Morgunblaðið - 27.05.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999 65
I DAG
Árnað heilla
pT O ÁRA afmæli. í dag,
0 \/ flmmtudaginn 27.
maí, verður fimmtugur Guð-
mundur Unnarsson, bif-
reiðastjóri, Engihjalla 11,
Kópavogi.
BRIDS
Umsjón Ouðmundur
Páll Arnarson
HÆKKUN á veikum tveim-
ur í þrjá er taktísk hindrun,
en ekki áskorun í geim. Oft
er tilgangurinn sá að veiða
andstæðingana í doblgildru
ef þeir hætta sér inn á svo
háu þrepi.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
A 43
V KD106
♦ KD1095
+ 73
Austur
+ ÁD8
V ÁG5
♦ 73
+ D10965
Vestur Norður Austur Suður
- - 2spaðar
Pass 3spaðar Pass Pass
Pass
í þessu tilfelli hefði norður
ekkert á móti því að fá AV í
fjögur hjörtu. En austur á
of mikið í spaða til að blanda
sér í sagnir og passar því.
Og nú byrjar ballið. Lea-
sndinn er í austur og þarf að
finna réttu vömina til að
hnekkja þremur spöðum.
Makker kemur út með
smáan spaða og þú ákveður
að láta áttuna duga. Suður
drepur og spilar tígli á
kónginn, en makker sýnir
jafna tölu spila, svo þú gerir
ráð fyrir að hann sé með ÁG
fjórða. Sagnhafi spilar næst
spaða úr borði. Þú drepur
með ás og makker fylgir.
Nú er úrslitastundin runnin
upp. Hvemig hyggstu verj-
ast?
Þrautin er fengin að láni
frá Eddie Kantar og hans
röksemdir hljóða einhvem
veginn þannig: Laufslagir
varnarinnar fara ekki neitt,
en ef suður á þrílit í hjarta
er stórhætta á því að vörnin
missi af slag þar. Skiptingin
sem ber að varast er
6-3-2-2.
Norður
A 43
♦ KD106
♦ KD1095
+ 73
Vestur Austur
+ 76 A ÁD8
♦ 832 ♦ ÁG5
♦ ÁG62 ♦ 73
+ KG82 + D10965
Suður
A KG10952
V 974
♦ 84
+ Á4
Ef laufi er spilað drepur
suður, tekur spaðakóng og
spilar tígli. Síðar getur hann
þá hent hjarta niður í
tíguldrottningu. Eina vörn-
in er sú að spila tígli yfir til
makkers, sem skiptir svo
(vonandi) yfir í hjarta. Þú
dúkkar hjartakónginn og
getur nú trompað
tíguldrottninguna ef sagn-
hafi spilar henni. Þá fær
vörnin tvo á hjarta og spilið
fer einn niður.
BRÚÐKAUP. Gefin vom saman 15. maí sl. í Þingvallakirkju af
sr. Rúnari Þór Egilssyni Eva Carlsson og Thomas Ljunggren
frá Svíþjóð. Heimili þeirra er að Suðurhúsum 9, Grafarvogi.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Kristján
ÞESSAR ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri,
ásamt þremur vinkonum sfnum, til styrktar Rauða krossi ís-
lands og söfnuðust 2.226 kr. F.v. Vódís Á. Valdemarsdóttir,
Tinna Ingólfsdóttir og Ánna Sif Guðmundsdóttir. Á myndina
vantar Höllu S. Guðmundsdóttur og systumar Karen Evu og
Katrínu O. Harðardætur.
Morgunblaðið/Kristján
VINKONURNAR Sigrún Björk Sveinbjömsdótdr og Hrefna
Rut Nfelsdóttir héldu fióamarkað í götunni heima hjá sér,
Álfabyggð á Akureyri á dögunum og söfnuðu 620 krón-
um. Þær hafa fært Rauða krossinum á Akureyri peningana.
Með morgunkaffinu
Ast er...
6-5
... völundarhús.
f,. A-,
\ \
Jóhannes
úr Kötlum
(1899/1972)
Brot úr
Ijóðinu
íslendinga-
Ijóð.
