Morgunblaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 35
LISTIR
STÓRIÐJA Gylfa Gíslasonar.
DÚKKUR Magnúsar Pálssonar.
Tilvitnanir í umbrotatíma
NÆSTKOMANDI laugar-
dag verður opnuð sýning í
Listasafni íslands á mál-
verkum, grafík og skúlp-
túr frá áttunda áratugnum sem gef-
ur yfirlit yfir nýjar hugmyndir sem
komu fram á þessum tíma um inn-
tak og form myndlistar.
í kynningu segir að listamennirn-
ir sem eiga verk á sýningunni eigi
það sammerkt að taka til endur-
skoðunar foi-mhyggju módernism-
ans og leita aftur í fígúratíft og hlut-
lægt myndmál þar sem oftar en ekki
sé vísað til hins pólitíska og samfé-
lagslega veruleika sem einkenndi
þessa umbrotatíma:
„Áhrif frá popp-list og flúxus-
hreyfingunni höfðu borist til Islands
í gegnum Erró og félaga SUM-hóps-
ins, og nýr fígúratífur expressíón-
ismi varð líka áberandi i verkum
listamanna eins og Gunnars Arnar
og Einars Hákonarsonai-. Þá hafði
vaxandi alda kvenfrelsisbaráttu áhrif
á listakonur eins og Ragnheiði Jóns-
dóttur og Hildi Hákonardóttur."
Þessi kynslóð var stundum kennd
við 1968.
Tilvitnanir í veruleikann
Ólafur Kvaran lýsir sýningunni
með nýraunsæi frá áttunda áratugn-
um með setningunni „tilvitnanir í
veruleikann". Hann segir að hér sé
ekki á ferðinni ljósmyndaraunsæi,
það hafi komið síðar. Myndlistar-
mennirnir sem hér séu á ferðinni
hafi komið fram upp úr 1965 og um-
fjöllunarefni þeirra sé m.a. náttúran,
pólitíkin, félagsleg ádeila. Ragnheið-
ur Jónsdóttir sé mjög félagsleg í
verkum sínum út frá sjónarmiðum
kvennabaráttunnar, Gylfi Gíslason
sé með stóriðjutúlkanir sinar, Erró
alþjóðapólitík, en Einar Hákonarson
fjalli um firringu og tilfinningalíf.
Reynt hafi verið að draga fram
fjölbreytni, sýna hinar ýmsu hliðar
og hafa þess vegna aðeins eina til
tvær myndir eftir hvern listamann.
Hjá þessum listamönnum hafi
greinilega komið fram andóf gegn
formalismanum og ríkjandi afstrakt-
stefnu tímabilsins. Afstraktmálarar-
ar hafi þó verið að gera góða hluti og
þróa list sína áfram eins og til dæm-
is verk Þorvaldar Skúlasonar á ár-
unum 1965-70 sýni vel.
Hann nefnir að rétt upp úr sjötta
áratugnum og síðar hafi listamenn á
borð við Erró, Braga Asgeirsson,
Eirík Smith og Einar Hákonarson
verið áberandi.
Hafa þessir listamenn úr ólíkum
áttum, eins og þú kallar þá, skilið
eftir sig spor?
„Þeir tengjast popplistinni og
flúxus, mikil endurskoðun verður á
listhugtakinu. Afstraklistin var
mjög ráðandi."
Afstraklist brotin upp
Attu við hina geómetrísku dæmi-
gerðu flatarmálslist?
„Hún var geómetrísk, en hjá Þor-
valdi til dæmis var hún mjög per-
Tilvitnanir í veruleikann kallar Ólafur
Kvaran sýninguna Nýraunsæi frá áttunda
áratugnum í Listasafni Islands. Verk þess-
ara listamanna voru andóf gegn afstrakt-
stefnu og dæmi um umbrotatíma í samfé-
laginu eins og Jóhann H]áimarsson fékk
staðfestingu á hjá Olafí og með því að virða
fyrir sér þessi verk sem rekja upphaf sitt
til breyttra tíma í lífí og list.
sónuleg. Menn vinna með ólík sjón-
arhorn. Elstir eru Erró og Bragi.
