Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
______UMRÆÐAN____
Heilbrigðismála-
ályktun Sjálf-
stæðisflokksins
ÁLYKTUN 33.
landsfundar Sjálfstæð-
isflokksins um heil-
brigðismál hefur ekki
fengið mikla umfjöllun
í fjölmiðlum, en er þó
hið merkasta plagg. I
henni koma fram til-
mæli landsfundarins
um stefnumörkun
Sjálfstæðisflokksins í
heilbrigðismálum
næstu tvö árin. Mikil-
vægt er að efnisatriði
þessarar ályktunar fái
þá umræðu sem þarf
til að þau komi sem
flest til framkvæmda.
Grundvallarhugtök-
in jafnrétti, valfrelsi, ftjálst að-
gengi, hagkvæmni í rekstri og
áhersla á einstaklingsframtak eru
leiðandi stef í þessari ályktun.
Jafnrétti
I fyrstu málsgrein ályktunarinn-
ar er lögð áhersla á þá meginhug-
sjón „að allir landsmenn búi við
Heilbrigðisþjónusta
Löng bið eftir þjónustu
og langir biðlistar, seg-
ir Jóhann Heiðar
Jóhannsson, samrým-
ast ekki fullu jafnrétti.
jafnrétti og valfrelsi og njóti full-
komnustu heUbrigðisþjónustu sem
á hverjum tíma eru tök á að veita“.
Jaíhréttið hlýtur fyrst og fremst að
felast í því að landsmenn hafi aUir
sama rétt til að njóta heilbrigðis-
þjónustu. Þá skiptir engu hvort
þeir eru ungir eða aldraðir, ríkir
eða fátækir, kvenkyns eða karl-
kyns, fatlaðir eða ófatlaðir, úti á
landi eða á höfuðborgarsvæðinu.
Brýnni þörf verður að sinna og það
bæði fljótt og vel. Löng bið eftir
þjónustu og langir biðUstar sam-
rýmast ekki fullu jafnrétti.
Heilbrigðisþjónustan er hins
vegar ekki þannig að hún geti alltaf
og alls staðar orðið sú sama. Sá
sem býr í einangruðu byggðarlagi
úti á landi getur sjaldnast komist
jafn fljótt tU heimUislæknis, sér-
fræðings eða hátæknimeðferðar og
sá sem býr í næsta nágrenni við
heilbrigðisstofnun. AUir eiga hins
vegar jafnan rétt á því að fá bestu
þjónustu sem hægt er að veita á
hverjum stað og á hverjum tíma.
Slíkt er jafnrétti.
Árangur fyrir alla?
HeUbrigðisþjónustan er heldur
ekki þannig að hún geti alltaf gert
allt fyrir alla. Heilbrigðisstarfs-
menn vildu þó gjaman hafa það á
tUfinningunni að þeir gætu alltaf
svarað öllum þörfum skjólstæðinga
sinna, en svo er því miður ekki.
Fjármagnið, sem veitt er til þjón-
ustunnar, ræður til dæmis mestu
um það hvaða tækni er í notkun á
hverjum stað og á hverjum tíma.
TU stjómenda heilbrigðisstofnana
era gerðar miklar kröfur um hag-
kvæmni í rekstri. Húsnæði, búnað-
ur og mönnun ráða því svo hversu
fljótt er hægt að veita þjónustu eða
hversu löng biðin eftir tiltekinni
þjónustu verður. Landfræðileg
staðsetning og veðurfar geta ráðið
miklu um það hversu auðvelt er
fyrir sjúklinga að nálgast þá heil-
brigðisþjónustu sem í boði er.
Svona mætti áfram telja. Menn
ættu þó að geta verið sammála um
það að bæði heilbrigðisþjónustan í
heild og einstakir starfsmenn
hennar eigi að fá tæki-
færi tU að gera sitt
besta fyrir alla. Á þann
hátt er stuðlað að jafn-
rétti og á þann hátt
getur náðst „árangur
fyrir alla“.
Valfrelsi
Valfrelsi er nátengt
jafnrétti. Valfrelsi
byggist á því að ein-
staklingurinn hafi um
mismunandi kosti að
velja og að hann hafi
fæmi og þekkingu til
að velja það sem hann
hefur mesta þörf fyrir.
