Morgunblaðið - 03.03.1999, Síða 36
^6 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, sonur og tengdasonur,
SÆVAR FRÍMANN SIGURGEIRSSON,
Vesturbergi 12,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. febrúar,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn
5. mars kl. 15.00.
Marsý Dröfn Jónsdóttir,
Ingi Hlynur Sævarsson, Guðbjörg Helga Birgisdóttir,
Kristín Valborg Sævarsdóttir, Jón Einarsson,
Jón Geir Sævarsson, Kristbjörg Harðardóttir,
barnabörn,
Sigurgeir Magnússon,
Helga Ágústsdóttir.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Ásvegi 12,
Dalvík,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar miðviku-
daginn 24. febrúar, verður jarðsungin frá Dal-
víkurkirkju föstudaginn 5. mars kl. 13.30.
Helgi Jónsson,
Þóra Rósa Geirsdóttir, Ingvar Kristinsson,
Kolbrún Þorsteinsdóttir,
Elín Gísladóttir, Hermann Guðmundsson,
Magnea Kristín Helgadóttir, Halldór Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
>
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
JÓN Þ. HARALDSSON,
Torfufelli 33,
Reykjavík,
lést á öldrunardeild Landspítalans miðviku-
daginn 24. febrúar sl.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 4. mars kl. 13.30.
Fjóla Helgadóttir,
Heigi Jónsson, Ásdís Valdimarsdóttir,
Kristinn Helgason,
Hafsteinn Helgason.
+
Einlægar þakkir fyrir hluttekningu og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður ok-
kar, tengdaföður og afa,
JÓHANNS BENEDIKTSSONAR,
Melhaga 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunarlækn-
ingadeildar L1 á Landakotsspítala fyrir frábæra
umönnun.
Auður Guðmundsdóttir,
Sigríður Jóhannsdóttir,
Ólafur Jóhannsson, Þóra Harðardóttir,
Haraldur Jóhannsson, Margrét Jóhannesdóttir,
Guðmundur Jóhannsson, Anna Magnúsdóttir,
Jóhann Ólafsson, Auður Ólafsdóttir,
Davíð Haraldsson, Áslaug Haraldsdóttir,
Ingunn Haraldsdóttir, Helgi Guðmundsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK GARÐAR JÓNSSON,
fyrrv. lögregluþjónn
frá Arnarbæli,
Lönguhlíð 3,
Reykjavík
sem lést föstudaginn 26. febrúar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju fimmtudaginn 4. mars kl. 13.30.
Baldur Friðriksson, Selma Jónsdóttir,
Sigurður Kr. Friðriksson, Unnur Færseth,
Hildur Jóna Friðriksdóttir, Sigrús Örn Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
ANDRÉS GUNN-
LAUGUR ÓLAFSSON
+ Andrés _ Gunn-
laugnr Ólafsson
fæddist á Laugabóii
í Mosfellsdal 27.
ágúst 1938. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 17.
febrúar siðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 26. febrúar.
_ Vinur okkar Andrés
Ólafsson garðyrkju-
bóndi á Laugarbóli í
Mosfellsdal er allur.
Stétt garðyrkju-
bænda er ekki fjölmennari en svo
að þar þekkjast flestir vel. Það eru
því mörg ár síðan við vissum nokk-
ur deili á Andrési. Hann var þá þeg-
ar í stjórn Blómamiðstöðvarinnar,
en það fyrirtæki hefur lengi verið
stærsta afurðasölufyrirtæki blóma-
bænda. Það var svo fyrir tæpum
áratug að leiðir lágu saman á þeim
vettvangi og kunningsskapurinn
breyttist í vináttu.
Tíminn sem við sátum saman í
stjórn Blómamiðstöðvarinnar með
Andrési er í huga okkar mjög eftir-
minnilegur. Mannkostir Andrésar
voru einhvern veginn svo marg-
breytilegir. Hann var sterkur og
fastur fyrir en samt sanngjam. Ná-
vist hans þýddi líka að erfið úr-
lausnarefni urðu aldrei leiðinleg
lengi því stutt var í brosið og glens-
ið hjá Andrési.
