Morgunblaðið - 27.05.1999, Page 35
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999 35
Stjórnmála-
heimspeki af
beztu gerð
Tréverk
sýnd á
Stokkseyri
í VEITINGASKÚR veitingastað-
aríns Við fjöruborðið á Stokkseyri
stendur yfir sýning Gerhard König
á tréskúlptúrum og málverkum.
Gerhard König er fæddur 1949
og flutti til íslands 1997. Hann bjó í
Þýskalandi og Sviss og nam högg-
myndalist og kennslufræði í
Hochschule Fúr Geisteswis-
senschaft í Dornach Sviss frá 1978
til 1981. Að loknu námi starfaði
hann sem listakennari og vann
jafnframt sem sjálfstæður lista-
maður.
Gerhard hefur fengist við hið
klassíska innihald höggmyndahst-
ar og mótað mannslíkamann úr tré,
frummanneskjuna í sinni einföld-
ustu mynd og/eða sem há dramat-
íska veru.
Fiskurinn hefur verið þema
listamannsins sem tákn og for-
mynd, en áhugi hans beindist að
honum þegar Gerhard kynnti sér
kristni, gyðingdóm og goðafræði af
ýmsum toga þar sem hann heillað-
ist af einfaldleika formsins og fjöl-
breytileika í andlegri túlkun
fiskins.
Gerhard sérhæfir sig í tréskúlp-
túnim úr heilum trjábolum og má
segja að verk hans einkennist af
„fígúratífum expressjónisma", en
trjábolimir eru rekaviður af Suð-
ur- og S-vesturströnd Islands. Ger-
hard hefur m.a. sýnt í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
---------------
Söngtónleikar
í Vinaminni
KIRKJUKÓR Akraness og Söng-
hópurinn Sólarmegin halda tón-
leika í safnaðarheimilinu Vinaminni
á Akranesi í kvöld, fimmtudag, kl.
20:30.
Söngdagskráin spannar allt frá
kirkjutónlist til veraldlegra laga frá
ýmsum tímum.
Kirkjukór Akraness er á leið í
söngferð til Italíu og mun halda
tvenna tónleika annars vegar í
dómkirkjunni í Florens og hins
vegar í aldagömlum kastala í Ríva,
innst við Gardavatnið. Einnig hefur
kórnum verið boðið að syngja í
kirkju heilags Anthony’s í Padova.
Kirkjan er í stíl Markúsarkirkjunn-
ar í Feneyjum og eitt helsta guðs-
hús heims. Verður kirkjukórinn
fyrsti íslenski kórinn sem syngur í
þessari kirkju.
Meðlimir kórsins eru 46 talsins
og á tónleikunum í Vinaminni verð-
ur einsöngur, tvísöngur og einnig
kemur fram kammerkór. Stjóm-
andi Kirkjukórs Akraness er Kata-
lín Lörincz.
Sönghópurinn Sólarmegin er
hópur sjö söngvara og telur nú sitt
tíunda starfsár. Hópurinn hefur
fjölbreytilegt lagaval og hefur
sungið víða bæði hérlendis og er-
lendis. Stjórnandi hópsins er Guð-
mundur Jóhannsson.
BÆKUR
Fræðirit
VAFAMÁL
Ritgerðir um stjórnmálaheimspeki og
skyld efni eftir Atla Harðarson. 1998.
Reykjavik, Hið íslenska bdkmennta-
félag. 285 bls.
RÖKRÆÐUR um stjómmála-
heimspeki hafa verið nokkuð fyrir-
ferðai-miklar í íslenzkri heimspeki
síðasta áratuginn eða svo. Þar er
sennilega kunnastur Þorsteinn
Gylfason sem ritaði á sínum tíma
grein um réttlætiskenningu banda-
ríska stjómspekingsins Johns
Rawls og kunn andsvör við henni
eins og eftir Hannes Hólmstein
Gissurarson. Einn þeirra sem hafa
verið að móta eigin rödd í þessum
hópi hin síðari ár er Atli Harðarson
en hann hefur ritað reglulega í Les-
bók Morgunblaðsins um hugðarefni
sín, þar á meðal stjórnmálaheim-
speki. Nú hefur Atli safnað saman
greinum sínum í eina bók og bætt
við nokkmm sem ekki hafa áður
birzt. Bókin er fimmta bókin í rit-
röðinni Islenzk heimspeki og sómir
sér vel í þeim hópi.
