Morgunblaðið - 15.06.1999, Qupperneq 14
.smsm&z
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999___________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
útibúið
JARÐVEGSFRAMKVÆMDIR
vegna nýrrar viðbyggingar við
matvöruverslun KEA við Hrí-
salund á Akureyri eru komnar
í gang. Við Hrísalund mun rísa
fyrir haustið 340 fermetra
bygging, þar sem m.a. er gert
ráð fyrir apóteki og þá hefur
íslandsbanld tekið hluta hús-
næðisins á leigu og hyggst
færa útibú sitt á Brekkunni
þangað.
Matvöruverslunin í Hrísa-
lundi er lokuð en þar er verið
að skipta um innréttingar „og
verður ný og betri verslun opn-
uð þar nk. föstudag,“ sagði Sig-
mundur Ofeigsson fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs
KEA.
Einnig er verið að vinna við
breytingar á bílastæðinu við
verslunina og þar sem ekið
verður inn á Þingvallastrætið
frá bílastæðinu. Heildarkostn-
aður við allar þessar fram-
kvæmdir er um 40 miltjónir
króna.
Miklir vatnavextir á Norðurlandi
Brýr í Svarfaðardal og Skíðadai
voru í hættu og hafði þvegist undan
öðrum sökklinum á brúnni að
Klængshóli í Svarfaðardal og stöp-
ullinn því farið að halla. Brúin í
Skíðadal hafði einnig skemmst eitt-
hvað en þar rann áin framhjá
brúnni. „Báðar þessar brýr hafa
skemmst áður í svona miklum
vatnavöxtum,“ sagði Sigurður.
Einnig var töluverður æsingur í
Gleránni sl. föstudagskvöld og að-
faranótt laugardags. Þar urðu
skemmdir á árbakkanum, skammt
fyrir ofan grjótvörnina með Borgar-
brautinni. „Stærstur er þó bitinn
fyrir rafveituna, vatnsveituna og
símann, því þar eru kaplar farnir að
dingla út úr árbakkanum,“ sagði
Sigurður.
Morgunblaðið/Kristj án
SIGURÐUR Oddsson, deildarstjóri framkvæmda hjá Vegagerðinni á
Akureyri, skoðar aðstæður J>ar sem minnstu munaði að vegurinn færi
í sundur í Oxnadalnum um helgina.
SUMARSTARF í Nonnahúsi er
hafið og verður safnið opið alla
daga frá kl. 10 til 17 til 1. sept-
ember. Zontaklúbbur Akureyr-
ar, sem heldur upp á 50 ára af-
mæli sitt í ár, stofnaði þetta
minningarsafn um rithöfundinn
og jesúítaprestinn Jón Sveins-
son, Nonna, árið 1958 og hefur
rekið það siðan. f safninu gefur
að líta ýmsa muni sem tengjast
ævi og störfum Nonna, auk
Nonnabókanna á ýmsum tungu-
málum og myndskreytinga úr
bókunum.
Nýjasti safngripurinn er
kista Jóns Jónssonar í Vogum,
móðurbróður Nonna. Kistan er
sveinsstykki hans í trésmíði,
reyndar fyrsta íslenska sveins-
stykkið, smíðuð í Kaupmanna-
höfn árið 1850. Sverrir Her-
mannsson trésmíðameistari
gerði kistuna upp og heldur
einmitt á gripnum, á meðfylgj-
andi mynd, inn í Nonnahús
ásamt Jóni Frímanni Jónssyni,
eiganda kistunnar.
Milljónatjón í
Oxnadalnum
Fyrsta ís-
lenska sveins-
stykkið synt í
Nonnahúsi
Morgunblaðið/Kristján
Kuldalegir handboltakappar
ÞEIR voru frekar kuldalegir
handboltakapparnir Páll Þór-
ólfsson og Patrekur Jóhannes-
son atvinnumenn hjá þýska lið-
inu Essen og félagi þeirra í lið-
inu, heimamaðurinn Michel
Volker, þar sem þeir voru að
taka fellihýsi sitt saman á
tjaldsvæðinu við Þórunnar-
stræti á Akureyri í gær. Félag-
arnir komu norður úr rigning-
unni um helgina og fengu
ágætis veður á sunnudag en í
gær fór að rigna duglega.
Ferðalangarnir settu því stefn-
una austur á bóginn og hugð-
ust fínna betra veður á Egils-
stöðum.
MILLJÓNATJÓN varð á þjóðvegi 1
um Öxnadal í miklum vatnavöxtum í
Öxnadalsá um helgina. Munaði
minnstu að vegurinn færi í sundur á
nokkrum stöðum en með stórvirkum
malarflutningabílum, vörubílum og
gröfum tókst að koma í veg fyrir
það, en skemmdir á vegköntum eru
miklar. Einnig urðu skemmdir á
brúm í Svarfaðardal og Skíðadal og
þá var brúin yfir Gljúfurá í Grýtu-
bakkahreppi í hættu, en henni tókst
að bjarga.
Unnið var að bráðabirgðaviðgerð í
Öxnadalnum um helgina og í gær, en
ekki verður hægt að ráðast í fullnað-
arviðgerð fyn- en vatnið minnkar í
ánni. „Það er hins vegar nægur snjór
Viðbygging KEA í
Hrísalundi
Islands-
banki færir
í fjöllum og því gæti orðið enn frek-
ari darraðardans ef hitnai- svona aft-
ur í veðri,“ sagði Sigurður Oddsson,
deildarstjóri framkvæmda hjá Vega-
gerðinni á Akureyri.
Brýr einnig í hættu
Rúður brotn-
ar í Glerár-
skóla
TILKYNNT var tvívegis um
eignaspjöll til lögreglunnar á
Akureyri eftir helgina. í Glerár-
skóla höfðu um 10 rúður verið
brotnar og einnig höfðu verið
brotnar ráður í sumarhúsi í ná-
grenni bæjarins. Málin eru
óupplýst en í rannsókn.
Þá voru 18 ökumenn teknir
fyrir of hi-aðan akstur um helg-
ina og þrír ökumenn voni teknir
fyrir meinta ölvun við akstur.
Loks fengu þrír menn að gista
fangageymslur lögreglunnar um
helgina vegna óspekta.
Listasafnið
á Akureyri
Mælt með
Hannesi
HANNES Sigurðsson verðui-
næsti forstöðumaður Listasafns-
ins á Akureyri, ef farið verður að
tiliögu menningarmálanefndar
bæjarins. Nefndin mælir ein-
róma með Hannesi, þannig að
líklegt verðui- að teljast að ráðn-
ing hans verði samþykkt á fundi
bæjarstjómar í dag.
A fundi menningarmálanefnd-
ar íyrir helgi var lögð fram fag-
leg greinargerð frá forstöðu-
mönnum Listasafns Islands og
Kjarvalsstaða, sem vom nefnd-
inni til ráðuneytis, og eftir sam-
töl við tvo umsækjendur af fjór-
um, Hannes og Ólöfu Sigurðar-
dóttur, samþykkti nefndin sam-
hljóða að mæla með þeim fyrr-
nefnda, að sögn Þrastai- As-
mundssonar, formanns menn-
ingarmálanefndar.
Forstöðumaður verður ráðinn
til fjöguiTa ára með möguleika á
framlengingu í fjögur ár til við-
bótar að þeim tíma loknum.
Sjö ár em síðan Listasafn
Akureyi'ar var sett á laggimar.
Haraldui- Ingi Haraldsson hefur
verið forstöðumaður frá upphafí
en lætur senn af störfum og síð-
asta sýningin sem hann setur
upp í safninu var einmitt opnuð á
laugardag.
Sextíu tillögur
að útilista-
verki
SEXTÍU tillögui- bámst í sam-
keppni um útilistaverk, sem
setja á upp á Akureyri næsta
sumar, en frestur rann út um
síðustu mánaðamót. Listaverkið
tengist hátíðahöldum í höfuðstað
Norðurlands vegna aldamót-
anna.
Samkeppnin var auglýst skv.
samkeppnisreglum Sambands ís-
lenskra myndlistannanna (SIM)
og em fulltmar þess og Akur-
eyrarbæjar í dómnefnd. Hún
fundar líklega um miðjan mán-
uðinn og velur fjórar til fímm til-
lögur sem fara síðan í lokaða
samkeppni um útfærslu verk-
anna.
„Þetta er mjög góð þátttaka,“
sagði Ingólfíir Ái'mannsson,
fræðslumálastjóri Akureyrar-
bæjar, aðspui'ður við Morgun-
blaðið. Ekki er endanlega ákveð-
ið hvenær verkið verður af-
hjúpað. „Það fer eftir því hve
mikið verkið verður í fram-
kvæmd. Við höfum á þessu stigi
ekki viljað ákveða dagsetningu,
en tvennt kemur til greina; ann-
ars vegar að tengja það 17. júní
eða afmælisdegi bæjarins, sem
er í lok ágúst,“ sagði Ingólfur.
Staðsetning hefur heldur ekki
verið ákveðin. „Höfundar geta
gert tillögu um staðsetningu.
Bent var á tvo til þijá staði í
samkeppninni, en ekkert er úti-
lokað.“