Morgunblaðið - 07.07.1999, Side 29
28 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999 29 -
JMffStutlWtyifeife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
TRAUST A NORÐUR-
ÍRLANDI
ÞRÁTT fyrir að fresturinn sem Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, gaf deiluaðilum á Norður-ír-
landi til að fínna lausn á deilunni um fyrirkomulag
heimastjórnar, hafi runnið út fyrir viku ríkir enn mikil
óvissa um þróun mála. Blair og Bertie Ahern, forsætis-
ráðherra írlands, lögðu fram tillögur til lausnar á föstu-
dag og hafa fulltrúar sambandssinna og Sinn Féin fengið
frest fram í lok næstu viku til að ganga að þeim. Enn rík-
ir þó mikil óvissa um hver afstaða sambandssinna verður
að lokum, þrátt fyrir það fyrirheit Blair að þeir hafi í
raun engu að tapa. Hefur hann lýst því yfir að ef Sinn
Féin standi ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt
samkomulaginu verði flokknum meinuð aðild að heima-
stjórninni og sambandssinnum gert kleift að mynda
stjórn upp á eigin spýtur.
Eftir hið sögulega samkomulag er náðist á föstudag-
inn langa á síðasta ári og samþykkt var með yfírgnæf-
andi meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslum á Norður-ír-
landi og írlandi, hefur gengið erfíðlega að hnika málum
áfram.
Fyrst og fremst strandar myndun heimastjórnar á því
að sambandssinnar telja sig ekki hafa nægilegar trygg-
ingar fyrir því að Irski lýðveldisherinn afhendi vopn sín
líkt og samið hefur verið um.
Þessi afstaða sambandssinna er að mörgu leyti skilj-
anleg. Saga Norður-írlands er blóði drifín og mörkuð
grimmdarverkum á báða bóga. Það ríkir ekki traust á
milli leiðtoga kaþólikka og mótmælenda. I augum utan-
aðkomandi eru deilumálin á Norður-írlandi aftur á móti
oft illskiljanleg og erfitt að átta sig á því hatri og skorti á
umburðarlyndi er komið hefur í veg fyrir friðsamlega
sambúð kaþólikka og mótmælenda. Hvernig stendur á
því að í norðurhluta Evrópu, innan Evrópusambandsins,
skuli enn vera að finna svæði þar sem menn drepa hver
annan af trúarástæðum? Fá deilumál í heiminum hafa
reynst eins flókin og illleysanleg og þau á Norður-ír-
landi. Sjaldan hefur lausn hins vegar verið jafnnærri.
Við lausn deilumála af þessu tagi, þar sem vinna verð-
ur bug á gamalgrónu hatri, kemur yfírleitt að þeim
punkti að menn verða að leggja deilumálin til hliðar og
treysta því að staðið verði við gefin loforð. Slíkt traust
gerði leiðtogum ísraela og Palestínumanna kleift að ná
samkomulagi og hvíta minnihlutanum í Suður-Afríku að
afhenda hinum svarta meirihluta völdin.
Sambandssinnar á Norður-írlandi eru nú í svipuðum
sporum. Næsta skref veltur á þeim og ljóst er að fari
friðarumleitanir út um þúfur verður þeim kennt um.
Fulltrúar Sinn Féin gætu sagt sem svo að þeir hefðu
staðið við sitt þó svo að engin vopn hefðu verið afhent.
Ákveði sambandssinnar hins vegar að nýta þetta ein-
staka tækifæri til að koma á friði, treysta loforðum um
afvopnun IRA og ganga til samstarfs um myndun heima-
stjórnar, er komið að Sinn Féin og IRA að standa við
stóru orðin. Þá munu augu allra beinast að þeim og ljóst
er að gífurlegum þrýstingi verður beitt af hálfu stjórn-
valda á írlandi og í Bretlandi og Bandaríkjunum. For-
sætisráðherrar Bretlands og írlands hafa lagt sig alla
fram til að sættir megi nást og Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hefur komið að málinu með virkum hætti. Niður-
staðan er sú að samkomulag hefur náðst um flest deilu-
mál og fyrirkomulag heimastjórnar. Einungis vopn IRA
standa í vegi fyrir næsta skrefi.