Við þökkum Andrési fyrir sam-
fylgdina og fyrir það sem hann
gerði fyrir íslenska garðyrkjubænd-
ur. Innilega samúðarkveðju sendum
við Völu og fjölskyldunni ailri.
Hvíl í friði, Andrés.
Sigurður Þráinsson,
Sveinn Sæland.
„Nú ríkir kyrrð í djúpum dal,
þótt duni foss í g!júfrasal“.
Kvæði Magnúsar Gíslasonar, sem
geymir þessar hendingar við lag
Arna Thorsteinssonar, er orðið að
„þjóðsöng" Mosfell-
inga. Sjaldan eiga
hendingamar betur við
en nú, þegar við kveðj-
um einn af ástsælustu
sonum dalsins.
„Elskulegi æskufé-
lagi Addi Gulli. Þú
kvaddir okkur óvænt
og alltof fljótt, gamli
góði vinur. En þú gerð-
ir það á þinn hógværa
hátt, eins og þín var
von og vísa“. Þegar
hún Vala þín hringdi
og sagði okkur tíðindin
setti okkur hljóða.
„Ég ætla bara að segja þér að
hann Addi dó í gær“. Við þessa frétt
af ótímabæru andláti okkar kæra
æskufélaga er margs að minnast.
Ótal samverustundir, á ferðalögum
löngum og stuttum, fljúga gegnum
hugann. Einn af okkur félögunum
var ætíð til fyrirmyndar; stilltur,
hógvær og prúður.
Það var Addi Gulli, en hver var
hann?
Jú, hann var borinn og bamfædd-
ur Mosfellingur. Mosfellsdalurinn
var hans heimaslóð. Að Laugabóli, í
dalnum hans kæra, lágu bernsku-
sporin og ævistarfið var að mestu
unnið þar.
Enn ég um Fellaflóann geng,
finn eins og titring í gömlum streng,
hugann grunar hjá grassins rót
gamalt spor eftir lítinn fót“.
Svo kvað Jón prófessor Helga-
son, er hann minntist æskustöðva
sinna og finnst okkur ljóðið eiga vel
við minningu okkar kæra æskufé-
laga. Addi var bundinn sínum æsku-
slóðum órjúfandi böndum. Þar átti
hann ótal spor, hvort heldur var á
æsku-, unglings-, eða fullorðinsár-
um.
Laugaból var „óðal“ foreldra
Adda. Þar höfðu þeir reist sína
gróðrarstöð sem gaman var að
sækja heim. Þar var snyrtimennsk-
an í fyrirrúmi, hvort heldur var inn-
an dyra eða utan. Við þessa snyrti-
SIGRIÐUR KRISTIN
JÓNSDÓTTIR
+ Sigríður Kristín
Jónsdóttir fædd-
ist í Minna-Garði í
Mýrahreppi í Dýra-
firði 5. október
1917. Hún lést á
sjúkrahúsinu á Sel-
fossi 17. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Selfosskirkju
27. febrúar.
Sigríður Kristín
Jónsdóttir hét hún
fullu nafni, en var og er
ávallt kölluð Kristín á Þingvöllum,
og munum við eflaust kalla hana
það áfram, þegar við minnumst
hennar. Því þó Kristín
sé farin frá okkur,
verður hún áfram í um-
ræðunni hjá okkur
kvenfélagskonum og
öllum íbúum Þingvalla-
sveitar.
Kristín gekk í Kven-
félag Þingvallahrepps
8. nóvember 1962 og
var kosin formaður fé-
lagsins 19. nóvember
1968 og gegndi því
starfi þangað til hún
fluttist úr sveitinni
1981. Það er alltaf mik-
ið lán í fámennum fé-
lögum þegar ný manneskja gengur
til liðs við þau.
Kristín var mikil félagsmála-
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréf-
inu, ekki sem viðhengi.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt
til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
mennsku ólst hann Addi upp og bar
henni vitni æ síðan. Við nafnarnir
fengum gjarna þá áminningu frá
mæðrum okkar að reyna nú að taka
hann Adda til fyrirmyndar, hvað
framkomu og snyrtilegan klæðnað
áhrærði.