LJOÐABROT
ISLEN DING ALJOÐ
| Land míns fóður, landið mitt,
laugað bláum straumi,
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
- ævi vor á jörðu hér
1 brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
TVIBURAR
Afmælisbam dagsins:
Þú átt auðvelt með að koma
skoðunum þínum á framfæri
og fylgja þeim eftir. Þú
kannt vel að krydda mál
þitt með kímni.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þetta verður hálfgerður leið-
indadagur hjá þér en þótt þér
finnist allt ganga á afturfót-
unum skaltu halda ró þinni
því allt hefst þetta nú að lok-
um með góðu móti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ágætt að leyfa tilfinn-
ingunum að njóta sín en um
leið skaltu varast að láta þær
hlaupa með þig í gönur.
Hlustaðu á rödd hjartans og
þá fer allt vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) ‘ríA
Þú ert að fást við verkefni
sem krefst allrar þinnar at-
hygli og heilmikilla vanga-
veltna. Gefðu þér góðan tíma
því miklu sldptir að árangur-
inn verði sem bestur.
Krabbi ~
(21. júní - 22. júlí)
Enginn getur rænt þinn innri
mann svo þér er óhætt að leyfa
honum að njóta sín í umgengni
við aðra. En mundu að enginn
er annars bróðir í leik.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) W
Það eru einhverjar undiröld-
ur í kringum þig svo þú skalt
fara þér hægt og vera viðbú-
inn hverju sem er. Reyndu
samt að láta þetta ekki hafa
of mikil áhrif á störf þín.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (Bu>
Þú ert óvenju fljótur að kom-
ast að kjarna málsins og það
vekur bæði aðdáun og öfund
þeirra sem með þér starfa.
Mundu bara að ekki eru allir
viðhlæjendur vinir.
Wg xrx
(23. sept. - 22. október) & A
Þótt þér finnist þú eiga fátt
þegar þú lítur í kringum þig
er það ekki öll sagan því að
sjáÚur ert þú þín dýrmætasta
eign.____________________
Sporðdreki
(23. okt - 21. nóvember) tC
Þær aðstæður hafa skapast
að þú ert í óvenju valdamikilli
aðstöðu og því skiptir miklu
máli að þú kunnir með vald
þitt að fara. Best er að beita
því aldrei.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Það er nauðsynlegt að draga
glögg skil milli draums og
veruleika því þótt draumar geti
verið góðir þá er veruleikinn
oftast annar en í honum
hrærumst við nú einusinni.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) úStF
Þér er að takast að safna
saman öllum þeim upplýsing-
um sem þú þarft til að ganga
frá þýðingarmiklu máli. Þeg-
ar það er búið getur þú litið
bjartsýnn fram á veg.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) KStk
Það verður reynt að bera í þig
einhveijar sögur en mundu
bara að þú ert engu nær um
þann sem talað er um en
nokkru nær um þann er mælir.
Fiskar _
(19. febrúar - 20. mars) >♦■*»
Finnist þér eins og traðkað sé
á tilfinningum þínum skaltu
draga þig í hlé gagnvart við-
komandi og leyfa öðrum betri
að njóta umhyggju þinnar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
x; tröppur - TRÖPPUR
W o G W OG
W STIGAR WSTIGAR
JÍ? JÍlr
s
ÁRVÍK ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
TILBOÐ
fná 27/5 til 3/6 '99
Myndarammar 10x15 cm
afsláttur
Myndarammar 13x18 cm
40% afsláttur
40% afsláttur
Myndarammar 15x20 cm
Myndarammar 18x22 cm.
40% afsláttur
40% afsláttur
Myndarammar 25x30 cm
Myndarammar 20x25 cm
40% afsláttur
40% afsláttur
Myndarammar 30x40 cm
Myndarammar 28x35 cm
40% afsláttur
Myndarammar 40x50 cm
afsláttur
Rammar A4
40% afsláttur
ATH.; EINSTAKT A ÍSUANDT
Allar vörur í Ótrúlegu búðunum
frá kr. 198-998.
húðin
LAUGAVEG1118 • KRINGLUNNI • KEFLAVfK