Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Hvemig geturðu spilað við hund? Þetta er
ekki hundur... þetta er svarti Jói, hinn frægi
fljótabátafjárhættuspilari....
HA! l'LL BET HE(5 NEVER
EVEN 5EEN A RlVER BOAT!
Ha! Ég skal veðja að hann
hefur ekki einu sinni séð
fljótabát!
Hvað raeð straumfallabát?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Guð, hjálpaðu
okkur!
Frá Ástþóri Magnússyni:
FLUGTAK B-52 sprengjuvéla frá
Fairford herflugvellinum í Bret-
landi til loftárása á Júgóslavíu
minnti á myndir úr seinni heims-
styrjöldinni. Nokkru síðar slökkn-
uðu öll ljós í Pristina, höfuðborg
Kosovo, er raforkuver voru sprengd
í loft upp af NATO. Um leið hvarf
vonin um frið hjá tugum þúsunda
óbreyttra borgara sem eru á ver-
gangi vegna ástandsins.
Eins og undanfarna mánuði, hef-
ur stærsta hernaðarveldi heims nær
einhliða tekið ákvörðun um
sprengjuárásir, án þess að leita
fyrst stuðnings hins alþjóðlega sam-
félags í gegnum öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna. Með þessu háttarlagi
er verið að tendra ófriðarbál sem á
eftir að breiðast um heimsbyggðina
á komandi árum. Allt logar fyrir
botni Miðjarðarhafs þar sem nær
daglega eru gerðar loftárásir á
Iraka, og nú fær Mið-Evrópa sinn
skammt. Rússar hafa hótað að
hætta samstarfí við NATO, og víst
er að Kínverjar munu einnig hugsa
sitt.
Bandaríkjamenn sýna ótrúlegt
ábyrgðarleysi á alþjóðavettvangi.
Með fordæmi sínu eru þeir að gefa
öðrum þjóðum, sumum hverjum
sem stýrt er af einræðisherrum,
skýr skilaboð um að hundsa megi
hið alþjóðlega samfélag sem kemur
saman hjá Sameinuðu þjóðunum, og
þeir sem hafí hernaðarmáttinn geti
notað hann að eigin vild.
Hvað er langt í það að Kína vilji
sýna hver stýrir Asíu? Taiwan situr
í miðju hafsvæðinu sem um fara all-
ir olíu- og hráefnisflutningar til
Japans, helsta bandamanns Banda-
ríkjanna í Asíu. Ef Kína fer að for-
dæmi Bandaríkjanna og notar hern-
aðarmátt sinn án samþykkis Sa-
meinuðu þjóðanna til að innlima Ta-
iwan aftur undir kínverska stjóm,
munu Bandaríkin hervæðast gegn
Kína samkvæmt samþykktum
bandaríska þingsins. Hvar munu
Rússar standa í slíkri stöðu? Hvor-
um megin munu múslimsku ríkin
verða? Ekki er ólíklegt að þessi ríki
muni sameinast gegn bandarískum
yfirráðum og þar með erum við
komin á bólakaf inn í þriðju heims-
styrjöldina þar sem hvor beinir að
hinum tugum þúsunda kjamaodda
sem geta útrýmt öllu lífí á jörðinni
margsinnis.
Vandamálin í Júgóslavíu og írak
hafa verið augljós ámm saman.
Hinsvegar hefur lítið sem ekkert
verið gert til að finna raunverulegar
leiðir til friðar. Aðgerðir hafa ein-
kennst af yfirborðskenndum hroka
Vesturlanda. Margra ára viðskipta-
bönn sem hvað mest hafa bitnað á
almennum borgumm hafa enn auk-
ið á vandann og vanþróun þessara
þjóðfélaga. Þeir einstaklingar og
samtök, sem hafa reynt að benda á
vitleysuna og haldið uppi andófi í
þeim tilgangi að fá blindu kettling-
ana, sem stjóma NATO-löndunum,
til að sjá að sér, hafa svo sannarlega
fengið vindinn á móti frá stjórnvöld-
um, sem hafa reynt að grafa undan
mótmælendum með allskyns undir-
róðri.
Það mátti sjá slíkt undirróðurs-
starf á íslandi í hnotskurn um síð-
ustu jól þegar utanríkisráðuneytið
notaði sambönd sín og áhrif til að
stöðva Flugleiðaþotu í flugtaks-
stöðu, færa til baka að flugstöð og
afferma 5 tonn af jólagjöfum og
hjálpargögnum ætluð stríðshrjáð-
um börnum í neyð. Sendandinn,
Friður 2000, voru lýst óábyrg sam-
tök í fjölmiðlum og þeim bent á að
snúa sér til „ábyrgra" samtaka á
Islandi og þar tilnefnd Hjálpar-
stofnun kirkjunnar. Sú stofnun
hefur átt í viðræðum um pakka-
flutningana við Frið 2000 í þrjá
mánuði og eftir allan þennan tíma
ekki enn „getað“ staðfest mögu-
leika á flutningi og dreifingu pakk-
anna. Þannig tókst utanríkisráðu-
neytinu að tefja sendinguna um
fleiri mánuði. Hins vegar með að-
stoð aðildarfélaga Friðar 2000 er-
lendis, og alfarið án aðstoðar hinn-
ar íslensku hjálparstofnunar, er
jólasendingin loks komin á leiðar-
enda og verður hjálpargögnunum
dreift í Baghdad um páskana. Því
miður hafa nær 20.000 börn látist á
þessum þremur mánuðum í Irak úr
vannæringu, lyfjaskorti og hvít-
blæði, sem bandarískar sprengjur
úðaðar úraníum hafa valdið undir
stuðningsyfirlýsingum íslenskra
stjórnvalda.
Hin blinda þjóð norðursins mun
nokk fá sýn er styrjaldarástandið
breiðist um jörðina og mannfólkið á
Islandi og fiskamir í sjónum fá
snert á hvítblæðinu. Þangað til situr
græðgin og afskiptaleysið í fyrir-
rúmi. Guð hjálpi okkur.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðai: 2000.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.