Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 16
- 16 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999____________________________________________________________MORGUNBLABIÐ ÍÞRÓTTIR j Morgunblaðið/Golli VANDA Sigurgeirsdóttir sijórnar æfingu hjá meistaraliði KR - Ásthildur Helgadóttir fær góð ráð. KR-stúlkur líklegastar KNATTSPYRNUKONUR eru í óða önn að reima á sig skóna fyrir sumarið en þær leika sína fyrstu umferð í meistarakeppninni á þriðjudaginn þegar Breiðablik fær Fjölni í heimsókn, Eyjastúlkur halda til KR í vesturbæinn, Valsstúlkur halda á Skagann til móts við ÍA og í Grindavík fá heimasæturnar Stjörnustúlkur í heimsókn. Morgunblaðið fór á stúfana til að heyra hvemig knattspymu- konur teldu að sumarið myndi þró- ast og vom flestar á einu máli um að KR- Stefánsson myndi að minnsta skrifar kosti halda Islands- meistaratitlinum. Valsstúlkur hafa orðið fyrir blóð- töku þar sem Laufey Olafsdóttir sleit krossbönd og verður líklega ekki með í sumar en Blikar misstu Sigríði Þorláksdóttur í svipuð meiðsli. Þar fyrir utan missir Kópa- vogsliðið líklega Helgu Ósk Hann- esdóttur, sem endalega lét minni í pokann fyrir langvarandi meiðslum. Erla Hendriksdóttir nær að spila nokkra leiki í sumar áður en hún heldur til Danmerkur en í sárabæt- ur mun Katrín Jónsdóttir, sem stað- ið hefur sig með prýði í Noregi að undanförnu, koma til liðs við Blika. Sex erlendar stúlkur munu spreyta sig í deildinni í sumar, ÍBV fær þrjár enskar og Grindvíkingar þrjár, tvær kanadískar og eina bandaríska. BARMMERKI BIKARAR VERÐLAUNAPENINGAR FANNAR LÆKJARTORGI S:551-6488 Fámennur hópur KR en góður „Það leggst vel í mig að taka við KR, þetta er góður hópur þó að fá- mennur sé, umgjörðin góð og von- andi að þjálfarinn standi sig vel,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálf- ari kvennaliðs KR í knattspyrnu, sem hefur Islandsmeistaratitil KR að verja. „Við byrjuðum síðastliðinn nóvember á þolæfingum og lyfting- um ásamt einhverri knattspymu. Við höfum líka fengið til liðs við okkur Ingu Dóru Magnúsdóttur og markvörðinn Grétu Rún Ámadótt- ur frá Haukum en það er gott að hafa tvo góða markverði í kvenna- boltanum og raunar ekki algengt. Ásdís Þorgilsdóttir er líka komin úr fæðingarorlofi en hinar stúlkurnar hafa flestar verið lengi í KR. Við er- um að vísu ekki með stóran hóp en góðan,“ sagði Vanda. „Mér líst vel á deildina í sumar en það er óskrifað blað hvemig útlend- ingamir, sem styrkja munu liðin í sumar, munu standa sig en við þekkjum þó eina stúlknanna, sem spilaði með IBV í fyrra og sú er góð,“ sagði Vanda þegar hún var spurð hvemig henni litist á sumar- ið. „Ég vona bara að keppnin í sum- ar verði jöfn með hörkuleikjum en á frekar von á að KR, Valur, Breiða- blik, ÍBV og Stjaman muni berjast við toppinn, Skagastúlkur komi þar rétt fyrir neðan en Fjölnir og nýlið- ar Grindavíkur munu berjast á botninum." Ekki straumur í vesturbæinn Gagnrýnt hefur verið að KR-ingar séu að safna í kringum sig bestu knattspymukonum landsins en Vanda segir það ekki rétt. „Einhver er ástæðan fýrir að sumar vilja koma yfir í KR, liðið er gott og um- gjörðin einnig en það má ekki gleymast að önnur lið hafa líka fengið leikmenn. Til dæmis fóm stelpumar úr Haukaliðinu, sem hætti keppni, líka yfir í hin liðin svo að ég er ekki sammála því að KR sé