Þeir bi'jóta upp afstraktlistina."
Ólafur segir að gaman sé að skoða
þessa sýningu í tengslum við sýning-
una sem verður í nóvember en þá er
ljósmyndaraunsæið á dagski'á.
Hann bendir á mynd eftir Hauk Dór
sem kannski á eitthvað sameiginlegt
með hinum breska Baeon þótt það
geti verið tilviljun. A svipuðum nót-
umer Gunnar Órn.
Á gólfum eru höggmyndir eftir
Magnús Pálsson, dúkkur, afsteypa
af bílahlut eftir Jón Gunnar og verk
eftir Magnús Tómasson.
Pú talar um tilvitnanir í veruleik-
ann, má þá ætla að hér sé kannski
einhver vísir að póstmódernisma?
TILBOÐ OSKAST
í Chevrolet Blazer 4x4 árgerð '93,
Jeep Laredo 4x4 (tjónabifreið) árgerð '93
og aðrar bifreiðar
) er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 6. apríl kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16 .
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Meðal þeirra listamanna sem eiga
verk á sýningunni eru Amar Her-
bertsson, Björg Þorsteinsdóttir,
Bragi Ásgeirsson, Eitó, Einar Há-
konarson, Gunnar Örn, Guðmundur
Ármann, Gylfi Gíslason, Hildur Há-
konardóttir, Hringur Jóhannesson,
Jóhanna Bogadóttir, Jón Gunnar
Árnason, Magnús Tómasson, Magn-
ús Pálsson, Róska, Sigurður Þórir,
Sigurjón Jóhannsson, Tiyggvi
Ólafsson og Þorbjörg Höskuldsdótt-
ir.
Sýningin verðuiy sem fyi’r segir
opnuð í Listasafni Islands á laugar-
daginn og opnuð aftur á þriðjudag-
inn eftir páska.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
MENN tilheyra mörgum hóp-
um, en margt sameinar þá, að
dómi Ólafs Kvarans, forstöðu-
manns Listasafns fslands.
Hann einkennist af tilvitnunum er
okkur kennt?
„Póstmódernisminn er frekar á
slóðum sögunnar. Hér eru meira til-
vitnanir í veruleikann og tengsl við
popplist eins og ég drap á og fígúra-
tífan expressjónisma. Hér sjáum við
mótmælafund Tryggva Ólafssonar.
Þessar myndir gilpa mikið inn í
samtímann, Tiyggvi málar líka
Sharon Tate.“ (Hver man hana
núna?)
„Menn tilheyra mörgum hópum,
en margt sameinar þá,“ sagði Ólafur
Kvaran um leið og hann virti aftur
fyrir sér stóriðjumynd Gylfa og
renndi síðan augunum til stofu-
myndar Sigurjóns Jóhannssonar. Af
nógu er að taka.
Stökktu til
Kanarí
í 30 nætur
frá aðeins kr. 39.955
19. apríl
Bóhaðu strax
siðustu sætin
Heimsferðir bjóða nú hreint
ótrúlegt tilboð til Kanarfeyja
hinn 19. apríl. Hvergi í
heiminum er betra veðurfar á þessum
tíma, 24-26 stiga hiti yfir daginn og yndislegur hiti á
kvöldin. Hér getur þú valið um úrval veitinga- og
skemmtistaða og um spennandi kynnisferðir með farar-
stjórum Heimsferða. Þú bókar núna og staðfestir ferðina
og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum
þér á hvaða gististað þú býrð.
Bókaðu strax - síðustu sætin
39.955
Verð kr.
M.v. hjón með 2 böm í
íbúð/smáhýsi með sköttum.
49.990
Verð kr.
M.v. 2 í íbúð/smáhýsi,
30 nætur, með sköttum.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is