Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 13 FRETTIR Málefni unglinga voru rædd á opinskáan hátt á fundi í Réttarholtsskóla Eins árs bið eftir meðferð Málefni unglinga sem lent hafa upp á kant við samfélagið og leiðst út í neyslu vímuefna og á braut afbrota voru viðfangs- efni fundar sem haldinn var í Réttarholts- skóla á miðvikudagskvöld. Þar kom fram að víða er pottur brotinn og t.d. er bið unglinga eftir meðferð hjá meðferðar- stofnunum Barnaverndarstofu um eitt ár. Trausti Hafliðason sat fundinn. Morgunblaðið/Þorkell DAVIÐ Bergmann Davíðsson unglingaráðgjafi ræddi umbúðalaust um málefni afvegaleiddra unglinga á fundi í Réttarholtsskóla á miðviku- dagskvöld. TIL fundarins boðuðu Skólastjórafé- lag Reykjavíkur og Davíð Bergmann Davíðsson unglingaráðgjafi, þing- menn, frambjóðendur í komandi kosningum, borgarfulltrúa, sveitar- stjórnarmenn í nágrenni Reykjavík- ur og fulltrúa írá Barnaverndarstofu á fund í Réttarholtsskóla. Um 30 manns mættu, þar af 6 þingmenn. „Þetta er eins og að troða mar- vaða, það gengur hvorki né rekur,“ sagði Haraldur Finnsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, um ástandið í mál- efnum barna og unglinga. Haraldur, sem talaði fyrstur á fundinum, sagði að vandamál ung- linga væru ekki einkavandamál skól- anna, heldur væru miklu fleiri þættir sem spiluðu þar inn í eins og foreldr- ar, heimili og samfélagið sjálft. Haraldur sagði að að mörgu leyti væri verið að vinna gott starf innan veggja skólanna, en að flestir þeÚTa hefðu ekki tök á að sinna nema allra nauðsynlegustu og brýnustu verk- efnunum. Hann sagði að faglegt greiningarstarf á hegðun barna og unglinga væri afar mikilvægt, þar sem hægt væri að greina snemma hvaða börn og unglingar væru í hættu. Hann sagði hins vegar alltof fá böm og unglinga hafa verið greind og að þar réði fjárskortur mestu um. 17 ára með 69 mál á skrá lögreglu „Fíkniefnaheimurinn er örugglega mjög framandi venjulegu fólki, enda oft lygasögu líkast hvað þar gengur á,“ sagði Davíð Bergmann. Davíð ræddi umbúðalaust um reynsluheim afvegaleiddra unglinga. Davíð, sem sjálfur sagðist hafa lent í ógöngum á sínum unglingsárum, sagði að í grófum dráttum væri hægt að skipta unglingum í tvo hópa. Annars vegar væru það þeir sem prufuðu hitt og þetta, smökk- uðu t.d. áfengi og lentu kannski í smávandræðum, en rifu sig upp og lentu ekki á braut afbrota og fíkni- efna. Hins vegar væru það hinir sem prufuðu hitt og þetta en gætu ekki hætt, einhverra hluta vegna. Hann sagði mikilvægt að leggja fé i rann- sóknir á þessum málum, en ekki væri síður mikilvægt að takast á við vandann eins snemma og mögulegt væri, því fyrr sem það væri gert því betra. Að Davíðs mati eru það sértækir námshæfileikar, ofvirkni og félags- legai- aðstæður sem hafa hvað mest að segja, hjá þeim hópi sem lendir á villigötum. Hann sagði að líf þeirra sem tilheyrðu hópnum snerist að stórum hluta um að halda ákveðinni virðingu og að oft brytist þetta út í ofbeldi. Davíð sagði að víða væri pottur brotinn í málefnum unglinga og að mjög erfítt væri að vinna að þessum málum í því umhverfi sem þeim væri búið. Hann sagðist oft vera að reyna að koma börnum í skilning um það að afbrot hefðu ákveðnar afleiðingar en það gangi afar illa því skilaboðin sem þau fengju af götunni væru önn- ur. Hann nefndi mörg dæmi máli sínu til stuðnings, m.a. tók hann dæmi um 17 ára gamlan dreng sem hefur 69 mál á skrá hjá lögreglu, en hefur meira og minna gengið frjáls og lítið verið hægt að aðstoða. „Ekki er hægt að finna neina þjóð sem ver jafnlitlum fjármunum i að bjarga börnunum sínum,“ sagði Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, á fundinum í fyrradag. Að sögn Braga er sterkasta for- vörnin sú að aðstoða þau börn sem þurfa á meðferð að halda því þau geta haft slæm áhrif á aðra og geta dregið þá með sér út í neyslu vímu- efna og út í afbrot. Hann sagði að ef ekki yrði brugðist við vandanum nú myndi hann bara stækka og velta áfram eins og snjóbolti, þannig að sífellt yrði erfiðara að fást við hann. Að sögn Braga er ástandið orðið það slæmt að unglingar geta þurft að bíða í eitt ár eftir meðferð, en meðalbiðtími árið 1997 var 51 dag- ur. Hann sagði að það væru í meg- inatriðum tvær skýringar á þessum aukna biðtíma. Annars vegar