Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 MINNINGAR MOBGUNBLAÐIÐ JOSEFINA GUÐNY ÞÓRÐARDÓTTIR + Jósefína Guðný Þórðardóttir fæddist að Kleifar- stekk í Breiðdal 26. júlí 1910. Hún lést á Egilsstöðum 21. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fáskrúðs- fjaröarkirkju 27. febrúar. Bláklukkur í brekkunni, silungur í bæjarlæknum, berja- þúfumar á melnum fyrir ofan túnið og volgir pollar á leirunni þegar féll að. Þetta er sumarparadísin sem ég og Rósa systir mín fengum að njóta þau sumur sem við fengum að fara austur að Búðum til Bínu frænku og Jóa sem reyndar var frændi okkar líka af því að þau hjónin voru systraböm. Búðir vom innsti bær- inn í kaupstaðnum og síðan tók sveitin við og yfir gnæfði Hoffellið sem gaf öllu tignarlegan svip. Bína á Búðum hét Jósefína Guð- ný í höfuðið á Jósep föðurbróður sínum og Guðnýju föðurömnmu sinni og var fædd á Kleifarstekk í Breiðdal en fluttist þriggja ára gömul að Víkurgerði í Fáskrúðs- firði. Þær vom fjórar systurnar, Aðalheiður, sex ára, Jónína, fjög- urra ára, Petra, eins árs, ásamt fósturbróður sínum Jóni St. Reykjalín, sem fluttu með foreldr- um sínum, Guðrúnu Jónasdóttur og Þórði Gunnarssyni, að Víkur- gerði árið 1913. Aður höfðu amma mín og afi eignast tvo syni, Gunnar og Gunnar Pétur, sem báðir dóu kornaböm. Það bættust þrír synir við bamahópinn í Víkurgerði, þeir Gunnar, Benedikt og Björgvin, og stúlka, Stefanía, sem dó koma- barn. Auk þess ólu amma og afi upp dótturdóttur sína, Soffíu Al- freðsdóttur, og Sigríði Þorbergs- dóttur. Heimilið í Víkurgerði var því margmennt og bömin byrjuðu fljótt að taka til hendinni. Skólaganga elstu systranna var stutt og börnunum sagt til heima. Bína lærði að þekkja stafina hjá Olöfu, sem hún kallaði fóstra sína. Olöf kenndi með band- prjónsaðferðinni á Nýja testamentið. En þegar alvöru lestrar- kennsla skyldi hefjast kom afi með Vigfúsar- hugvekjur á gotnesku letri og sýndi litla þol- inmæði við kennsluna. Gekk hvorki né rak fyrr en búið var að út- vega aðra útgáfu af Vigfúsarhugvekjum með venjulegu letri. Formleg skólaganga var einn mánuður fyrir fullnaðarprófið og Tossakverið las Bína úti í fjósi og átti að prjóna sjó- vettling á meðan. Bína sagði frá þessu á sinn kímna hátt en auð- fundið var að gjaman hefði hún viljað læra meira en það stóð henni ekki til boða. Hún tók því vel í það mörgum áratugum seinna að hjálpa mér að gera léttlestrarbæk- ur fyrir ung böm sem vom að hefja lestrarnámið. Efnið var sótt í sögur af dýmnum sem Bína og Jói löðuðu að sér. Dúbbi dúfa og Mábbi máfur hafa orðið góðkunningjar margra lítilla bama og mörg undanfarin sumur hefur Bína fengið heim- sóknir barna sem vildu sjá mömmu hans Dúbba. Bína þótti snemma liðtæk til allr- ar vinnu og gekk hún í öll verk, ekki síst útiverk. Hún hjálpaði til við að hræra steypuna í nýja íbúðarhúsið í Víkurgerði, þá 17 ára gömul. Hún fór á skeljafjöm, skar úr skel, beitti, vaskaði fisk og þurrkaði og þvoði þvotta úti í á svo dæmi séu tekin um þau verk sem unglingum vom ætl- uð. Ekki eignaðist hún stígvél fyrr en hún var orðin átján ára. Þrjá vet- ur vann hún hjá öðmm áður en hún fór sjálf að búa og rann allt kaupið til heimilisins. Bína og Jói, Jóhann Jónasson, hófu búskap á Búðum