Morgunblaðið - 27.03.1999, Page 80
80 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Landhelgina
eigum við
ÉG VIL ekki sjá að Rússum
verði hleypt inn í íslenska
landhelgi. Aldrei nokloim
tíma. Jaíhíramt verðum við
að gjöra svo vel og halda
okkur frá veiðum í Smug-
unni. Túnfiskveiðar á
Reykjaneshrygg finnst mér
aftur á móti vera spennandi.
Ekkja Nóbelsverðlauna-
hafans Sakharovs, Jelena
Bonner, varaði Vesturlanda-
búa við landvinningastefhu
Rússa, sagði þá myndu hér
eftir sem hingað tíl ásælast
það sem annarra væri og
Lenin á að hafa sagt 1921
„að sá sem stjómaði Islandi
beindi byssu að höfði Evr-
ópu“. Jeltsin er ágætur, að
herforinni í Tsjetsjníu und-
anskilinni, en Primakov er í
nýju Readers Digest sagður
enginn vinur Vestmlanda.
Rannveig Tryggvadóttir.
Safna vinylplötum
og geisladiskum
ÉG safna plötum, vinyl og
geisladiskum. Einkum er
það þungt rokk, framsækið
rokk og djass. Norræn
músík er í miklu uppáhaldi.
Sérstaklega íslensk. Þegar
ég tala um djass á ég við
þennan hefðbundna skand-
inavíska djass, þ.e. lítið raf-
magnaðan og fáir hljóð-
færaleikarar. Helst trió
(bassi, trommur, píanó). Ég
hef heyrt af hljómsveitum
eins og Tn'ói Olafs Steph-
ensen og Tríói Guðmundar
Ingólfssonar. Sömuleiðis af
hljómsveitum eins og Trú-
broti, Oðmönnum, Mánum,
Svanfiáði, Icecross, Nátt-
úru og Pelican. En hef ekld
komist í plötur með þeim.
Getur einhver íslenskur
músíkáhugamaður og/eða
plötusafnari hjálpað mér
að eignast íslenskar plöt-
ur? Ég er alls ekki að óska
eftir gjöfum. Ég vil borga
fyrfr plöturnar eða skipta
á plötum. Ég get útvegað
allar tegundir af plötum
frá flestum A-Evrópulönd-
um, ásamt Kúbu og Ind-
landi.
Ain Joonuks, Lille 14,
46301 Rakke, Eistlandi.
Kú eða kýr
ÉG VAR að hlusta á Kol-
krabbann í gærkvöldi, þar
var ung stúlka spyrill og
vai- hún að tala við Ragnar
Kjartansson og Sigríði
Margi'éti Guðmundsdóttur
um leikgerðina á Sjálf-
stæðu fólki. M.a. sagði hún:
„Ó, það var svo gaman þeg-
ar kúin kom“ - í staðinn
fyrir að segja kýrin. Það
stakk okkur gamla fólkið
að heyra þetta. Finnst mér
líka leiðinlegt að heyra alla
þessa ágætu þuli segja
„Þetta gerðist í gærkvöld"
- í staðinn fyrir gærkvöldi.
Og svo tala þau um Björku
í staðinn fyrir Björk.
María Skagan,
Hátúni 12.
Tapað/fundið
Gsm-sími í óskilum
NOKIA 5110 gsm-sími,
dökkblár, fannst um sl.
helgi hjá Klúbbnum.
Upplýsingar í síma
898 8224.
Lítill bakpoki
týndist
LÍTILL, dökkblár bak-
poki týndist sl. laugar-
dagskvöld í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Skilvís finn-
andi hafl samband í síma
581 4565 eða 587 3702.
Hnésíð kápa
týndist á Astró
HNÉSÍÐ kápa, svört með
loðkraga, týndist á Astró
20. mars. Skilvís fmnandi
hafi samband í síma
554 4805. Fundarlaun.
Týndir
munir
GLATAST hefur gullúr
með ágröfnu nafni og ár-
tölum á baki, silfurarm-
band með ágröfnu ártalinu
1948 eða 49 og ágröfnu
nafni á þorpi í Englandi og
handsmíðaðfr eyrnalokkar
úr silfri með gullskreyt-
ingu. Þessir munir eru eig-
anda mjög kærir og biður
hún þá sem hafa orðið var-
ir við þá að hafa samband í
síma 553 5189.
Morgunblaðið/Golli
Víkverji skrifar...
Safnaðarstarf
Bústaðakirkja
um páska
LOKATÍMI fóstunnar er dymbil-
vika eða kyrravika. Hún hefst með
frásögunni af innreið Jesú í Jer-
úsalem. A miðöldum mynduðust
sums staðar hefðir um helgihald
dymbilviku og voru atburðir vik-
unnar oft settir á svið sem helgi-
leikir, sem byggðust á píslarsög-
unni. Við kristnir menn endursegj-
um atburði píslarsögunnar árið um
kring, en þó einkum þegar kyrra-
vika gengur í garð og páskarnir
nálgast. I Bústaðakirkju gefst þér
tækifæri á að ganga inn í atburði
þessara daga með þátttöku í helgi-
haldi kirkjunnai'.