hefði hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár haft mjög mikil áhrif því í því kerfi sem fyrir hefði verið hefði ekki ver- ið gert ráð fyrir unglingum á aldr- inum 16 til 18 ára. Hins vegar hefði neysla „harðra efna“ aukist mikið og það hefði enn bætt á vandann og dæmi væru um það að unglingar undir 16 ára væru farnir að sprauta sig, sagði Bragi. ÞINGMÖNNUM og frambjóðendum til kosninga var sérstaklega boðið á fund um málefni unglinga þar sem fram kom að eins árs bið er eftir meðferð á stofnunum Barnaverndarstofu. Ríkisstjórnin skipaði nefnd Bragi sagði að hægt væri að skipta meðferðastofnunum í tvennt, annars vegar væru Stuðlar, þar sem fram færi greining og neyðarvistun og vistmenn dveldu í 1 til 4 mánuði. Hins vegar væri um að ræða lang- tímavistanir á Torfastöðum, Geld- ingalæk, Hvítárbakka, í Háholti og Árbót. A Stuðlum er rými fyrir 12 vist- menn en öll hin heimilin, sem sjá um langtímameðferð, hafa 6 rými. Bragi sagði að þeir sem vistaðir væru á þessum heimilum væru yfirleitt á aldrinum 13 til 18 ára, en á Geldinga- læk væru einnig börn undir 12 ára aldri. Hann sagði samt að yfirleitt væru fundin fósturheimili fyrir yngri börnin eða þá að barna- og unglinga- geðdeild annaðist þau. Hann sagði að verið væi'i að bæta fjórum rýmum við í Árbót og líklega yrðu rýmin orðin 8 í Varpholti seinna á þessu ári. Rekstrarkostnaður meðferðar- heimilanna allra er um 290 milljónir króna á ári og sagði Bragi mikla þörf á úrbótum. Hann sagði eftirspurnina það mikla að í raun þyrfti að tvöfalda núverandi aðstoð. Hann sagði að ástandið hefði verið kynnt fyrir rík- isstjórninni fyrir nokkrum vikum og að skipuð hefði verið nefnd með full- trúum frá dómsmála-, félagsmála- og heilbrigðisráðuneytinu. Hann sagði að nefndin hefði það hlutverk að yfir- fara stöðuna og koma með tillögur um úrræði. Fyrsti fundur nefndar- innar er í dag og er áætlað að hún skili af sér tillögum eftir u.þ.b. tvær vikur. Breytingar á kj ördæmaskipan Átta þing'menn sátu hjá ÁTTA þingmenn sátu hjá þegar atkvæði voru greidd um frumvarp til stjórnskipunar- laga á Álþingi á fimmtudag, en í frumvarpinu felst m.a. að kjördæmi í landinu verði fæst sex en flest sjö. Fjörutíu og tveir þingmenn greiddu at- kvæði með frumvarpinu en sjö greiddu atkvæði á móti. Þeir þingmenn sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna eru: Hjálmar Jónsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, Magnús Stefánsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, Stefán Guðmundsson, þing- maður Framsóknarflokksins, Steingrímur J. Sigfússon, þingflokki óháðra, Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir, þing- flokki Samfylkingarinnar, Guðrún Helgadóttir, þing- flokki óháðra, Jóhanna Sig- urðardóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar og Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Fjórir síðastnefndu þingmennirnir eru úr Reykjavíkurkjördæmi. Þeir sex þingmenn sem voru fjarstaddir atkvæða- greiðsluna eru: Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæðis- flokki, Einar Oddur Krist- jónsson, Sjálfstæðisflokki, Guðni Ágústsson, Framsókn- arflokki, Kristján Pálsson, Sjálfstæðisflokki, Lára Mar- grét Ragnarsdóttir, Sjálf- stæðisflokki og Sighvatur Björgvinsson, Samfylking- unni. I! Borgarmýri við Vesturlandsveg Óskum eftir að 800-1200 fm, iðnaðarhúsnæði, d. á Krókhálsi, kaupa stórt í Borgarmýri, t Fosshálsi, Lynghálsi, Réttarhálsi. Einnig kemur til greina iðnaðarhúsnæði norðan Vesturlandsvegar, nálægt undirgöngum undir Vesturlandsveg. Vinsamlegast sendið inn nafn, heimilisfang og simanúmer til afgreiðslu Mbl. merkt „Iðnaðarhúsnæði - 2000“ fyrir 1. apríi. Ættingjum og vinum, sem minntust mín með heimsóknum, skeytum, gjöfum, blómum og hlýhug á níræðisafmœli mínu, sendum við hjónin innilegar þakkarkveðjur. Lifið heil. Gissur O. Erlingsson. NY VERSLUN Sigurstjarnan Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin) Stórt h. 201 sm b. 61.5sm Frá Pakistan: Handunnin húsgögn, ekta pelsar, leðurfatnaður, ullarmottur og ýmsar gjafavörur Opið virka daga frá ki. 12-18 og laugard. frá kl. 11-14. Handverk í Hafnarfírði í dag laugardag kl. 11-16 - Gleðilega páska! F J Ö R Ð U R miöbœ HafmrJjaröar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.