Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 92
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RlTSTJtSMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ YSK
Olafur Olafsson nýr stjórnar-
formaður Islenzkra sjávarafurða
. Gert er ráð fyrir
hagnaði í ár
REKSTRAEÁÆTLUN íslenzkra
sjávarafurða gerir ráð fyrir hagnaði
af rekstri samstæðunnar í heild, en
á síðasta ári var rekstrartapið 668
milljónir króna. í skýrslu stjórnar á
aðalfundi félagsins í gær kom fram,
að reksturinn fyrstu tvo mánuði
ársins sé í flestum tilfellum í sam-
ræmi við áætlanir eða betri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Þá hefur sala
afurða aukizt miðað við sama tíma í
fyrra.
„Það eru sem betur fer vísbend-
ingar um að tekizt hafi að stöðva
hinn mikla og alvarlega taprekstur
sem orðið hefur á tveimur síðustu
árum. Þær benda einnig til þess að
þær aðgerðir sem gripið var til á
síðari hluta ársins 1998 muni bera
tilætlaðan árangur. Rétt er þó að
undirstrika að hér er um of stutt
tímabil að ræða til að draga af því
Flutt á
sjúkrahús
eftir slys á
vélsleða
almenna ályktun um afkomu ársins.
Þegar uppgjör fyrir fyrstu fjóra til
sex mánuði þessa árs liggur íyrir
verður Um haldbetri upplýsingar að
ræða og vonandi staðfestingu á því
að stefni í rétta átt,“ sagði Hermann
Hansson, fráfarandi formaður
stjórnar ÍS, á aðalfundinum.
Heildarskuldir ÍS-samstæðunnar
eru nú um 2,3 milljarðar króna að
frátöldum rekstrarleigusamningi
vegna búnaðar í fiskréttaverksmiðj-
una vestanhafs að upphæð 1,1 millj-
arður króna. Á fundinum var lagður
fram breyttur ársreikningur frá
þeim sem áður hafði verið gefinn út.
Breytt hafði verið tekjufærslu að
upphæð 95 milljónir króna, hún
færð úr reglulegri starfsemi í
óreglulega, en það breytti í engu
heildarniðurstöðu. Ársreikningur-
inn var samþykktur athugasemda-
laust á fundinum.
Olafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, var í gær kjörinn formaður
stjórnar ÍS í stað Hermanns Hans-
sonar, sem ekki gaf kost á sér til
áframhaldandi formennsku. Á fund-
inum var samþykkt heimild til
hlutafjárútboðs að upphæð 400
milljónir króna að nafnvirði.
■ Verðum að/35
Morgunblaðið/Ásdís
Unnið af
kappi í
slippnum
SÓLARGANGINN er farið að
lengja og vorið nálgast óðfluga.
Veður hefur verið gott undanfar-
ið en í gær kyngdi niður snjó á
suðvesturhorninu. Töldu sumir
að veðurguðirnir hefðu ruglast
eitthvað í rúninu en aðrir tóku
snjókomunni með jafnaðargeði. f
slippnum við höfnina í Reykjavík
gekk allt sinn vanagang og var
unnið af kappi við að standsetja
skipin sem þar voru, þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði.
Bflvelta á
Holtavörðu-
heiði
BIFREIÐ valt á Holtavörðuheiði
um einum kílómetra ofan við efstu
brúna yfir Norðurá um klukkan 18 í
gær.
Ökumaðurinn, sem var einn í bif-
reið á leið suður, slapp með lítilshátt-
ar meiðsl, en bifreiðin, sem fór tvær
veltur, skemmdist talsvert og var
dregin á brott með kranabifreið.
Fljúgandi hálka myndaðist í ná-
grenni Borgamess í gærkvöldi og
uppi á Holtavörðuheiði. Varar lög-
reglan í Borgamesi vegfarendur við
hálku sem getur myndast skyndilega
á vegum.
RÚMLEGA þrítug kona, sem var
farþegi á vélsleða, var flutt með bak-
meiðsl í þyrlu Landhelgisgæslunnar
til rannsóknar á Sjúkrahús Reykja-
víkur eftir slys austan við Skarðs-
mýrarfjall á Hellisheiði í gærkvöldi.
Konan bar öryggishjálm á höfði og
rak kjálkann harkalega í bak öku-
manns sleðans, þegar sleðanum var
ekið yfir mishæð í landslaginu.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi,
sem barst tilkynning um slysið
klukkan 19.35, var talið ráðlegt að
flytja konuna með þyrlu á sjúkrahús,
þegar ljóst var að hún hafði hlotið
bakmeiðsl vegna höggsins.
Konan og ökumaðurinn vom í hópi
fleiri vélsleðamanna sem óku í röð
eftir sömu leið og taldi lögreglan að
orsök slyssins yrði hvorki rakin til
mikils ökuhraða né ófullnægjandi ör-
yggisbúnaðar.
