Morgunblaðið - 07.07.1999, Side 44

Morgunblaðið - 07.07.1999, Side 44
1 •’ 44 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Þetta hlýtur að vera ímyndun mín! Ljóska Ferdinand HEY, CUUCK, D0 YOU EVERTHINK AP0UTC0LLE6E? WELL, NOT REALLY.. TMERE'5 YOUR PRðBLEM. YOUR LIFE DOESN'T HAVE ANY OIRECTION.. Heyrðu, Kalli, hugsarðu einhvern tímann um framhaldsskólann? Ja, eiginlega ekki.. Þarna liggur þinn vandi.. þú stefnir ekki að neinu í lífinu.. A LIFE 5H0ULD BE PLANNED LIKE INNIN6 BY INNIN6.. Lífið ætti að vera skipulagt eins og lota eftir lotu.. I TRIEDTHAT.. THE VI5ITOR5 ARE 5TILL AT BAT„ Ég reyndi það.. gestirnir eru ennþá að BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Sfmbréf 569 1329 Osýnilega stríðið Frá Þórdísi B. Sigurþórsdóttur: FYRIR skömmu beindist athygli Vesturlandabúa og annarra þjóða að stríðinu á Balkanskaga. Um svipað leyti voru þó háð mörg önn- ur stríð i heiminum, þar á meðal í írak. í augum margra lauk Persaflóastríðinu árið 1991, þegar Bandaríkjaher hrakti burt her íraka sem ráðist hafði inn í olíurík- ið Kúveit. Með innrásinni í Kúveit gerði Saddam Hussein leiðtogi Iraks sig líklegan til að ná undir sig einu helsta olíusvæði heims. Bandaríkjaher kom þó íbúum Kú- veit til aðstoðar og yfirbugaði her Saddams Husseins á fáeinum vik- um. Kúveit varð því fljótlega frjálst ríki á ný. Síðan eru liðin 8 ár og lítið hefur verið í fréttum um írak nema kannski öðru hverju þegar við heyrum að Bandaríkja- her hafi varpað þar sprengjum. Þess má geta að lífsgæði í írak allt til ársins 1990 voru svipuð og t.d. í Grikklandi. Heilbrigðis- og menntamál í írak stóðust alþjóð- legan samanburð og voru með því sem best gerðist á Persaflóasvæð- inu. En hvernig skyldi lífið og til- veran vera í Irak nú þegar Banda- ríkjaher er búinn að kasta þar nið- ur um 90 þúsund tonnum af sprengjum? I dag eru lífsgæðin í Irak sam- bærileg við þau sem eru í Afríku- ríkinu Súdan, einu fátækasta ríki heims. Arið 1990 var sett við- skiptabann á írak að hluta til vegna þess að Saddam Hussein leyfði ekki vopnaeftirlit í Irak. Viðskiptabannið á Irak hefur vak- ið óhug margra þar sem áætlað er að 1,5-1,7 miUjónir manna hafi lát- ist í kjölfar bannsins, 60% þeirra börn. í orðsins fyllstu merkingu hrynur fólkið þar niður af hungri, niðurgangi, kóleru og þeim sjúk- dómum er þekkjast, helst í vanþró- uðum löndum. I Irak er vart að finna hreint drykkjarvatn þar sem sprengjur eyðilögðu allt þjónustu- kerfi og menguðu vatnsból. Ekki bætir úr skák að svo til engin lyf eru til í landinu. Læknar og annað hjúkrunarfólk stendur lamað gagnvart ófremdarástandinu sem þar ríkir. Varla er að finna hefð- bundin verkjalyf til að draga úr þjáningum hinna sjúku og deyj- andi. Um 25% af börnum á skóla- aldri ganga alls ekki í skóla og um 70% bamshafandi kvenna þjást af blóðleysi. Árið 1996 var komið á verkefni í Irak sem nefnt hefur verið Olía fyrir mat og byggist á því að írökum er leyft að selja ákveðið magn af olíu til að þeir geti keypt mat og lyf. Verkefnið hefur þó lítið hjálpað og sam- kvæmt Philippe Heffnick, tals- manni Sameinuðu þjóðanna, hafa peningarnir aðeins dugað fyrir hrísgrjónum, hveiti, sykri og linsubaunum, en ekki lyfjum. (Sa- meinuðu þjóðirnar hafa eftirlit með að peningunum sé eingöngu eytt í mat og lyf.) En jjessu er ekki lokið enn því íbúar Iraks eru einnig fyrstir þjóða til að horfast í augu við afleiðingar svokallaðra „DU“-vopna (depleted uranium, sneytt úran) sem Bandaríkjaher notaði fyrst í Persaflóastríðinu. (Sneytt úran er afgangsefni sem verður til þegar verið er að auðga úran til notkunar í kjarnavopn og kjarnorkuver. Bandaríski herinn notar sneytt úran í sprengjuodda til að sprengjukúlur komist betur í gegnum brynvarnir. Ef sprengju- kúla úr sneyddu úrani fer í gegn- um stál brennur úranið og sendir eitrað geislavirkt úran-ildi út í andrúmsloftið sem ryk og reyk. Þegar menn anda rykinu að sér og taka það inn í líkamann verður það hættulegt heilsu þeirra og lífi.) Allt að 800 tonnum af þessum geislavirka úrgangi hefur verið dreift yfir írak. Arið 1994 tóku hvítblæði og fæðingargallar á afar háu stigi að gera vart við sig með- al barna í Irak og skildu læknar hvorki upp né niður í þeim van- skapnaði sem fyrir augu bar. í fyrstu var fyrirbærið ekki rakið til sneydds úrans þar sem fáir höfðu svo mikið sem hugmynd um að þessi vopn hefðu verið notuð í Persaflóastríðinu. Rannsóknir hafa sýnt að vanskapanir barna í Irak annars vegar og barna bandarískra hermanna sem urðu fyrir úranmengun í Persaflóa- stríðinu hins vegar, eru af sama toga. Dr. Helen Caldicott er ein þeirra Bandaríkjamanna sem helgað hefur líf sitt baráttunni gegn kjarnorkuvopnum og þar með töldum vopnum sem inni- halda kjarnorkuúrgang. Hún kall- ar stríðið í írak „eins konar kjarn- orkustríð" vegna þess gífurlega magns af geislavirkum kjarnorku- úrgangi sem hefur verið dreift þar. Bandaríkjaher notaði einnig vopn með sneyddu úrani í Bosníu árið 1995 og í Serbíu og Kosovohéraði árið 1999. Ekkert lát er á framleiðslu þessara vopna í Bandaríkjunum og enn eru þar til a.m.k. 500 hundruð þúsund tonn af sneyddu úrani. Að lokum er rétt að taka fram að ég er ekki að draga úr ruddaskap einræðisherranna Saddams Husseins og Slobodans Milosevie - en spyrja má hvort þetta sé eina leiðin til að leysa alþjóðadeilur sem þessar og hversu líkleg jafn illa haldin þjóð og írakar sé til að reyna að steypa leiðtoga sinum af stóli? • (Byggt m-a- a skýrslum Sameinuðu þjóðanna, dr. Helen Caldicott læknis og annarra sem beita sér gegn notkun þessara vopna og fyrir því að viðskiptabanninu á frak verði aflétt.) ÞÓRDÍS B. SIGURÞÓRSDÓTTIR viðskiptafræðingur, 58-E Massolo Dr. Pleasant Hill, CA 94523 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.