Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BRUNII MONT BLANC-GÖNGUNUM Franskir og ítaiskir slökkviliðsmenn börðust enn í gær við eldsvoða sem geisað hefur frá því á miðvikudag í miðjum 11 km löngum veggöngunum undir Mont Blanc, á milli Alpahéraða Frakklands og Ítalíu. Talið er að 30 manns að minnsta kosti hafi látið lífið í eldsvoðanum. ♦ Eldur kviknar í belgískum matvælaflutningabíl og hann breiðist út til a.m.k. 19 annarra vörubíla og 10 fólksbíla ♦ Slökkviliðsmenn, sem ekki geta athafnað sig í hita yfir 70°C, reyna að vinna á eldinum með háþrýstiúða ♦ Vindátt og reykþykkni útilokar í fyrstu aðgang að vettvangi ♦ Ekki hefur tekizt að kanna um 150m langan kafla ganganna frá franska enda ganganna þar sem hinn hái hiti, samfallin steypustykki og grjóthrun hindrar ♦ Hitastig í kring um 300°C við gangamunnann og allt að 1000°C í miðju eldsvoðans heldur hindrar slökkvistarf Ferskloftsstútur 8,6m breið göng ♦ Að minnsta kosti 30 manns eru talin af í brunanum FRAKKLAND IV' H Bern o, „Sí'Chamonix .ý/ont Blanc- göngin .. Mont Blanc J WM Æ*mMatterhom FRAKKL ® Mllanó ♦ V tindur . . \ ITALIA » Courmayeur ® ORYGGISATRIÐII GONGUNUM ♦ Sjúkraskýli sem rúma 45 ♦ Ferskloftsstútar á 10m fresti manns eru á 600m fresti, «, Sogstútgr fyrir óhrejnt fóðruð með fersku þrýstilofti |oft eru á 300m fresti ♦ Brunahanar á 150m fresti ♦ Loft ræst á 10 mínútum ♦ Sími er á 300m fresti ♦ 40 myndavélar GONGIN UNDIR MONT BUNC Frakkland <► Ítalía 150mkafli—, ~~ enn óaðgengilegur ^ Eldsupptök 4.000 m 3.000 m 2.000 m » 1.000 m Heimild: The Associaion of the Mont Bianc Tunnel Kílómetrar 10 11 A.m.k. 35 manns fórust í jarðgöngum undir Mont Blanc Breyttust í brennandi víti á svipstundu Les Houches. Reuters. AÐ minnsta kosti 35 manns fórust í eldsvoðanum, sem upp kom í jarð- göngum undir Mont Blanc á milli Frakklands og Ítalíu. Kviknaði fyrst í belgískri vöruflutningabifreið en eldurinn læsti sig svo í um 30 aðrar bifreiðar. Talsmaður fyrirtækisins, sem rekur göngin, sagði, að björgunar- menn, sem háðu erfiða baráttu við kolsvart reykjarkóf og gífurlegan hita, hefðu fundið 20 flutningabif- reiðar og 10 eða 11 fólksbfla þar sem eldurinn logaði. Fundu þeir biunnin lík 11 manna en talið er víst, að um 35 manns að minnsta kosti hafi verið í þeim. Telur franska lögreglan líklegt, að talan eigi eftir að hækka. Tókst að slökkva eldana í gær, á þriðja degi eftir að þeir komu upp. Heilu fjölskyldurnar fórust Það tafði mjög fyrir björgunar- starfinu, að bflamir lágu margir þversum í göngunum og þykir sýna, að fólkið í þeim hafi reynt að flýja í örvæntingu undan eldhafinu, sem kom á móti. Víst þykir, að meðal hinna látnu sé ein fimm manna fjöl- skylda frönsk og önnur fjögurra manna fjölskylda frá Ítalíu. Eldurinn kom upp í belgískri flutningabifreið, sem var á leið til Ítalíu með hveiti og smjörlíki, og var hún þá stödd í miðjum 11 km löngum göngunum. Eru þau 34 ára gömul og rekin af samsteypu franskra og ítalskra fyrirtækja. Hitinn allt að 1.000 gráður Sumum ökumannanna, þar á meðal ökumanni belgísku flutninga- bifreiðarinnar, tókst að forða sér áður en eldurinn breiddist út en aðrir lokuðust inni. Talið er, að þeir hafi látist fljótlega því að í göngun- um myndaðist