Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Alvöru leikur fyrir al-
vöru snjóbrettafólk
leikurinn að keyra afar stöðugt og
vel. Því miður er Pro Boarder ekki
búinn þeim kostum sem til þarf,
leikurinn höktir oft allt í einu og
hraðinn er afar misjafn. Einnig
verður stundum mjög óþægilegt að
fylgjast með leiðinni sem valin hef-
ur verið vegna slakrar staðsetning-
ar myndavéla leiksins.
Ofangreindir gallar hafa þó lítil
sem engin áhrif í sumum borðanna,
eins og Pipe-brautinni og Mt. Ba-
ker-brautinni, en verður afar hvim-
leitt í brautum þar sem
þarf að bruna og renna
sér á milli trjáa.
Umhverfi leiksins er
allt afar vel hannað og
tekið beint úr alvöru X
Games-keppninni. Trén
eru þó frekar furðuleg í
útliti og samsvara sér
ekki alveg í umhverfinu
því þó brettarinn sem val-
inn hefur verið rekist að-
eins örlítið utan í tré dettur
hann og tréð hverfur.
Hljóð eru vel gerð og frá-
bærlega samræmd. Góð lög
hafa einnig verið valin í
leiknum og er það kærkom-
in tilbreyting frá síbylju-
technóinu sem hljómaði
stanslaust í Cool Boarders 3.
Meðal hljómsveita sem spila
lögin í leiknum eru með-
al annars NOFX,
Pennywise
og
Foo
Fighters. Allir
sem hafa mikinn áhuga á snjóbrett-
um og hafa séð eina til tvær snjó-
brettaspólur síðustu 3-4 ár hafa án
vafa heyrt í þessum hljómsveitum.
X Games Pro Boarder er dæmi
um hvað er hægt að gera við
íþróttaleiki þegar allt „extreme“ og
„radical" og „dude“er tekið í burtu;
alvöru snjóbrettaleikur fyrir alvöru
snjóbrettaáhugamenn.
í PRO BOARDER
er lögð mikil áhersla í
raunverulegar hreyf-
ingar, flottar brautir
og vel gerðar
persónur.
Hægt er að
velja um átta
bestu snjó-
brettamenn
dagsins í dag þó
eflaust hafi
meira tillit verið
tekið til vinsælda
en hæfileika, en
þeir Terje Ha-
akonsen, Peter
Line, Jamie Lynn
og Daniel Franck
eru á meðal
þeirra sem hægt
er að velja.
Brautirnar eru níu
talsins og má þar á meðal
nefna Pipe, stóra
vega“gappið“ á Mount Ba-
ker og Stadium, þar sem
keppt er um feitustu stökkin
á risa 14 pipe.
í frægustu snjóbrettaleikj-
um seinni tíma (Cool Boarders)
mátti oft heyra afar hvimleiða
rödd öskra „extreme“ eða „rad-
ical“ er spilandi náði góðu stökki. í
þessum leik er ekkert slíkt, enda
reynt að höfða til alvöru snjóbretta-
iðkenda í staðinn fyrir heilalausa x-
kynslóðar-krakka sem sáu fyrst
snjóbretti þegar þeir flettu óvart á
MTV í staðinn fyrir Afa.
Leikurinn státar af 2.112 tegund-
um „trikka". Þó ber að hafa í huga
að tvöfalt heljarstökkjneð 360 gráða
snúningi er eitt „trikk“, sama stökk-
ið með 540 gráða snúningi í stað 360
er svo skráð sem annað „trikk“.
Engu að síður er afar mikið magn
flottra, einstakra „trikka" í leiknum.
Miðað við fjölda „trikka" í leikn-
um ætti samkvæmt eðlilegum rök-
um að vera afar einfalt að gera þau.
Sú er ekki raunin. Til þess að
stökkva þarf alltaf að halda innni
undirbúningstakka (eins og í Cool
Boarders), svo þarf að ýta í þá átt
sem viðkomandi vill að persónan
snúi sér auk annarra tveggja til
þriggja takka eftir því hvaða „trikk“
er verið að reyna.
Til þess að hægt sé að ná „trikk-
um“ þarf að tímasetja allt afar vel
og til þess að geta tímasett þarf
Ingvi M. Árnason
LEIKIR
X Gamts Pro Boarder
EA sports gaf nýlega út fyrir PlaY-
Station nýjasta leik Radical Enterta-
inment sem er frekar nýtt fyrirtæki,
Icikurinn ber heitið X Games Pro Bo-
arder. Leikurinn styður Dual Shock-
stýripinna.
Örbylgjuofninn góði frá NCR.
Sviptingar í
bankamálum
BANKAR standa frammi fyrir
miklum breytingum í ljósi fram-
fara í fjarskiptatækni. Ymis fyrir-
tæki, til að mynda símafyrirtæki,
eru þegar tekin að gera tilraunir
með bankarekstur á Netinu enda
gefur það þeim góða samkeppnis-
stöðu í baráttu við banka að þurfa
ekki að reka fjölmenn og dýr úti-
bú.
Bankaþjónusta yfir Netið eykst
í sífellu og ekki bara það að fólk
nýti sér Netið fyrir millifærslur
og skoði reikninga heldur eru vís-
bendingar um að stórfyrirtæki
hyggist stofna eins konar sýndar-
banka og nýta þekkt vörumerki
sín til að afia trausts almennings.
Netbanki er upp byggður álíka og
hefðbundinn banki utan að hann
þarf ekki að reka fjölda af útibú-
um um allt land eða allan heim, í
raun þarf útibúið ekki að vera
nema ein vefslóð.
Ymis fyrirtæki sýndu á CeBIT-
sýningunni í Þýskalandi, sem lauk
í vikunni, búnað tengdan viðskipt-
um yfir Netið og þar búnað til að
auðvelda fólki að eiga viðskipti
við banka, til að mynda farsíma
með kristalsskjá og innbyggðum
dulritunarbúnaði, en með slíku
tæki er hægt að eiga öll venjuleg
viðskipti í gegnum simann, en
einnig kynntu menn búnað til að
auðvelda fólki að sinna viðskipt-
unum heima fyrir. Flestir virðast
líta til þess að menn vilji sitja fyr-
ir framan sjónvarpið og millfæra
eða borga gíróseðla, en einn
framleiðandi, NCR, sem er með
helstu framleiðendum viðskipta-
búnaðar fyrir banka, kynnti bylt-
ingarkennda hugmynd, örbylgju-
ofn með nettenginu.
Hlutirnir gerast í eldhúsinu
Örbylgjuofninn nettengdi var
fyrst kynntur á síðasta ári en
hann er eins og venjulegur ör-
bylgjuofn í flestu utan að á hurð
hans er snertiskjár og innbyggður
í hann búnaður til að tengjast
Netinu. Ekki er bara að á ofnin-
um sé snertiskjár; tölvan sem inn-
byggð er í ofninn skilur mælt mál
og þannig getur fólk gefið munn-
Ieg fyrirmæli um viðskiptin.
Sérstök deild innan NCR hefúr
með höndum að koma með ný-
stárlegar hugmyndir til að auð-
velda fólki að eiga bankaviðskipti
og yfirmaður þeirrar deildar, sem
stýrði hönnun örbylgjubankans,
segir það mat fyrirtækisins að
miklu líkegra sé að fólk vilji sita
inni í eldhúsi að sýsla með Ijárhag
heimilisins en inni / stofu. „Tölvur
eru á minnihluta heimila og þótt
margir horfi til þess að nýta megi
sjónvarpið er það okkar mat að
betra sé að hafa búnaðinn inni í
eldhúsi því það er þar sem hlut-
irnir gerast."
Leikur sem
TalFrelsiskort með 1.000 kr.
inneign. Kortinu fylgir
símanúmer, talhólf ofl.
Geisladiskurinn "Til
hamingju" með Tvíhöfða.
160 gr. ,-------
120 klst. í bið 1 _
3 klst. í notkun lfl
SMS skilaboð ,
Númerabirting 1*^ _
Klukka, vekjari ofl. 1^^
Stýrðu hvaða liði
sem er úr 15
stærstu deildum
heimsins og
reyndu að ná
árangri i
nákvæmasta og
fullkomnasta
Manager leik
allra tíma!
Fyrstu 1.000
leikjunum
fylgja tvær
ískaldar
0.51. flöskur
af Coke.
■llrJltlHtlUM URVALUTSYN
Allir sem kaupa CM3 hjá BT eig
möguleika á að vinna fótbolta
ferð fyrir 2 til Manchester
165 gr.
30 klst. I bið
4 klst. í notkun
SMS skilaboð
Númerabirting
Grafískur skjár
TAL12 er 12
mánaða
TimaTALs áskrift
greidd með
kreditkorti. #
Siemens S6
ií*i!?n*kur
1—?/ • að liturinn
1. -.f “ *© ®skipti ekki máli!
Opið laugardag 10:00-16:00 og sunnudag 13:00-17:00
Coca-Cola
gefur góða
fyrirgjöf
Fótboltaferð til
Mancbester
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444