Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999
BENSIDRÍN komst ekki á flug.
SINNFEIN; vel þétt rokktríó.
MORGUNBLAÐIÐ
GÓÐUR bassagangur hjá Etanóli.
FARÍEL spýtti í í lokin.
TREKANT
sagði sögur.
MOÐHAU S-menn
voru efnilegir.
MÍNUS, venerunt, viderunt, vicerunt.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Magnaður Minus
TÓMLIST
T ó n a b æ r
MÚSÍKTILRAUNIR
Úrslit. Músíktilrauna Tónabæjar.
Til úrslita kepptu Bensidrín, Ópíum,
Tikkal, Etanól, Frumefni 114,
Sinnfein, Moðhaus, Faríel, Trekant
og Mínus. Haldið sl. föstudagskvöld
fyrir troðfullu húsi.
MÚSÍKTILRAUNUN Tónabæj-
ar lauk með tilheyrandi hamagangi
sl, föstudagskvöld en þá kepptu til
iírslita tíu sveitir sem unnið höfðu
sér þátttökurétt á undangengnum
undanúrslitakvöldum. Tólistarflór-
an var litskrúðug og fjölbreytt þetta
lokakvöld og tónlistin allt frá sveim-
kenndu rafpoppi í grjóthart
hardcore.
Upphafssveit úrslita var Bensi-
drín frá Blönduósi. Þeir Bensidrín-
menn vöktu mikla athygli fyrir
framúrskarandi kraft og íþrótt
kvöldið á undan þegar sveitin öskr-
aði sig í úrslit, en kláruðu þá kraft-
inn, því þeir voru langt frá sínu
besta. Sveitin lenti í útaf sporinu í
keyrslunni í öðru lagi og komst
ekki almennilega af stað eftir það
þrátt fyrir spretti kraftmikils söng-
pars.
Opíum-menn að norðan voru aft-
ur á móti mun betri þetta seinna
kvöld en það fyrra, einbeittir og
hnitmiðaðir, aukinheldur sem sveit-
in hafði þyngst um nokkur kíló milli
kvölda. Lokalag sveitarinnar var
hreint fyrirtak, kraftmikið og
skemmtilegt enda valinn maður í
hverju rúmi.
Tikkal er efnileg hljómsveit, en á
talsvert í land. Ymsar hugmyndir
þeirra pilta voru prýðilegar þó ekki
hafi tekist að vinna úr þeim sem
skyldi; skrifum það á reynsluleysi.
Etanol lék trommu og bassa-
spuna og gerði það bráðvei. Takt-
fléttur voru skemmtilegar og bassa-
gangur sannfærandi þéttur. Sér-
staklega var fjölskrúðugt raðspil
bassa og trommutakta í öðru laginu
áheyrilegt og söngkona sveitarinnar
stóð sig með prýði þó ekki hafi hún
ylltaf sungið rétt.
Fiumefni 114 var einnig í tölvu-
deildinni, en tónlistin rafvætt
sveimpopp. Gítarleikari lék ofaná
og undir tölvuhljómana og gerði
margt eftirtektarvert. Þegar við
bættist að hljómborðsleikari sveit-
arinnar lék á slík apparöt varð úr
bráðskemmtileg samsetning og vel
unnin.
Sinnfein er kraftatríó, bassigítar-
söngurtrommur, og stóð sig bráð-
vel. Þegar best lét var sveitin vel
þétt en lokalag hennar var aftur á
móti ekki gott, kannski fyrir það að
tvær atrennur þurfti til.
Hjá Moðhaus varð oft að taka
viljann fyrir verkið; þeir Moðhaus-
ar þurfa að leggja meiri vinnu í
samæfinguna og söngurinn var
ekki sannfærandi. Hraðavanda-
mál hrjáðu sveitina en þegar
menn náðu saman hljómaði það
alls ekki illa. Stefið sem þeir fé-
lagar léku á milli laga hljómaði
reyndar best.
Faríel byrjaði á barrokkst-
rófum og renndi sér þaðan í
óspennandi poppað rokk.
Þeir félagar réðu ekki
alltaf við hraðann, utan að
í síðasta laginu sprettu
þeir úr spori og náðu að
skapa stemmningu með
beittum gítarhljómum.
Trekant flutti þriggja kafla rokk-
óperu og gerði það ekki vel. Þeir
Trekant-menn eru þéttir og gera
margt skemmtilegt en segja má að
efnið hafi sigrað andann.
Mínus kom sá og sigraði á fyrsta
tilraunakvöldinu og hafði greinilega
ekki slegið slöku við í millitíðinni,
komu frábærlega vel samstilltir og
þéttir til leiks. Gítarleikarar voru
eins og einn maður, trymbillinn
villtur og kraftmikill og bassaleikar-
inn í góðu formi. Söngvari sveitar-
innar var síðan í fantaformi og þeg-
ar við bætast pottþéttar lagasmíðar
var sveitin einfaldlega í öðrum
gæðaflokki en aðrar sveitir Mús-
íktilrauna að þessu sinni.
Mínus sigraði næsta auðveldlega
í Músíktilraunum að þessu sinni,
trymbill sveitarinnar, Björn Stef-
ánsson, var valinn besti trommu-
leikarínn og söngvarinn Oddur
Hrafn Björgvinsson besti söngvar-
inn.
I öðru sæti hljómsveita varð Et-
anól, en söngkona sveitarinnar var
valinn efnilegasti söngvarinn.
í þriðja sæti urðu þeir rokkfélag-
ar í Sinnfein.
Þeir félagar í rappflokknum RLR
Stefán Ólafsson og Georg K.
Hilmarsson skiptu með sér verð-
laununum fyrir besta rappið. Jah-
flokkurinn fékk verðlaun fyrir tóna-
forritun og tók Kristján Hafberg
Kristjónsson við verðlaununum fyr-
ir hönd þeirra félaga. Besti gítar-
leikari var valinn liðsmaður Tins,
besti bassaleikari Ragnar Jónsson
úr Spindlum og hljómborðsleikari
Frumefnis 114 var valinn besti
hlj ómbor ðsleikarinn.
Árni Matthíasson