Morgunblaðið - 27.05.1999, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
b
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ley niþj ónusta
við lesendur
Bresku æsifréttablöðin fara mikinn þessa
dagana og höggva mann og annan. Frey-
steinn Jóhannsson segir frá þessari blaða-
mennsku þeirra, sem verður öðrum fjöl-
miðlum líka að umfjöllunarefni.
ÞÆR hafa verið kallaðar „Hall’s
Angels“ og þeir, sem við þær tala,
hafa talað af sér með þeim afleiðing-
um að syndir þeiira urðu forsíðuefni
News of The World og breyskleiki
þeirra þar með á vitund alþjóðar. A
dögunum bauðst Tom Parker Bow-
les til að útvega ungri konu í Cannes
eiturlyf, en konan sú reyndist vera
blaðamaður, sem skrifaði sína for-
síðufrétt. Og nú hefur fyrirliði
brezka ruðningslandsliðsins Law-
rence Dallaglio, orðið að segja af sér
vegna samtals við aðra konu, sem
reyndist vera blaðamaður og hafði
eftir honum að hann hefði bæði neytt
eiturlyfja og selt þau. Tom Parker
Bowles reyndi ekki að bera í
bætifláka fyrir sig, en Dallaglio segir
eftir á, að hann hafi hvorki neytt
kókaíns né selt, heldur hafi hann
spunnið þetta allt saman upp til þess
eins að ganga í augun á konunni.
Nafnið „Hall’s Angels“ er þannig
til komið, að blaðamennirnir, sem í
báðum þessum tilvikum eru myndar-
legar ungar konur, starfa undir
stjórn Phils Hall, ritstjóra News of
The World. Reyndar gerir hann líka
karlmenn út af örkinni til að villa á
sér heimildir og fá viðmælendurna
til þess að fremja lögbrot og oft
starfa konur og karlar saman að
þessum málum. Hall ver þessar
starfsaðferðir með oddi og egg.
Hann segir blaðið vera að bregðast
við ábendingum, sem það fengi um
afbrot fólks og lítið myndi þýða að
hringja í viðkomandi og spyrja,
hvort hann hefði neytt eiturlyfja eða
selt þau. Þetta fólk slái ryki í augu
almennings og sigli undir fölsku
flaggi og það eigi ekki að komast upp
með það. Þegar hann var spurður,
hvort blaðamenn ættu að komast
upp með að sigla undir fölsku flaggi,
sagði hann almenning eiga heimt-
ingu á því að fá að vita um tvöfeldni
fræga fólksins og til þess að afhjúpa
hana yrðu blaðamenn að grípa til
leyniaðgerða, rétt eins og lögreglan.
Ekki nýmæli í brezkri
blaðamennsku
Þessi starfsaðferð er síður en svo
nýmæli í brezkri blaðamennsku, þótt
henni hafi ekki verið beitt eins óspart
og News of The World gerir nú. í
fyrrahaust opinberaði Sunday Mirror
fíkniefnaneyslu Williams Straw, son-
ar innanríkisráðherrans, og þeir
skipta nú orðið tugum, sem hafa lent í
klóm réttvísinnar eftir að hafa orðið
fyrir barðinu á þessari blaða-
mennsku. í gær var sjónvarpsleikari
að nafni John Alford dæmdur í 9
mánaða fangelsi fyrir að útvega
blaðamönnum News of The World
kókaín og hass, en þeir þóttust vera
erlendir auðmenn, sem vildu fá leik-
arann til þess að opna nýja verzlun.
Lögfræðingur Alfords bað dómarann
að hafa í huga með hvaða hætti málið
hefði komið til kasta réttvísinnar og
sagðist hann vita það, en græðgin
hefði orðið Alford
að falli og leitt
hann til lögbrots.