Þess vegna þarf að
tryggja það að mismunandi form
heUbrigðisþjónustu séu fyrir hendi
og að einstaklingarnir hafi aðgang
að upplýsingum sem gera þeim
fært að velja sér þá þjónustu sem
þeim líkar. Sjúkhngar hafa ef til
vill ekki sama vit á greiningu og
meðferð sjúkdóma og heilbrigðis-
starfsmenn, en það verður alltaf að
gera ráð fyrir að þeir hafí fullt leyfi
til að hafa skoðanir á því hvaða
stefnu þeir vilja taka í lífl sínu og
að þeir eigi kost á því að velja í
samræmi við þær skoðanir.
Valfrelsi byggist ekki á hug-
myndafræði opinberra afskipta.
Valfrelsi byggist á þeirri hugsjón
sjálfstæðisstefnunnar að mann-
virðingin sé mest þegar athafna-
frelsi með jafnrétti, samkeppni og
sanngjömum leikreglum séu höfð
að leiðarljósi.
Ábyrgð
Valfrelsi er einnig nátengt
ábyrgð. Með valfrelsi getur ein-
stakhngurinn sjálfur ákveðið
hverjum hann ætlar að treysta fyr-
ir lífi sínu og limum og hvenær
hann felur öðram að taka ákvarð-
anir fyrir sína hönd. Hann getur
þannig sjálfur tekið vissa ábyrgð á
þeirri heilbrigðisþjónustu sem
hann þiggur, á sama hátt og hann
tekur ábyrgð á því hvaða l£fi hann
kýs að lifa. Opinberir aðilar taka
ábyrgð á því að heilbrigðisþjónusta
sé veitt, en þeir vinna einstaklingn-
um ekki síður gagn með því að
stuðla að því að mismunandi val-
kostir séu ætíð fyrir hendi. Ein-
staklingurinn verður síðan að hafa
aðgang að þeim upplýsingum sem
hann þarf, til að geta sjálfur tekið
þátt í því að velja þá tegund heil-
brigðisþjónustu sem hann telur sig
þurfa.
Upplýsingamiðlun
Sjötti töluliðurinn í upptöldum
markmiðum heilbrigðismálastefnu
Sjálfstæðisflokksins fjallar meðal
annars um það að „nútíma upplýs-
ingatækni verði nýtt til að miðla
upplýsingum til almennings".
Heilbrigðisstarfsmenn verða í æ
ríkari mæli varir við það að sjúk-
lingar og aðstandendur þeirra
leita upplýsinga á Netinu, annað-
hvort áður eða eftir að þeir mæta í
sína fyrstu heimsókn. Þannig geta
þeir betur fylgst með í umræðum
um sjúkdómsgreiningu og með-
ferð og þannig upplýstir geta
sjúklingarnir tekið þátt í því að
velja. Þeir geta einnig gert rétt-
mætar kröfur um þá bestu þjón-
ustu sem „tök eru á að veita“.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur trú á
einstaklingnum og stefnir að frelsi
til athafna samfara vissri ábyrgð á
eigin gerðum. Upplýsingamiðlun
er ein aðferðin til að tryggja jafn-
rétti, valfrelsi og góða heilbrigðis-
þjónustu.
Höfundur er læknir og
landnfundarfulltrúi.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 61
' <
HEIMS ATLAS
8.485,-1 CO/
VERBAtXJR 9.990,- I W /O
ISLENSK
ORÐABÓK
m
4.890,
VERÐABUR 6.980
ENSK-ISLENSK
SKÓLAORÐABÓK
3.115,-
VERÐ ÁÐUR 4,450.
30%
„jedúddamía!“
Intel Ptl 400 Mhz. örgjörvi (128!
6,4 Gb. UDMA diskur
64 Mb. SDfiAM
40 x CDflOM
32 bita hljóðkort
300 W hátalarar
17” Tatung hágæða skjár, 100 Hz.
ATI Range II + AGP skjákort 100 Mhz 3D
Innbyggður faxbúnaður og símsvari
56K mótald
3 mán. ókeypis Internetþjónusta hjá Islandia
Windows 95 lyklaborð
Disklingadrif og mús
Windows 98 uppsett, geisladiskur fylgir