Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 54

Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA VALDINIARSDÓTTIR RITCHIE, Hátúni 6B, andaðist á Landspítalanum föstudaginn 26. mars. Valdimar Samúelsson, Guðrún Björnsdóttir, Norma Samúelsdóttir, Björn M. Tryggvason, barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞORBJÖRG VERNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Hjallaseli 31, Reykjavík, er látin. Þóra Hjartardóttir, Ingólfur B. Kristjánsson, Sigríður Hjartardóttir, Þorbjörn Tómasson, Hjörtur Hjartarson, Lilja Guðmundsdóttir, Ólöf Hjartardóttir, Jens Valur Ólason og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRARINN KRISTJÁN BJÖRNSSON, Laugarnestanga 9b, lést aðfaranótt sunnudagsins 14. mars á krabbameinsdeild Landspítalans. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurlaug, Jóhannes, Þórunn og Bjarki Þórarinsbörn, Rúnar Smárason og barnabörn. + Elskulegur bróðir okkar, VALDIMAR GÍSLASON, Norðurgötu 21, Sandgerði, lést fimmtudaginn 25. mars. Útförin ferfram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 31. mars kl. 14.00. Systkini hins látna. + Bróðir okkar, HERMANN AUÐUNN ÖSSURARSON, lést í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 11. mars. Útförin hefur farið fram. Systkini hins látna. + Útför systur minnar og móðursystur, ÍSAFOLDAR ÓLAFSDÓTTUR, fer fram frá Neskirkju mánudaginn 29. mars kl. 13.30. Þóra Fannberg, Ólafur Fannberg. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR J. JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Georgsdóttir, Sigríður Andradóttir. JÓN ÞÓRARINSSON + Jón Þórarinsson fæddist á Hjaltabakka í Aust- ur-Húnavatnssýslu 6. ágúst 1911. Hann lést á Vífilsstöðum 3. mars siðastliðinn og fór útför hans fram frá Blönduós- kirkju 13. mars. Þótt við Jón Þórar- insson á Hjaltabakka værum bæði sam- tímamenn og sam- sýslungar voru per- sónuleg kynni okkar lítil fram yf- ir miðjan aldur. Leiðir okkar lágu aldrei saman í félagsmálum eða við önnur störf. Hlutskipti okkar var þó svipað að því leyti að báðir vorum við bændasynir, unnum að búi foreldra okkar fram á fullorð- insár og tókum síðan við búunum, hvor á sinni jörðinni, er búand- skeiði þeirra lauk, en við áttum ekki upprekstur búsmala á sömu afrétt og fórum því aldrei saman „í göngur". Fyrir mun hafa komið að Jón á Hjaltabakka hirti fé Tor- falækjarhrepps í Vatnsdalsrétt að haustinu, en hann kom aldrei að Saui'bæ svo að ég muni og ég átti ekki erindi að Hjaltabakka á þeim árum. Fyrir kom þó að við Vatnsdælingar fengum að stoppa með sláturfé á Hjaltabakkamóun- um áður en það var rekið síðasta áfangann til Blönduóss. Þótti þá sjálfsagt að skreppa heim að Hjaltabakka í kaffisopa, sem var kærkomin hressing göngulúnum rekstrarmönnum eftir hátt í 40 km ferð, fremst framan úr Vatns- dal, sem þó varð að skipta niður á tvo daga til þess að lömbin gæfust ekki upp á þeirri löngu leið. Húsmóðurina á Hjaltabakka, Helgu Stefánsdóttir, konu Jóns, hafði ég þekkt allt frá unglingsár- um okkar beggja og var gott að þiggja veitingar úr hennar hönd- um ásamt spjalli um menn og málefni samfélagsins. Og árin liðu. Svo fór að ég flutti til Blönduóss ásamt konu minni og vorum við þar með orðnir ná- grannar Hjaltabakkahjónanna. Eg hafði haft með mér nokkrar kindur heiman frá Saurbæ sem ég lét „liggja við opið“ hér inn á sjávarbakkan- um og þegar voraði var