Morgunblaðið - 03.03.1999, Page 18
18 MIÐVTKUDAGUR 3. MARZ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur VISA íslands
134 milljarða
velta
HAGNAÐUR af rekstri VISA ís-
lands á síðasta ári nam rúmum 172
milljónum króna eftir skatta en var
121 milljón króna árið á undan.
Heildarviðskipti með VISA-kortum
árið 1998 námu 134,3 milljörðum
króna samanborið við 110,7 millj-
arða árið 1997 sem er 21,3% aukn-
ing á milli ára. Þar af námu kredit-
kortaviðskipti 70,8 milljörðum, sem
er 8,8 milljarða króna eða 14,28%
aukning frá fyrra ári. Árið 1998
námu debetkortaviðskipti 63,5 millj-
örðum króna sem er um 14,8 millj-
arða eða 22,5% auknmg frá 1997.
Síðasta ár hagstætt
I fréttatilkynningu kemur fram
að aðalfundur VISA var haldinn
föstudaginn 26. febrúar sl. í árs-
skýrslu stjórnar og reikningum fé-
lagsins kemur fram að árið 1998 var
fyrirtækinu mjög hagstætt á flesta
lund. „Stjóm Visa íslands telur að
starfsemi fyrirtækisins falli undir
lög um lánastofnanir aðrar en
banka og sparisjóði og mun verða
sótt um starfsleyfí til viðskiptaráðu-
neytisins á þeim grundvelli á næst-
unni. Dóms Hæstaréttar í máli fé-
lagsins gegn Samkeppnisstofnun
vegna álagsgreiðslna á kreditkorta-
viðskipti er að vænta um eða eftir
páska,“ að því er fram kemur í til-
kynningu.
Hafinn er undirbúningur að út-
1998
gáfu greiðslukorta með örgjörva,
snjallkorta öðru nafni. Sérstök
greiðslugátt fyrir trygg viðskipti á
veraldarvefnum með SET-öryggis-
staðli verður opnuð í mars. Utgáfa
skjáveskja fyrir VISA-kortnúmer
hefst fljótlega í samvinnu við banka
og sparisjóði.
Fram kom á fundinum að fjöldi
greiðslukorta á íslandi er með því
mesta sem þekkist miðað við íbúa-
fjölda og velta á mann heimsmet.
Utgefín kort í heild hér á landi eru
orðin yfir 400 þúsund. Þar af eru
um 241 þúsund debetkort og um
168 þúsund kreditkort. Heildarvið-
skipti með greiðslukortum í landinu
námu í fyrra um 183 milljörðum
króna. Kreditkortavelta var um 95
milljarðar króna og debekortavelta
um 88 milljarðar króna. Þá eru ekki
taldar með greiðslur með debet-
kortum innan bankakerfísins um
130 milljarðar króna, vegna
greiðslna á margvíslegum inn-
heimtu- og lánakröfum, kredit-
kortareikningum o.fl.
Styttist í snjallkortaútgáfu
„Hlutfall koi-taviðskipta af einka-
neyslu er mun hærra hér en í öðr-
um löndum eða um 60%, sbr. við
14% í Bretlandi, 12% á Spáni, 11% í
Frakklandi og 10% í Bandaríkjun-
um. Rætt er um að Island geti orðið
fyrsta mynt- og seðlalausa samfé-
lagið í heiminum ef svo heldur fram
sem horfir. Tilkoma myntkorta (raf-
silfurs/rafbuddu) og vefviðskipta á
ef til vill eftir að fullkomna þessa
þróun á næstu 5 árum,“ segir í
fréttatilkynningu.
Mikil aukning
í úttekt reiðufjár
Þar kemur fram að markaðshlut-
deild VISA er sem næst 75% af
kreditkortaviðskiptum og 72% af
debetkortaveltu. Kortaviðskipti inn-
anlands námu 59,4 milljörðum með
kreditkortum og 62 milljörðum með
debetkortum. Boðgreiðslur námu
alls 7,7 milljörðum og raðgreiðslur
4,5 milljörðum af kreditkortavið-
skiptum. Mikil aukning varð í úttekt
reiðufjár, einkum úr hraðbönkum,
sem nam 10,6 milljörðum með
debetkortum og 4,4 milljörðum kr.
með kreditkortum hér innanlands.
Kortaviðskipti erlendis námu 11,4
milljörðum króna.
