Morgunblaðið - 27.05.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftirmálar af sameiningamálum á Austur-Héraði vegna skólamála
Samtök íbúa vilja kljúfa
sig út úr sveitarfélaginu
Vaðbrekku, Jökuldai.
HAGSMUNASAMTOK sem stofn-
uð voru af íbúum í Eiða- og Hjalta-
staðaþinghá hafa verið að leita hóf-
anna um að kljúfa sig aftur út úr
nýsameinuðu sveitarfélagi Austur-
Héraðs. Það er vegna óánægju íbú-
anna á svæðinu með hvemig staðið
hefur verið að vinnu við skólamál í
framhaldi af sameiningu sveitarfé-
laganna. Fonnaður fræðslu- og
menningarráðs Austur-Héraðs seg-
ir að fækkað hafí í skólanum á Eið-
um og ljóst að komið hefði til breyt-
inga á skólastarfinu þótt ekki hefði
komið til sameiningar sveitarfélag-
anna.
Höfð var hliðsjón af reynslu
Hornfírðinga og Mýrdælinga þegar
sveitarfélög á þeim svæðum vom
sameinuð. „Óánægjuraddir komu
líka upp á þeim svæðum en hljóðn-
uðu þegar reynsla komst á hið nýja
fyrirkomulag. Það held ég að eigi
líka við um þetta mál,“ segir Katrín
Ásgrímsdóttir, formaður fræðslu-
og menningarráðs. Þegar sveitarfé-
lögin fímm, Egilsstaðabær og fjórir
sveitahreppar, sameinuðust í Aust-
ur-Hérað var gerður ákveðinn sam-
starfssamningur sem nú er verið að
brjóta, að sögn félaga í hagsmuna-
samtökunum. í honum stóð meðal
annars að skólahald skuli vera með
óbreyttum hætti út þetta kjörtíma-
bil og tveir fulltrúar í skólanefnd
skyldu búsettir á starfssvæði hags-
munafélagsins.
Deilur um skólamálin
Kristján B. Þórarinsson, formað-
ur Hagsmunasamtaka íbúa Eiða- og
Hjaltastaðaþingháa, segir að meg-
indeilumar milli hagsmunasamtak-
anna og bæjarstjórnar Austur-Hér-
aðs standi um skólamálin og hvem-
ig þau hafa þróast eftir sameining-
una. Katrín Asgrímsdóttir segir að
mál manna hafí verið að enn mundi
fækka í skólanum á Eiðum næstu ár
og þessvegna hafí verið gripið í
taumana strax til að styrkja skóla-
starf á Eiðum með því að flytja
yngstu nemenduma frá Egilsstöð-
um útí Eiða og eldri nemendur
sveitarfélagsins_ stundi allir nám á
Egilsstöðum. „I samstarfssamningi
sveitarfélaganna við sameiningu
þeirra var kveðið á um að skólahald
skyldi vera með sama sniði og verið
hefur, það er að Grunnskólinn og
Tónlistarskóli á Eiðum skyldu rekn-
ir áfram þetta kjörtímabil. Nú þeg-
ar er búið að ákveða að leggja skól-
ana á Eiðum niður og sameina þá
skólunum á Egilsstöðum,“ segir
Kristján.
Katrín segir að gerð hafí verið
skoðanakönnun meðal foreldra
bama, þar kom fram að ákveðinn
hluti foreldra var óánægður með
þessar breytingar en aðrir ánægðir
eins og gengur. Akveðinn hluti for-
eldra vildi hafa bömin áfram í fá-
mennum sveitaskóla. „Við komum
til móts við hagsmunasamtökin með
því að fjölga í fræðslu- og menning-
arráði um tvo fulltrúa, þar af er
annar búsettur á þeirra svæði. Við
munum koma til móts við jákvæðar
ábendingar í þessum breytingum og
aðstoðum við að börnin utan úr
Eiða- og Hjaltastaðaþinghá aðlagist
skólastarfi á Egilsstöðum með því
að sérstakur kennari fylgist með
þeirri aðlögun," segir hún.
