Morgunblaðið - 07.07.1999, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
J 48 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999
á^LEIKFÉLAGljlé
®fREYKJAVÍKURj®
18117- 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
A SÍÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
iitta IxHjUutýfbúðUi
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
fim. 8/7, uppselt
fös. 9/7
lau. 10/7
fim. 15/7
fös. 16/7
lau. 17/7
Ósóttar pantanir seldar daglega
Litla sviðið:
Ormstunga
Aðeins 3 sýningar
í kvöld mið. 7/7 kl. 20 UPPSELT
fim. 8/7 kl. 17
fös. 9/7 kl. 17
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
5 30 30 30
NHasala opn Irá 12-18 oglrapiaö sýningu
symwanlaga. OpB Irá 11 lyi* hádetfsleMiisB
sósa
HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00
Mið 7/7 örfá sæti laus
Fim 8/7 örfá sæti laus
Fos 9/7 örfá sæti laus,
Mið 14/7, Rm 15/7, Fös 16/7
í s ú p u n n i
SNÝRAFTUR
Fös 9/7 kl. 23.00 í sölu núna
Lau 10/7 kl. 23.00 i sölu núna
Sun 11/7 kl. 20.00 í sölu núna
Mið 14/7 kl. 20.00 í sölu núna
Fim 15/7 kl. 23.00 í sölu núna
Miðftinfln
lau 10/7 kl. 19.00.
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsláttir af mat fyrir leikhúsgesti I Iðnó.
Borðapantanir í sima 562 9700.
Gamanleikrit I leikstjórn
Siguróar Sigurjónssonar
Fös 9/7 kl. 20 örfá sæti
Lau 10/7 kl. 20 örfá sæti
Fös 16/7 kl. 20
Lau 17/7 kl. 20
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10
FÓLK í FRÉTTUM
HAGYRÐINGALIÐIÐ og stjórnandinn.
Hagyrðingakvöld Rökk-
urkórsins í Miðgarði
Vísur fáum veita grið,
víða broddar stinga.
- Hjálmar svaraði samstundis:
Svo Flosi, árans ófétið,
er alveg hreint að springa.
Sigurður Hansen botnar þetta:
En það mun ekki eiga við,
okkur Skagfirðinga.
Flosi gerði að umtalsefni mun á
Norðlendingum og Sunnlendingum
og sagði þá fyrmefndu með mikil-
mennskubrjálæði á meðan hinir
þjáðust af minnimáttarkennd.
Þessu til sönnunar benti hann á að
norðanlands bættu menn alltaf við
öll orð forskeyti sem stækkaði, og
þannig hétu flestir bæir Stóra-,
Háa-, Mikla- eitthvað og mannanöfn
hefðu mikið í upphafi Aðal-, meira
að segja bláber væru ekki bara blá-
ber heldur aðalbláber, bara á Norð-
urlandi. Þetta sagði Flosi að kæmi
illa við sig enda sjálfur ættaður
bara frá Neðra Hundagerði á Kjal-
arnesi.
Eitt sinn er Ami Bjarnason dóm-
ari hafði veitt Flosa rautt spjald og
Flosi gert nokkrar athugasemdir
við dómgæsluna, launaði Ami
nefndarformaður Flosa athuga-
semdina.
Ekki alveg laust
við tvíræðni í
kveðskapnum
Engan þarf að undra að,
ekki meira verði.
Ei fæddur er á fógrum stað,
Flosi í Hundagerði.
Fram kom fyrriparturinn:
í Skagafirði fljóðin snjöll,
fara á kosta gangi,
- Þetta botnar Hjálmar:
Enginn tekur út sinn hest,
þó alla til þess langi.
Hagyrðingai’ voru spurðii- um
það hvort og hvenær Jón Bjarna-
son, nýkjörinn þingmaður Skagfirð-
inga, yrði forsætisráðherra. Þessu
svarar Arni Gunnarsson:
Ef ég væri algert flón,
og öllu vildi fórna.
Héldi ég bara Hóla-Jón
hæfan til að stjórna.
Spurt var hvort líklegt væri að
Bólu-Hjálmar hefði ort betur um
Blönduhlíð ef hann hefði notið bam-
eignabóta þeirra sem nú em þar
greidd. Jón Kristjánsson yrkir í
orðastað Hjálmars:
Mjósleginn lít ég merar kvið,
menn eru uppi í rúmi að barna.
Nafni minn asnast í íhaldið,
ástandið er að versna þarna.
Eftir að Hjálmar Jónsson fékk
spjald orti hann í orðastað dóm-
nefndarmanns:
Ég kætist þegar kvölda fer,
og karlinn tekur góðan sprett.
En þegar morgnar aftur er
af mér þungu fargi létt.
Þá var komið að því að
meta botna við gefinn
fyrripart, sem var eftirfar-
andi, og vísaði tO ferðalags
kórsins sem framundan var:
Hafa flökku hugarsveim,
heillar dökkur bjórinn
- fyrstu verðlaun, eðalviskí,
hlaut EgOl Helgason:
KRISTIN og Helgi Gunnarsson
skemmtu sér vel.
Fylkir liði sínuSveinn,
(en Sveinn Árnason er stjórnandi
kórsins)
sunnan Alpafjalla,
- og Sigurður Hansen botnar:
Tæpast verður tími neinn,
til að drekka og svalla.
Og var nokkur reki í rómi Sigurðar,
enda einn af kórfélögum.
Þá kom fyrripartur um fólksflótta
úr sveitunum, sem mörgum líst á
miður vel.
Fjölga þyrfti fólki á ný,
í flestum sveitum landsins.
- og Jói botnar:
Ýmsir sinna ættu því,
- utan hjónabandsins.
Næst kom:
„Af alhug þökkum öllum þeim,
sem efla Rökkurkórinn."
Onnur verðlaun, konfektkassa,
hlaut Kristján Runólfsson:
Fótum skökkum fer þar heim,
fullur, Rökkurkórinn.
Þriðju verðlaun, en það voru
gúmmískór af stærstu gerð, svo
stórir að talið var að annar skórinn
dygði, hlaut Reynir Hjartarson:
Dísa frökk út djöflar þeim,
(Ardís Bjömsdóttir er formaður
kórsins)
Daprast klökkur stjórinn.
Þannig létu menn gamminn geisa
og var komið langt fram yfir mið-
nætti þegar þrotið var örendi þeii-ra
ágætu hagyrðinga sem þama vora
saman komnir, og Flosi stjómandi
þakkaði þeim sem gerðu þetta kvöld
eins ánægjulegt og orðið hefði og
bauð góða nótt.
ÞAÐ BÁRUST hlátrarsköll langt út
á bílastæði félagsheimilisins Mið-
garðs á tíunda tímanum síðastliðið
föstudagskvöld, en þá hélt Rökkur-
kórinn í Skagafirði hagyrðinga-
kvöld. Flosi Ólafsson leikari stýrði
gleðskapnum en kórinn er á leið til
Portúgal og var kvöldið liður í fjár-
öflun til ferðarinnar.
í upphafi fór Flosi á kostum,
sagði sögur og fór með vísur og
lagði í máli sínu nokkuð línuna með
það sem á eftir fór. Að loknum upp-
hafsorðum stjómandans voru kall-
aðir til hagyrðingamir sem
skemmtu gestum með alls kyns
gamanmálum langt fram yfir mið-
nætti, en þeir vom: Sigurður Han-
sen, Jón Kristjánsson, Jóhann Guð-
mundsson, betur þekktur sem Jói í
Stapa, Hjálmar Jónsson, Friðrik
Steingrímsson og Árni Gunnarsson.
Fór skemmtunin fram með hefð-
bundnum hætti, þannig að menn
botnuðu fyrriparta og köstuðu
einnig fram stöku stökum, eftir því
sem tilefni gáfust. Um miðbik
kvöldsins fluttu þeir Agnar Gunn-
arsson og Einar Halldórsson þátt
úr leikritinu „Manni og konu“, við
góðar undirtektir áheyrenda.
Þá var einnig mætt á svæðið dóm-
nefnd, þau Þórey Helgadóttir, Ami
Bjamason og Guðrún Amadóttir,
sem skyldi meta botna við
auglýstan fyrripart, en
einnig átti þessi sama dóm-
nefnd að meta það hvort
þátttakendur færu yfir vel-
sæmisstrikið í kveðskap sín-
um og fengu menn ýmist gul
eða rauð spjöld eftir því á
hverju gekk.
Helst vora það stjómand-
inn, Flosi, og svo Hjálmar
Jónsson sem spjöldin fengu,
en þó var sá síðamefndi
varla hálfdrættingur á við
stjómandann. Taldi þó Friðrik að
varla væri við þá hagyrðinga að
sakast þegar stjórnandinn hefði
opnað kvöldið með þriggja kortera
klámræðu.
í kveðskap sínum komu hagyrð-
ingamir víða við og til dæmis varp-
aði Jói í Stapa fram fyrripartinum:
Hér er komið karlalið,
sem karlrembuna metur.
- og var svarað af bragði:
Keppast munu klámið við
hver sem betur getur.
Jón Kristjánsson varpaði fram
fyrripartinum:
Hjá Rökkurkór ei ríkir þögn,
hér rölta hagyrðingar inn.
- og Hjálmar botnar:
Þekkja ekki aparögn,
ofan þindar kveðskapinn.
UNGA fólkið lét sig ekki vanta ...
... né hinir sem eldri eru.
skemmtu sér konunglega.
En stjórnandinn gerði Jóni að
koma einnig með sinn botn sem var
svona:
Agætir, - að eigin sögn,
er þeir stagla leirburðinn.
Flosi gerði að umtalsefni að menn
bæru á sig að hann væri klæminn í
öllu sínu máli þar sem hann væri að
skemmta, eða stjóma kvöldi eins og
þessu, og virtist þetta koma honum
nokkuð á óvart.
Ámi greip þetta á lofti og sendi
honum vísu:
Flosi er með harðan haus,
á hann mun stjórnin dæmast.
Nú er hann orðinn náttúrulaus
og notaður til að klæmast.
Um ferð Rökkurkórsins til Portú-
gals kom þessi fyrripartur: