Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 85
Söngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Ögrandi og
óvenjuleg
leðurblaka
íslendingar geta státað af mörgum fram-
LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 85
MORGUNBLAÐIÐ
ákveðin í að fara í söngnám. Ég var
þó ekkert ákveðin í að leggja söng-
inn fyrir mig en langaði annaðhvort
að verða söngkona eða leikkona. En í
dag hef ég valið sönginn.“
- Ertu þá hætt að leika? m ■
„Nei, nei. Maður leikur auðvitað
líka í óperum. Meðan að ég var í
Menntaskólanum við Hamrahlíð lékc
ég öll fjögur árin með leikfélagi skól-
ans. Eftir M.H. tók ég líka Jiátt í að
stofna lítinn leiklistarskóla sem hcit-
ir Leikskólinn.“ \
- Er það góður undirbúningur að
taka þátt í leiklist í menntaskóla? . /
„Já, bæði uppsetningamar sem
maður tekur þátt í og líka leiklistar-
námskeiðin sem eru haldin eru góð
reynsla. Ég hef lært mjög mikið af
þeim. Ég er reyndar á því að leiklist-
arþjálfun sé mjög gagnleg fyrir
söngvara. I menntaskóla gefst manni
tækifæri til að fá slíka þjálfun. Þá er
maður í svo vernduðu umhverfi og
getur verið óhræddur við að gera
ýmsar tilraunir!"
- Þetta er þitt fyrsta hlutverk í óp-
eru?
„Þetta er mitt fyrsta sönghlutverk
á sviði. Þetta er mikil áskorun fyrir
mig og mjög stórt tækifæri sem ég
er þakklát fyrir að fá. Leðurblakan
er mjög skemmtilegt verk, með að-
gengilegri tónlist. Það er líka farin
mjög spennandi leið að verkinu í
þessari uppsetningu með þvi að færa
það til nútímans og staðfæra í
Reykjavík. Það má segja að úr
grunnhugmyndum verksins sé unnið _ /
á nýjan hátt. Leikstjórinn, Da\ód
Freeman, gerir miklar leiklistarleg-
ar kröfur til söngvaranna og hefur
unnið mikið með okkur í spuna og
persónusköpun. Það er því mjög
ögrandi að takast á við hlutverkið.“/
- Hvað tekur við hjá þér að loknu
söngnámi?
„Ég á eitt ár eftir í skólanum og
stefni síðan á framhaldsnám erlendis
eftir það. Það er samt ekkert ákveðið
hvar það verður,“ sagði hin unga
óperusöngkona að lokum.
þessa hláturmildu söngkonu er vildi 1
bærilegum óperusöngvurum og innan tíð-
ar mun hin unga Guðrún Jóhanna Olafs-
dóttir þreyta frumraun sína í óperuupp-
færslu. Sunna Ósk Logadóttir ræddi við
eina tíð aðeins syngja dægurlög.
UM ÞESSAR mundir standa yfir
æfingar í Islensku óperunni á Leður-
blökunni eftir Jóhann Strauss sem
frumsýnd verður hinn 16. apríl. Guð-
rún Jóhanna, sem er aðeins 21 árs,
fer með hlutverk gestgjafans Orlof-
skys. Hún er þó kunnug leikhúslífinu
og hefur leikið á sviði ft’á bamæsku.
Lék í Þjóðleikhúsinu níu ára
„Móðir mín vann sem leikhúsritari
í Þjóðleikhúsinu og sem leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar þegar ég var
að alast upp. Þess vegna hef ég alla
tíð verið mikið í kringum leikhúsið,
sá allar leiksýningar og lék fyrsta
hlutverkið mitt í Þjóðleikhúsinu þeg-
ar ég var níu ára í „Gættu þín“, síðan
lék ég í „Óvitum“ og „Haustbrúði“.
Ég lék líka á Akureyri þegar við
bjuggum þar, m.a. Onnu í „Línu
Langsokk". Núna er ég að
læra söng hjá Rut Magnússon
þriðja árið í röð. Þetta er ann-
að árið mitt í fullu námi í Tón-
listarskólanum í Reykjavík en
áður var ég í einkatímum."
- Hvað kom til að þú snerir
þér að söngnámi?
„Ég hef alltaf sungið mikið
og haft gaman af því að
syngja fyrir fólk. Ég var t.d.
í kór þegar ég var lítil. Síð-
an þegar ég var fimmtán
ára þá langaði mig mjög
mikið til að læra söng og fór í nokkra
söngtíma til írskrar söngkonu sem
var stödd á Akureyri. Þá fannst mér
röddin verða alltof „óperuleg" en
mig langaði á þeim tíma mest til að
syngja í söngleikjum og lög Janisar
Joplin. Því hætti ég í söngtímunum/
í FRÉTTUM
GUÐRUN Jóhanna Óiafsdóttir fer með
Orlofskys ÍLeðurblökunni rk
Varð fyrir tónlistaropinberun
„Þegar ég varð eldri fór ég að
hlusta á Ceciliu Bartoli og Mariu
Callas og varð alveg dolfallin. Svo
varð ég fyrir tónlistaropinberun á
Listahátíð 1996, þá fór ég á tónleika
þar sem fjórir einsöngvarar sungu
með sinfóníuhljómsveitinni. Þar á
meðal var einn mezzosópran og eftir
að hafa hlustað á tónleikana var ég
1
/f
II
I
Komdu viö í FJALLAHJOLABUÐINNI Faxafeni 7
og fáðu boðsmiða á sérstaka forsýningu
á myndinni Blast trom the Past
í Laugarásbíó 29. mars kl. 9.00.
LAUGARÁ
Möf udvígi
SÍMI 5200 200 - OPIÐ MÁNUD. TIL FÖSTUD. KL. 9-18. LAUGARD. KL. 10 - 14. (g) RAÐGREIÐSLUR
'""4S
, DX 3.3 DX 3.5 DX 3.7 | DX5.3
Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Shimano ST-EF 28 Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Grip Shift Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Altus Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: Shimano Alivio Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Acera X Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: Shimano MC18 Bremsur: V
*Kr. 25.931^ Kr. 29.352,- Kr. 33.842,- - HTr. 47.730,-