Það er oft erfitt að átta sig á því
fyrirfram hvemig ritgerðum reiðir
af í bók sem áður hafa birzt í blöð-
um eða tímaritum. En það verður
að segja um þessar ritgerðir að þær
fá aukinn þunga af nábýlinu hver
við aðra, verða rismeiri, og þær
sem bezt heppnast em meðal úr-
valsritgerða um stjórnmálaheim-
speki á íslenzku og myndu sóma
sér vel á öðmm málum einnig. Það
hefur því vel tekizt með val í þetta
ritgerðasafn.
Atli hefur verið ötull við mótun
íslenzkrar heimspeki, hefur þýtt
Ritgerð um ríkisvald eftir John
Locke og Rannsókn á skilningsgáf-
unni eftir David Hume. Hann hefur
einnig ritað margt um skólamál
sem vakið hefur athygli og um rök-
fræði og vísindi. En mest hefur
hann ritað um efni sem falla undir
stjómmálaheimspeki. Skoðanir
hans í þeim efnum em kannski
mest mótaðar af John Loeke og má
kalla borgaralegar skoðanir um
innviði samfélags lýðræðis, mann-
réttinda og umburðai-lyndis. Þetta
má sjá glögglega í þessu ritgerðar-
safni.
Það má skipta ritgerðunum í
bókinni í grófum dráttum í tvennt.
Annars vegar em langar og efnis-
miklar ritgerðir um fáeina höfuð-
heimspekinga, þá Platón, Aristótel-
es, Hobbes, Hegel og Locke og
hugmyndir þeÚTa um innviði sam-
félaga. I bókinni er einnig ritgerð
um hugmyndir Davids Hume um
trúarbrögðin. Hins vegar em rit-
gerðir sem em minni í sniðum og
fjalla nokkrar þeirra deilumál líð-
andi stundar. Dæmi em ritgerð um
fullveldi og hvers virði það sé, um
kosningar, mannréttindi og hvort
jafn kosningaréttur sé mannrétt-
indi. I þessum flokki em einnig rit-
gerðir um hvort það borgar sig að
vera réttlátur, tvenns konar hug-
myndir um lög og rétt, samvizkuna
og um frjálsan vilja og sömuleiðis
ritgerð sem leitast við að sameina
lögmálshyggju og nytjastefnu. Af
þessari upptalningu má merkja að
bókin er efnismikil og það er ekki
verið að eyða kröftum sínum á hin
smærri mál.
I fyrri flokknum em viðamiklar
ritgerðir um fáeina mikilvæga
heimspekinga í hugmyndasögunni.
Ritgerðin um Platón er
upphafsritgerð bókar-
innar. Það er kunnara
en frá þurfi að segja að
Platón setur fyrstur
manna fram þá skoðun
að stýra megi heilu
samfélagi í smáu og
stóra í Ijósi einnar
heildarhugmyndar,
koma megi við vísinda-
legri stjóm á félagi
manna. Þessa hug-
mynd útlistaði Platón í
Ríkinu með svo glæsi-
legum hætti að sú bók
er enn eitt af höfuðrit-
um í heimspekisög-
unni. En Atli skoðar
ekki Ríkið heldur Lögin sem Platón
samdi síðar á ævinni. Það rit hefur
ekki hlotið nærri eins mikla athygli
og Ríkið en er á margan hátt
nlerkilegra því að það er raunsærra
á eðli og möguleika mannfólksins.
Einn hluti Ríldsins gengur út á að
finna hina fullkomnu stjómendur
ríkisins, heimspekingana. I Lögun-
um hefur Platón gefið upp á bátinn
að hægt sé að finna slíka stjórn-
endur og leitast við að finna leiðir
til að stýra samfélaginu sem sam-
rýmast ófullkomleika mannanna.
Þar kemur fram hugmyndin um að
valdastofnanir ríkisins hafi eftirlit
hver með annam og enginn sé haf-
inn yfir það að þurfa að svara til
saka fyrir lögbrot. Með öðmm orð-
um þá urðu lögin æðst og stofnanir
ríkisins sem og aðrir urðu að lúta
þeim. Þessi hugmynd hefur upp frá
þessu orðið eitthvert öflugasta
tæki þeirra sem vilja koma á eða
halda við samfélagi mannréttinda
og takmarkaðs ríkisvalds. Þótt
Lögin séu kannski ekki eins glæsi-
legt rit og Ríkið þá em að öllum
líkindum farsælli hugmyndir fyrir
mannlegt félag í því en í Ríkinu.
