Morgunblaðið - 27.05.1999, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landssíminn ætlar að áfrýja ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar
Tal hf. áformar að bjóða
20 prósent lægri símgjöld
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að
Landssími íslands hf. innheimti hjá áskrifendum
sínum gjöld Tals hf. fyrir símtöl sem þeir eiga til
útlanda með því að velja forskeyti útlandaþjón-
ustu Tals. Ákvörðunin tekur gildi 1. ágúst nk. og
frá þeim degi getur Tal boðið öllum áskrifendum
Landssíma Islands hf. útlandaþjónustu í trausti
þess að innheimt verði fyrir hana. Landssíminn
ætlar að áfrýja ákvörðun stofnunarinnar til úr-
skurðarnefndar fjarskipta- og póstmála og krefj-
ast þess að hún verði felld úr gildi. Tal hf. ætlar, í
trausti þess að ákvörðunin haldi, að bjóða 20%
lægri símgjöld til allra landa.
I ákvörðunarorðum Póst- og fjarskiptastofnun-
ar segir að Tal hf. skuli greiða Landssímanum all-
an útlagðan kostnað vegna gerðar reikninga fyrir
útlandaþjónustu Tals hf. Þá skuli aðilar semja sín
á milli um áhættuþátt innheimtu símareikninga
vegna útlandaþjónustu Tais og lagt skuli til
grundvallar að Tal hf. beri áhættu af vanskilum.
Ólafur Stephensen, forstöðumaður upplýsinga-
og kynningarmála Landssímans, segir að ákvörð-
un Póst- og fjarskiptastofnunar sé að mestu leyti
efnislega samhljóða bráðabirgðaákvörðun frá 31.
desember sl., sem síðar var felld úr gildi með úr-
skurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.
„Við munum áfrýja þessari ákvörðun þangað
líka. Við teljum að ekki sé að finna heimildir í
Evrópurétti né í íslenskum lögum til að skylda
fjarskiptafyrirtæki til að annast innheimtuþjón-
ustu fyrir keppinautana með þessum hætti. Rök-
stuðningur Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir
hinu gagnstæða verður að teljast harla langsótt-
ur,“ sagði Ólafur.
„Það hefur margoft komið fram af okkar hálfu
að það er ekkert því til fyrirstöðu að beina sím-
tölum með forskeytinu 1010 til útlandaþjónustu
Tals, og það hefur þegar verið gengið frá því
tæknilega. Allir viðskiptavinir Landssímans
gætu því notað sér þá þjónustu ef Tal hefði opnað
fyrir hana og sjálft annast innheimtu," segir
Olafur.
Stórsigur íslenskra neytenda
Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri sölu-
og markaðssviðs Tals hf., segir ákvörðunina stór-
sigur fyrir íslenska neytendur og hún muni leiða
til aukinnar samkeppni á fjarskiptamarkaði.
„Tal mun bjóða neytendum 20% lægri gjald-
skrá á útlandasímtölum til allra landa. Við furð-
um okkur hins vegar á þeim vinnubrögðum
Landssíma íslands að tefja framgang þessa máls
með því að lýsa því yfir að úrskurðurinn verði
kærður. Enn og aftur hefur Landssíminn uppi
tilburði til þess að tefja framgang samkeppni,"
segir Arnþór.
Hann segir að úrskurður Póst- og fjarskipta-
stofnunar staðfesti að eðlilegt geti talist að fyrir-
tæki annist innheimtuþjónustu fyrir samkeppnis-
aðila.
„Bent er á það í forsendum úrskurðarins að
þess séu fjölmörg dæmi í Vestur-Evrópu að sam-
bærilegt fyrirkomulag sé haft á, þegar nýir sam-
keppnisaðilar eru að hefja innreið sína á markað
þar sem fyrir er einokun," segir Arnþór.
„Samkvæmt evrópskri reglugerð sem fjallar
um fjarskiptamál eru settar þær kvaðir á síma-
fyrirtæki í einokunaraðstöðu að þeim beri að
bjóða öðrum aðilum þjónustu sína á kostnaðar-
verði að viðbættri hæfilegri álagningu."
Amþór segir að tekjur Landssíma íslands af
útlandasímtölum nemi tæplega tveimur milljörð-
um króna. Fyrirtækið sitji svo til eitt að þeim
potti og í þeim skilningi hafi það einokun á mark-
aði fyrir útlandasímtöl.
Ábyrgðartryggingar ökutækja
Hækkun í maí
2,2% að meðaltali
AB YRGÐARTRY GGIN GAR
ökutækja hækkuðu um tæp
2,2% nú í maímánuði miðað við
aprilmánuð, samkvæmt mæl-
ingum vísitölu neysluverðs sem
Hagstofa Islands reiknar út.
