Morgunblaðið - 27.03.1999, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
IflKU
m
Hið mikilfenglega ártal 2000 er nú í næstum því óbærilegri nálægð. Heimsbyggðin sveiflast milli tilhlökkunar
og tortryggni og virðist ýmist vilja fagna á toppi veraldarinnar eða flýja af vettvangi. Þegar Sigurbjörg
Þrastardóttir festi kaup á litlum leiðarvísi um árið 2000 grunaði hana ekki hvílíkan fjársjóð hún hafði fangað.
Árþúsu
komdu fagnándi!
„VERÖLDIN er um það bil að
upplifa mestu hátíðarhöld í sögu
mannkyns. Gleymum því að árþús-
undið hefst ekki í raun fyrr en
2001 - stóra, kringluleita talan
2000 hefur náð þéttingsfostu taki á
ímyndunarafli alls heimsins.
Veislur eru ráðgerðar í þús-
undavís í Evrópu, Astralíu, Asíu
og Kyn-ahafinu. Minnismerki um
árþúsundið - pýramídar, hvelfing-
ar, spíralar, tumar og bogar -
spretta upp hér og hvar í heimin-
um og flugeldar, bálkestir, ley-
sigeislar og ljósasýningar munu
lýsa upp himininn er miðnætti
brestur á í sérhverju af 24 tíma-
beltum plánetunnar."
A þessari lýsingu hefst líflegur
leiðarvísir, The Millennium - A
Rough Guide to the Year 2000,
sem breska útgáfufyrirtækið
Rough Guides hefur gefið út. I
leiðarvísinum eru teknir saman
helstu viðburðir árþúsundaskipt-
anna um veröld víða, auk svara við
algengum spurningum um
heimsendaspár, tölvuvandann árið
2000 og fleira sem tímamótunum
tengist.
Dansað á daglinunni
Ein snúnasta spurningin varð-
andi árþúsundaskiptin er hvar sól-
in muni rísa fyrst í veröldinni 1.
janúar árið 2000. Við spumingunni
eru nokkur svör og hafa fylgjend-
ur hvers þeirra nokkuð til síns
máls.
í rökræðunum skiptir öllu hin
svonefnda daglína sem dregin var
á landakort á Alþjóðlegu lengdar-
baugaráðstefnunni í Washington
DC árið 1884 um leið og tímabeltin
24 voru búin til. Daglínan fylgir að
mestu 180. lengdarbaug en tekur
sveigju fram hjá byggðum svæð-
um - að öðmm kosti myndu íbúar
tvískiptra byggðarlaga fylgja sitt
hvomm vikudeginum sem án efa
ruglaði fólk í ríminu.
Yfirvöld á Kiribati, eyjaklasa í
Reuters
Morgu’
inWaði5/Asdfe
SÓLARUPPRÁS á Pitt-eyju við Nýja Sjáland 1.
janúar nk. verður að sögn innfæddra fyrsta dag-
skíma árþúsundsins í veröld víðri, en um það eru
þó deildar meiningar.
Kyrrahafi sem daglínan sneiðir
hjá, tóku sig hins vegar til fyrir fá-
einum ámm og færðu daglínuna!
Með því fluttust nokkrar eyjar í
klasanum vestur fyrir daglínu, þar
á meðal Karólínueyja sem í kjöl-
farið var nefnd Arþúsundaeyja. A
grundvelli flutningsins gera Kiri-
bati-búar tilkall til fyrstu dögunar
árþúsundsins og hafa þegar hafið
undirbúning þar að lútandi.
Barist um útsend-
ingarrétt
Skiptar skoðanir eru hins vegar
um hvort taka beri tilfærsluna
gilda. íbúar Chatham-eyjanna,
sem staðsettar em 250 km vestur
af daglínu, hunsa breytinguna og
fullyrða að hvergi á byggðu bóli
risi sólin fyrr en einmitt þar. Sam-
kvæmt útreikningum heimamanna
munu geislar sólarinnar gægjast
upp fyrir Hapeka-fjall á Pitt-eyju
klukkan 3:59 að staðartíma 1. jan-
úar árið 2000 og nú þegar eiga
sjónvarpsstöðvar frá Astralíu,
Bandaríkjunum, Bretlandi og
fleiri löndum í harðri samkeppni
um útsendingarrétt frá hinni sögu-
legu sólampprás.
Svo eru þeir sem halda því fram
að nýr dagur hefjist ekki fyrr eftir
miðnætti í Gömlu konunglegu
rannsóknarmiðstöðinni í Green-
wich á Englandi, en Greenwich er
viðmiðunarpunktur í alþjóðlegu
tímatali sem virt er víða um lönd.
