Morgunblaðið - 28.03.1999, Page 24

Morgunblaðið - 28.03.1999, Page 24
24 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Liðin eru 90 ár frá því að Safnahúsið gamla við Hverfisgötu var opnað almenninffl ÚR lestrarsal Safnahússins 1908. Myndin er tekin áður en salurinn var búinn húsgögnum og bókum komið fyrir. Verið er að setja innri gluggafög á sinn stað. Ekki er vitað hver Ijósmyndarinn var og ekki hafa verið borin kennsl á verkafólkið á myndinni. Hún kom í leitirnar í Danmörku fyrir nokkrum vikum. AMORGUN, mánudag 29. mars, opnar Davíð Odds- son forsætisráðherra vef- síður á netinu þar sem unnt verður að fræðast um fyrir- hugaða starfsemi í Þjóðmenning- arhúsinu svonefnda, Safnahúsinu gamla við Hverfisgötu. Jafnframt kemur út kynningarbæklingur um húsið. Þennan dag eru nákvæm- lega 90 ár liðin frá því að starfsemi hófst í húsinu með því að Lands- bókasafnið, Forngripasafnið og Náttúrugripasafnið voru opnuð al- menningi. TVeimur dögum síðar, 1. apríl 1909, var Landsskjalasafnið opnað. Öll eru söfnin nú flutt úr húsinu. Hinn 20. apríl á næsta ári, árið 2000, verður það opnað að nýju sem sýningar- og fundarhús, vettvangur ýmiss konar funda, op- inberra athafna og listviðburða en einkum þó kynningar á íslenskri sögu og menningararfi. Byggt fyrir tvö söfn Safnahúsið var byggt fyrir Landsbókasafn Islands og Lands- skjalasafnið (Þjóðskjalasafn Is- lands) á árunum 1906 til 1908. Sök- um húsnæðisvandræða var tveim- ur öðnim söfnum, Forngripasafn- inu (Þjóðminjasafni íslands) og Náttúrugripasafninu, einnig feng- inn staður í húsinu en það átti að vera tímabundið. I húsinu voru því um árabil undir einu þaki allir helstu dýrgripir íslensku þjóðar- innar; þar voru prentuð rit frá upphafi prentlistar á Islandi, skinnhandrit frá miðöldum, opin- ber skjöl sem varðveist höfðu inn- anlands, fomgripir og fágætir náttúrugripir. Vegna starfseminnar fékk húsið fljótlega nafnið Safnahúsið, þótt það héti það aldrei formlega. Fyrr á árum gekk það líka undir nöfn- um eins og Menntabúrið, Þjóð- menntahúsið og Bókhlaðan og oft hefur það verið nefnt Landsbóka- safnshúsið. Frumkvæði Hannesar Hafstein Helsti frumkvöðull að bygg- ingu hússins var Hannes Hafstein ráðherra íslands. Fyrir forgöngu hans samþykkti Alþingi 1905 að stofna opinberan byggingarsjóð í því skyni aðallega að byggja yfir söfn landsins. Var fjár aflað með sölu verðmætrar ríkisjarðar, Arnarhóls í Reykjavík. I bygg- ingarnefnd sem Alþingi kaus sátu Jón Jacobson landsbókavörður, Guðmundur Björnsson landlækn- ir og Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri. Hannes Hafstein valdi danskan arkitekt, Johannes Magdahl Niel- sen, til að teikna húsið. Magdahl Allir dýrgripir þjóðarinnar voru undir einu þaki ✓ A morgun eru 90 ár liðin frá sagnfræðingur, sem er for- því að Safnahúsið gamla við stöðumaður hússins, stuttlega Hverfisgötu var opnað almenn- frá sögu hússins og birtir -----———7------ --------------- ingi. I tilefni af því segir tvær ljósmyndir Guðmundur Magnússon sem ekki hafa sést áður. SAFNAHÚSIÐ við Hverfísgötu 1908 eða 1909. Myndina tók Magnús Ólafsson rétt eftir að smíði húss- ins lauk en áður en það