Morgunblaðið - 27.03.1999, Side 78
78 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
Dýraglens
)MANN HL'JKWST At.UBG E/N5
L fí/C hr'/
©1999 Trlbune Media Servlces, Inc.
All Rights Resen/ed.
l'M TMINKIN6 OF 5TARTIN6
A PI5CU55I0N 6R0UP..
Ég er að hugsa ura að
mynda umræðuhóp ...
Það gæti verið mjög
athyglisvert...
Fólk kæmi alls staðar að
til að hlusta á mig ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hjálp
Frá Magnúsi Helga Björgvinssyni:
NÚ ÞEGAR keppst er um að lýsa
fyrir okkur að aldrei í sögu landsins
hafi annað eins góðæri ríkt hér á
landi, er hópur fatlaðra einstaklinga
sem búa við algjörlega ömurlegar
aðstæður. Hér er ég að vísa til hluta
af einstaklingum sem hafa verið bú-
settir á Landspítalanum í Kópavogi.
Fyrir 6 til 7 árum var tekin
ákvörðun um að stefna bæri að því
að þroskaheftir flyttu burtu af
sjúkrahúsinu, aðallega vegna þess
að búseta á stórum stofnunum sam-
ræmist ekki kröfum samtímans um
að fatlaðir eigi rétt á að lifa og
starfa við sömu aðstæður og aðrir
þjóðfélagsþegnar. í kjölfar þessarar
ákvörðunai- var farið í samninga við
félagsmálaráðuneyti og gerður
samningur um fyrstu 37 íbúana sem
flytja áttu í burt. Það verður að
segjast eins og er að samningurinn
hefur ekki enn verið uppfylltur
nema að hluta því nú í dag, mörgum
árum seinna, eru enn 3 af þessum
37 sem ekki hafa flutt þó það standi
fyrir dyrum. Samkvæmt okkar
skilningi átti fyrir löngu að vera bú-
ið að finna úrræði fyrir aðra heimil-
ismenn en ekkert hefur gerst enn-
þá.
Landspítalinn hefur þegar hafið
að nýta húsnæði sem hefur losnað
undir aðra starfsemi. T.d. verður
fljótlega opnuð líknardeild.
Og nú loks er ég kominn að
kjama málsins! Vegna óvissu um
nýtingu húsnæðis í framtíðinni býr
hluti þroskaheftra íbúa við alveg
ömurlegar aðstæður í húsnæði sem
vart getur talist íbúðarhæft. Við
sem störfum við að aðstoða þessa
íbúa höfum reynt allar leiðir innan
Ríkisspítala. En þó að allir viður-
kenni vandann og viti að ekki sé bú-
andi við þær aðstæður sem þeim
eru búnar þá fáum við ekki nauð-
synlegar úrbætur. En hvað er þá
að?
21 íbúi býr í húsnæði sem byggt
var 1962. Og er skemmst frá því að
segja að innréttingar eru að mestu
upprunalegar. Hurðir eru skrölt-
andi, dúkar ónýtir. Jarðhæð er rétt
rúmlega fokheld eftir að fram-
kvæmdir voru hafnar en hætt við.
Málning er flagnandi af eldhúsinn-
réttingum. Hreinlætistæki á böðum
eru upprunalegar og alltaf að bila í
húsnæðinu. Flísar á sumum baðher-
bergjum eru gegnsósa og lykta
mjög illa. Þá er í húsnæðinu geisla-
hitun og ýmist of kalt eða of heitt
fyi-ir utan það að loftið er yfirleitt
mjög slæmt og þurrt. Þá var hús-
næðið hannað upprunalega sem
starfsmannaíbúðir og herbergi
þannig að heimilisbragur er tak-
markaður.
Við höfum um árabil barist fyrir
endurbótum, þeim hefur verið lofað
en ekkert gerist. Það er orðin
spuming hvort manni sé siðferðis-
lega stætt á að vinna á stað sem býr
þannig að fötluðum.
Besta lausnin sem ég sé fyrir
þessa einstaklinga er að þeim verði
séð fyrir úrræðum utan sjúkrahúss-
ins. Það er einnig spurning í því
góðæri sem valdhafar benda á að
ríki nú um stundir að fyrst ekkert
er hægt að gera fyrir þessa íbúa nú
hvernig verður þá búið að þeim þeg-
ar harðnar á dalnum!
MAGNÚSHELGI
BJÖRGVINSSON,
þroskaþjálfi,
Arnarsmára 4, Kópavogi.
„Aðgát skal höfð... “
Frá Ragnari Lár:
SÁ VINSÆLI skemmtikraftur
Marteinn Mosdal skaut heldur bet-
ur yfir markið í föstudagsþætti sín-
um 19. mars sl. Ógæfumaður,
breskur og þeldökkur, hefur verið
dæmdur af héraðsdómi til sjö ára
refsivistar.
Maðurinn hefur áfrýjað dómnum
til Hæstaréttar og er málinu því
ólokið. Hérlendis gilda þau lög, að
enginn sé sekur fyrr en sekt hans er
sönnuð. Höfundur þess texta sem
Marteinn Mosdal flutti er svo ósvíf-
inn og ósmekklegur að velta sér upp
úr ógæfu þessa lánlausa Breta, sem
er kvæntur og faðir. Ekki nóg með
það. Textahöfundur notfærir sér
myndir sem teknar voru af þeim
ákærða á vinnuhælinu á Litla-
Hrauni.
Þær myndir eru til vegna þess að
ákærði féllst á að hafa viðtal við
fréttamann Stöðvar tvö. Sú frétt
birtist í fréttatíma Stöðvar tvö í síð-
astliðinni viku. Síðan misnotar
textahöfundur „Mosdalsþáttar“
þessar myndir á ósmekklegan,
hrokafullan, „rasískan" og óþverra-
legan hátt. .
,Aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar,“ sagði skáldið Einar Benedikts-
son og ætti textahöfundurinn fyrr-
nefndi að tileinka sér þau orð.
Annað vildi ég nefna í svipuðu
sambandi og því sem að framan
greinir. Viku áður en fyrrnefndur
Mosdalsþáttur var fluttur, veltu
Spaugstofumenn sér uppúr „Goða-
fossmálinu" svonefnda.
Spaugstofumenn semja sinn
texta sjálfir.
Þegar þátturinn var fluttur voru
nokkrir skipverja ennþá í gæslu-
varðhaldi.
Gera Spaugstofumenn sér ekki
grein fyrir því að hver skipverji sem
er í gæsluvarðhaldi á sína fjöl-
skyldu, böm, eiginkonu, foreldra,
systkini, frændfólk og aðra vensla-
menn?
Gera Spaugstofumenn sér ekki
gi-ein fyrir því að börn þeirra
ógæfumanna sem eru í varðhaldi
gætu átt í erfiðleikum í skólanum,
svo dæmi sé nefnt?
„Aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar.“
Menn eru saklausir þar til sekt er
sönnuð.
Spaugarar!
Það er af nógu af taka í íslensku
samfélagi til að gera að því góðlát-
legt grín. Pólitíkin gefur alltaf
höggstað á sér og þeir sem þar era
innanbúðar „þurfa“ á spaugurum að
halda.
En aðgát skal höfð.
RAGNAR LÁR,
Vesturbergi 102,
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðaii, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.