Samstarfssamningurinn var
grundvöllur sameiningar
Kristján segir að ekki sé heldur
staðið við það sem lofað var í land-
búnaðarmálum og stendur í sam-
starfssamningnum. „Við í Hags-
munasamtökum Eiða- og Hjalta-
staðaþingháa teljum að samstarfs-
samningurinn hafí verið grundvöll-
ur sameiningarinnar á sínum tíma
og þar sem ekki hafí verið staðið
við hann beri að rifta sameining-
unni. Það er ljóst að margir sem
voru samþykkir sameiningunni og
kusu með henni á grundvelli sam-
starfssamningsins eru orðnir á
móti núna þegar í ljós kemur að
ekki er staðið við það sem var lof-
að. Það þarf samþykki tveggja
þriðju hluta íbúanna á svæðinu til
að slíta sameiningunni, en allar lík-
ur eru á að sá aukni meirihluti sé
til staðar eftir að margir hafa snú-
ist gegn sameiningunni eftir áð
ekki var staðið við samstarfssamn-
inginn,“ segir Kristján B. Þórar-
insson.
„Eg veit ekki hvort riftun sam-
einingarinnar er framkvæmanleg.
Fjárhagsstaðan hjá Hjaltastaða- og
Eiðahreppum var erfið hvað skóla-
starf varðaði fyrir sameininguna og
ég held að hvort sem er hafí þurft
að gera breytingar á skólastarfinu á
Eiðum þótt ekki hefði komið til
sameiningarinnar. Eg held að ekki
hefði verið friður um skólastarfið í
núverandi mynd til frambúðar. Rök
hagsmunafélagsins í málinu eru gild
en við verðum að vega og meta kosti
og galla,“ sagði Katrín Ásgríms-
dóttir.
Penninn
kaupir
Bókval
PENNINN í Reykjavík hefur
keypt bóka- og ritfangaverslunina
Bókval á Akureyri. Bókval er
stærsta bókaverslunin á Akureyri,
svo og utan höfuðborgarsvæðisins
og þar eru einnig seld hljómtæki,
geisladiskar og fleira.
Bókval var í eigu Tæknivals, sem
átti 75%, og hjónanna Jóns Ellerts
Lárussonar og Svandísar Jónsdótt-
ur, sem áttu 25%. í fréttatilkynn-
ingu frá Pennanum kemur fram að
Tæknival hafi átt frumkvæðið að
selja sinn hlut og hafi aðrir eigend-
ur ákveðið að feta í sömu spor.
Að mati forráðamanna Pennans
fellur Bókval vel inn í heildarrekst-
ur fyrirtækisins. Fjölgun mennta-
stofnana á Akureyri undanfarin ár
og hin mikilvæga staða Akureyrar í
mennta- og menningarmálum renn-
ir sterkum stoðum undir metnaðar-
fulla þjónustu Bókvals og hefur
Penninn trú á því að verslunin dafni
vel áfram.
Oflug ferðamannaverslun
I fréttatilkynningunni kemur
einnig fram að Penninn muni kapp-
kosta að veita fyrirtækjum, einstak-
lingum og menntastofnunum góða
þjónustu í Bókvali. Öflug ferða-
mannaverslun hefur einnig verið
mikilvægur þáttur í rekstri Bókvals
og verður svo áfram.
Bókval leigir húsnæði Kaupfélags
Eyfirðinga í Hafnarstræti, þar sem
Vöruhús KEA var áður til húsa.
Eftirskjálftar á
Hengilssvæðinu
Fremur ró-
legt í gær
á skjálfta-
svæðinu
FJÖLDA eftirskjálfta varð
vart á Hengilssvæðinu í gær
eftir stóra skjálftann á þriðju-
dag, að sögn Bergþóru Þor-
bjamardóttur, jarðeðlisfræð-
ings á Veðurstofunni.
Hún sagði að fáir skjálftanna
hefðu farið yfir eitt stig á
Richter og svo virtist sem
skjálftavirkni færi minnkandi.
Þó væri erfítt að segja fyrir um
framhaldið og enn væri fylgst
með ástandinu á svæðinu.
Vegna ástandsins á Hengils-
svæðinu undanfarna daga
verður sérstök jarðskjálftavakt
næstu daga. Þá eru almanna-
varnarnefnd Hveragerðis í við-
bragðsstöðu ef til tíðinda kann
að draga.
Nemendur Austurbæjarskóla söfnuðu undirskriftum í Þingholtunum
BORGARSTJÓRI tekur hér við undirskriftalistum frá nemendum í 5. K í Austurbæjarskóla í gærmorgun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ahrif nagladekkja metin bæði jákvæð og neikvæð
Um 15 þusund tonna slit
á götum Reykjavíkur
JÁKVÆÐ áhrif nagladekkja eru
aukið veggrip í hálku en þau nei-
kvæðu aukinn umferðarhávaði, auk-
ið slit á götum og meira svifryk í
lofti. Þetta kom m.a. fram í máli
Þórs Tómassonar frá Hollustuvemd
ríkisins á ráðstefnunni Betra loft og
minni hávaði, sem Hollustuvemdin
og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
stóðu að í gær. Voru þar flutt fjöl-
mörg erindi um hinar ýmsu hliðar
umhverfisáhrifa bílaumferðar í
Reykjavík.
Þór dró fram tölur frá Noregi um
slit á götum vegna nagladekkja og
sagði hann menn hafa-reiknað út
þar í landi að um 250 þúsund tonn
af malbiki slitnuðu árlega vegna
þeirra. Hann kvaðst hafa heimfært
þessa útreikninga yfír á íslenskar
aðstæður og þannig teldist sér til að
um 15 þúsund tonna slit væri á mal-
biki á götum Reykjavíkur árlega.
Kvaðst hann hafa borið þá tölu und-
ir starfsmenn hjá borgarverkfræð-
ingi sem þeir töldu vel geta staðist.
Nagladekk valda marktækt meiri
hávaða en naglalaus dekk að sögn
Þórs, um 1 desibel við bestu skil-
yrði, þ.e. nýtt og slétt yfirborð götu
og létta nagla en við verslu skilyrði
um 3 dB.
Einnig ræddi Þór um svifryk og
sagði að frá bílum kæmi það annars
vegar frá útblæstri og hins vegar af
sliti gatna. Það væri mjög áberandi
í kaldri og þurri tíð að vetrarlagi en
minnkaði mjög um leið og snjór
væri yfir og götur blautar. Mæling-
ar á svifryki fara reglulega fram og
hefur það farið nokkuð minnkandi
hin síðari ár. Þór segir að draga
megi úr svifryksvandanum með því
að fækka nagladekkjum, setja þau
seint undir og taka snemma undan,
nota létta nagla, minnka umferðar-
hraða á rykdögum og hreinsa götur
eins oft og kostur sé.
Mótmæla lok-
un bókasafns
NEMENDUR í 5. bekk K í Aust-
urbæjarskóla í Reykjavík söfn-
uðu á sjöunda hundrað undir-
skriftum þar sem mótmælt er
fyrirhugaðri lokun Borgar-
bókasafnsins við Þingholts-
stræti vegna flutnings í
Tryggvagötu. Afhentu nemend-
ur Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra undirskrift-
irnar í gær.
„Þau vilja að safn verði starf-
rækt áfram í Esjubergi og benda
réttilega á að þau fari ekki að
kvöldlagi niður í Tryggvagötu til
að sækja sér þjónustu þegar
safnið verður komið þangað,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri um undirskrifta-
söfnun barnanna.
Borgarstjóri sagði mótmæli
þeirra skiljanleg þar sem þau
byggju í Þingholtunum í ná-
grenni við Borgarbókasafnið og
vildu ekki þurfa að sækja þjón-
ustu þess um Iengri veg en þau
hafa gert til þessa. „Á móti
kemur að safnið í Esjubergi
stenst ekki kröfur timans og
löngu tímabært, að búa þannig
um aðalsainið að það geti þjón-
að borgarbúum með þeim hætti
sem þeir gera kröfur til,“ sagði
Ingibjörg Sólrún. Hún sagði
ekki gert ráð fyrir útibúi við
Þingholtsstrætið en ekki væri
búið að gera út um framtíðar-
notkun hússins.
I
|
: