Morgunblaðið - 09.07.1999, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Slökkvilið Hafn-
arfjarðar 90 ára
SLÖKKVILIÐ
Hafnarfjarðar var
stofnað 9. júlí 1909 og
er því 90 ára um þessar
mundir. Tildrögin voru
þau að Hafnarfjörður
fékk kaupstaðarrétt-
indi árið áður og tókst
þá á hendur ýmsar
skyldur. Stofnun
slökkviliðs var þar á
meðal og fyrsti slökkvi-
liðsstjórinn var Jó-
hannes J. Reykdal en
hann lét af því starfi
árið 1910. Hér verður
stiklað á stóru í sögu
slökkviliðsins um leið
og slökkviliðsstjóran-
um, Helga Ivarssyni, og starfs-
mönnum hans eru færðar góðar
kveðjur í tiiefni afmælisins. Hér er
einkum stuðst við umfjöllun Asgeirs
Guðmundssonar í Sögu Hafnar-
fjarðar, II. bindi, sem kom út árið
1983.
Brunamálanefnd var stofnuð 7.
febrúar árið 1910 og áttu sæti í
nefndinni Magnús Jónsson bæjarfó-
geti, Sigurgeir Gíslason slökkvOiðs-
stjóri, Sigfús Bergmann kaupmað-
ur, Einar Þorgilsson kaupmaður og
Kristinn Vigfússon trésmiður. Þá
var eldvarna- og slökkviliðinu skipt
í þrjá flokka: I fyrsta hluta þess var
slökkviliðið sjálft en það var annars
vegar skipað slökkvidæluliði og
vatnsburðarliði. I öðrum hluta var
húsrifs- og bjarglið og lögreglulið í
þriðja hluta.
Kennarar undanþegnir
Fyrstu árin hafði slökkviliðið að-
stöðu í kjallara barnaskólans við
Suðurgötu. Þá voru
menn skipaðir í liðið og
fyrsta árið fengu 274
menn slík bréf þar sem
þeim var sagt í hvaða
flokki þeir ættu að
vera. Þetta voru allir
verkfærir menn í bæn-
um. Síðar voru kennar-
ar undanþegnir
slökkvistörfum því
kennsla hafði raskast
vegna slökkvistarfa og
æfinga. Og slökkviliðið
hafði fleiri verkefni en
að slökkva elda. Líkt
og nú sinnti það eld-
vömum og réð til
dæmis sótara til þess
að hreinsa reykháfa. Hann fékk
eina krónu fyrir hvern háf. Tækja-
Afmæli
Kennarar voru undan-
þegnir slökkvistörfum,
segir Magnús Gunnars-
son, því kennsla hafði
raskast vegna slökkvi-
starfa og æfinga.
kostur gekk fljótlega úr sér en á ár-
unum 1931-32 var gerð veruleg
bragarbót þar á, t.a.m. voru keyptar
véldælur og brunahönum fjölgað.
Húsnæðið í barnaskólanum var orð-
ið of lítið og þá var slökkviliðið flutt
í vörugeymsluhús á Vesturgötu 6
þar sem Sjóminjasafnið er nú til
Magnús
Gunnarsson
UMRÆÐAN
MYNDIN er tekin árið 1958 af Slökkviliði Hafnarfjarðar fyrir utan
slökkvistöðina á Vesturgötu 6, þar sem Sjóminjasafnið er nú til húsa.
Fremstir hægra megin á myndinni eru, frá vinstri, Garðar Benediks-
son varðmaður, sem nú væri kallað að vera varðstjóri, Sigurður Gísla-
son varaslökkviliðsstjóri og frakkaklæddur er Valgarð Thoroddsen
slökkviliðsstjóri.
húsa. í árslok 1933 var 41 maður í
aðalliði slökkviliðsins og útkallskerfi
var eitt hið fullkomnasta sinnar teg-
undar: Fimm brunaboðar voru í
bænum og þeir voru í sambandi við
19 branabjöllur heima hjá slökkvi-
liðsmönnum. Enn var því þannig
hagað að engir voru fastráðnir
slökkviliðsmenn heldur kvaddir til
frá störfum sínum. Árið 1933 var
keyptur bíll til flutninga, sá bíll er
nú á sýningu Byggðasafns Hafnar-
fjarðar í Smiðjunni, og 1947 var
keyptur sérstakur brunabfll sem
tekinn var í notkun 1948.