Stjórn VISA íslands var endur-
kjörin, en hana skipa: Sólon R. Sig-
urðsson, bankastjóri Búnaðarbank-
ans, formaður; Sigurður Hafstein,
bankastjóri Sparisjóðabankans,
varaformaður; Björn Bjömsson,
framkvæmdastjóri Islandsbanka,
ritari; Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans. Fram-
kvæmdastjóri er Einar S. Einars-
son.
Plastprent hf. gefur út afkomuviðvörun
Ekki tókst að stöðva
taprekstur félagsins
HP skipt
í tvennt?
HEWLETT Packard íhugar
endurskipulagningu, sem gæti
leitt til þess að tæknirisanum
yrði skipt í að minnsta kosti
tvö aðskilin fyrirtæki.
Að sögn Wall Street Journal
gæti skiptingin orðið ein sú
mesta í fyrirtækjasögunni.
HP var talið eitt athyglis-
verðasta tæknifyrirtækið í
byrjun áratugarins, en hagn-
aður þess hefur dalað vegna
lækkandi verðs á einkatölvum.
HP hefur einnig farið halloka á
miðlaramarkaði, þar sem hlut-
deild Sun Microsystmens og
IBM hefur aukizt.
Orðrómur um hugsanlega
skiptingu komst á kreik þegar
fyrirtækið fékk ráðgjafafyrir-
tækið McKinsey & Co. í lið
með sér að kanna leiðir til að
auka hagnað.
PLASTPRENT hf. hefur gefið út
afkomuviðvörun og greint frá því að
tap hafi orðið af rekstri fyrirtækis-
ins í fyrra. Ekki tókst að stöðva tap-
rekstur á seinni hluta ársins eins og
vonast var eftir þegar milliuppgjör
fyrirtækisins var birt í ágúst sl.
Greint verður frá afkomu fyrirtæk-
isins í fyrra 19. mars næstkomandi.
Viðsnúningur á rekstrinum
I upphaflegum rekstraráætlunum
Plastprents fyrir síðastliðið ár var
gert ráð fyrir 35 milljóna króna
hagnaði á árinu. I ágúst sl. var
greint frá því að afkoman yrði mun
iakari, og nam tapið 39 milljónum
króna fyrstu sex mánuðina. For-
ráðamenn fyiirtækisins reiknuðu þá
með að takast myndi að stöðva tap-
reksturinn seinni hluta ársins. I til-
kynningu, sem Plastprent sendi frá
sér í gær, segir að nú sé Ijóst að það
hafi ekki tekist.
Viðsnúningur hefur því orðið í
rekstri Plastprents en fyrirtækið
skilaði 96 milljóna króna hagnaði
árið 1996 og 118 milljónum árið
1995 en reyndar greiddi fyrirtækið
engan tekjuskatt síðarnefnda árið.
Erfítt á umbúðamarkaði
Forráðamenn Plastprents röktu
tap fyrirtækisins á fyrri hluta sl. árs
til mikillar verðsamkeppni á um-
búðamarkaðnum, jafnt við innlenda
sem erlenda plastframleiðendur.
Bent var á að sterk staða íslensku
krónunnar og innlendar kostnaðar-
hækkanir, einkum launa, hefðu
skekkt samkeppnisstöðuna gagn-
vart erlendum framleiðendum.
Spenna á vinnumarkaði hefði valdið
fyrirtækinu áframhaldandi kostnað-
arauka í formi meiri þjálfunarkostn-
aðar, minni framleiðni og aukins
launaskriðs. Þá hefði samsetning
vörusölu fyrirtækisins einnig verið
fyrirtækinu óhagstæð síðustu miss-
eri og hlutur virðismeiri sölu hefði
t.d. minnkað.
Engin viðskipti urðu með hluta-
bréf Plastprents á Verðbréfaþingi
íslands í gær
1969-1999
30 ára revnsla
Einangrunárgler
GLERVERKSMIÐJAN
Savnvet'k
Eyjasandur 2 • 8SO Hella
» 487 5888 • Fax 487 5907
Fjárfestingarsjóður stórkaupmanna
Auknar fjárfest-
ingar í verðbréfum
HAGNAÐUR Fjárfestingarsjóðs
stórkaupmanna nam rúmum 30
milljónum króna árið 1998 en 37
milljónum króna eftir óreglulega
liði. Arið áður nam hagnaður sjóðs-
ins 31 milljón króna. Eigið fé sjóðs-
ins nam um síðustu áramót 300
milljónum króna. Raunávöxtun inn-
eigna sjóðsfélaga á síðasta ári nam
10,1% en 13,1% eftir óreglulega liði.