að fá mikið af leikmönnum - frekar að við höldum hópnum. Við erum bara með 16 leikmenn í hópnum og uppistaðan er búin að vera í liðinu ámm saman,“ bætti Vanda við og var sammála því að 16 manna leik- hópur væri tæpt fyrir sumarið en hún mundi þá taka stelpur úr þriðja flokki. En Vanda sjálf, ætlar hún ekki að reima á sig skóna? „Nei, ég hætti á toppnum á sínum tíma og ætla ekki að verða mér til skammar enda vafamál hvort ég kæmist í lið og ég er of mikil keppnismanneskja til að hætta á slíkt.“ Kostur að roki og EYJASTÚLKUR hafa fengið öflugan liðsstyrk því þrjár enskar stúlkur frá Everton munu spila með liðinu í sumar. Tvær þeirra eru sautján ára og í u-18 ára landsliði Englands, Kelly Shimmen og Karen Bur- ke, sem reyndar spilaði með ÍBV í fyrra en markvörður Annie Wright er 34 ára með mikla reynslu bæði sem leik- maður og þjálfari. Hún er reyndar meidd sem stendur en Heimir Hallgrímsson þjálfari liðsins reiknar með að hún muni ná sér í sumar. „Við vera vanar rigningu ágætlega nema hvað það gekk illa að samræma við skólann úti en einn af kostunum við þessar þrjár, sem eru að koma núna, er að þær eru vanar roki og rigningu.“ „Mér líst ágætlega á sumarið en það verður erfitt að bæta ár- angurinn frá í fyrra og komust ofar en í fjórða sætið en Valur, Breiðablik, Stjarnan og við gætum reytt stig hvort öðru,“ sagði Heimir og taldi ljóst að Islandsmeistarabikarinn færi í Vesturbæinn. „Það er slys ef KR vinnur hann ekki.“ þekkjum Karen vel og vitum að hverju við göngum þar en hún hjálpaði okkur við að tala við hinar, sem telja mikið ævintýri að koma til Eyja,“ sagði Heim- ir í vikunni og bætti við al- mennt sé ensk kvennaknatt- spyrna á svipuðu stigi og hér heima en Karen er með þeim betri í Englandi. „Við erum með svo ungar stúlkur og urð- um að styrkja hópinn - reynd- um að fá íslenskar stúlkur til að koma til Eyja en það gekk ekki. Við vorum áður með sænskar stúlkur og það gekk Vanda þjálfaði kvennalandsliðið áður en hún tók við stjómtaumun- um hjá KR. Finnst henni mikill munur þar á? „Það á mun betur við mig að þjálfa félagslið og vera þannig stöðugt að. Þegar ég var að þjálfa landsliðið var ég of sjaldan beint að þjálfa og ég tel krafta mína nýtast betur hjá félagsliði. Hins vegar er ég sátt við að hafa reynt fyrir mér við að þjálfa landslið, það var ný reynsla og alltaf draumurinn svo að ég varð að taka tilboðinu. Það gekk líka ágætlega, við náðum að halda okkur í riðlinum og þegar Bjami Sigurðsson tók við mark- varðarþjálfuninni fengum við á okk- ur enn færri mörk,“ sagði Vanda. Við horf- um til framtíðar „VIÐ ætlum að byggja á stelpum, sem við eram búin að skóla og horfa þannig til framtíðar,“ sagði Jörand- ur Áki Sveinsson þjálfari Breiða- bliks um sumarið. Hann missir að öllum líkindum þrjá leikmenn: Helgu Ósk Hannesdóttur vegna meiðsla, Erlu Hendriksdóttur eftir þrjá leiki og Sigríði Lákadóttur al- veg vegna meiðsla, en fær í staðinn meðal annars Katrínu Jónsdóttur írá Noregi og Hildi Sævarsdóttur úr Haukum. Að öðru leyti leist Jör- undi Áka vel á sumarið. „Mér líst nokkuð vel á mótið en Vesturbæing- ar era með langsterkasta liðið svo að baráttan verður jafnari en áður meðal hinna. Við íoium samt í alla leiki til að vinna þá, reynum að næla í stig af KR og sjáum hvað setur.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.