Auðvitað eru sambandssinnar að taka áhættu með því
að treysta á afvopnun IRA og ljóst að hið pólitíska svig-
rúm David Trimble, leiðtoga þeirra, er mjög lítið. Hann
er að miklu leyti í pólitískri gíslingu afla, sem ekki vilja
neinar málamiðlanir við Sinn Féin, hinn pólitíska arm
IRA. Það væri hins vegar sorglegt ef þau öfl fengju að
ráða ferðinni. Áhættan við það að hafna samkomulaginu
út af skammtímasjónarmiðum er mun meiri en áhættan
við það að láta reyna á traustið. Eigi sambúð kaþólikka
og mótmælenda á Norður-írlandi að byggjast á sátt og
samlyndi í framtíðinni verður fyrr eða síðar að taka
þetta skref. Hinn kosturinn er áframhald átaka,
sprengjutilræða, morða og ofbeldis.
Einsetning
grunnskóla
misjafnlega
á vegi stödd
Grunnskólar landsins skulu vera
einsetnir í árslok 2002. Til að svo
megi verða hefur víða þurft að stækka
skóla og bæta við stofum. Jóhannes
Tómasson ræddi við nokkra sveitar-
stjórnarmenn til að hlera hvernig
gengur að koma þessu í kring.
ENN er nokkuð í land með að grunnskólar í Hafnarfírði verði einsetnir.
Morgunblaðið/RAX
EINSETNING grunnskóla
landsins, sem grunnskóla-
lög gera ráð fyrir, er mis-
jafnlega langt komin. All-
mörg sveitarfélög hafa lokið henni,
sum hver fyrir nokkrum árum, en hjá
öðrum er enn langt í land og ljóst að
einsetningu verður ekki komið á fyrr
en eftir tvö til þrjú ár. Á það helst við
stærri bæi og Reykjavík. Einsetn-
ingu skóla á að vera lokið í árslok
2002 en nokkrir fulltrúar bæjarfélaga
sem Morgunblaðið ræddi við segja að
þörf verði á að gefinn verði árs frest-
ur til viðbótar.
Með samkomulagi ríkis og sveitar-
félaga um kostnaðar- og tekjutil-
færslu vegna flutnings grunnskóla
frá því í mars 1996 var lögum um
tekjustofna sveitarfélaga breytt á
þann veg að útsvarshlutfall var
hækkað til að mæta þeim kostnaði
sem hlaust af flutningi grunnskóla til
sveitarfélaga. Til að tryggja frekar
framgang laganna um einsetningu
grunnskóla leggur ríkissjóður fram
265 milljónir króna árin 1997 til 2001.
Við það er bætt 135 milljóna króna
framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
til lánasjóðs sveitarfélaga í sex ár
þannig að heildarráðstöfunarfé í
þessu skyni nemur 2.135 ______________
milljónum króna. Þetta
fjármagn má veita til að
greiða allt að 20% af stað-
alkostnaði við grunnskóla-
byggingar í sveitarfélög-
um með yfir 2.000 íbúa.
Sum bæjarfé-
lög verða ekki
tilbúin á tíl-
settum tíma
grunnskóla, þar af um 940 milljónum
í viðbyggingar eldri skóla.
Sigrún Magnúsdóttir segir að ein-
setning grunnskólanna sé spennandi
verkefni og gefi möguleika á því að
samræma loks vinnudag nemenda og
foreldra. Gert sé ráð fyrir kennslu til
14 eða 14.30 en þá geti tekið við önn-
ur vinna nemenda eða tómstunda-
starf. „Þetta er skref í þá átt að
breyta samfélaginu og þá getur fólk
treyst því að börnin sæki skólann á
ákveðnum tíma. Með lengingu skóla-
dags og samfelldu skólastarfi verður
stigið stórt skref í rétta átt í því að
skapa enn betra skólastarf og fjöl-
skyldulíf."
Á Akureyri hefur einsetning verið
fyrir hendi síðustu þrjú árin en þar
eru sex almennir grunnskólar með
alls 2.400 nemendum. Nokkrir skólar
búa þó enn við bráðabirgðahúsnæði
en stefnt er að því að á skólaárinu
2002 til 2003 verði allir skólarnir
komnir í varanlegt húsnæði. Vandinn
er í dag leystur bæði með lausum
kennslustofum og leiguhúsnæði.
Framkvæmdir hafa verið í gangi
við Síðuskóla en þeim á að ljúka í
haust, við Lundaskóla standa fram-
kvæmdir yfir sem Ijúka á skólaárið
2000 til 2001 og nokkru
síðar lýkur stækkun Odd-
eyrarskóla. Nýjasti skól-
inn er Giljaskóli sem nú er
einsetinn en ljóst er að
stækka verður skólann á
næstu árum eftir því sem
Kostnaður yfir 7 milljarðar í
Reykjavfk
Af þrjátíu grunnskólum Reykja-
víkurborgar á eftir að koma einsetn-
ingu í gagnið í tíu skólum. Fyrir utan
þessa tölu eru fjórir skólar í bygg-
ingu sem teknir verða í gagnið á
næstu árum að meðtöldu bráða-
birgðahúsnæði á Korpúlfsstöðum.
Einsetningu skólanna í Reykjavík
átti að ljúka árið 2001 en ljóst er nú
að svo verður ekki fyrr en í árslok
2002 eins og lög gera ráð fyrir. Sig-
rún Magnúsdóttir, formaður fræðslu-
ráðs Reykjavíkur, segir það meðal
annars stafa af því að verkefnið sé
umfangsmeira en ráð var fyrir gert
og kostnaðarsamara. Ymsar forsend-
ur hafi breyst og margt reynst dýr-
ara í framkvæmd en séð varð fyrir
þremur árum. Árin 1999 til 2002 er
gert ráð fyrir um 5 milljarða kostnaði
við stækkun skóla og nýbyggingar og
hefur þá verið dregW'Ttá framlag úr
jöfnunarsjóði vegna stofnfram-
kvæmda. Borgin hefur þegar varið
yfir tveimur milljörðum til þessa
verkefnis að sögn Sigrúnar.
Á þessu ári ráðgerir borgin að
verja um 960 milljónum króna í fram-
kvæmdir og eru rúmar 700 milljónir
vegna stækkunar og breytinga á
eldri skólum. Á næsta ári er kostnað-
urinn ráðgerður 1.288 milljónir þar af
860 milljónir vegna einsetningar,
1.294 milljónir árið 2001 og þá fer
rúmur milljarður í framkvæmdir við
eldri skóla og árið 2002 ver borgin
1.488 milljónum í nýbyggingar allra
nemendum fjölgar í skólahverfinu.
Fjárfestingar í skólahúsnæði hafa
síðustu árin numið kringum 100 millj-
ónum króna árlega og verður heildar-
fjárfesting vegna einsetningar nærri
einn milljarður króna.
Einsetningu víða lokið
Lokið er einsetningu grunnskóla í
Kópavogi og segir Björn Þorsteins-
son, hjá fræðslu- og menningarsviði
bæjarins, að í haust sé þriðji veturinn
Grunnskólarnir í Reykjavík iSl
Yfirlit yfir stöðu skólanna í aðalatriðum
og áætlanir um breytingar á næstu árum
Tvísetnir skólar Tími sem áætl. er að tvisetning standi
Skóli || 1999 | | 2000 || 2001 || 2002 ||
Austurbæjarskóli Núverandi húsn. þolir ekki fjölgun nem.
Álftamýrarskóti Tvísetinn Veröur einsettur áriö 2001.
Árbæjarskóli Áætl. aö Ijúka viöbyggingu áriö 2002.
Ártúnsskóli Tvísetinn Áætl. að Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Breiðagerðisskóii Áætl. að Ijúka framkvæmdum áriö 2000.
Breiðholtsskóli Framkv. vegna einsetningar er lokiö.
Engjaskóli Framkv. vegna einsetningar er lokiö.
Fellaskóli Tvísetinn Veröur einsettur árið 1999.
Foldaskóli Tvísetinn Verður einsettur áriö 2002.
Fossvogsskóli Áætl. aö Ijúka viðbyggingu árið 1999.
Grandaskóli Framkv. vegna einsetningar er iokið.
Hagaskóli
Hamraskóli Framkv. vegna einsetningar er lokið.
Háteigsskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2000.
Hlíðaskóli Tvísetinn Veröur einsettur áriö 2002.
Hólabrekkuskóli Tvísetinn Veröur einsettur áriö 2002.
Húsaskóli Framkv. vegna einsetningar er lokið.
Hvassaleitisskóli Tvísetinn Veröur einsettur áriö 2000.
Klébergsskóli Áætl. aö Ijúka viöbyggingu áriö 2001.
Langholtsskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Laugalækjarskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Lauganesskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Melaskóli Tvísetinn Veröur einsettur árið 1999.
Réttarholtsskóli
Rimaskóli Áætl. að Ijúka byggingu skólans áriö 1999.