Undanfarin ár hefur sjóðurinn fjár-
fest í innlendum og erlendum verð-
bréfum í vaxandi mæli og er verð-
bréfaeign hans nú rúmar 50 milljón-
ir króna.
Nýlega var haldinn aðalfundur
sjóðsins sem er starfræktur af Sam-
tökum verslunarinnar - Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna. I sjóðnum
eni nú 85 fyrirtæki sem öll eru með-
limir í Samtökum verslunarinnar.
Lánar til allra
verslunarfyrirtækja
Fjárfestingarsjóður stórkaup-
manna lánar til allra verlsunarfyrir-
tækja, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu, og eru flest lánin
langtíma fjárfestingarlán. Sjóður-
inn veitir einnig styttri lán, s.s.
vörukaupalán.
A fundinum var kjörin ný stjóm
en hana skipa: Gunnar Þór Gíslason
formaður, Halldór Jóhannsson
varaformaður, Kristján Einarsson,
Guðmundur Ingason og Pjetur N.
Pjetursson. Framkvæmdastjóri
sjóðsins er Stefán S. Guðjónsson.
Vísitala neysluverðs
Spáð
0,2-0,35%
hækkun
í mars
ÍSLANDSBANKI hefur sent frá
sér verðbólguspá þar sem gert er
ráð fyrir 0,2% hækkun á vísitölu
neysluverðs í mars og að verðbólga
næstu 12 mánuði verði 2,2%.
Segir í spánni að sem fyrr felist
helsta óvissan í gengisþróun, þróun
erlends verðlags og þróun fram-
leiðni. Afram megi búast við launa-
skriði umfram samningsbundnar
launahækkanir þar sem eftirspurn
eftir vinnuafli aukist, en á móti
gætu minni sveiflur í atvinnuleysi
bent til betri nýtingar framleiðslu-
þáttanna og þar með meiri fram-
leiðni.
Sérfræðingar Búnaðarbankans
telja að vísitala neysluverðs í mars
hækki um 3,7-4,3% á ársgrundvelli
eða um 0,30-0,35% á mánaðar-
grundvelli.
-----♦♦♦-----
Fram-
kvæmda-
stjóraskipti
hjá Jökli hf.
JÓHANN Magnús Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf. á Raufar-
höfn, hefur sagt starfi sínu lausu.
Við starfi hans mun taka Ásbjörn
Ólafur Ásbjörnsson, sem verið hef-
ur fjármálastjóri Jökuls hf. frá því í
apríl 1996. Að sögn Jóhanns Magn-
úsar valdi hann að hætta störfum
hjá Jökli hf. þar sem hann hefur
starfað síðan í ágúst 1994, enda tel-
ur hann kominn tíma til að breyta
til. Óráðið er í hvaða starf hann fer.
Jóhann Magnús mun starfa við fyr-
irtækið fram í apríl við að setja Ás-
björn inn í nýja starfið.
--------------
Alcatel kaup-
ir Xylan
París. Reuters.
FRANSKA fjarskiptafyrirtækið
Alcatel ætlar að kaupa netbúnaðar-
framleiðandann Xylan Corp. í Cala-
basas í Kaliforníu fyrir um 2 millj-
arða dollara til að færa út kvíarnar.
Alcatel hyggst kaupa öll
útistandandi hlutabréf Xylan og
mun bjóða 37 dollara á bréf. Hluta-
bréf í Xylan seldust á 25 dollara í
Wall Street.
Að sögn Alcatel mælir stjórn
Xylan með því að gengið verði að
tilboðinu. Tilboðið þarf samþykki
90% hluthafa til að hljóta staðfest-
ingu eftirlitsyfirvalda.
-----♦♦♦------
VWskilar
góðum
hagnaði
Frankfurt. Reuters.
HAGNAÐUR Volkswagen eftir
skatta jókst um 65% í fyrra, en
fyrirtækið telur að erfitt geti
reynzt að skila sama árangri í ár
vegna kreppu á bílamarkaði heims.
Hagnaðurinn jókst í 2,24
milljarða marka úr 1,36 milljörðum
marka. Sala jókst um 18,5% í
134.243 milljarða marka. Frá þessu
er skýrt nokkrum mánuðum eftir
VW setti nýja „bjöllu“ á markað í
Bandaríkjunum.
Sérfræðingur Merrill Lynch í
London kvaðst telja að VW þættu
horfurnar á þessu ári dekkri en
ástæða væri til.