviti Bessastaðahrepps, sagði að þar væru lóðir einnig í einkaeign og því ekkert upptökugjald inn- heimt. Hann sagði að samkomu- lag væri á milli seljenda og hrepps um að hreppurinn annað- ist sölu lóðanna fyrir eigendurna og innheimti um leið gatnagerðar- gjöld. Yegagerðin Þrjú tilboð í land- græðslu ÞRJÚ tilboð bárust Vegagerð- inni í landgræðslu á Vestfjörð- um árið 1999 og áttu GH verk- takar í Reykjavík lægsta boð, rúmlega 814 þús., en kostnað- aráætlun er um 970 þús. Næsta boð átti Jón Ingi Sig- ursteinsson, sem bauð rúma milljón, en þriðja boð kom frá Afreki ehf. á Flateyri, sem bauð rámar 1,5 millj. Fólk Leyfi til sérfræðistarfa Jón E. Gunnlaugsson •SÆNSKA heil- brigðisstjórnin hefur veitt Jóni E Gunnlaugssyni, geðlækni í Gautaborg, leyfi til að starfa sem sérfræðingur í réttargeðlæknis- fræði. Hann er kvæntur Jónu Irisi Thors og eiga þau eina dóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.