Fiskverkun við Flatahraun
í nóvember 1970 samþykkti bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar að keypt
yrði fískverkunarhús Torfa Gísla-
sonar við Flatahraun og árið 1971
var hafist handa við að innrétta
húsið fyrir slökkviliðið. Þetta sama
ár var brunamálanefnd endurvakin
en hún hafði verið lögð niður árið
1951. Formaður nefndarinnar nú á
nítugasta afmælisári liðsins, er
Jakob Kristjánsson. Nýja slökkvi-
stöðin var tekin í notkun um miðj-
an maí 1974. I september sama ár
tók slökkviliðið að sér sjúkraflutn-
inga í bænum sem Rafveitan hafði
sinnt fram að því. Á þessum árum
voru fjórir brunaverðir í föstum
störfum við slökkviliðið en með
nýju húsnæði og efldri starfsemi
var þeim fjölgað um átta og voru
þá tólf.
Nú eru 23 stöðugildi við Slökkvi-
lið Hafnarfjarðar. Fimm menn eru
á vakt, tveir á sjúkrabifreið og þrír
á dælubifreið. Með nýjum samningi
við Neyðarlínuna hf. leggst neyðar-
símsvörun af á slökkvistöðinni og
flyst öll símþjónusta vegna neyðar-
tilvika á símanúmerið 112. Slökkvi-
liðið hefur yfir að ráða þremur
dælubifreiðum og er meðal þeiira
„Nýi bfllinn“ sem svo var kallaður
þegar hann kom nýr árið 1954 og
heldur enn því sæmdarheiti. Þá
mannar slökkviliðið tvo sjúkrabfla
Rauða krossins og verið er að
standsetja stigabfl sem keyptur var
notaður frá slökkviliði Keflavíkur-
flugvallar.
Margvísleg verkefni
Verkefni slökkviliðsmanna eru
margvísleg og þótt broslegt megi
virðast þá sinna þeir enn útköllum á
borð við að bjarga köttum ofan úr
trjám. Því miður eru útköllin þó
mörg hver mjög alvarleg og
skammt er síðan grípa þurfti til eit-
urefnabúninga vegna slyss í skipi
sem lá við landfestar í Hafnarfjarð-
arhöfn. Gera má ráð fyrir um 30
flutningum sjúkrabifreiða á viku,
þar af er um þriðjungur vegna slysa
eða bráðatilfella af öðrum toga. Þá
má ennfremur geta þess að slökkvi-
liðsstjóri er framkvæmdastjóri al-
mannavai'nanefndar fyrir umdæmi
slökkviliðsins og er það því veiga-
mikill þáttur í almannavörnum
Hafnarfjarðar og nágrannasveitar-
félaga okkar.
Slökkvflið Hafnarfjarðar hefur í
90 ár verið mikilvægur þáttur í ör-
yggismálum í Hafnarfírði, Garðabæ
og Álftaneshreppi. Umsvif slökkvi-
liðsins aukast sífellt og ljóst er að
framundan eru breytingar í málefn-
um þess. Ymsir möguleikar verða
kannaðir en hverjum manni má
vera ljóst að hvergi verður slakað á
öryggiskröfum er varða sveitarfélög
á svæði slökkviliðsins.
Eg þakka öllum þeim fjölmörgu
sem starfað hafa að þessum mikil-
væga öryggisþætti í samfélagi okk-
ar Hafnfírðinga á umliðnum ára-
tugum. Megi starfsmenn Slökkvi-
liðs Hafnarfjarðar áfram njóta far-
sældar í störfum sínum um ókomin
ár.
Höfundur er bæjarstjóri.
Að skapa varanleg-
an heimsfrið
ATBURÐIRNIR sem
hafa átt sér stað und-
anfarið í Kosovo sanna
að ofbeldi getur af sér
ofbeldi. Tækni okkar
til þess að tortíma
hvert öðru hefur þró-
ast gríðarlega. Er ekki
tími til þess kominn að
nota betri tækni til
þess að skapa frið?