Selásskóli Tvísetinn Veröur einsettur áriö 2001.
Seljaskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Vesturbæjarskóli Tvísetinn Veröur einsettur áriö 1999.
Vogaskóli Áætl. aö Ijúka framkvæmdum áriö 2002.
Ölduselsskóli Framkv. vegna einsetningar er lokiö.
ALLS munu framkvæmdir við einsetningu skóla í Reylgavík og bygg-
ingu nýrra skóla kosta yfir sjö milljarða króna á sex árum.
sem skólar séu einsetnir. Átta grunn-
skólar eru í Kópavogi með alls 3.200
nemendum. Björn segir að bæjaryfir-
völd hafi sett sér markmið um ein-
setningu áður en lög kváðu á um hana
og því sé staðan þetta góð.
Stækka þurfti elstu skól-
ana, Kópavogsskóila og
Digranesskóla, en að sögn
Björns verður að byggja
hraðar upp nýjasta skólann,
Lindaskóla.
Dagur
nemenda og
foreldra fari
saman
Sex gi-unnskólar eru í Hafnarfirði
með um 3.300 nemendum. Magnús
Baldursson, hjá skólaskrifstofu Hafn-
arfjarðar, segir að markmið um ein-
setningu náist ekki fyrir árslok 2002
hjá bænum. Magnús segir einnig ljóst
að sum sveitarfélög muni þurfa lengri
tíma og meira fé til þessa verkefnis en
samið var um í fyrstu. Tveir grunn-
skólanna verða einsettir næsta haust
en Magnús segir að trúlega verði ekki
allir skólarnir einsettir fyrr en haustið
Mæta verður aukinni kennaraþörf
„ÞEGAR einsetningin verður kom-
in á og skólayfirvöld geta einbeitt
sér að því að byggja upp innra
starf skólans sjáum við ekkert
nema kosti við hana. En á þessari
spýtu hangir annars vegar að ekki
hafa verið gerðar ráðstafanir til að
mæta aukinni kennaraþörf sem ein-
setningunni fylgir og hins vegar að
með henni gefst kennurum í mörg-
um tilvikum ekki kostur á nema
hlutastarfi," segir Jónína Bjart-
marz, formaður samtakanna Heim-
ili og skóli, er hún var spurð hvaða
áhrif einsetning skóia gæti haft i
för með sér.
„Krafa okkar er sú að einn bekk-
ur sé fullt starf en með því skapast
m.a. nauðsynlegt svigrúm til að
sinna samstarfi við foreldra. Því
má heldur ekki gleyma að það er
verið að einsetja grunnskólann við
misjafnar aðstæður. Sums staðar er
nyög þröngt um nemendur og
kennara, sem afleiðing af þessu og
annars staðar vantar fyrir vikið t.d.
aðstöðu til að kenna tilteknar
skyldubundnar greinar, svo sem
heimilisfræði og sund, a.m.k. næst
kennsla 1 þeim grcinum víða ekki
inn í samfellda stundatöfiu."
Jónína segir að ekki sé endilega
samasemmerki milli samfellds
skóladags og einsetningar skóla.
Samfelldur skóladagur ráðist af
aðstöðu hvers skóla um sig s.s. til
íþrótta- og sundkennslu. Víða er
jafnframt unnið að því að nýta
skóiann að loknum hefðbundnum
skóladegi til tónlistarkennslu og
ýmiss tómstunda- og íþróttastarfs
og ná þannig samfelldum vinnu-
degi nemenda, en það er einn
hagnaðurinn af einsetningu
grunnskólans.
„Markmiðið er það að vinnudag-
ur barnanna sé samfelldur sem
bæði þjónar hagsmunum barnanna
og fjölskyldunnar."
Bjartari tíð þegar
uppbyggingu lýkur
Jónína segir engar ráðstafanir
hafa verið gerðar af hálfu ríkis-
valdsins til að mæta aukinni kenn-
araþörf vegna einsetningar og
ljölgunar kennslustunda en ljóst sé
að fjölga þurfi kennaranemum og
stórefla kennaramenntun. Að
óbreyttu rúma Kennaraháskólinn
+ -
og kennaradeild Háskólans á Akur-
eyri ekki þann fjölda nemenda sem
nauðsynlegur er. Nefnd um mat á
kennaraþörf í grunnskólum komst
að þeirri niðurstöðu skólaárið
1999-2000 að það vanti 593 rétt-
indakennara í 423 stöðugildi.