Addi lærði garðyrkju af fóður sín-
um og hafði græna fingur ekki síður
en hann. En Addi reyndi fyrir sér á
fleiri sviðum. Hann vann meðal ann-
ars sem vörubílstjóri og vinnuvéla-
stjóri. A ungum aldri stjórnaði hann
jarðýtu hjá Ræktunarsambandi
Kjalarnessþings og var til þess tek-
ið hve listilega honum fórst það úr
hendi. Um tíma nam hann bílasmíði
og náði frábærum árangri í bílarétt-
ingum og „boddísmíði“.
Allt lék í höndunum á Adda og
var grunnt á listamannseðlinu. A
unglingsárum eignaðist hann gaml-
an smábfl, löngu áður en hann hafði
aldur til að mega aka slíku tæki.
Ekki leið á löngu þar til gamli bfll-
inn var orðinn að laglegasta farar-
tæki. Þetta var ekki fyrsti og langt í
frá síðasti bflgarmurinn sem hann
Addi gerði að glæstum farkosti.
A góðum stundum mundaði Addi
pensilinn og innan stundar blasti við
hið fegursta olíumálverk. Harmon-
ikan var innan seilingar og mátti fá
hana til að láta ljúfa óma hljóma.
Um tíma nam hann harmonikuleik
hjá hinum þjóðkunna harmoniku-
leikara Karli Jónatanssyni. Annir
hversdagsins leyfðu ekki langan
tíma við nikkuna, né pensihnn, en
ekki er vafi á því að hvoru tveggja
skilaði mörgum gleði- og sköpunar-
stundum.
Félagsmálastörfum sinnti hann
einkum meðal garðyrkjubænda og
munu þær stundir ótaldar sem hann
átti á þeim vettvangi.
Blómarækt varð helsta ævistarf
Andrésar á Laugabóli. Heimili hans
og Valgerðar var þó sá garður sem
best var ræktaður. Vala, börnin og
bamabörnin voru honum allt. Vina-
garðurinn gleymdist þó ekki og féll
aldrei í órækt. Það vitum við best,
æskufélagar hans.
Elsku Vala. Við og fjölskyldur
okkar sendum þér og þínu fólki
innilegustu samúðarkveðjur.
Við blessum minningu Adda á
Laugabóli.
Nafnarnir.
manneskja og mannvinur. Þrátt
fyrir stóra fjölskyldu og mjög anna-
samt heimili gat hún alltaf aðstoðað
aðra og bætt á sig störfum. I dag er
talað um ofurkonur, ég held við
þyrftum eitthvað annað og meira til
að lýsa henni. Hún kom með ýmsar
nýjungar inn í störf kvenfélagsins,
s.s. jólaböllin, sem enn í dag eru
haldin, öllum til mikillar ánægju,
bæði heimamönnum og eins brott-
fluttum íbúum. Þessar samkomur
voru alltaf haldnar á Þingvallabæn-
um, meðan Kristín var formaður.
Ótal margt annað mætti minnast á
en það er ekki í anda Kristínar að
lofa það sem hún gerði. Henni
fannst það svo sjálfsagt og eðlilegt.
Við minnumst Kristínar með
virðingu og þökkum störf hennar
fyrir Kvenfélag Þingvallasveitar um
leið og við vottum fjölskyldu hennar
samúð okkar. Megi hún hvfla í friði.
F.h. Kvenfélags Þingvallahrepps,
Ingibjörg J. Steindórsdóttir.
Með virðingu og þakklæti viljum
við minnast þín, kæra Kristfn
„amma“, eins og strákarair mínir
kölluðu þig. Um nokkurra ára skeið
höfum við orðið þeirrar gæfu að-
njótandi að fá að hafa þig sem ná-
granna. Avallt var húsið þitt opið
okkur og tekið á móti okkur með
miklum kærleika. Þó annríki hvers-
dagsins gæfi mér kannski sjálfri
alltof fáar stundir með þér vil ég af
öllu hjarta þakka þér góðvildina í
garð litlu strákanna minna, Trausta
og Jóhannesar Snæs, því ósjaldan
varst þú tilbúin með kleinu, bollu og
hverskyns góðgæti handa þeim og
sóttu þeir til þín, því þar voru þeir
ávallt velkomnir.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við þig og vottum aðstand-
endum þínum okkar dýpstu samúð.
Hafðu þökk fyrir, kæra vinkona.
Asrún Traustadóttir.