þeim gjarnt að leita í áttina fram í dalinn og mátti ég alloft sækja þær á vorkvöldum fram í Hj altabakkaland. Gagnstætt sóttu Hjaltabakkaærnar í það að komast inn á opnar lóðir Blöndu- óssbúa, sem að sjálf- sögðu þóttu ekki góðir gestir er þær klipptu garðplönturnar ný- komnar upp úr moldinni. Þessar aðstæður sköpuðu aukna um- gengni við þau Hjaltabakkahjón- in og urðu kynnin við þau góð. Það orð lék á að Jón á Hjalta- bakka væri ekki allra, sem rétt mun hafa verið, en traust varð samband við þá sem hann kaus að sýna trúnað og varð það reynsla mín af samskiptum okkar. Um árabil annaðist Jón á Hjaltabakka veðurathuganir fyrir Veðurstofu Islands. Var þar frábær aðstaða með jöfnu útsýni beggja megin Húnaflóa, sem og til hafs og heiða- landa inn til landsins. Vordýrð er á slíkum stöðum og sérréttindi mikil að njóta slíks útsýnis. Að því kom að Jón þurfti að víkja tímabundið að heiman og af einhverjum ástæðum datt honum í hug að fá undirritaðan til þess að taka að sér veðurathuganirnar á meðan og varð það að samkomu- lagi að undimtaður varð við þeim óskum og önnuðumst við hjónin at- huganimar hér á Blönduósi um- ræddan tíma. Framvindan varð þó á þann veg að færsla athugananna til Blönduóss varð til frambúðar því þau Hjaltabakkahjón brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur þar sem þau dvöldu eftir það og Jón stundaði bókband meðan þrek hans entist. Þórarinn á Hjaltabakka mun hafa ákveðið hvert af börnum hans yrði eigandi jarðarinnar að honum gengnum og varð Jón landseti Hjalta bróður síns meðan hann bjó á jörðinni, sem hann AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR + Aðalbjörg Guð- mundsdóttir fæddist á Gilsár- stekk 25. nóvember 1908. Hún lést á Eskifirði 1. mars. síðastliðinn og fór útfór hennar fram frá Eskiíjarðar- kirkju 9. mars. Yfir lög og um lönd ríkir ljúfasta kyrrð. Blárri ránar að rönd runnin sól er og byrgð. Rökkrið breiðist um byggð, hljóður blundar hver þeyr. Dagsins bjarmandi bros óðum bliknar og deyr. (K.Þ.) Það var dapur dagur hjá okkur systnim þegar við fengum fregnir um að þú, elsku Aðalbjörg, hefðir kvatt þetta líf að morgni 1. mars. Þó að þú hafir átt langa og farsæla ævi sem við vorum svo heppnar að hafa átt hlutdeild í allt frá því að við vorum smástelpur, er alltaf jafn ei'fitt þegar að kveðjustund- inni kemur. En minningamar eru margar og góðar og þær verða geymdar vel. Þú hafðir þann eigin- leika að vera alltaf að hugsa um aðra og fórum við systur ekki var- hluta af því. Alltaf mundir þú eftir af- mælisdögum okkar og ófáar afmælis- og jóla- gjafirnar sem við fengum frá þér bæði stórar og smáar, vald- ar af einstakri smekk- vísi eins og allt sem þú gerðir. Það var alltaf gaman og notalegt að koma í heimsókn til þín hvort sem við laumuðumst niður til þín sem smástelpur þar sem við bjuggum á efri hæðinni hjá þér í Háteigi eða nú í seinni tíð þegar lengra leið á milli heimsókna. Avallt var eins og við hefðum hist síðast í gær, margt spjallað og rifjaðar upp gamlar stundir. Mikið erum við búnar að dást að öllum þeim hannyrðum sem hafa í gegnum hendur þínar far- ið, allar unnar af einstakri natni, smekkvísi og listfengi, hvort sem það voru lopapeysur, hyrnur, pennasaumsmyndir eða ámáluð stykki, allt lék þetta í höndunum á þér og virtist svo einfalt. Ekki má gleyma ullarsokkunum góðu, þeir voru ekki fáir sokkarnir og vettlingarnir sem þú