„Formaður fræðsluráðs Reykja-
víkur varpaði því fram þegar verk-
fall kennara stóð siðast fyrir dyrum
að ef veija þyrfti meira fjármagni í
laun kennara og aðra rekstrarliði
skólanna gæti þurft að seinka ein-
setningu. Af þessu m.a. má vera
ljóst að ýmsar úrbætur bíða þess að
einsetningunni sé lokið og fjár-
magni til ýmissa annarra úrbóta.
En við lítum fram á bjartari tíð
þegar uppbyggingunni er lokið.“
2004. Á þessum árum verður alls ná-
lægt 5 milljörðum króna varið til
skólabygginga, þ.e. bæði stækkunar
og til nýrra skóla.
Helmingur grunnskóla í Reykjanes-
_________ bæ er nú einsettur og
verða þeir allir einsettir
frá haustinu 2000. Grunn-
skólarnir eru fjórir. Ellert
Eiríksson bæjarstjóri seg-
ir að ákveðið hafi verið að
.....■■■■ hrinda einsetningunni í
framkvæmd á sem stystum tíma, best
sé ef skólarnir búi allir við sömu að-
stöðu, annars geti komið fram óá-
nægja og metingur. Hann segir að
bærinn hafi varið um 500 milljónum til
stækkunar og breytinga eldri skól-
anna og síðan hafi verið reistur nýr
skóli, Heiðaskóli, sem kostað hafi tæp-
lega 900 milljónir króna þegar allt sé
talið, íþróttahús og sundlaug.
Lokið er einsetningu grunnskóla í
Garðabæ en þeir eru þrír með um
1.300 nemendum. Ingimundur Sigur-
pálsson bæjarstjóri segir að Flata-
skóli og Hofsstaðaskóli, þar sem eru 1.
til 6. bekkur, hafi verið einsettir á
sama tíma í fyrra en Garðaskóli, þar
sem eldri bekkirnir eru, hafi verið ein-
settur í mörg ár.
Ekki heppilegt að fresta
Á fulltrúaráðsfundi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sl. vor var sam-
þykkt bókun um að stjórnvöld fram-
lengdu frestinn til einsetningar.
Nefndu nokkrir sveitarstjórnarmenn
að sum sveitarfélög næðu ekki að
Ijúka þessu verkefni á tilskildum tima.
Aðrir segja að þetta megi ekki taka
lengri tíma, annars komi upp mismun-
un. Sigrún Magnúsdóttir segir að sl£k
mismunun milli skóla sé ekki heppileg
og því muni Reykjavfkurborg leggja
allt kapp á að Ijúka við einsetninguna
á réttum tíma. Þá verði unnt að fara
að grunnskólalögum með samfelldum
skóladegi og segir hún það verða
mikla samfélagslega breytingu þegar
vinnudagur barna og foreldra geti að
mestu leyti farið saman.
Hillary Clinton líkleg til að bjóða
sig fram til öldungadeildar
Reuters
HILLARY Clinton skilaði í gær inn gögnum er gera henni kleiff að hefja
fjáröflun fyrir framboð til öldungadeildarinnar fyrir New York-ríki.
Stofnar nefnd
til að hefja,
fjáröflun
Allt bendir nú til þess að Hillary Clinton
muni sækjast eftir sæti í öldungadeild
Bandaríkjaþings fyrir New York-ríki í þing-
kosningunum á næsta ári. Andstæðingar
hennar í Repúblikanaflokknum eru þegar
farnir að beina spjótum sínum að henni,
einkum á þeim forsendum að hún hafí aldrei
búið eða starfað í ríkinu.
HILLARY Glinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, tók í gær
stærsta skrefið til þessa í átt
til framboðs til sætis í öldungadeild-
inni fyrir Demókrataflokkinn í New
York-ríki, er hún skilaði inn gögnum
til kjörstjórnar, sem gera henni laga-
lega kleift að setja á laggirnar undir-
búningsnefnd til að hefja fjáröflun fyr-
ir kosningabaráttuna. I dag mun Hill-
ary svo hefja fjögurra daga ferð um
miðhluta New York-ríkis, en talsmað-
ur hennar sagði í gær að hún myndi
verja sumrinu í að heimsækja íbúa
ríkisins og hlusta á hvað þeir hafa að
segja.
Núverandi öldungadeildarþingmað-
ur demókrata í New York er Daniel
Patrick Moynihan, en hann gefur ekki
kost á sér til endurkjörs. Moynihan er
sagður styðja framboð Hillary og ekki
er búist við að hún mæti samkeppni úr
röðum demókrata. Hillary bíður þó
væntanlega harður slagur við
sterkasta frambjóðanda repúblikana,
Rudolph Giuliani, borgarstjóra í New
York. Giuliani stofnaði undirbúnings-
nefnd fyrir framboð sitt í apríl og hef-
ur þegar safnað nær þremur milljón-
um dollara (um 220 milljónum ísl. kr.)
í kosningasjóð sinn. Fulltrúadeildar-
þingmennirnir Rick Lazio og Peter T.
King hafa einnig gefið til kynna að
þeir hafi augastað á sæti í öldunga-
deildinni fyrir Repúblikanaflokkinn.
New York-borg hefur lengi verið
vígi demókrata, en talið er að Giuliani
eigi vísan stuðning í úthverfunum og í
sýslunum norður af borginni, þar sem
repúblikanar eiga meira fylgi að
fagna. Skoðanakannanir benda til að
mjótt verði á munum í kosningunum,
en í þeirri nýjustu hefur Hillary 46%
fylgi en Giuliani 44%.
Utanbæjarmanneskja
Það sem helst háir Hillary er að
hún hefur aldrei búið eða starfað í
New York, og eru Giuliani og félagar í
Repúblikanaflokknum þegar farnir að
nota það gegn henni. Giuliani er auð-
vitað öllum hnútum kunnugur sem
borgarstjóri New York, og Lazio stát-
ar af því að vera þar borinn og barn-
fæddur. Að sögn stuðningsmanna
Hillary er hún nú að leita sér að húsi
rétt utan við New York, og hún hefur
þegar leigt sér skrifstofuhúsnæði í
borginni.
Þá þykja fjölmiðlar í New York
vera óvægnari við stjómmálamenn en
víðast hvar, og víst er að þeir munu
þjarma meir að Hillary en hún á að
venjast frá Washington. Giuliani er
hins vegar þrautþjálfaður í að fást við
fréttahaukana.
En forsetafrúin þykir á hinn bóginn
hafa ótvíræða kosti til að bera sem
vinna upp á móti þessum vanköntum
og gera hana að afar álitlegum fram-
bjóðanda. Hún hefur fyrir margt .
löngu sýnt fram á gáfur og góða hæfi-
leika í ræðumennsku og rökræðum, og
þykir hafa mikinn sannfæringarkraft.
Hillary hefur einnig ómetanlegt for-
skot sem felst í því að hvert manns-
barn veit hver hún er, og hún ætti að
eiga auðvelt með að beita vel smurðri
fjáröflunarvél Demókrataflokksins
fyrir sig.
Þrautreynd í kosningabaráttu
En stjórnmálaskýrendur leggja
áherslu á að eigi Hillary að eiga mögu-
leika á að sigra, verði hún að stíga út
úr hlutverki forsetafrúarinnar og
mynda tengsl við íbúa New York-ríkis
sem hver annar frambjóðandi. Ferðir
hennar um ríkið í sumar munu þjóna
þeim tilgangi. Næstu daga mun hún -
heimsækja bæina Binghamton,
Cooperstown, Syracuse, Utica og rík-
ishöfuðborgina Álbany, en ferðin hefst
á táknrænan hátt á búgarði Moyni-
hans í Oneonta.
Gefi Hillary kost á sér í kosningun-
um á næsta ári, verður hún fyrsta for-
setafrú Bandaríkjanna sem sækist eftir
opinberu embætti. Hún hefur aldrei
boðið sig fram í kosningum fyrr, en er
auðvitað þrautreynd á þessu sviði, sem
helsti stuðningsmaður og ráðgjafi eig-
inmanns síns í baráttu hans fyrir kjöri
til embættis ríkisstjóra í Arkansas og
síðar forseta Bandaríkjanna. Þá bjó 4
hún raunar þegar að reynslu sem sjálf-
boðaliði við forsetaframboð Georges
McGoverns árið 1972.
Þó fyrirsjánlegt sé að baráttan við
Rudolph Giuliani verði hörð, ætti
Hillary Clinton að eiga meiri mögu-
leika en flestir aðrir á að vinna sigur
á hinum vinsæla borgarstjóra í New
York.