Ekki verður
sagt, að News of
The World kasti
höndunum til þess-
ara mála. Eftir að
blaðið fékk að sögn
Hall ritstjóra
ábendingar um eit-
urlyfjaneyzlu
Lawrence Dallaglio, hafði blaðamað-
ur samband við auglýsingafulltrúa
hans og þóttist vera starfsmaður Gil-
lette-fyrirtækisins, sem vildi ræða
við ruðningskappann um auglýsinga-
samning. Dallaglio og auglýsinga-
fulltrúi hans -mættu til fundar við
karl og konu á hótelherbergi og síð-
an kom Dallaglio einn á annan fund.
Hafði blaðið þá leigt næsta herbergi
líka og komið fyrir upptökubúnaði,
segulböndum og myndavélum. A
seinni fundinum æxluðust mál
þannig að eiturlyf bar á góma milli
Dallaglio og konunnar. Eftir á sagð-
ist hann hafa logið til um neyzlu sína
og sölumennsku til þess að ganga í
augun á fólkinu. Hann kunni engar
skýringai- á þessu framferði, en
kvaðst hafa verið ótrúlega einfaldur
og heimskur að ganga í gildruna með
þessum hætti.
Ummæli Dallaglios
komu honum í koll
Hall ritstjóri hefur vísað á bug
sögum um að blaðakonumar séu ein-
ungis ráðnar út á útlitið og að þeirra
hlutverk sé að gefa viðmælandanum
undir fótinn svo losni ærlega um
málbeinið hjá honum. Hann bendir
á, að Louise Oswald, sem talaði við
Dallaglio, hafi margra ára reynslu að
baki sem blaðamaður í Astralíu og
Englandi og það sé rangt, að hún
hafi ekki fengizt við nein alvörumál
til þessa; hún hafi nýlega unnið að
fréttum af naglasprengjum í London
og rannsókn á morðinu á sjónvarps-
konunni Jill Dando. Þá hafi hún ekki
verið ein á ferð, heldur hafi blaða-
maðurinn Phil Taylor starfað með
henni, þannig að hún og Dallaglio
voru aldrei tvö ein í herberginu
nema mjög skamman tíma. Segir
Hall, að af blaðsins hálfu hafi málið
verið unnið samkvæmt þeim reglum,
sem siðanefnd blaðanna setur. Þar
vísar hann til þess, að blöð geta lengi
Eeuters
Sophie Rhys-Jones
varið leyniþjónustublaðamennsku
sína, ef hún leiðir til þess að upp
komizt um lögbrot. Nú framdi
Dallaglio ekki beint lögbrot á fundin-
um með blaðamönnunum, en um-
mæli hans koma honum í koll.
Forráðamenn ruðningsíþróttar-
innar kanna nú málið og hefur News
of The World heitið þeim aðgangi að
upptökum af fundinum. Hvað þar
var sagt skiptir máli, en meiru varð-
ar, hvort menn trúa því sem
Dallaglio hefur sagt eftir á. Taki
menn hann trúanlegan, kann hann
að eiga afturkvæmt í íþrótt sína og
jafnvel til liðs við landsliðið því glæp-
m- er það ekki að haga sér heimsku-
lega, þótt það sé ljótt að skrökva.
Þegar News of The World í síð-
ustu viku afhjúpaði Tom Parker
Bowles, son Camillu Parker Bowles,
vinkonu Karls Bretaprins, kom í ljós,
að hann átti sér formælendur fáa.
Önnur blöð tóku málið upp í fréttum
og fylgdu því eftir með frásögnum af
áhyggjum Karls, en Tom er góður
vinur Vilhjálms prins. Það var ljóst,
að Bretum var ekki skemmt að sjá
framtíðarkóng sinn í ekki betri fé-
lagsskap en þetta.