Ritgerð Atla um þetta efni dregur
fram aðalatriði þessa máls og rök-
styður prýðilega ofangreinda nið-
urstöðu.
En í þessum fyrri flokki ritgerða
em tvær sem mér virðast merkast-
ar. Það er annars vegar ritgerð um
ójafnaðarstefnu Aristótelesar og
hins vegar um stjómspeki Hegels.
Þær eru hvor annarri betri. Ég
ætla aðeins að staldra við ritgerð-
ina um Aristóteles en bendi mönn-
um á að lesa ritgerðina um Hegel.
Sú ritgerð er merkileg tilraun til að
fá vit í stjórnspeki Hegels og túlk-
un Atla á skoðunum og kenningum
Hegels virðist mér um margt sann-
færandi. En ritgerðin um ójafnað-
arstefnuna er kannski enn merki-
legri fyrir nútímamenn vegna þess
að jöfnuður hefur verið ein megin-
stoð nútímakenninga
um mannlegt félag og
hefur keppt við frelsið.
Það hafa verið gerðar
nokkrar glæsilegar til-
raunir í samtímanum
til að skýra inntak
jöfnuðarins. En hver
þeirra vekur jafn
margar spurningar og
hún leysir og sumum
hefur dottið í hug að
erfitt, kannski útilok-
að, væri að fá eitthvert
vit í jafnaðarhugtakið
umfram jöfnuð fyrir
lögunum. Það er líka
ljóst að í stjórnmálum
nútímans hefur jöfnuð-
ur orðið að víkja fyrir frelsinu, og
breytir þá engu hver er við stjóm-
völinn, og það er meira segja svo
að hægt er að spyrja sig um hvort
skynsamlegt og mögulegt sé að
hafa hemil á eða stýra ójöfnuðinum
á öðram sviðum en gagnvart lögun-
um. Hér verður að taka fram að
ójafnaður merkir ekki yfirgangur
og ofbeldi heldur munur á stöðu
manna, kjömm og hagsæld í mann-
legu félagi. Aristóteles taldi að til-
gangur mannlífsins væri hið góða
líf. Hið góða líf var líf sem snerist
um menningu, listir, fræði og fé-
lagslíf. Hann var sannfærður um
að ómögulegt væri að allir nytu
hins góða lífs. Atli rekur styrk og
veikleika kenningar Aristótelesar
af veralegri skai'pskyggni og skoð-
ar að hve miklu leyti hægt er að
samræma kenningu hans við sam-
tímakenningar í siðfræði. Það er
alveg Ijóst að kasta verður þeim
þáttum kenningar Aristótelesar
sem byggjast á stéttskiptingu og
þrælahaldi. Það er einfaldlega eng-
in von til að fá vit í þær skoðanir í
samfélögum nútímans. En síðan er
eðlilegt að spyrja sig á hvaða for-
sendum geram við upp á milli
manna? Aristóteles á ýmis svör við
því sem hafa reynzt lífseigari og
þróttmeiri en sumt í jafnaðarkenn-
ingum nýaldar. En eins og Ath
bendir á þá hefur jafnaðarhreyfing
síðustu hundrað ára gert mörgum
manninum kleift að verða meiri
menn og lifa auðugra lífi en þeir
ella hefðu gert. Það er ein tegund
jafnaðarstefnu að gera fólki af öll-
um stigum þetta mögulegt. En
þetta markmið næst aldrei með
hefðbundinni stéttabaráttu vegna
þess að hver og einn verður að
leggja á sig verulega fyrirhöfn til
að lifa hinu góða hfi. Vélræn lögmál
sögunnar, séu þau á annað borð til,
munu aldrei færa neinum manni
hið góða líf. Kannski er lykillinn að
því að lifa góðu lífi í samfélögum
nútímans að átta sig á hégóma-
skapnum og aulahættinum í kring-
um peninga, átta sig á að gott
mannlegt líf getur aldrei snúist
fyrst og fremst um peninga.