Áætla má lauslega að hver 10%
hækkun á iðgjöldum lögboðinna
ökutækjatrygginga, þ.e. þeim
hluta þeirra sem lýtur að slysa-
tryggingu ökumanns og far-
þega, þýði um 0,1% í hækkun
vísitölu neysluverðs.
Ef litið er til verðþróunar á
ábyrgðartryggingum síðustu
árin samkvæmt vísitölu neyslu-
verðs kemur fram að ábyrgða-
tryggingar ökutækja lækkuðu
mikið milli september- og októ-
bermánaðar 1996, en það var
einmitt 26. september það ár
sem FÍB-trygging, sem er í
eigu Ibex-trygginga hjá Lloyd’s
í London, hóf göngu sína.
Lækkunin milli mánaða nemur
um 15,8% og hefur verðið ekki
enn náð því sem það var þá.
Verðið hefur samt hækkað
hægt og sígandi frá því í janúar
1997 eða um rúmlega 12% á
þessu rúmlega tveggja ára
tímabili.
Hækkunin nú í maí frá síð-
asta mánuði nemur 2,2%.
■ Skrítið að/11
Bílatryggingar í vísitölu neysluverðs
Vísitala maí 1988=100
árin 1992-1999
NJMMJSNJMMJSNJMMJSNJMMJSNJMMJSNJMMJSNJMM
Höfuðborgarsvæðið
Hlutdeild
Baugs er
um 63%
HLUTDEILD Baugs hf., sem
rekur fjölmargar matvöru-
verslanir, á matvörumarkaði á
höfuðborgarsvæðinu er talin
kringum 63% samkvæmt upp-
lýsingum frá Samkeppnis-
stofnun. Á landinu öllu er hlut-
deildin talin kringum 43%.
Samkeppnisstofnun hefur
upplýsingar um hlutdeildina
frá síðari hluta síðasta árs og
var hlutdeild Baugs hf. á land-
inu öllu um 43% og eru þá tald-
ar verslanir Hagkaups og Bón-
uss. Hlutdeildin á höfuðborg-
arsvæðinu var þá um 51%. Eft-
ir að Baugur tók yfir verslana-
keðju Vöruveltunnar hf.,
10-11, er hlutdeildin á höfuð-
borgarsvæðinu talin kringum
63%.
í forsendum Samkeppnis-
stofnunar við mat á hlutdeild-
inni er miðað við matvöru-
verslanir eingöngu, þ.e. ekki
eru teknir með sölutumar eða
verslun með matvöru á bensín-
stöðvum.
Söngspírur við
Dauðahafíð
SELMA Bjömsdóttir, fulltrúi
Islands í söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, sem haldin
verður á laugardag, baðaði út
öllum öngum við Dauðahafíð á
þriðjudag, en þangað héldu
íslensku keppendurnir í dagsferð.
Félagar hennar flutu í hafinu, sem
er afar salt. I daglegri könnun
meðal fréttamanna og keppenda í
Eurovision í gær varð íslenska
lagið, sem sungið er á ensku,
hlutskarpast og fékk 241 atkvæði,
áttatíu og fjórum meira en Iag
Króata, sem varð í öðm sæti.
■ Svamlað í Dauðahafinu/71
Morgunblaðið/Ásdís
Herjólfur í áætlun
á sunnudag
AÆTLAÐ er að Herjólfur komi til
Vestmannaeyja næstkomandi laug-
ardagskvöld og hefji reglubundnar
áætlunarferðir milli Vestmannaeyja
og Þorlákshafnar sunnudaginn 30.
maí. Viðgerð er að ljúka á Herjólfi í
Hollandi.
Sumaráætlun Herjólfs tekur gildi
nk. sunnudag. Skipið siglir alla daga
frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og alla
daga frá Þorlákshöfn kl. 12. Fimmtu-
daga, fóstudaga og sunnudaga er
önnur ferð frá Vestmannaeyjum kl.
15.30 og frá Þorlákshöfn kl. 19.
Síðasta áætlunarferð Fagi-aness-
ins, sem hefur haldið uppi siglingum
milli lands og Eyja meðan Herjólfur
hefur verið í viðgerð, verður í dag
frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og frá
Þorlákshöfn kl. 13. Þá mun skipið
fara aftur frá Eyjum kl. 17.30 og
koma við í Þorlákshöfn á leiðinni
vestur og verða teknir bílar og far-
þegar í þá ferð.
Engin ferð verður á vegum Herj-
ólfs föstudaginn 28. maí og laugar-
daginn 29. maí og falla allar pantan-
ir niður fyrir þá daga.
öð í dag
Örn Arnarson komst í hann
krappan í lauginni í Vaduz / B7
Gulldrottningin Silja Úlfarsdótt-
ir aftur á efsta þrepi / B4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is