Morgunblaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 1
76. TBL. 87. ÁRG. - FIMMTUDAGUR1. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
y/i* V
'y»t‘ fíA.JjSU1'*’ ~r.'v .‘AÍ4/1
Gleðilega páska!
Fulltrúar NATO segja ekkert hlé verða á árásum um páskahátíðirnar
NATO boðar herta
sókn gegn Júgóslavíu
Washinglon, Brussel, Moskvu. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum gáfu í gær í
skyn að loftárásir á Júgóslavíu myndu halda
áfram um ótakmarkaðan tíma uns Serbar hættu
þjóðernishreinsunum gegn Kosovo-Albönum, eða
þar til búið væri að leggja hersveitir Serba í rúst.
Utilokaði Klaus Naumann hershöfðingi, yfirmað-
ur hemefndar Atlantshafsbandalagsins (NATO),
að gert yrði hlé á árásum yfir páskahátíðina enda
yrði að telja slíkt „afar ómannúðlegt" í Ijósi að-
gerða Serba í Kosovo. í Brussel sögðu fulltrúar
NATO að þeim hefði verið veitt heimild til að
þyngja mjög sóknina í Júgóslavíu og að gefið
hefði verið grænt ljós á að hersveitir NATO
gerðu byggingar júgóslavneskra stjómvalda í
Belgrad að skotmörkum sínum.
Agani og Haxhiu nú sagðir á lífi
Heimildarmenn Reuters greindu frá því í gær-
kvöldi að Fehmi Agani, sem átti sæti í samninga-
nefnd Kosovo-Albana í Frakklandi, og Baton
Haxhiu, ritstjóri dagblaðs í Pristina, væru enn á
lífi en á mánudag höfðu talsmenn NATO fullyrt
að sveitir Serba í Kosovo hefðu myrt þá. Jafn-
framt sagði serbnesk útvarpsstöð frá því að Ibra-
him Rugova, leiðtogi Kosovo-Albana, væri á lífi
og undir gæslu serbneskra öryggissveita, en
Rugova hvarf sjónum manna fyrr í vikunni.
Atta dagar em síðan loftárásir NATO á Júgó-
slavíu hófust og í gær héldu flóttamenn af al-
bönsku bergi brotnir áfram að streyma til ná-
grannaríkja Kosovo. Eins og fytri daginn fluttu
þeir ófagrar sögur af grimmdarverkum
serbneskra hersveita í héraðinu. Fulltrúar
NATO sökuðu Serba um að reyna að „þurrka út“
heimildir um uppruna Kosovo-Albananna og
sagði Jamie Shea, talsmaður NATO, að þeir eyði-
legðu nú í gríð og erg ýmis lögfræðileg skjöl um
eigur Kosovo-Albana í héraðinu, persónuskilríki,
fæðingar- og hjónabandsvottorð og aðrar heim-
ildir sem sanna uppmna og eignarrétt þeirra
tugþúsunda Kosovo-Albana sem Serbar hafa
hrakið frá heimkynnum sínum undanfama daga.
David Wilby, talsmaður flughers NATO, sagði
herþotur hafa gert árásir á fjölda skotmarka í
Júgóslavíu með góðum árangri undanfarinn sól-
arhring, þrátt fyrir slæm veðurskilyrði. Jafn-
framt greindi Wilby frá því að albanskir flótta-
menn og hluti Frelsishers Kosovo (UCK) mættu
þola harðar stórskotaliðsárásir af höndum Serba
í Pagarusa-dalnum í suður-Kosovo. f gærkvöldi
báðu skæruliðar UCK tiltæka menn að ganga til
liðs við herinn, til að verjast árásum Serba.
ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, hélt
því í gær fram að Bandaríkin hugleiddu að beita
sér fyrir því að Kosovo hlyti sjálfstæði, eða að
héraðinu yrði skipt upp. ívanov sagði að slíkum
áætlunum yrði ekki hrint í framkvæmd nema
með beitingu landhers og kvaðst hann hafa ör-
uggar heimildir fyrir því að NATO hefði þegar
hafið undirbúning fyrir landhernað í Júgóslavíu.
Þótt Bandaríkin héldu í gær áfram að útiloka
landhemað sagði Joe Lockhart, talsmaður Hvíta
hússins, ekki útilokað að einhverjar Evrópuþjóð-
anna myndu grípa til þess ráðs að senda landher
inn í Júgóslavíu. Jafnframt mátu fréttaskýrendur
stöðuna svo að teikn væm á lofti um að Banda-
ríkjamenn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að
leiða yrði hugann að öðrum úrlausnum í málefnum
Kosovo en hingað til hafa verið uppi á borðinu.
Haft var eftir bandarískum stjórnarerindreka
að stjómvöld í Washington væra enn á þeirri
skoðun að sjálfstæði Kosovo væri ekki æskilegur
kostur en að það mat kynni að breytast héldi
Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, áfram
grimmdarverkunum í Kosovo. Sagði Bill Clinton
Bandaríkjaforseti einnig að aðgerðir Milosevics
veiktu mjög kröfur Serba til Kosovo.