Hinn flokkur ritgerðanna er fjöl-
breytilegur. Þar finnst mér merki-
legastar ritgerðimar um fullveldið
og jafnan kosningarétt. Atli spyr
hvort fullveldið sé einhvers virði og
svarar í raun að gildi þess sé mun
takmarkaðra en menn vilji yfirleitt
láta í veðri vaka. Hann gerir grein
fyrir því að yfirþjóðlegar stofnanir
geti sem hægast stuðlað að lýðræði,
frjálslyndi og valddreifingu, jafnvel
í andstöðu við innlend stjómvöld og
þessi verðmæti séu mikilvægari en
fullveldið fyrir venjulegt fólk.
Sömuleiðis sé engin ástæða til að
taka of hátíðlega þá skoðun að einni
þjóð tengist eitt ríki eða að það
kunni að vera skaðlegt þjóðmenn-
ingu að tengjast ríki sem nær til
fleiri þjóða með sérstaka menn-
ingu. Mér er skapi næst að halda að
þessi ritgerð ætti að vera skyldu-
lesning þeirra sem vilja fjalla um til
dæmis Island og Evrópubandalag-
ið.
Atli gerir í síðustu ritgerð bókar-
innar grein fyrir þeirri skoðun
sinni að jafn kosningaréttur geti
ekki verið mannréttindi. Hann
byrjar á að skilgreina mannréttindi
og bindur þau við það að manni sé
ekki misþyrmt, rænt, maður sé
ekki kúgaður, niðurlægður eða
myrtur. Það liggur náttúmlega í
augum uppi að ójafn kosningarétt-
ur er ekki mannréttindabrot í þess-
um skilningi og ekki er heldur lík-
legt að hann stuðli að því að brot-
inn sé réttur á einstaklingum með
þessum hætti. Þessi skilningur úti-
lokar ekki þá skoðun að skilja megi
mannréttindi pólitískum skilningi
og hta svo á að jafn kosningaréttur
sé hluti slíks réttar. En aðalatriðið
í íslenzku samhengi er samt það að
jafn kosningaréttur er líklegur til
að stuðla að betra stjórnarfari í
landinu. Þess má svo geta af því að
allir íslenzkir stjórnmálaflokkar
tefldu fram fjölskyldustefnu í ný-
legri kosningabaráttu að það kann
að vera ein leið til að stuðla að
auknu tilliti ríkisins til hagsmuna
barna að skilja jafnan, íslenzkan
kosningarétt þannig að hann nái til
bókstaflega allra lifandi manna á
Islandi, jafnt þeirra sem orðnir em
18 ára gamlir sem og þeirra sem
era undir 18 ára aldri, jafnvel ný-
fæddir. Foreldram væri ætlað að
fara með kosningarétt barna sinna
fram að 18 ára aldri. Ein líkleg af-
leiðing svona fyrirkomulags er
aukið tilht til hagsmuna barna. En
þetta er annað mál.
Þetta greinasafn Atla Hai-ðar-
sonai- sætir umtalsverðum tíðind-
um í íslenzkri stjórnmálaheimspeki.
Það er vel hugsað, vandað og snjallt
þegar bezt tekst til. í bókinni er
ritaskrá og nafnaskrá.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Atli
Harðarson
1A tskriftargföf
sem gleður
úr eru tollfrjáls hjá úrsmiðnum
Tryggvi Ólafsson, Hafnarfirði • Birta, Egilsstöðum • MEBA, Kringlunni • Axel Eiríksson, Isafirði • CarlA. Bergmann, Laugavegi 55
6ullúrið, Mjódd • Helgi Guðmundsson, Laugavegi 82 • Guðmundur Hermannsson, Laugavegi 74 • Gilbert, Laugavegi 62
Jón & Óskar, Laugavegi 61 • Franch Michelsen, Laugavegi 15 • Garðar, Lækjatorgi • Hermann Jónsson, Veltusundi 3
Paul E. Heide, Glæsibæ • Klukkan, Hamraborg • Jón Bjarnason, Akureyri • Halldór Ólafsson, Akureyri • George V. Hannah, Keflavik • Guðmundur B. Hannah, Akranesi
________ Gilbert, Grindavik • Karl R. Guðmundsson, Selfossi • Kornelíus, Skólavörðustíg 8 • Helgi Sigurðsson, Skólavörðustig 3 • Gunni Magg, Hafnarfirði _____
]