Spumingin snýst þá um hvar fyrst
birtir af degi eftir að klukkan hef-
ur slegið tólf á miðnætti í Green-
wich á gamlárskvöld 1999. Svarið
er: á Nicobar-eyjum í Indlands-
hafi. Þangað er hins vegar afar
erfitt að komast og munu þvi ein-
ungis skjaldbökur og krókódílar
verða vitni að fyrstu dögun 21. ald-
arinnar...
góða er varpað
fram hugmynd um
áramót f heitum
hver undir berum
himni á íslandi.
Myndin er tekin í
Landmanna-
laugum.
Fagnaðarlæti
á gamlárskvöld
eru árviss viðburð-
ur á Times Square
í New York.
Reuters
Reuters
BRETAR vinna nú að því að fúllgera Ár-
þúsundahvelfinguna (Millennium Dome)
sem hér sést á tölvumynd, og er að sögn
hönnuða „ævintýraferð inn í framtíðina".
Sönnunargögn
um samtímann
BRETAR bíða með opinn faðminn eftir nýja
árþúsundinu og standa einna fremstir í bið-
röðinni. Óteljandi verkefni eru í undirbúningi
vegna komandi aldamóta og ber þar hæst Ár-
þúsundahvelfmguna, Árþúsundabrúna, Ár-
þúsundaþorp og fleiri risamannvirki.
Hvelfingin mikla (Millennium Dome) er í
Greenwich, heimalandi tímans, og mun verða
opnuð að viðstaddri drottningunni, forsætis-
ráðherra og öðrum fyrirmennum á gamlárs-
dag. Allt að 200 þúsund Lundúnabúum verður
hins vegar boðið á nokkurs konar lokaæfingu,
hálfum mánuði fyrir opnunarkvöldið, þar sem
helstu tækniatriði verða prufukeyrð.
Gengið á vatninu
Sir Cliff Richard og fleiri stjörnur munu
koma fram í ríkisguðsþjónustu 2. janúar nk. í
St. Paul’s Cathedral og breska kirkjan íhugar
að dreifa kertum til allra heimila í landinu fyr-
ir áramótin.
Samkvæmt frétt The Observer eru og uppi
hugmyndir um að halda ísmarkað á Thames-
á, þrátt fyrir andmæli sjófarenda. Áin verður
fryst með hjálp etýlenglýkóls á 500 metra
löngum kafla og íshellan fest milli Charing
Cross og South Bank. Arkitektinn Don Gray
vill að fólk minnist ársins 2000 fyrst og fremst
sem „ársins sem það gat gengið yfir Thames".
Skilaboð til framtíðarinnar
Nýsjálendingar hyggjast einnig reisa um-
fangsmikla árþúsundahvelfingu, en í öðrum
tilgangi en Bretar. Hvelfingin verður grafhýsi
þar sem fyrir verður komið sönnunargögnum
um samtímann. Bronssleginn pýramídi mun
tróna yfir neðanjarðarhvelfingunni, en hún
verður tryggilega innsigluð í lok ársins 2000
með þeim skilaboðum að alls ekki megi rjúfa
innsiglið fyrr en árið 3000.
í grafhvelfingunni verður komið fyrir bréf-
um, ljósmyndum, myndböndum, tölvum, list-
munum og öðrum sýnishornum menningar og
daglegs lífs undir lok 20. aldarinnar, en grip-
irnir munu fyrst flakka um Nýja-Sjáland á
farandsýningu. Ef komandi kynslóðir stand-
ast ekki fyrirmælin á steyptu innsiglinu geta
þær opnað sérstök hliðarherbergi í hvelfing-
unni sem aðeins verða innsigluð til 50-100 ára.
Teikningu af hvelfingunni má skoða á heima-
síðu verkefnisins: http://www.timevault-
2000.co.nz/
Aldamótakirkja í Róm
Páfagarður minnist tvöþúsund ára kristin-
dóms og boðar pílagríma frá öllum heims-
hornum til samfagnaðar. Talsmenn Vatíkans-
ins eiga von á að 10-15 milljónir gesta leggi
leið sína til Rómar á næsta ári en borgaryfír-
völd segja að ekki sé ofætlað að búast við 40-
60 milljónum ferðamanna til borgarinnar.
Ráðgert hafði verið að reisa 50 kirkjur í tilefni
afmælishátíðarinnar en þær verða að líkind-
um ekki nema 25. Þeirra á meðal er Kirkja
ársins 2000 sem hinn virti bandaríski arkitekt
Richard Meier hefur hannað, en líkan af
kirkjunni þykir minna um margt á Óperuhús-
ið í Sydney.
Stjórnlaus pýramídi
Gjömingahópurinn K2 Plant Hire sem
leiddur er af bresku stjórnleysingjunum
Jimmy Cauty og Bill Drummond skipuleggur
nú byggingu risapýramída, „The Great
Northern Pyramid of the People“, sem hlaða
á úr um 87.250.000 múrsteinum, eða einum
múrsteini fyrir hvern einstakling sem fæðst
hefur í Bretlandi á 20. öldinni. „Pýramídinn
mun lifa eins lengi og eitthvað er eftir af hon-
um. Hann mun ekki standa fyrir neitt, enginn
mun kosta hann og enginn eiga hann,“ segja
stjómleysingjamir, en pýramídinn er álitinn
skemmtilega anarkísk skopstæling af Árþús-
undahvelfingunni (Millennium Dome) sem nú
rís í Londori.
Aðlaðandi
áramót
á Islandi
í ÖRKAFLA um ísland í leiðarvísinum The
Millennium er m.a. greint frá því að Þjóðleik-
húsið, Ríkisútvarpið og Þjóðminjasafnið eigi
stórafmæli á aldamótaárinu. Ferðamenn eru
hvattir til þess að bóka snemma flugsæti til Is-
lands, sér í lagi í sumarferðir, enda sé Reykja-
vík ein af menningarborgum Evrópu árið 2000
og standi mikið til af því tilefni.
„Þar sem aðeins fjögurra eða fimm klukku-
stunda dagsljóss nýtur við yfir vetrartímann á
Islandi er landið kannski ekki augljósasti stað-
urinn til þess að fagna nýárinu. En ímyndaðu
þér vellystingar í sjóðandi útihver undir tærum
vetrarstjömum, drykk í annarri hendi og
möguleika á dægurlangri hríð og skyndilega
verður þetta allt mjög aðlaðandi,“ segir í leiðar-
vísinum.
Times Square á miðnætti
Torgið Times Square í New York er samheiti
áramótahátíðarhalda í hugum margra. Um
komandi aldamót verður fagnað sem aldrei fyrr
og verður bein útsending frá fjörinu á Netinu,
auk þess sem risaskjáir á torginu sjálfu munu
sýna myndir frá hátíðarhöldum annars staðar í
veröldinni. Risavaxin upplýst áramótablaðra
verður látin síga á flaggstöng samtímis því sem
torgklukkurnar telja niður til miðnættis og á
slaginu dreifist sælgæti í tonnavís af húsþökum
yfir torggesti. Fyrir þá sem ekki treysta sér í
mannþröngina er slóð útsendingarinnar
http://www.times-square.org/
Eiffelturninn verpir eggi
Frakkar hafa viðrað fjölbreyttar hugmyndir
um hvernig taka skuli á móti 21. öldinni. Ein
gengur út á að láta upplýst risaegg síga niður
úr Eiffelturninum miðjum undir trumbuslætti
á gamlárskvöld. Á miðnætti brestur skurnin og
koma þá í ljós hundruð sjónvarpsskerma sem
sýna áramótafógnuði í ýmsum löndum. Áhöld
eru um ágæti hugmyndarinnar og líst mörgum
betur á að breyta hringbrautinni í kringum
París í tónleikasvæði á gamlárskvöld þar sem
allar tegundir tónlistar fái sérstakt svið. Einnig
er í ráði að setja ilmefni í Signu og skreyta
vatnsborð hennar með litríkum plastfiskum og
koma upp risavaxinni rafbók við Hotel de Ville
með köflum úr frönskum bókmenntum.
í fótspor vitringanna
Milljónir manna hyggjast leggja leið sína til
Landsins helga þegar 2000 ár verða liðin frá
fæðingu Jesú Krísts. Fyrirhugað er að nýta
nýjustu tölvutækni til þess að setja á svið úr-
slitaorrustu góðs og ills úr Opinberunarbókinni
innan um fornminjar á Megido-fjalli.
Ferðalag vitringanna þriggja verður einnig
sett á svið og verða þar á ferð hjónin Robin og
Nancy Wainright frá Kaliforníu. Þau hyggjast
feta í fótspor vitringanna á kameldýrum alla
leið frá Ur í írak til Betlehem og vonast til
þess að þúsundir manna sláist í fórina. Til-
gangurinn er að boða frið og hlýhug en ætlun-
in er öðrum þræði að safna fé til heilbrigðis-
þjónustu og vatnsdreifingar fyrir fátæk þorp á
svæðinu.