með tengda- foreldrum Bínu. Eftir að þau vom orðin ein á Búðum byggðu þau húsið sem stendur enn og þótt það sé ekki stórt þá var alltaf pláss fyr- Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. ÚTFAJRARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg íyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali em nefndar DOS- textaskrár. Þá em ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, mið- að við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ir alla sem þangað leituðu og mátti stundum telja nokkra bílfarma af fólki sem fengið hafði að gista þeg- ar sem flestir gestir vom á ferðinni um landið í sumarblíðunni. Og ekki spillti fyrir að vakna við pönnu- kökuilminn. Bína og Jói eignuðust tvo syni, Olgeir og Björgvin, og tengdadæt- urnar Guðrúnu og Astu og sex bamaböm. Þegar bamabörnin komu í heimsókn fengu þau ýmsa fræðslu hjá ömmu um það hvernig ull breytist í fat og lömbin í mat. Bína og Jói áttu lengstum eina kú í litlu fjósi við bæjarhólinn og nokkr- ar kindur. Þetta vora engar venju- legar skepnur í mínum huga heldur sjálfstæðar vemr með sín einkenni og t.d. vora skapsmunimir í þeirri kú sem ég man eftir þannig að eins gott var að hafa hana góða. Bína og Jói vora einstakir dýravinir en samt fannst Bínu óþarfi af Jóa að vera að hygla ferfættum dýram sem fólk hefur venjulega ímugust á, og á ég þar við mýs og rottur. Bínu var margt til lista lagt. Hún saumaði og prjónaði bæði á fjöl- skylduna og aðra. Hún eignaðist snemma prjónavél og afköstin vora mikil hjá henni þegai’ næði gafst frá annarri vinnu, en Jói var oft langdvölum að heiman á sjó og þá annaðist Bína bú og böm og varð þá m.a. að bera allt vatn í skepn- urnar. Þegar Bína og Jói vora orðin ein á Búðum helgaði Bína sér eitt herbergi í húsinu undir sköpunar- verk sín. Þetta herbergi kallaði Jói í gamni Homgrýtið og átti sjaldan leið þar inn. En þama var prjóna- vélin og kynstrin öll af prjónlesi, hekluð lopateppi, heklaðar hyrnur, sumar úr eingimi og aðrar grófari, og fjöldinn allur af skrautlega hekluðum púðum. I flöskum og krakkum vora kuðungar og steinar sem hún bjó til myndir úr. Bína var líka hagmælt og var kímnin sterkasti þátturinn í henn- ar kveðskap, oft í bland við tví- ræðni. Mörg þessara kvæða era orðin landsþekkt en ekki er víst að allir viti hver höfundurinn er af því að Bína var aldrei að flíka þessum skáldskap, hann lak út. Aðalheiður, elsta systir Bínu, bjó í Noregi og var hún einnig hagmælt. Þær syst- ur skrifuðust á og fauk þar margur kviðlingurinn milli landa. Dæmi um kveðskap eftir Bínu, sem víða hefur farið, er Skipstjóri í afleys- ingum, Hann var feginn og fór og Eldhúsþankar. Oft talaði Bína um lífið í gamla daga og hvílíkar breytingar hefðu orðið síðan hún mundi eftir sér. Sagðist hún ekki geta ímyndað sér að nokkur kynslóð ætti eftir að lifa önnur eins umskipti, úr moldarkof- um inn í tæknivæddan nútímann. Síðastliðið sumar ókum við Sigurð- ur með Bínu út að Víkurgerði og hún benti þar á kennileiti og sagði örnefni á ýmsum stöðum, nöfn sem sum tengdust gömlum atvinnuhátt- um og falla því smám saman í gleymsku. Síðustu árin dvaldi Bína á dval- arheimilinu Uppsölum og átti þar fagurt ævikvöld umvafin kærleika GUÐMUNDUR HELGASON + Guðmundur Helgason fædd- ist 6. nóvember 1911 í Reykjavík. Hann lést í Landa- kotsspítala hinn 13. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Guð- mundar voru þau hjónin Eyrún Helgadóttir, f. 16. maí 1891, d. 31. maí 1980 og Helgi Guð- mundsson, f. 10. október 1881, d. 31. mars 1937. Guð- mundur var elstur af sex börnum þeirra hjóna og eru tvær systur hans látnar, 1) Guðlaug Helgadóttir, f. 9. nóv- ember 1913, d. 8. febrúar 1987. Hún var gift Ragnari Elíassyni, f. 1. nóvember 1909, d. 13. októ- ber 1991, og 2) Hulda Helga- dóttir, f. 4. september 1930, d. 1. maí 1995 og er eftirlifandi eiginmaður hennar Pálmi Sig- urðsson. Þau þijú sem eftir lifa eru: Sigdór Helgason f. 18. jan- úar 1917, giftur Guðrúnu Egg- ertsdóttur, Ingi R. Helgason f. 29. júlí 1924, giftur Rögnu M. þorsteins og Fjóla Helgadóttir, f. 4. september 1930, og er hún gift Birni Ólafí þorfinnssyni. Árið 1931 kvæntist hann Hansínu Ingibjörgu Krisljáns- Guðmundur Helgason, föður- bróðir minn og fyrram vinnufélagi, lést 13. febrúar sl., 87 ára að aldri. Sökum töluverðs aldursmunar okkar á milli lágu leiðir okkar Mumma sjaldan saman nema helst um jól og aðrar stórhátíðir í fjöl- skyldunni. Þetta breyttist þó sumarið 1982 þegar ég var ráðin í fyrsta sumar- starfið, í Seðlabankanum, undir leiðsögn hans. Hann var þá nýorð- inn sjötugur þótt það mætti vart greina, jafn myndarlegur og hann var. Það kom mér ekki á óvart að sjá að þessi virðulegi og brosmildi maður var oft álitinn töluvert yngri, eins og þegar ein samstarfs- kona okkar átti leið framhjá og spurði: „Segðu mér Guðmundur, hvað ertu annars mörgum áram yngri en hann Ingi bróðir þinn ...?“ dóttur, f. 22. apríl 1904, d. 2. júlí 1968 og átti með henni tvö börn: 1) Guðríði Guð- mundsdóttur f. 22. nóvember 1931 og d. 1. júlí 1994, sem var þrí- gift. Fyrsti maður hennar var Louis Pal- umbo, f. 7. febrúar 1932 og með honum átti hún einn son, Ás- geir Guðmundsson f. 17. febrúar 1954, sem varð uppeldissonur Guðmundar. Ásgeir er kvæntur Erlu Hall- björnsdóttur, f. 24. mars 1957, og á með henni tvö börn, þau Dagnýju Ósk Ásgeirsdóttur, f. 29. mars 1978 og Pétur Ásgeirs- son, f. 11. september 1983. Annar eiginmaður Guðríðar var Einar Gunnar Ásgeirsson, f. 8. júní 1934, og með honum átti hún þrjú börn, Hannes Einarsson, f. 25. apríl 1957, Örn Einarsson, f. 29. nóvember 1959 og Ómar Ein- arsson, f. 6. apríl 1961. Þriðji eig- inmaður hennar var Sverrir Ein- arsson, f. 22. september 1936, d. 16. september 1998. 2) Arnar Guðmundsson, f. 10. desember 1944, sem giftur er Sigríði Guð- mundsdóttur, f. 5. maí 1946, og eiga þau þrjú börn, Guðmund Arnarsson, f. 11. febrúar 1966, Þetta rifjuðum við oft upp og höfð- um gaman af því þrettán ára ald- ursmunur var á milli þeirra bræðra og var Mummi sá eldri. Ég er þess fullviss að hjónaband hans og Elsu átti stóran þátt í að halda honum svo unglegum. Ástin sem hann bar til hennar og um- hyggjan fyrir henni var svo greini- leg, en hann hringdi reglulega til hennar, jafnvel þótt erindið væri kannski ekki annað en að tjá henni þann hug sinn. Þetta þótti ófermd- um unglingnum nokkurt tilefni í fliss en ég gat þó ekki annað en borið virðingu fyrir því hversu gott samband þeirra greinilega var. Eins