En nú þegar spjótin beinast að
íþróttahetjunni og æskufyrirmynd-
inni Lawrence Dallaglio, eru við-
brögðin mun fjölbreyttari. Þótt
mönnum þyki ekki öll kurl komin til
grafar, þrátt fyrir skýringar
Dallaglios, eru þeir margir, sem telja
málið þannig vaxið, að það hefði
aldrei átt að koma fyrir augu al-
mennings. Önnur blöð hafa ekki látið
nægja að flytja fréttir af málinu,
heldur hafa dálkahöfundar fjallað
um það og sumir fordæmt starfsað-
ferðir News of The World. The Daily
Telegraph fjallar um málið í leiðara
og segir að neyzla eiturlyfja sé vissu-
lega heimskuleg og hættuleg og
glæpsamlegt að seija þau öðrum. En
hafi Dallaglio einhvem tíman dreift
Lawrence
Dallaglio
AP
FORSIÐA The Sun í gær þar sem aðalfyrirsögnin var „Sophie ber-
brjósta". Inni í blaðinu var áratugar gömul mynd, tekin á Spáni, þar
sem sjá má annað brjóst Rhys-Jones. Hefur þessi myndbirting vakið
hörð viðbrögð í Bretlandi og verið fordæmd harðlega af konungs-
fjölskyldunni, en eftir tæpan mánuð mun Rhys-Jones ganga að eiga
Játvarð prins. Blaðið hyggst hins vegar birta fleiri myndir í dag.
eiturlyfjum (sem hann sagðist hafa
gert á unga aldri), sé ljóst, að hann
geri það ekki nú og engum almanna-
hagsmunum hafi verið þjónað með
uppljóstrununum. Dallaglio hafi sýnt
heimsku með því að brjóta ellefta
boðorðið og láta komast upp um sig
(ef satt sé), en Hall ritstjóra er bent
á tólfta boðorðið, sem segi: „Ef vit-
neskjan leiðir ekki til neins góðs, þá
láttu vera að leita hennar of stíft.“
En það eru fleiri ritstjórar en
Hall, sem leita stíft og eru á skot-
skónum þessa dagana. Þriðjudags-
blað The Sun var til dæmis óvenju
„efnismikið“ á þessum vettvangi;
forsíðan og síður tvö og þrjú voru
lagðar undir meint framhjáhald
manns, sem fyrir 18 árum var fyrir-
liði landsliðs Breta í krikket, á
tveimur næstu síðum var skýrt frá
meintu framhjáhaldi skemmtikrafts,
sem er eiginmaður leikkonunnar
Dawn French, sem m.a. hefur sést á
skjánum heima sem presturinn í
þáttaröðinni Kjóll og kall. Og á
næstu tveimur síðum var svo mál
Lawrence Dallaglio. Þetta er náttúr-
lega of gott til þess að vera satt; þrír
fuglar skotnir á sjö síðum! Aumingja
almenningur að þurfa að vita öll
þessi ósköp, eða hvað?
Bretadrottningu ekki skemmt
En svo kom The Sun í gærmorg-
un. Og þá fór nú blaðið fram úr
sjálfu sér. Aðalefnið var níu, eða tíu
ára gömul mynd af öðru brjóstinu á
Sophie Rhys-Jones, unnustu Ját-
varðs prins.
Oss er ekki skemmt, sagði drottn- •
ing Bretaveldis í eina tíð og í gær
féllu þau orð aftur. Talsmaður
drottningar sagði myndbirtinguna
grimmdarverk og grófa árás á
einkalíf Sophie og sagði, að hún yrði
kærð til siðanefndar blaðanna. Sjálf
mætti Sophie ekki til vinnu í gær,
en var sögð í miklu uppnámi og að
hún teldi sig illa svikna af vinkonu
sinni, sem seldi blaðinu myndirnar.
Myndir þessar, en The Sun ætlar
aðbjrta fleúiá morgun, voru teknar á
Spáni, þegar Sophie Rhys-Jones var
þar að störfum ásamt fleirum frá
Capital Radio, þar á meðal Chris
Tarrant og Kara Noble. Af myndum,
sem Kara tók af Chris og Sophie, fer
mest fyrir þeirri, þar sem þau eru í
aftursæti bíls og hann lyftir brjósta-
haldi hennar frá öðru brjóstinu. Chris
Tarrant fordæmdi í gær birtingu
myndarinnar og sagði, að mánuðum
saman hefði verið reynt að selja þær
brezkum blöðum, en ekki tekizt fyrr
en nú. Útvarpsstöðin Heart FM rak
Kara Noble umsvifalaust úr starfi í
gær fyrir að bregðast trúnaði við vin-
konu sína, en sagan segir, að hún hafi
fengið á bilinu 100.000-250.000 pund
fyrir myndimar og frásagnir með
þeim, sem eiga að duga The Sun til
þriggja tölublaða.