prjónaðir og gafst okkur og engum varð bætti mikið að húsakosti og rækt- un. Honum þótti vænt um hina kostaríku jörð og hann mun hafa yfirgefið óðalið með nokkrum sár- indum. Hafði hann þó ekki orð þar um. Hann fékk rétt til þess að byggja sér sumarhús suður og niður við sjóinn og fylgdi réttur til þess að leggja net frá fjöruborði. A þessum stað dvaldi Jón, stund- um einn, stundum með konu sinni, meðan hún lifði, eða þá með öðr- um úr fjölskyldunni sumar hvert eftir að hann flutti heimilið til Reykjavíkur og naut lífsins er vindur stóð af landi og sjórinn var kyrr, en hörfaði jafnan suður er vindur stóð af hafi og ýfði öldur. Þessa gat hann þó ekki notið síð- ast liðið sumar vegna sjúkleika. Nokkuð oft kom það fyrir að Jón hringdi til mín er hagstætt veður var en hann komst ekki norður og bauð mér að kasta út neti í sinn stað. Einnig kom fyrir að hann færði okkur hjónum nýveiddan silung í soðið, en varla kom fyrir að hægt væri að fá hann inn til þess að fá sér kaffisopa eða spjalla um stund. Onnur raun var um sjálfan mig að ég stoppaði gjai'nan í bústað Jóns á sjávar- bakkanum er ég notaði mér hina góðu reiðleið niður með Laxá fast að ósum árinnar og síðan norður Sandinn og upp fyrir sunnan tún á Hjaltabakka til Blönduóss. Jón sýndi mér jafnan meiri rausn í þessum ferðum en ég kaus að þiggja og öll voru samskiptin við hann á einn veg, orðfá og mótuð góðhug í minn garð. Jón hringdi stundum til mín er hann langaði til þess að frétta úr heimahögun- um héðan að norðan og sjaldan mun veðurlýsingin frá Blönduósi hafa farið fram hjá honum. Eg endurgalt Jóni stundum símtölin þótt í minna mæli væri. Síðast tal- aði ég við hann er hann dvaldi á Vífilsstöðum í vetur og var hann þá orðinn með öllu háður tækni- búnaði læknisfræðinnar. Síðustu mánuðir lífs Jóns voru honum erfiðir á ýmsa lund og gáfu honum engin fyrirheit. Eg skal játa að það gladdi mig er Sigríður Baldursdóttir, hinn tryggi vinur fjölskyldunnar frá Hjaltabakka, sagði mér lát Jóns en ég gat vottað afkomendum hans samhug minn og konu minnar við útförina hér frá Blönduósskirkju. Grímur Gislason. kalt í ullarsokkum frá Aðal- björgu. A hverju ári þegar fyrst sást til sólar hringdir þú og bauðst í súkkulaði og pönnukökur. Þessar pönnukökuveislur voru alveg sér- stakar og beðið var eftir þeim með eftirvæntingu. Margar góðar pönnukökur höfum við fengið en alltaf komist að sömu niðurstöð- unni, einfaldlega bestar hjá Aðal- björgu. Það var líka svo sérstakt að það virtust bara alltaf vera til rjómapönnukökur í skápnum hjá þér. Samverustundirnar voru ein- stakar og minningarnar margar, oft varst þú búin að skakka leikinn hjá okkur og allt datt í dúnalogn. Þú varst okkur sannur vinur og fyrinnynd að öllu því góða sem má láta af sér leiða. Ofarlega í huganum eru fundir okkar um jólin síðustu þar sem við hittumst allar og þegar þið Þórhildur hittust nú nýlega og sátuð í stofunni í Háteigi, prjóna- rnir lágu á borðinu eins og fastir liðir. Það var spjallað um heima og geima, þú sagðir fréttir og sýndir myndir af stórum og smá- um í fjölskyldu þinni sem þú varst svo stolt af. Við erum stolt- ar af að fá og finna að við vorum smá hluti af fjölskyldunni því þú áttir alltaf pláss í hjarta þínu fyr- ir okkur. Hjartans þökk fyrir samfylgd- ina. Guð veri með þér. Elísabet, Nanna og Þórhildur Tómasdætur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.