og systkini hans öll var hann mjög stoltur af móður sinni, Eyrúnu Helgadóttur, sem missti mann sinn í berklafárinu meðan þrjú yngstu systkinin voru enn á barnsaldri. Hann lagði enda á það þeirra er hana önnuðust. Hún tal- aði oft um hvað allir þar væra henni góðir. Guðrún systurdóttir hennar og Eiríkur vora alltaf boðin og búin að rétta hjálparhönd og Björgvin og Ásta ekki langt undan á Eskifirði. Við hin notuðum sím- ann óspart og á hverjum sunnudegi hringdi hún í barnabörnin og hélt þannig góðu sambandi við fólkið sitt. Bína var aldrei að sýta það þótt á móti blési, tók mótlætinu með ró og átti styrk til að hugga aðra þegar Jói, Olgeir og Guðrún voru kölluð burt. Þeim hefur hún nú sameinast á ný ásamt öllu fer- fættu eða vængjuðu vinunum sín- um. Söknuðurinn er alltaf mikill hjá okkur hinum, en far þú í friði, elsku frænka. Þú kastaðir ein- hverju sinni fram þessum lausa- vísum sem ég læt fylgja kveðju- orðum mínum. Lengist ferð um lífsins vog, ég lít í hendingunni að enn eru nokkur áratog yfír að lendingunni. Afram læðist ævin mín eftir tímans slóðum, dvínar heym og daprast sýn degi kvöldar óðum. Mér er stund hver mikilsvirð, í mínu þátta stími, fyrr en varir kvölds í kyrrð kemur háttatími. Bryndís og Rósa, Stefán, Sigurður. Hönnu Ingibjörgu Arnarsdótt- ur, f. 22. mars 1968 og Arnar Arnarsson, f. 4. mars 1974. Seinni eiginkona Guðmundar er Elsa Guðmundsdóttir, f. 22. júlí 1935, og þau giftust 21. október 1972. Elsa á tvö börn af fyrra hjónabandi, þau Önnu Kristínu Einarsdóttur og Kristján Pétur Einarsson. Guðmundur fluttist með for- eidrum sinum og tveimur systk- inum til Vestmannaeyja árið 1920 og þar stundaði faðir hans bæði verkamannavinnu og sjó- mennsku. Árið 1927 fór Guð- mundur aftur til Reykjavíkur í atvinnuleit og komst á náms- samning í húsgagnasmíði árið 1928, lauk námi 1932, tók sveinsstykkið 1936 og meistara- próf í iðninni tók hann 27. nóv- ember 1942. Við húsgagnasmíðar vann Guðmundur í rúm 30 ár, eftir sveinbréfið og með rekstri eig- in húsgagnavinnustofu með þremur félögum sínum, eða þar til hann réðst til Seðlabanka fs- lands árið 1972. Fyrst, en mjög stutt, sem umsjónarmaður fast- eigna bankans, en siðar sem stjórnandi biðstofu banka- sljórnar. Þegar Guðmundur var orðinn sjötugur árið 1981 og átti að hætta sökum aldurs, hélt hann starfinu áfram fyrir sér- staka beiðni bankastjórnar eða þar til 1992 og hætti ekki fyrr en 81 árs að aldri. Útför Guðmundar fór fram frá Fossvogskirkju hinn 24. febrúar. áherslu við mig hversu mikill heið- ur það væri að fá að bera nafn þeirrar sómakonu og var ákveðinn í því að gera sitt til að frænkan unga skyldi standa undir þeirri ábyrgð. Hin síðustu ár fækkaði fundum okkar Mumma aftur en alltaf þótti okkur þó jafn ánægjulegt að hitt- ast. Síðast sáumst við þegar hann gerði okkur Birgi þann heiður að vera við brúðkaup okkar. Þá var ellin tekin að sækja á, en með skjannahvítt hárið var hann samt jafn myndarlegur og fyrr. Vegna anna erlendis áttum við hjónin þess ekki kost að vera við útför hans og sendum því þessa síðbúnu kveðju. Ég vil að lokum þakka frænda mínum samfylgdina og votta Elsu og fjölskyldu hans allri samúð mína. Eyrún Ingadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.