Viðbrögð við myndbirtingum The
Sun hafa verið mjög á einn veg. Af
þeim, sem fjölmiðlar ræddu við í gær,
mælti enginn þeim bót og sá frétta-
maður BBC-sjónvarpsstöðvarinnar
sem sinnir málum tengdum hirðinni
sagði í fréttum í gær, að starfsbræður
hans væru almennt á þeirri skoðun,
að nú hefði The Sun gengið of langt.
Þessar myndir væru margra ára
gamlar, um þær hefðu menn vitað, en
þær hefðu aldrei átt að koma fyrir
augu almennings, hvað þá nú, þegar
tæpur mánuður er í brúðkaup þeirra
Sophie Rhys-Jones og Játvarðs.
En eins og einn viðmælandi BBC-
sjónvarpsstöðvarinnar sagði. Þessi
blöð ganga eins langt og þau geta til
þess að seijast. Og fólk kaupir þau.
Meðan svo er heldur hringekjan
áfram með stöðugt meiri djöflagangi.
Nú er bara að bíða og sjá hver fer
á höggstokkinn á morgun.
s
Ótrúlegt tækifæri
Til sölu er 4ra bíllúgu söluturn með veltu upp á 7,5—8 millj. pr.
mán. Mikil álagningarvara. Húsnæðið gæti verið til sölu einnig,
sem er mjög glæsilegt. Þetta guliegg selst af sérstökum ástæðum
og svona dæmi eru sjaldan til sölu. Selst aðeins til fjársterkra aðila
og þeirra sem vilja græða enn meira.
Auðvelt rekstrarform sem allir ráða við.
Gott starfsfólk verður áfram ef vill.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Var Pol Pot tekinn af lífí?
p
Phnom Penh. AP.
LÖGFRÆÐINGUR Tas Moks,
fyrrverandi leiðtoga skæruliða
Rauðu khmeranna í Kambódíu,
heldur því fram að Pol Pot, harð-
stjórinn fyrrverandi, hafi verið tek-
inn af lífi, en ekki dáið af völdum
hjartasjúkdóms eða svipt sig lífi
eins og áður hafði verið fullyrt.
Lögfræðingurinn sagði þetta í
viðtali sem kambódískt dagblað birti
í gær. Pol Pot stjómaði róttækri
þjóðfélagsbyltingu Rauðu khmer-
anna sem kostaði 1,7 milljónir Kam-
bódíumanna lífið seint á áttunda
áratugnum. Hann lést 15. apríl á
síðasta ári, 73 ára að aldri.
Ta Mok, sem var kallaður „Slátr-
arinn“, varð leiðtogi Rauðu khmer-
anna eftir blóðuga valdabaráttu 1997
og var handtekinn 6. mars. Lögfræð-
ingurinn sagði að Ta Mok hefði sagt
sér hverjir hefðu fyrirskipað að Pol
Pot yrði tekinn af lífi en vildi ekki
greina frá nöfnum þeirra.
Yfirvöld í Kambódíu tilkynntu að
Pol Pot hefði dáið af völdum hjarta-
sjúkdóms, en lík hans var ekki kruf-
ið áður en það var brennt. Ta Mok
fullyrti sjálfur í viðtali við frétta-
mann AP tveimur dögum eftir
dauða Pol Pots að hann hefði ekki
verið myrtur.
Tímaritið Far Eastern Economic
Review hafði eftir ónafngreindum
heimildarmönnum meðal Rauðu kh-
meranna í janúar að Pol Pot hefði
svipt sig lífi eftir að hafa heyrt í
fréttum útvarpsins Voice of Amer-
ica að Ta Mok hygðist framselja
hann til Bandaríkjanna svo hægt
yrði að sækja hann til saka fyrir
þjóðarmorð.