Rússar senda skip til Miðjaðarhafsins
Bandaríkjamenn sögðust í gær afar uggandi yfir
fregnum þess efnis að Rússar hygðust senda allt
að sjö herskip til Miðjarðarhafsins í því skyni að
hafa auga með aðgerðum NATO í Júgóslavíu. Ja-
mie Shea kvað vesturveldin treysta á að Borís
Jeltsín Rússlandsforseti stæði við fyrri yfirlýsingar
um að Rússar ætluðu ekki að dragast inn í átökin.
Jevgení Prímakov, forsætisráðherra Rúss-
lands, tók neikvæðum viðbrögðum NATO við út-
spili Milosevics í fyrradag, þar sem hann sagðist
reiðubúinn til samninga hætti NATO loftárás-
um, með jafnaðargeði og sagði að Rússar myndu
áfram reyna að stuðla að friðsamlegri lausn
Kosovo-deilunnar. Aðildarríki NATO virðast á
hinn bóginn nú gera ráð fyrir langvinnum átök-
um og Clinton undirbjó bandarískan almenning
undir þetta í fágætu sjónvarpsviðtali á CBS-
sjónvarpsstöðinni í nótt að ísl. tíma.
■ Sjá umfjöllun á bls. 32-33
Alger
glundroði
í Kosovo
FREGNIR hafa borist af því frá
Kosovo, að a.m.k. tuttugu starfs-
manna Öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu sé saknað síðan eftir-
litsmenn stofnunarinnar vora kall-
aðir frá héraðinu rétt áður en loft-
árásir NATO á Júgóslavíu hófust.
Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi ÖSE í Skopje í Makedóníu,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að ekki væri unnt að staðfesta
hvaðan úr héraðinu tölurnar kæmu,
hversu margra væri saknað, og
hvort starfsmennimir hefðu verið
myrtir eða flúið heimili sín. í hérað-
inu ríkti alger glundroði, þorp og
bæir hefðu verið yfirgefnir og fólk
væri á flótta.
Sagði Urður að reynt hefði verið
að hafa samband við innfædda
starfsmenn ÖSE í Kosovo án árang-
urs. Ómögulegt væri hins vegar að
vita hvað það táknaði, sem ylli mikl-
um áhyggjum þar sem engin leið
væri tit að staðfesta hver afdrif
fólksins hefðu verið. Sagði Urður að
starfsmenn ÖSE hefðu heyrt mun
hærri tölur en tuttugu, en engin leið
væri til að staðfesta það. „Við höfum
heyrt að borgin Pec í vesturhluta
Kosovo sé t.a.m. nánast yfirgefin.
Ógerlegt er að sannreyna hvort
fólkið væri dáið eða á flótta og setur
það okkur í mikinn vanda,“ sagði
Urður.
Lífvörður WiIIiams
Walkers myrtur
Ef það reynist rétt að verið sé að
ganga milli bols og höfuðs á inn-
fæddum starfsmönnum ÖSE í
Kosovo sagði Urður að ástæða væri
til að ætla að mikill fjöldi fólks væri í
hættu. Alls störfuðu um 1.700
manns á vegum stofnunarinnar í
Kosovo, fólk bæði af albönskum og
serbneskum upprana. Urður sagði
serbnesku starfsmennina ekki í
betri stöðu en aðra því litið væri svo
á að þeir hefðu svikið málstaðinn
með því að starfa fyrir ÖSE. „Ef það
reynist rétt að starfsfólk ÖSE hafi
verið myrt er það lýsandi fyrir átök-
in í héraðinu," sagði Urður. „Skæru-
liðar Frelsishers Kosovo (UCK)
hafa myrt Albana sem þeir telja að
hafi svikið málstaðinn og vopnaðar
sveitir Serba hafa myrt Serba sem
þeir telja að hafi svikið málstaðinn.
Rétt þjóðerni hjálpar fólki ekki ef
maðurinn með byssuna telur það
hafa ranga skoðun.“
Urður sagði að það hefði verið
ljóst þegar eftirlitssveitir ÖSE fóra
frá Kosovo, að margir starfsmanna
af albönskum og serbneskum ætt-
um, sem urðu eftir, vora mjög óró-
legir og óttaslegnir yfir því sem
kynni að gerast. Hún sagði að
starfsmenn ÓSE hefðu fengið það
staðfest að albanskur lífvörður
Williams Walkers, yfirmanns eftir-
litssveitanna, hefði verið myrtur af
serbnesku öryggislögreglunni
fyrstu nótt NATO-árásanna. Var
hann sonur Bajrams Kelmendis,
virts mannréttindalögfræðings af al-
bönskum ættum, sem var myrtur af
serbnesku lögreglunni fyrstu nótt
loftárása NATO. Urður sagði að
rætt hefði verið við móður mannsins
og hún staðfest að syni hennar hefði
verið misþyrmt á heimili sínu og síð-
an dreginn út á stræti og skotinn.
Hún hefði horft á það gerast.