„Aðeins ný frætegund
getur gefíð af sér nýja
uppskeru, aðeins ný
þekking getur skapað
heilbrigt, framfara-
sinnað, samstillt þjóð-
félag og friðsaman
heim,“ segir Maharishi
Mahesh Yogi, sem er einn þekkt-
asti vísindamaður og kennari
heimsins á sviði vitundar.
Til þess að bæla niður átök er
friðargæslulið sent heimshlutanna
á milli fyrir stórfé og mikla áhættu,
stjórnmálamenn þrýsta á friðar-
samkomulag milli stríðandi afla.
Samt sem áður tekst
yfírleitt aldrei að við-
halda varanlegum
friði. Sagan segir okk-
ur að á undanförnum
3.000 árum hafi fleiri
en 8.000 friðarsamn-
ingar verið undirritað-
ir og hafa þeir að með-
altali enst í 9 ár. Árið
1945 voru Sameinuðu
þjóðirnar stofnaðar
með það að markmiði
að koma í veg fyrir öll
stríð í framtíðinni. Sa-
meinuðu þjóðimar
hafa því miður brugð-
ist þessu hlutverki
sínu, enda hafa verið
háð meira en 150 meiriháttar stríð
í heiminum frá stofnum SÞ. En
hvert er meinið?
Orsök glæpa og stríðsátaka
Það sem hefur farið aflögu, að
sögn Maharishi Mahesh Yogi, er
að ekki hefur verið tekið á
grunnorsök ofbeldis, bæði hvað
varðar glæpi og stríðsátök, en það
er samansöfnuð streita þjóðfélags-
ins sem brýst skyndilega út. Ef
samvitund þjóðar er full af streitu
og afvegaleidd, er óhjákvæmilegt
að ofbeldi brjótist út, alveg eins og
stressaður einstaklingur gýs reiði
og neikvæðni. Þessi tegund hegð-
unar einstaklings og hópa brýtur
lögmál náttúrunnar, sem hefur í
för með sér vandamál á öllum
sviðum lífsins. Þörf er á algjörlega
nýjum aðferðum, sem geta dregið
Ihugun
Innhverf íhugun,
segir Ivanka Sljivic,
er einföld, áreynslu-
laus tækni sem kyrrir
starfsemi hugans.
úr hættunni á aukinni streitu og
átökum á þeim stöðum heimsins
þar sem ólga ríkir. Til allrar ham-
ingju er slík aðferð til, hún hefur
verið þróuð undanfarin 40 ár og
hefur nú þegar sannað ágæti sitt.
Innhverf íhugun
Innhverf íhugun er einföld,
áreynslulaus tækni sem kyrrir
starfsemi hugans með því að leiða
athyglina að fíngerðari stigum
hugsunarferlisins þar til komið er
að uppsprettu hugsunarinnar djúpt
innra með okkur. Það er þar sem
allar hugsanir byrja, svið tærrar
vitundar sem er einfaldasta form
mannlegrar vitundar.
Nútíma eðlisfræði hefur komið
auga á svið óendanlegrar orku og
greindar - samsvið - sem liggur
til grundvallar öllum kröftum og
efnisögnum í náttúrunni. í þessu
sviði er aðsetur allra lögmála
náttúrunnar. Og þar sem við er-
um hluti af náttúrunni hlýtur
samsviðið að vera grundvöllur til-
veru okkar. Hin fornu vedafræði,
þaðan sem innhverf íhugun er
upprunnin, uppgötvuðu samsvið
náttúrulaganna sem svið tærrar
vitundar við uppsprettu hugsun-
arinnar. Innhverf íhugun er fram-
vinda til að komast í samband við
þetta grunnsvið lífsins, upp-
Ivanka
Sljivic
sprettu tærrar greindar sem býr
innra með okkur. Á sama tíma
fær líkaminn afar djúpa hvíld sem
gerir honum fært að losa djúpa
streitu sem hefur safnast fyrir á
löngum tíma. Afleiðingin er sú að
hugsun og athafnir verða sjálf-
krafa meira og meira í samræmi
við þróunarafl náttúrulaganna og
líf einstaklingsins rís til æðstu
verðleika.