A skírdag er þess minnst að
Jesús stofnaði heilaga kvöldmáltíð
það kvöld og verður kvöldmessa
með altarisgöngu klukkan 20.30.
Einsöngvari í þessari messu er
Gissur Páll Gissurarson.
Föstudagurinn langi er sá dagur
sem Jesús var krossfestur. Messa
verður á fóstudaginn langa klukkan
14. Þar mun Hanna Björk Guðjóns-
dóttir syngja einsöng.
Páskadagur. Páskar eru hátíð
gleði og fagnaðar. Þá komum við
saman til að fagna sigi'i lífsins yfir
dauðanum. Hátíðarguðsþjónusta
verður klukkan 8. Hljóðfæraleikar-
ar í þessari messu eru Ivar Guð-
mundsson á trompet, Hringur
Grétarsson á trompet, Hákon
Skjemstad á bariton og Vilborg
Jónsdóttir á básúnu. Einsöngvari á
páskadag er Sigríður E. Snorra-
dóttir.
Hin árlega messa í Bláíjöllum á
páskadag verður á sínum stað
klukkan 12 en einnig verður sér-
stök skírnarmessa klukkan 15 í Bú-
staðakirkju.
A annan í páskum verður ferm-
ingarmessa klukkan 10:30.
Pálmi Matthiasson.
Æðruleysis-
messa í Dóm-
kirkjunni
ÆÐRULEYSISMESSA verður á
sunnudagskvöld í Dómkirkjunni kl.
21. Þar mun sr. Karl. V. Matthías-
son spegla píslarsögu Krists í
reynslu alkóhólistans. Anna Sigríð-
ur Helgadóttir syngur við undirleik
Harðar og Birgis Bragasona. Ein-
hver mun segja sögu af reynslu
sinni í baráttunni og í lokin gefst
fólki kostur á að koma til máltíðar
Drottins, altarisgöngu. Sr. Jakob
Agúst Hjálmarsson leiðir samkom-
una. Dómkirkjan verður opnuð kl.
20 til þess að fólk hafi tækifæri til
að fá sér kaffisopa og spjalla á und-
an.
1.500 manns
á námskeið um
hjónaband
og sambúð
ÞÁ styttist í páska og þar með lýk-
ur námskeiðahaldi fyrir hjón og
sambýlisfólk á vegum Hafnarfjarð-
arkirkju á þessum vetri. Veturinn
1996-1997 var byrjað að halda þar
svokölluð „Jákvæð námskeið um
hjónaband og sambúð“. í fyrstu var
ætlunin að halda aðeins eitt nám-
skeið fyrir jól og annað eftir, en eft-
irspumin var mikil og því var nám-
skeiðunum fjölgað. Síðan hafa þessi
námskeið verið haldin reglulega og
nú hafa um 1.500 manns eða 750
pör sótt námskeiðin á undanfórnum
þremur vetrum. Námskeiðin eru
ætluð öllum sem eru í hjónabandi
eða sambúð, ekki aðeins þeim sem
eiga við vandamál að stríða, heldur
hinum líka sem vilja styrkja sam-
band sitt. Á námskeiðunum er fjall-
að um samskipti foreldra og barna,
stjórnun innan fjölskyldunnar og
hvernig þessi atriði endurspeglast í
hegðun barna og unglinga utan fjöl-
skyldunnar.
Sr. Þórhallur Heimisson í Hafn-
arfjarðarkirkju og sr. Guðný Hall-
grímsdóttir í Seltjarnarneskirkju
hafa verið leiðbeinendur á þessum
námskeiðum. Ætlunin er að halda
síðasta námskeið vetrarins í Sel-
tjarnarneskirkju í byrjun maí og
verður það auglýst sérstaklega.
Námskeiðin liggja niðri í sumar en í
september verður þráðurinn tekinn
upp á ný.
Sr. Þórhallur Heimisson.
Föstutónlist
í Hveragerðis-
kirkju
KIRKJUKÓR Hveragerðis- og
Kotstrandasókna flytur föstutónlist
í Tónlistar-vesper í Hveragerðis-
kirkju á pálmasunnudag kl. 17.
Meðal verka eru „Sjö orð Krists á
krossinum" eftir Grummach, og
verk eftir J.S. Bach og Zoltan
Kodáli.
Stjórnandi kórsins er Jörg E.
Sondermann organisti. Hann leikur
jafnframt orgelverk eftir J.S. Bach
og eigin partítu um sálmalagið
„Hvað hefur þú, minn hjartkær
Jesú, brotið?“
Páskabingó í
Hjallakirkju
PÁSKABINGÓ verður mánudag-
inn 29. mars í safnaðarheimili
Hjallakirkju. Bingóið hefst kl. 20
og eru allir velkomnir, ungir sem
aldnir. Bingóvinningar eru marg-
víslegir; páskaegg, páskaskraut,
sælgætiskörfur og fleira. Bingó-
spjaldið kostar 200 kr. Safnaðar-
fólk, sem og aðrir, er hvatt til að
mæta.
Pálmasunnu-
dagur í Hall-
grímskirkju
SÍÐASTI fræðslumorgunn í Hall-
grímskirkju að þessu sinni er á
pálmasunnudag. Dr. Einar Sigur-
björnsson, prófessor, flytur erindið
um efnið: „Friðþæging fyrir syndir
mannanna. Hvað merkir það?“
Þetta efni snertir í hæsta máta boð-
skap kyrruviku, sem einmitt hefst
þennan dag.
Fræðsluerindið hefst kl. 10, en
um kl. 10.35 verður gefinn kostur á
fyrirspurnum og umræðum eins
lengi og tími leyfir, en messa dags-
ins hefst að venju kl. 11.1 messunni
syngur Scola cantorum, kam-
merkór Hallgrímskirkju, organisti
verður Douglas A. Brotchie og sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kl. 17 verður
skólakór frá Bandaríkjunum með
tónleika.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyr-
ir unglinga kl. 21.
Hafnarfjarðarkirkja. Kl. 11-12.30
opið hús í Strandbergi. Trú og
mannlíf, biblíulestur og samræður.
Leiðbeinendur sr. Gunnþór Inga-
son og Ragnhild Hansen.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Ræðumaður
Helga Armannsdóttir. Mán. 29.3.
Kvennabænastund kl. 20.30. Þri.
20.3. Bænastund kl. 20.30. Mið 31.3.
Samverustund unglinga kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vinaminni
kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 að Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
20 sýning á leikritinu Hlið himins,
logar vítis. Húsið opnað kl. 19, að-
gangur er ókeypis og allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir.
Kunningi Víkverja var meðal
gesta í glæsilegri móttöku í
Gvendarbrunnum á fimmtudag,
þar sem innsiglaður var tímamóta-
samningur Menningarborgar og
fimm máttarstólpa í íslensku at-
vinnulífi; Búnaðarbankans, Eim-
skips, Landsvirkjunar, Olís og Sjó-
vár-Almennra. Yfirskrift menning-
arársins er „Menning og náttúra"
og við undirritun samningsins kom
fram að flest tengdust fyrirtækin
með einum eða öðrum hætti þeim
einkunnarorðum.
Þegar boðið var til móttökunnar
var þess getið sérstaklega að þar
eð Gvendarbrunnar væru á vernd-
uðu svæði, væri til þess ætlast að
gestir skildu einkabíla sína eftir á
bílastæði þar skammt fyrir neðan
og þaðan yrðu reglulegar strætis-
vagnaferðir upp að Gvendar-
brunnahúsinu. í þessu augnamiði
stóðu tveir starfsmenn borgarinn-
ar við hliðið á girðingu hins vemd-
aða svæðis og bentu mönnum á að
skilja bfla sína eftir og taka frekar
strætó síðasta spölinn.
xxx
ar sem kunningja Víkverja er
annt um umhverfið þótti hon-
um þetta sjálfsagt mál, hlýddi og
steig upp í strætó - sem raunar
hefur verið valinn bíll menningar-
ársins. Það vakti nokkra undrun
hversu fáir bílar voru á stæðinu og
einnig hversu fáir farþegar voru í
vagninum. Skýringin blasti við
þegar strætisvagninn renndi í
hlað við Gvendarbrunna nokkra
síðar, en þar var þá fyrir mikill
floti bíla og voru svokallaðir for-
stjórajeppar í nokkrum meiri-
hluta.
Þessi sjón vakti upp nokkrar
áleitnar spurningar: Skyldu bens-
ínfákar máttarstólpa þjóðfélagsins
menga minna en aðrir bflar og af
þeim sökum vera undanþegnir
ströngum reglum um umferð á
hinu vemdaða svæði? Úr því að
gerðar eru svo miklar ráðstafanir
með strætisvagnaferðir, hvers
vegna er þá ekki eitt látið yfir alla
ganga? Hvert var hlutverk hlið-
varðanna, fyrst svo margir fengu
að sleppa gegnum nálaraugað?
Hversu margar ferðir óku strætis-
vagnarnir hálftómir fram og til
baka milli bflastæðis og hins
verndaða svæðis?
xxx
ess má einnig geta að á skilti
við hliðið stendur skýrum
stöfum orðsending þess efnis að
þar megi ekki skilja bíla eftir í
gangi, þar sem útblástur mengi.
En rétt innan við girðinguna stóð
enn einn jeppinn, mannlaus og í
gangi, púandi útblæstri út í ann-
ars tært og hreint loftið á vernd-
arsvæðinu við uppsprettulindir
borgarizxar.