strax gífurlegur hiti, líklega allt að 1.000 gráður á celsíus. Asfaltið bráðnaði strax, hjólbarðar sprungu og gangaloftið hrundi nið- ur. Gilbert Degrave, ökumaður belgísku bifreiðarinna, sem fyrst kviknaði í, segir, að eldurinn hafi komið upp er bensín lak niður á púströrið. Gaus strax upp mikill reykur og farið var að loga upp í stýrishúsið áður en hann hafði ráð- rúrn til að koma sér út. „Eg átti fótum mínum fjör að launa. Að baki mér var eldhafið og á örskömmum tíma breyttust göngin í vítisheitan ofn,“ sagði Degrave. ' Lögreglurannsókn var hafin á þessu hörmulega slysi í gær en slökkviliðsmenn frá Ítalíu, Frakk- landi og Sviss unnu að því kæla brennheita gangaveggina. Flytja varð nokkra franska slökkviliðs- menn á sjúkrahús vegna reykeitr- unar og einn þeirra fékk hjartaáfall og lést. Göngin verða lokuð í tvo mánuði að minnsta kosti og komið hafa fram kröfur um, að flutninga- bifreiðum verði bannað að fara um þau. Tíminn að renna út á N-Irlandi Belfast. Reuters. MO Mowlam, Norður-írlandsmála- ráðherra bresku ríkisstjómarinnar, sagði í gær að hún myndi kalla sam- an þingfund heimastjómarþingsins í Belfast á fimmtudag í næstu viku þar sem hún gerði ráð fyrir að héraðsstjórn yrði mynduð. Myndun slíkrar stjórnar hefur dregist mjög, vegna tregðu sambandssinna til að setjast í stjóm með fulltrúum Sinn Féin, stjórnmálaarms írska lýð- veldishersins (IRA) nema IRA byrji afvopnun fyrst. Myndun stjómar- innar er hins vegar algerlega nauð- synleg eigi friðarsamkomulagið á N-írlandi að haldast. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsæt- isráðherra írlands, eru væntanlegir til Belfast eftir helgi til að reyna að þrýsta viðræðum um lausn afvopn- unardeilunnar áfram en það verður þrautin þyngri að finna málamiðlun sem allir aðilar geta sætt sig við. Uggvænleg þróun átti sér stað seint á fimmtudag þegar David Er- vine, leiðtogi Framsækna sam- bandsflokksins (PUP), stjórnmála- arms stærsta öfgahóps sambands- sinna (UYF), greindi frá því að vopnahlé UVF, sem varað hefur síð- an 1994, færi líklega út um þúfur gerðu bresk stjómvöld tilraun til að þvinga lausn upp á sambandssinna ef ekkert samkomulag næðist í við- ræðunum í byrjun næstu viku. Reuters Margaret Thatcher heimsækir Pinochet MARGARET Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, heilsaði upp á Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, í gær en hann hefur verið í stofufangelsi í Englandi undanfarna mánuði. Fór hún mjög lofsamlegum orðum um Pinochet, þakkaði honum fyrir stuðninginn f Falklandseyjastríðinu og sagði, að hann hefði endurreist lýðræði í landi sínu. Þakkaði Pinochet henni fyrir stuðninginn en breskir dómstólar munu brátt skera úr um hvort hann verður framseldur til Spánar. Þetta var í fyrsta sinn, sem Pinochet hefur komið fram opinberlega í þrjá mánuði en hér er hann ásamt Thatcher og konu sinni, Luciu. Baltasar Garzon, spænski rannsóknardómarinn sem gaf út handtökuskipunina á hendur Pinochet í október sl. sem framsalsbeiðni Spánar er grundvölluð á, sagðist í gær hafa undir höndum sönnunargögn um fleiri en 40 tilfelli pyndinga og morða sem framin hefðu verið á ábyrgð Pinochets eftir árið 1988. Lávarðadómstóll brezka þingsins, æðsti áfrýjunardómstóll Bretlands, úrskurðaði á miðvikudag, að ekki væri að brezkum lögum hægt að fara fram á framsal Pinochets fyrir meint afbrot framin fyrir 1988. Pinochet fór frá völdum í janúar 1990 og Iét útnefna sig öldungardeildarþingmann til æviloka. Þýzka tékkheftið gerði málamiðlun mögulega Berlín. Reuters. ÞEGAR Gerhard Schröder tók við stjórnartaumunum í Þýzkalandi fyrir fimm mánuðum sagði hann að vandamál Evrópu yrðu ekki lengur leyst með þýzku tékkhefti. En þegar leiðtogar Evrópusam- bandsríkjanna fimmtán komu undir dögun í gærmorgun út af 20 tíma maraþonsamningafundi um upp- stokkun fjármála sambandsins var orðið ljóst að kanzlarinn hafði tekið fram pennann, eina ferðina enn. „Þýzkalandi hefur tekizt að halda Evrópu sameinaðri," sagði ónafn- greindur evrópskur stjórnarerind- reki. „En það [þ.e. Þýzkaland] þarf að borga brúsann." Schröder tókst að tryggja sam- komulag um að útgjöld ESB færu ekki yfir sem nemur 6.500 milljörð- um íslenzkra króna. Að þetta tak- mark næðist var þýzku stjóminni gífurlega mikilvægt, en Þjóðverjar greiða langmest í hina sameiginlegu sjóði sambandsins og hafa óttast að áformin um að veita fátækari ríkjum Mið- og Austur-Evrópu inngöngu í ESB myndu sprengja fjárhags- ramma hinnar sameiginlegu land- búnaðarstefnu ESB upp úr öllu valdi og þar með verða Þjóðverjum eink- um og sér í lagi of þungur baggi að axla. En kanzlarinn náði ekki því tak- marki sínu að fá samþykkta verulega lækkun á framlögum Þjóðverja í sjóði ESB, sem nú eru sem svarar hátt í 900 milljörðum króna hærri en þeir fá úr þeim. Schröder hafði vakið vonir um það hjá þýzkum almenn- ingi að takast myndi að létta þessa byrði, og hann hafði í desember sl. valdið pimngi utanlands með þeim ummælum sínum, að „yfir helming þess fjár sem sóað [væri] í Evrópu [les: ESB] borguðu Þjóðverjar". „Unnum ekki í lotteríinu" En upp var staðið frá samninga- borðinu í Berlín án þess að Þjóð- verjum tækist að tryggja sér endur- greiðslur úr ESB-sjóðunum af svip- uðum toga og Bretar hafa notið allt frá því Margaret Thatcher samdi um kerfi slíkra endurgreiðslna fyrir 15 árum. „Við unnum ekki í lotterí- inu,“ andvarpaði Schröder í gær. Embættismenn sem komu að samningaviðræðunum sögðu að Schröder hefði látið undan óbilgirni Frakka og fallizt á að halda óbreyttu umfangsmiklu niður- greiðslukerfi til bænda, sem kemur frönskum landbúnaði sérstaklega vel, í skiptum fyrir að útgjöld til landbúnaðarmála í heild aukist ekki frá því sem nú er næstu sjö árin. Jafnvel fyrir leiðtogafundinn hafði þýzka stjórnin látið undan frönskum kröfugerðurn með því að falla frá áformum um að stjórnvöld aðildarríkjanna tækju framvegis meiri þátt í fjármögnun landbúnað- arkei-fisins en tíðkazt hefur frá því sameiginlega landbúnaðarstefnan komst á laggirnar fyrir fjórum ára- tugum. Þjóðverjar fengu þó eina smá- dúsu. Hin fátækari héruð Þýzka- lands, sem áður tilheyrðu Austur- Þýzkalandi, fá aukna styrki úr sjóð- um ESB. En margir ESB-leiðtogar sem komu til Berlínar fóru þaðan í gær með glaðning handa heima- mönnum sínum uppá samtals yfir tvo milljarða evra (160 milljarða króna), þökk sé þýzku fonnennsk- unni, sem „tók aftur upp pennann".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.