Einstaklingurinn er grund-
vallareining heimsfriðar
Til þess að skógur sé grænn
verða öll trén í honum að vera
græn. Á sama hátt, þegar við tölum
um friðsaman heim, erum við að
tala um heim friðsamra einstak-
linga. Aðeins þegar menn byrja að
lifa sjálfkrafa í samræmi við lögmál
náttúrunnar er hægt að tala um
varanlegan heimsfrið og stórstígar
framfarir í heiminum. I upphafi
hreyfíngar sinnar spáði Maharishi
því að þegar 1% jarðarbúa iðkaði
innhverfa íhugun yrðu ekki fleiri
stríð í heiminum. Fyrsta rannsókn-
in er staðfesti þessa spá var gerð í
desember 1974, þegar vísindamenn
mældu breytingar á lífsgæðum í
fjórum borgum í Bandaríkjunum
þar sem 1% borgarbúa iðkuðu inn-
hverfa íhugun. Niðurstöðurnar
sýndu fækkun glæpa í þeim borg-
um á sama tíma og glæpir jukust í
öðrum borgum og í landinu sjálfu.
Umfang rannsóknanna var þá auk-
ið og 48 borgir með 1% íbúa sem
íhuguðu, voru rannsakaðar og nið-
urstöðumar urðu á sömu leið. Þær
voru birtar í Journal of Críme and
Justice (vol. iv,’81) í Bandaríkjun-
um.
Frekari rannsóknir hafa sýnt að
með viðbótartækninni innhverf
íhugun - sidhi kerfíð, er þörf á mun
færra fólki, eða aðeins kvaðratrót
af 1% íbúa, til að skapa sömu áhrif
(kvaðratrót af 1% allra jarðarbúa
er um 7.000). Þessi samræmandi
áhrif á allt þjóðfélagið eru kölluð
Maharhisi-áhrif.
í janúar 1984 komu 7.000 sér-
fræðingar í þessari íhugunartækni
saman í Maharishi Alþjóða háskól-
anum í Iowa í Bandaríkjunum með
það að markmiði að skapa bylgju
samræmis í öllum heiminum.
Rannsóknir sýndu að samstundis
jókst jákvæðni í alþjóðadeilumál-
um og glæpum fækkaði verulega á
heimsvisu. En eftir að þessari
íhugunarráðstefnu lauk - hvað
gerðist þá? Þá féll allt í sama
gamla farið aftur, neikvæðni, of-
beldi og átök í heiminum jukust á
ný-
En rannsóknir á Maharishi-
áhrifunum héldu áfram og nú hafa
verið gerðar yfir 40 samskonar
þjóðfélagsrannsóknir sem hafa
birst í flestum leiðandi vísindatíma-
ritum heimsins, t.d. Journal of
mind and behaviour, Social ind-
icators research o.fl. Hér er m.ö.o.
verið að tala um vísindalega sann-
aða aðferð til að skapa varanlegan
frið í heiminum. Niðurstöður þess-
ara rannsókna má finna á heima-
síðu Islenska íhugunarfélagsins:
http://www.yoga.is
Eins og við getum séð hefur
áætlun um að skapa samstillingar-
áhrif marg oft borið góðan árangur
í mörgum löndum til að minnka al-
þjóðleg átök, glæpi og ofbeldi. Or-
sök vandamála liggur dýpra en í
trúarbrögðum fólksins, kynþáttum
eða stjórnmálaskoðunum.
I stofnskrá SÞ stendur að stríð
byrji í hugum mannanna og það er
í hugum mannanna sem friðinn
verður að skapa. Aðeins með því
að leysa upp streitu í samfélaginu
er hægt að leysa vandamálin. Með
stórum samstillingarhóp sem not-
ar samsviðstæknifræði eins og
innhverfa íhugun og sidhi-kerfið,
getum við fengið skjótan árangur
eins og 40 vísindarannsóknir sýna
fram á. Spenna mun minnka og
varanlegar friðsamlegar lausnir
sem færa öllum ánægju munu
koma í ljós. Þetta er tækifæri fyrir
heiminn, þetta er tækifæri fyrir
allar þjóðir.
(Heimildir: Transcendental Meditation eft-
ir Robert Roth.)
Höfundur er kennari
í innbverfri íhugun.