*
Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, á miðstjórnarfundi
Tilbúnir að vinna að nýrri
sátt um sj ávarútveginn
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, lýsti því yfir
við upphaf miðstjómarfundar í gær
að flokkurinn væri tilbúinn að vinna
að nýrri sátt um sjávarútveginn og
skoða hvaða tillögu sem kæmi upp á
borðið í því efni. Honum sýndist að
afmarkaðar breytingar á núverandi
kerfi væra líklegastar tO að skila
þjóðinni mestum afrakstri enda hefði
það í grundvallaratriðum gefist vel.
Halldór sagði að sjávarútvegur
væri mikilvæg undirstaða efnahags
íslendinga og lög um hann þyrftu að
vera í stöðugri endurskoðun. Lög um
fiskveiðistjórnun þyrftu að skila há-
marksarði til samfélagsins sem ætti
auðlindina og einnig þyrftu þessi lög
að vera í takt við réttlætiskennd
fólks. Ýmislegt væri umdeilt í þess-
um málum og gagnrýni hefði á
Skáli Jöklarannsóknafólagsins í Esjufjöllum gjörónýtur eftir ofsaveður
„Eins og skálinn
hafí sprungiða
SKÁLI Jöklarannsóknafélagsins
í Esjufjöllum í Vatnajökli sem
staðið hefur um árabil er spýtna-
brak eitt, að því er virðist eftir
atgang óveðurs á þessum slóðum
fyrir um hálfum mánuði. „Það er
eins og skálinn hafi sprungið,
það er ekkert eftir nema brak og
fh'sar dreifðar um stórt svæði,“
segir Ögmundur Jón Guðnason,
starfsmaður Jöklaferða á Horna-
firði, sem ætlaði að vitja skálans
í gær ásamt félögum sínum.
„Við vorum í dagsferð á
vélsleðum með ferðamenn og
ætluðum að æja við skálann og
borða þar nesti. Þegar við kom-
um að fannst mér eitthvað ein-
kennilegt við það sem við blasti
þar sem hvergi var skálann að
sjá. Við fórum nær og athuguð-
um málið betur og sáum þá að
skálinn var í tætlum í hh'ðinni.
Hann er í þúsund molum, smá-
flygsum ef svo má segja,“ segir
Ögmundur Jón.
Virðist hafa tvístrast
þar sem hann stóð
Ögmundur Jón segir að skál-
inn hafi minnt á gamlan vega-
gerðarskúr og í honum hafi ver-
ið að finna sex kojur, þannig að
um ágætlega rúmgóðan skála
hafi verið að ræða.
„Það er vont að átta sig á
hvað hefur gerst, ekki síst þar
sem sumt af brakinu er undir
snjó. Eg myndi þó telja að hleri
hafí opnast eða dyrnar, þannig
að þegar vindsveipur hefur
myndast hefur komist í hann
loft með þessum afleiðingum,
eða þá að stögin hafi losnað. Ég
held þó að skálinn hafi tvístrast
þar sem hann stóð, fremur en að
hann hafi oltið af stað. Þarna
var mjög hvasst fyrir um hálfum
mánuði og meðal annars voru
bflar að fjúka hjá Kvískerjum og
þá hefur þetta sennilega gerst.
Hins vegar hafa engir verið á
ferðinni þannig að tjónið upp-
götvast ekki fyrr en nú,“ segir
Ögmundur. Hann kveðst hafa
tilkynnt forsvarsmönnum Jökla-
rannsóknafélagsins umsvifalaust
um afdrif skálans og hafi þeir
harmað þau.
Ögmundur telur mikilvægt að
nýr skáli verði reistur á þessum
slóðum, enda hafi hann þjónað
sem neyðarskýli og verið áfanga-
staður á leið ferðalanga auk þess
sem ferðir hafi verið skipulagðar
í skálann um páskana.
stundum verið hörð. En ekki mætti
gleyma þeim árangri sem náðst
hefði. Kerfi fiskveiðistjórnar hefði
skilað þeim árangri sem að var
stefnt og endalausu tapi fyrri ára
hefði verið snúið í hagnað.
Tillaga stjómarandstöðunnar um
auðlindanefnd er mikilvæg sáttatil-
raun í sjávarútvegsmálum að mati
Halldórs og hann kvaðst binda vonir
við að á tillögum nefndarinnar mætti
reisa þjóðarsátt til langrar framtíðar
um fískveiðistjóm íslendinga.
Evrópumálin
þarf að ræða
Halidór Ásgrímsson gerði Evr-
ópumálin að umtalsefni í ræðu sinni
og sagði að íslendingar hefðu styrkt
samband sitt við Evrópusambandið á
þessu kjörtímabili með aukinni þátt-
töku í margvíslegum samstarfsverk-
efnum. Evrópusambandið væri í
stöðugri framþróun og breyttist ört.
„Við eigum ekki að óttast að ræða
hvort það þjóni framtíðarhagsmun-
um okkar Islendinga að skoða aðild
að Evrópusambandinu,“ sagði Hall-
dór. „Ég er ekki að leggja til að ís-
land sæki um aðild að Evrópusam-
bandinu - heldur að möguleikar okk-
ar í þessu efni sem öðrum séu skoð-
aðir. En það er beinlínis óverjandi
gagnvart komandi kynslóðum að láta
eins og Evrópusambandið sé ekki
til.“
■ Ástæðulaust/10