var málað. Myndin hefur ekki varðveist í Ijósmyndasafni Magnúsar hér á landi, en kom í leitirnar í Danmörku fyrir nokkrum vikum. I , V Nielsen hafði getið sér gott orð í Danmörku og m.a. stjómað ný- byggingu Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn. Hann leysti verkið af mikilli kostgæfni eins og Safnahúsið ber vott um. Sjálfur kom hann aldrei til Islands en um- sjónarmaður byggingarinnar fyrir hans hönd var starfsbróðir hans Frederick Kiörboe sem hér dvaldi í þrjú ár. Teiknaði hann húsgögnin sem enn eru í Safnahúsinu. Enn- fremur teiknaði Kiörboe meðan hann dvaldi hér Kringluna svo- nefndu, viðbygginguna við Alþing- ishúsið. Landsbókasafnið og Þjóðskjala- safnið fengu upphaflega um það bil þriðjung hússins hvort til afnota. Að auki fékk Landsbókasafnið lestrarsalinn í miðiými hússins. Þjóðminjasafnið fékk rishæðina og var þar fram til ársloka 1950 er flutt var í núverandi hús við Suður- götu. Var bókum og skjölum þá komið fyrir á hæðinni. Náttúru- gripasafnið var á 1. hæð hússins. Þegar safnið flutti út haustið 1960 var húsnæðið fengið handritadeild Landsbókasafns og Handritastofn- un Islands (fyiiirennara Stofnunar Ama Magnússonar) til notkunar. Landsbókasafnið flutti í Þjóðar- bókhlöðuna í árslok 1994 en geymdi bækur á Hverfisgötunni fram til ársloka 1998. Um sama leyti flutti Þjóðskjalasafnið endan- lega í framtíðarhúsnæði sitt að Laugavegi 162. íslensk smíði Safnahúsið hefur löngum verið talið eitt af fegurstu húsum á ís- landi. Fer ekki milli mála að mikil alúð hefur verið lögð í hönnun þess, innan dyra sem utan. Hið sama má segja um smíði hússins. Verkið önnuðust íslenskir iðnaðar- menn að mestu og ber það þeim lofsverðan vitnisburð. Húsið reisti Trésmíðafélagið Völundur undir forystu Guðmundar Jakobssonai'. Fyrir steinsmíðinni stóð Guðjón Gamalíelsson, fyrir trésmíðinni Helgi Tordersen og jámsmíðinni Páll Magnússon. Innanstokksmuni flesta smíðaði Jón Halldórsson, en tréskurð annaðist Stefán Eiríks- son. Teikningar Magdahls Nielsens voru tilbúnar sumarið 1906. Horn- steinn hússins var lagður 23. sept- ember sama ár, á ártíðardegi Snorra Sturlusonar. A hann er letrað „Mennt er máttur“. Smíði hússins gekk hratt og vel fyrir sig. Haustið 1907 var húsið orðið fokhelt og ári síðar fluttu söfnin inn. Veturinn 1908 til 1909 var bókum, skjölum, forngripum og náttúrugripum komið fyrir í geymslum og sýningarsölum og húsið, sem fyrr segir, opnað í lok mars 1909. Utan á gafla og hliðar hússins em letrað nöfn átta íslenskra bók- menntasköranga, ásamt fæðingar- og dánaráram þeirra, þeir era: Ari Þorgilsson, Snorri Sturluson, Guð- brandur Þorláksson, Hallgrímur Pétursson, Jón Halldórsson, Egg- ert Ólafsson, Jón Espólín og Sveinbjörn Egilsson. Það var byggingarnefnd hússins sem valdi nöfnin í samráði við Hannes Haf- stein. Hann hafði frá upphafi séð fyrir sér að helstu stórmenna ís- lenskrar menningarsögu yrði með einhverjum hætti minnst í húsinu. Dyraumgjörð Safnahússins er úr graníti og yfir dyranum er höggv- inn fálkaskjöldur með kórónu, sem á byggingartíma hússins og fram til 1918 var ríkismerki ís- lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.