Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
iii
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
STARFSMENN Eyrasparisjóðs á Tálknafirði.
Vélbúnaðurinn er keyptur hjá
EJS og það voru starfsmenn þaðan
sem settu tölvurnar upp. Pað var
síðan starfsmaður frá tölvumiðstöð
sparisjóðanna sem sá um uppsetn-
inguna á hugbúnaðinum og gætti
þess að allt virkaði rétt þegar af-
greiðslan var opnuð á fimmtudags-
morguninn. Þá kom starfsmaður frá
Sparisjóði vélstjóra til þess að leið-
beina heimamönnum við notkun
kerfisins fyrsta daginn, en það hef-
ur verið í notkun hjá stærri spari-
sjóðunum um nokkurt skeið.
Endurgerðu
kvikmynd-
ina Titanic
Selfossi - Krakkarnir í 5. E.G. í
Sandvíkurskóla unnu mikið þrek-
virki á dögunum þegar þeir tóku
sig til og framleiddu stuttmynd.
Myndin var nokkurs konar end-
urgerð af stórmyndinni Titanic
sem sló svo eftirminnilega í gegn
á síðasta ári.
Krakkarnir léku sjálfír öll
hlutverkin í myndinni en kennari
þeirra, Elísabet Gerridsen, sá um
leikstjórn og ráðgjöf við mynd-
ina. Myndin var tekin upp um
borð í Herjólfi í Þorlákshöfn,
Sundhöll Selfoss og á Olfusárbrú.
Myndin var síðan frumsýnd á
breiðtjaldi á veitingastaðnum
Pizza 67 á Selfossi og þar voru
mættir krakkarnir og aðstand-
endur þeirra og mátti vart á milli
sjá hverjir skemmtu sér betur
krakkarnir eða foreldrarnir.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
TILBOÐ voru opnuð í dreifikerfi fyrir hitaveitu Stykkishólms þriðjudaginn 23. mars og átti
Borgarverk í Borgarnesi langlægsta tilboð í verkið að upphæð 123,3 millljónir króna.
FRAMKVÆMDIR við hitaveitu fyrir Stykkis-
hólm ganga vel. Myndin sýnir væntanlega
varmaskiptistöð sem er í byggingu.
Borgarverk með lægsta tilboð í
dreifíkerfí hitaveitu Stykkishólms
Stykkishólmi - Undirbúningur fyrir
væntanlega hitaveitu fyrir Stykkis-
hólm miðar vel og er ætlunin að hún
komist í gagnið á þessu ári. Tilboð í
lagningu dreifikerfis fyrir hitaveit-
una voru opnuð á skrifstofu Stykkis-
hólmsbæjar þriðjudaginn 23. mars.
Þetta er síðasti áfanginn sem boðinn
er út. Hér um að ræða þrjá sjálf-
stæða áfanga dreifikerfis hitaveit-
unnar, stofnæðar og heimæðar,
jarðvinna og pípulögn ásamt frá-
gangi.
Alls bárust 7 tilboð og voru þau öll
í alla áfangana. Lægsta tilboð kom
frá Borgarverki hf. í Borgarnesi og
munaði miklu á því og næstu tilboð-
um. Borgarverk hf. bauð 123,3 millj-
ónir króna í allt verkið og er það
95% af kostnaðaráætlun sem Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen
gerði, hún hljóðaði upp á 130 millj-
ónir króna. Næst lægsta tilboða
kom frá Kolla ehf. í Stykkishólmi að
upphæð 179 milljónir króna. Verk-
lok eru áætluð 1. nóvember nk.
Að sögn Ólafs Hilmars Svems-
sonar bæjarstjóra eru flestir þættir
varðandi hitaveituna að verða ljósir.
Nú verða tilboðin yfírfarin og samið
við lægstbjóðanda. Nýlega fékkst
lofoð frá ríldsstjórninni um styrk til
hitaveitunnar, sem nemur niður-
greiðslum til lækkunar á húshitun
heimilanna til næstu 5 ára. Þessi
styrkur er áætlaður um 80 milljónir
króna og segir Ólafur að hann skipti
sköpum fyrir hagkvæmni hitaveit-
unnar. Boðað verður til kynningar-
fundar fyrir íbúa Stykkishólms eins
fljótt og hægt er þar sem kynntar
verða verkáætlanir, kostnaður og
hvernig málin snúa að húseigendum.
Ekki liggur enn fyrir hvernig eign-
araðild hitaveitunnar verður háttað.
Fram til þessa hefur undirbúningur-
inn verið samstarfsverkefni Stykkis-
hólmsbæjar og RARIK og eru við-
ræður í gangi á milli þessara aðila
um framhaldið og segir Ólafur
Hilmar að ákvörðun um eignarhald
verði að liggja fyrir fljótlega.
Nýtt íþróttahús
í Ólafsvík
Öll tilboðin
yfir kostn-
aðaráætlun
Ólafsvík - Opnuð hafa verið tilboð í
byggingu nýs íþróttahúss í Ólafs-
vík, en jarðvegsvinnu lauk þar fyrir
nokkru. Því er hægt að hefjast
handa við bygginguna strax og
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
farið yfir tilboðin og verktaki hefur
verið valinn.
Að sögn Kiistins Jónassonar,
bæjarstjóra í Snæfellsbæ, hljóðar
kostnaðaráætlun byggingarinnar
upp á 216 miljónir króna, en fimm
aðilar buðu í framkvæmdirnar.
Lægsta tilboðið kom frá Skipavík í
Stykkishólmi og hljóðar það uppá
217 mifjónir króna.
Aðrir sem buðu í verkið voru Sól-
fell í Borgarnesi 235 miljónir,
Sprettur í Grundarfirði 230 miljón-
ir, Varnir 269 miljónir, en hæsta til-
boðið átti fyrirtækið Völundarverk
í Reykjavík, 283 miljónir ki-óna.
Aætluð verklok eru þann 1. ágúst
árið 2000, en þá á húsið að vera full-
byggt og frágangi lóðar lokið.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
HAMINGJUSAMIR kvikmyndaframleiðendur og leikarar á frumsýn-
ingu. Á innfelldu myndinni er Elísabet Gerridsen leikstjóri.
Nýtt af-
greiðslukerfí
hjá Eyra-
sparisjóði
Tálknafirði - Tekið hefur verið í
notkun nýtt afgreiðslukerfí hjá
Eyrasparisjóði á Tálknafirði. Um er
að ræða kerfi sem á að lágmarka
pappírsnotkun og tryggja öryggi
viðskiptavina sparisjóðsins. Þetta
nýja kerfi er mjög myndrænt og
mun auðveldara í notkun og að-
gengilegi’a en eldra kerfið. Að sögn
Lilju Magnúsdóttur afgreiðslu-
stjóra mæltist breytingin vel fýrir
hjá viðskiptavinum sparisjóðsins og
reynslan fyrstu tvo dagana lofar
góðu um framhaldið.
Helsta breytingin sem viðskipta-
vinir verða varir við er sú, að nú
þarf ekki að fylla út neina innleggs-
eða úttektarmiða og til þess að
kvitta fyrir viðskiptunum skrifa
menn nafnið sitt á lítinn skjá sem er
á afgreiðsluborðinu. Viðskiptin eru
nánast pappírslaus.
Morgunblaðið/Atli Vigfusson
FRÁ kornræktarnámskeiðinu á Húsavík.
Kornræktarnámskeið
með myndfundabúnaði
Laxamýri - Námskeið í kornrækt
var haldið á Húsavík fyrir skömmu
á vegum Búnaðarsambands S-Þing-
eyinga og Bændaskólans á Hvann-
eyri. Þetta er fyrsta námskeiðið á
félagssvæði bænda í S-Þing. sem
fer fram með myndfundabúnaði og
voru þátttakendur mjög ánægðir
með hvemig til tókst.
Það var endurmenntunardeild
Bændaskólans sem skipulagði nám-
skeiðið og voru bændur frá Búnað-
arsambandi Austur-Skaftfellinga
staddir í framhaldsskóla Skaft.
einnig á námskeiðinu og þá tengdir
myndfundabúnaði.
Kennarinn Bjarni Guðmundsson
var staddur á Hvanneyri og var
með fyrirlestur þaðan. Að því loknu
unnu nemendur verkefni og síðan
fóru fram frjálsar umræður og þótti
mönnum það nýlunda að ræðast við
á þennan hátt. M.a. var rætt um
verkun og geymslu korns og sögðu
bændur frá reynslu sinni í þeim efn-
um. Þá var og rætt um framleiðslu-
kostnað og þá þætti sem áhrif hafa
á nýtingu uppskerunnar.
Vaxandi áhugi er á kornrækt í
Þingeyjarsýslu og þrátt fyrir óhag-
stætt veður á sl. sumri eni menn
bjartsýnir á komandi tíð.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs.
ÞÁTTTAKENDUR í Fegurðarsamkeppni Austurlands. Efri röð frá
vinstri: Lajla Beekman, 19 ára frá Breiðdalsvík, Jóhanna Katrín
Guðnadóttir, 19 ára frá Neskaupstað, Ingibjörg Helga Þórhallsdóttir,
19 ára frá Fellabæ, Þóra Jóna Árbjörnsdóttir, 22 ára frá Eskifirði.
Neðri röð frá vinstri: Ingibjörg Guðmundsdóttir, 20 ára frá Horna-
firði, Diljá Rannveig Bóasdóttir, 21 árs frá Eskifirði og Berglind Þyrí
Guðmundsdóttir, 20 ára frá Egilsstöðum.
Fegurðarsamkeppni
Austurlands
Egilsstöðum - Fegursta stúlka
Austurlands verður valin í
Valaskjálf, laugardaginn 27.
mars nk. Það eru sjö stúlkur
sem keppa um titilinn en sú sem
hreppir hann verður fulltrúi
Austurlands í Fegurðarsam-
keppni íslands.
Stúlkurnar eru af öllu Austur-
landi og halda til á Egilsstöðum
síðustu dagana fyrir keppni til að
undirbúa sig á allan hátt fyrir
keppnina. Framkvæmdastjóri
keppninnar er Kolbrún Nanna
Magnúsdóttir og þjálfari stúlkn-
anna er Katrín Einarsdóttir.