Morgunblaðið - 09.07.1999, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Richard Gere á von á barni
RICHARD Gere og kærastan hans,
Carey Lowell.
NÚ hlýtur Cindy
v Craword að vera al-
veg rugluð í ríminu
því fyrrverandi
maðurinn hennar,
Richard Gere, á von
á barni með nýju
kærustunni sinni
Carey Lowell.
Ástæða þess að
Gere og Crawford
skildu á sínum tíma
var sú að hún vildi
eignast barn en ekki
hann.
í viðtali við hið út-
J breidda bandaríska kvennablað
„Redbook" stuttu eftir skilnaðinn
sagði Crawford að Gere hefði
vitað að börn yrðu að vera hluti
af heildarpakkanum og að hún
hefði ekki nennt að bíða að eilífu
eftir því að hann yrði tilbúinn að
gangast undir þá skuldbindingu
að eignast með henni barn. Hún
fann svo mann sem var tilbúinn,
og gengu þau Randy Gerber,
næturklúbbaeigandi og fyrrver-
andi fyrirsæta, í hjúnaband fyrir
ári og eignuðust svo soninn
Presley Walker nú í byijun mán-
aðarins.
Afstaða Gere til barneigna
virðist breytt með nýrri konu og
mun Lowell eiga von á sér
snemma á næsta ári. Hún er sjálf
fyrrverandi fyrirsæta og leik-
kona og Iék hún meðal annars í
sjúnvarpsþáttunum „Law &
Order“. Þetta er annað barn
hennar en hún á barn með leik-
aranum Griffith Dunne. Það þarf
vart að taka það fram að þetta
verður fyrsta barn Gere.
HAPPDRÆTTI
das vinningaSirfájöt
Vinningaskrá
9. útdráttur 8. júlí 1999
Bif reiðavinningur
Kr. 2.000.000___Kr. 4.000.000 (tvðfaidur)
69636
F erðavinningut
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
7554
11539
41891
43748
F erðavinningur
Kr. 50,000 ____Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6911 28146 35317 43962 46168 71011
19831 33693 41010 44774 59298 72944
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
143 9839 17420 29213 37765 45916 61918 70537
217 10060 17624 29603 37990 49144 62323 71921
313 10999 18563 32220 38523 49958 62770 72052
2937 11658 18577 33045 39083 52572 63706 72079
3132 11932 18869 33554 40303 52771 64042 73601
3670 12561 20618 33706 40321 53169 64825 76174
3676 14438 21640 33775 40602 53344 64992 76586
5386 14569 22659 34052 41524 57040 66936 78399
7723 15705 23507 34497 41714 57709 67492 79514
8583 16262 25293 35559 42591 59812 68900
9266 16290 25793 35693 43175 60186 69110
9456 16737 28170 36162 44478 60650 69999
9801 17087 29169 36482 45522 60683 70126
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 J Kr. 10.000 (tvðfaldur)
402 10827 20200 29145 40005 50086 59435 68998
462 10944 20249 29328 40015 50269 59594 69414
882 11683 20432 29871 40404 50550 59763 69639
2334 11723 20627 30025 40915 51310 59873 70032
2528 12272 20762 30195 41870 51802 60290 70362
2683 12853 20785 30345 42798 52098 60589 70507
2732 12871 20944 30436 43650 52599 60984 71207
3334 13040 21135 30442 43664 52865 61016 72782
4002 13380 21335 31320 43736 53450 61525 72829
4386 13574 21429 31600 44110 53462 61943 74385
4501 14142 22084 32117 44294 53475 62052 75726
4640 14469 22164 32725 45214 54122 62443 75728
4764 14529 22420 33664 45608 54193 62621 76369
4985 14658 22427 34509 45663 54280 63366 76815
5417 14687 22566 34786 46071 54511 63423 76841
5444 15175 23838 34817 46743 54711 63761 77311
5673 15656 24231 35748 46966 54933 64081 77641
6412 16157 24379 35960 47407 54936 64363 77662
6633 16288 24876 36249 47800 55364 64507 77666
6726 16613 25006 36698 47926 56202 64810 78030
6965 16657 25090 36699 48211 56319 65802 78165
7076 17570 25177 37072 48224 56911 65939 78910
7364 17594 25205 37699 48369 57447 66164 78966
7942 17772 25304 38137 48436 57505 66556 79312
8353 17981 25478 38265 48444 57528 66686 79692
8735 17988 25521 38347 48675 57632 67111 79850
9171 18185 25641 39053 48718 57713 67824
9278 18336 25697 39144 48909 57962 68065
9876 18434 25877 39369 48943 58451 68187
10048 19354 26567 39542 49025 59066 68245
10136 19814 26832 39595 49838 59170 68549
10699 19979 28354 39790 49905 59317 68856
Næstu útdrættir fara fram 15. 22. & 29. júlí 1999.
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Fjórða platan með íslandslögum í vinnslu
KARLAKÓRINN Fústbræður er meðal flytjenda á íslandslögum 4.
Islenskar dægur
perlur hafnar til
vegs og virðingar
ÞEGAR eru komnir út þrír geisla-
diskar í Islandslagaröðinni og verið
er að leggja lokahönd á þann fjórða
um þessar mundir. Gunnar Þórðar-
son framleiddi og stjórnaði upptök-
um á fyrsta disknum en Björgvin
Halldórsson hefur séð um hina þrjá.
Margir flytjendur hafa komið við
sögu á Islandslögum, sem hafa not-
ið mikilla vinsælda bæði hér heima
og erlendis.
