Morgunblaðið - 27.03.1999, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 27.03.1999, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hroðmör Room Full of Mirrors Spindlar Heimilislegt íslenskt rokk Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Óbermi TOJVLIST Tónabær MÚSÍKTILRAUNIR Músi'ktilraunir Tónabæjar, síðasta undanúrslitakvöld. Þátt tóku hljóm- sveitirnar Tikkal, Hroðmör, Bensi- drín, Room Full of Mirrors, Spindl- ar, Óbermi og Ópíum. Haldið f Tónabæ sl. finuntudagskvöld. UNDANÚRSLITUM Músíktil- rauna Tónabæjar lauk með látum sl. fimmtudagskvöld. Þá kepptu sjö sveitir um síðustu sætin í úr- slitunum, allar utan af landi eins og til heyrir á síðasta undanúr- slitakvöldinu. A höfuðborgarsvæðinu eru menn oft úr hófi nýjungagjarnir, en tíminn líður öðruvísi úti á landi. I það minnsta virðist sem heimilis- legt íslenskt rokk lifi lengur og betur úti á landi, eins og sannaðist þetta loka undanúrslitakvöld. Fyrsta sveitin var þó ekki ýkja heimilisleg en tónlistin hljómaði kunnuglega þegar þeim liðsmönn- um Tikkals tókst að hljóma saman. Gítarleikari sveitarinnar er efni- legur sem slíkur, en ekki traustur söngvari og lögin hreint ekki góð. Hroðmör kom svo með gamal- kunna stemmningu, sannkallað loparokk, kraftmikið og hrátt með svellandi öskrum. Leðjuhljómur á gítar hélt sveitinni niðri og fyrir vikið er erfiðara að meta lagasmíð- amar. Dauði á brauði var reyndar eftirminnileg samsetning sem minnti á köílum á Partíbæ Ham- verja. Bensidrín kom einna mest á óvart og ekki bara fyrir stuðla- bergsgítarfrasa og þunga undir- öldu. Söngvarar sveitarinnar voru tröllslega vaxnir og þrælmagnaðir söngvarar sem drógu ekki af sér. Sérstaklega var þriðja lag sveitar- innar gott, en textinn vel heppnað- ur í fyrsta laginu. Room Full of Mirrors kom einnig skemmtilega á óvart, vel heppnuð Bigbeat-sveit, ef sveit skyldi kalla því hún er víst verk eins manns. Sá lék líka með á gítar og fyllti skemmtilega uppí þar sem við á; verulega efnilegur og gaman að heyra meira frá honum í fram- tíðinni. Þriðja lagið var bráðvel heppnað. Spindlar leika bresk/íslenska nýbylgju og komust nokkuð vel frá sínu. Sérstaklega var bassaleikari sveitarinnar lipur og líka góðir sprettir hjá gítarleikaranum. Framvinda í lögunum var þó alltof lítil utan í öðru laginu sem gekk mjög vel upp. Obermi var vel þétt og keyrði á góðum hraða. Lögin voru þó varla meira en gítarlykkjufóll og sam- söngur ekki skemmtilegur. Það var helst að þeir félagar ættu spretti í lokalaginu, en tókst samt aldrei að heilla viðstadda. Síðasta sveit þetta kvöld hét Óp- íum af einhverjum sökum. Þar var valinn maður í hverju rúmi, spila- mennska öll með besta móti en lögin ekki eins vel valin, utan þriðja lagið. Tikkal sigraði úr sal en dóm- nefnd kaus áfram Ópíum og Bensi- drín. Árni Matthiasson Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson ÞEIR spila í úrslitakeppninni um fslandsmeistaratitilinn í sveitakeppni, en keppnin hefst nk. miðvikudag. Sveitin ber nafnið Heitar samlokur og er skipuð eftirtöldum spilurum, talið frá vinstri: Gísli Steingrímsson, Steinberg Rikharðsson, Hjálmar S. Pálsson, Sigfús Örn Árnason, Jón Hjaltason og Friðjón Þórhallsson. _____________BRIPS____________________ IJmsjón Arnór G. Ragnarsson fslandsmótið í sveitakeppni - 10 sveita úrslit Úrslitin í MasterCard-mótinu verða spil- uð um bænadagana að venju. Bridsáhuga- fólk er hvatt til að líta inn í Þönglabakkann, enda mjög góð aðstaða fyrir áhorfendur og sýningartafla í gangi. Mótið hefst á miðvikudaginn kemur og lýkur á laugardag með verðlaunaafhendingu. Dagskrá mótsins er annars þessi: 1. umferð miðvikudag kl. 15.20-19.10 2. umferð miðvikudag kl. 20.10-24.00 3. umferð fimmtudag kl. 11.00-14.50 4. umferð fimmtudag kl. 15.20-19.10 5. umferð fimmtudag kl. 20.10-24.00 6. umferð föstudag kl. 15.20-19.10 7. umferð föstudag kl. 20.10-24.00 8. umferð laugardag kl. 11.00-14.50 9. umferð laugardag kl. 15.20-19.10 Mótinu lýkur svo eins og áður sagði á laugardaginn fyrir páska með verðlaunaaf- hendingu sem hefst kl. 19.30. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Hinn 16. mars sl. hófst aðalsveitakeppn- in. 18 sveitir taka þátt. Vegna þess hvað þátttakan er góð verður keppt með Mon- rad-útreikningi. Eftir 4 umferðir er röð efstu sveita eftirfarandi: Ari Már Arason.....................91 Nota bene..........................78 Guðrún Jörgensen ..................73 Jónas Elíasson.....................72 Bridsfélag Húsavíkur Að loknum 7 umferðum af 15 í aðaltví- menningi Bridsfélags Húsavíkur er staða efstu para þannig: Þórólfur - Einar ...............101 Björgvin - Guðmundur.............64 Sveinn - Guðmundur...............51 Magnús - Þóra....................32 Jón S. - Jón Á...................28 Vetrarlegt á veiðislóðinni SJÓBIRTINGSVERTÍÐIN hefst næstkom- andi fimmtudag, skírdag, en sá dagur ber nú upp á 1. apríl. Bleikjuveiði hefst þá einnig í Soginu og sjálfsagt víðar. Sjóbirtingsárnar eru sem kunnugt er flestar í Vestur-Skafta- fellssýslu og þar er vetrarlegt um að litast þessa dagana og alls ekki útséð um hvernig fer fyrstu daga vertíðarinnar. „Hér er snjór yfir öllu og árnar á ís. Þetta getur verið fljótt að breytast, en það er ekki veiðilegt um að litast sem stendur,“ sagði Agnar Davíðsson á Fossum í Landbroti í sam- tali við Morgunblaðið. Agnar er formaður Veiðifélags Grenlækjar. Veiði hefst raunar ekki í Grenlæk fyrr en í maí, en áin var mjög í umræðunni í fyrra er allt vatn þvarr í öllum efri hluta árinnar. Agnar sagði að gott rennsli hefði verið í ánni í vetur og sömu sögu væri að segja um Tungulæk í Landbroti, sem einnig þornaði. „Það er allt opið upp frá og engin fyr- irstaða. Auk þess hjálpar snjórinn upp á jarð- vatnsstöðuna," bætti Ágnar við. Hvað sem gerist fyrstu dagana þá er næsta víst að birtingurinn er til staðar. Haft hefur verið Magnúsi Jóhannssyni að all mik- ið hafi verið af birtingi í ám þar eystra í fyrrahaust og lakari veiðitölur en árin áður hefðu fremur stafað af vondum skilyrðum til veiða en fiskþurrð. Fyrir fáum vikum voru menn að skemmta sér við að horfa á stóra sjóbirtinga sveimandi undir ís á Hörgsá. Voi’veiðarnar eru annars umdeildar og af þeim sökum víða aflagðar. Helstu árnar sem opnaðar eru 1. apríl eru Geirlandsá, Hörgsá, Skaftá, Eldvatn á Brunasandi og Vatnamót Skaftár, Fossála, Geirlandsár og Hörgsár. Ár þar sem vorveiði er bönnuð eru Eldvatn í Meðallandi, Grenlækur, Jónskvísl/Sýrlækur, Laxá og Brúará, Fossálar o.fl. Nær höfuð- borgarsvæðinu eru Varmá og Volasvæðið op- in frá 1. apríl. VORVEIÐIMENN eru harðgerður stofn því þótt menn sjái vorið í hillingum eru þeir oftar en ekki að baksa í skítakulda ef ekki skafrenningi og byl. SVFR leigir Seglbúðasvæðið í Grenlæk Bergur Steingrímsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, staðfesti í samtali við Morgunblaðið það sem gengið hef- ur fjöllum hærra síðustu daga, að SVFR sé í þann mund að taka á leigu drjúgan hluta veiðidaga á Seglbúðasvæðinu í Grenlæk. Það er sannarlega rós í hnappagat SVFR, því þar er á ferð eftirsóttasta svæðið í bestu sjóbirt- ingsá landsins. Hvorki meira eða minna. Veitt er á fjórar stangir á Seglbúðasvæðinu og verður einungis um fluguveiði að ræða og kvóti upp á fimm sjóbirtinga á dag, eða sjö fiska alls, því þarna er líka von á bleikju og stöku lax. SVFR verður með fimm tímabil sem spanna veiðitímann allt frá júní og fram í október. Tímabilin á milli verða ekki leigð út, heldur hóflega nýtt af landeigendum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.