„Markmiðið með útgáfu diskanna
er að endurgera helstu perlur ís-
lenskrar dægurtónlistar og færa
þær í nýjan búning, þannig að þeim
verði haldið á lofti en falli ekki í
gleymsku," sagði Björgvin. „Reynt
var að hafa lagavalið sem breiðast á
þessum fjórða diski sem inniheldur
nokkur af ástsælustu lögum sem
samin hafa verið á öldinni." Þar á
Björgvin við lög eins og Nú sefur
jörðin, Rósin, Kata rokkar, Komdu í
kvöld og Ég vildi ásamt fleirum.
Diskurinn er því tímamótaverk með
íslenskum dægurperlum enda nýtt
árþúsund að hefjast.
Flytjendur í sérflokki
„Vinnan að plötunni er nú á loka-
stigi og hefur verið ánægjuleg og
gengið mjög vel,“ sagði Björgvin og
bætti við að flytjendur, bæði söngv-
arar og tónlistarmenn sem að
disknum koma væru í sérflokki.
Söngvarar eru auk Björgvins, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafsson,
Bubbi Morthens, Guðrún Gunnars-
dóttir, Bjami Arason, Sigríður
Beinteinsdóttir og Karlakórínn
Fóstbræður. Hljóðfæraleikararnir
eru margir hverjir þeir bestu á sínu
Morgunblaðið/Jim Smart
BJÖRGVIN og Gunnar Smári
Helgason tæknimaður við
upptökur í Stúdíúi Sýrlandi á
dögunum.
sviði hér á landi og heildaryfirbragð
disksins er því mjög vandað.
Upptökur hafa farið fram í hljóð-
verum hér heima og í Bandaríkjun-
um en auk þess verður tekið upp í
nokkrum kirkjum á höfuðborgar-
svæðinu, að sögn Björgvins.
Enn er ekki búið að ákveða út-
gáfudag en Björgvin segir að innan
tíðar muni diskurinn koma í versl-
anir svo unnendur íslenskrar dæg-
urtónlistar geta bætt fjórða Is-
landslagadisknum í safnið fljótlega.
Hátalaramorð og snilld
HIMIST
Geisladiskur
REDUCE BY REDUCING
Reduce By Reducing, geisladiskur
Stilluppsteypu. Stilluppsteypu skipa
Sigtryggur B. Sigmarsson, Heimir
Björgúlfsson og Helgi Þúrsson. Disk-
urinn er tekinn upp haustið ‘97 og
vorið ‘98 og masteraður í STEIM
haustið ‘98. FIRE.inc. og SOME gefa
út, Staalplaat framleiðir og dreifir.
45 mínútur.
STRÁKARNIR í Stilluppsteypu
hafa verið að búa til einkennileg
hljóð fyrir þá sem þeir vilja að
heyri þau í sjö ár. Þeir búa núna í
Amsterdam og Hannover og hafa
sjaldan verið meira á iði. Á síðasta
ári komu frá þeim þrír geisladiskar
og ein tólf tomma, þar á meðal
diskurinn Reduce by Reducing
sem inniheldur þrjú ný lög sem
ekki voru á samnefndri tólf tommu
ásamt endurhljóðblöndun hins jap-
anska Ryoji Ikeda á Moeder in dé
Wolken. Strákarnir eru nýkomnir
frá Bandaríkjunum þar sem þeir
héldu nokkra tónleika, meðal ann-
ars á The Cooler í New York og
eru nú að ljúka upptökum á nýjum
mínídiski sem þeir hafa verið að
vinna í STEIM hljóðverinu í Am-
sterdam. Þeir koma líklega til
landsins í haust og þá aldrei að vita
nema þeir komi til með að rugla
eitthvað í eyrunum á okkur Islend-
ingum eins og þeir gerðu svo vel í
Tjarnarbíói síðasta haust.
Reduce by Reducing hefst á lag-
inu Please Explain! sem er
taktlúpa sem breytir um áferð og
styrk og rúllar þannig í níu mínút-
ur, þá taka við lág- og hástemmd
hljóð sem maður má hafa sig allan
við til að heyra. Á eðlilegum stofu-
hljóðstyrk þarf maður að horfa á
tölurnar á skjá geislaspilarans til
að fullvissa sig um að það sé örugg-
lega eitthvað í gangi. Mínir hátal-
arar, sem eru reyndar hálfslappir,
vældu af ofreynslu þegar lágtíðni-
flóð þriðja lags svo skall á þeim,
enda hafði ég hækkað fram úr hófi
til að heyra eitthvað þarna í byrj-
un. En þetta er flott! Þetta er plata
sem ég er búin að renna óhemju oft
í gegn og ég er alltaf að upplifa ný
hljóð eða breytingar á líkamsstarf-
seminni af völdum tíðnisveifla. Það
var gaman að heyra Ryoji Ikeda
eiga við tónlist Stilluppsteypu og
greinilega hjónaband frá himnaríki
þar á ferð. Það hefði reyndar verið
spennandi að heyra líka uppruna-
legu útgáfuna af Moeder in de
Wolken svo maður sæi andlitslyft-
inguna fyrir og eftir meðferð
Ikeda.
Það er jafn hættulegt að reyna
að lýsa eða skilgreina tónlist Still-
uppsteypu fyrir óbreyttum leik-
mönnum eins og að lýsa lyktinni af
viskíi íyrir manneskju sem aldrei
hefur fundið lykt. Það er því aðeins
einn kostur íyrir áhugasama og
hann er að smella sér á eitt stykki
Reduce by Reducing og fá sumar-
leyfi í tíðniparadís í kaupbæti.
Eg myndi vilja heyra þessa plötu
á skelfilega háum styrk í tíu sinn-
um betri hátölurum en mínum og
renna niður einum köldum um leið.
Þá íyrst held ég að bifhárin í eyr-
unum myndu beygja sig.
Kristín Björk Kristjánsdóttir